Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 64
64 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Jarðarfarir Jón Jóhann Katarínusson, Stiga- hlíð 20, lést á Hvítabandinu 11. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 21. desember, kl. 13.30. Útfor Þuríðar Guðnadóttur, fyrrum ljósmóður á Akranesi, verður frá Seljakirkju í Breiðholti í dag, 21. des- ember, kl. 13.30. Útför Þórðar Guðjóns Sigurðsson- ar, Rauðarárstíg 11, hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórlaug Marsibil Sigurðardóttir, Hátúni lOa, Reykjavík, sem andaðist 14. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 21. desember, kl. 15. Snorri Þór Þorsteinsson bifreiða- stjóri, Tryggvagötu 32, Selfossi, andaðist í Landakotsspítala 7. des- ember. Útförin hefur farið fram. Sigríður Erla Eiriksdóttir, sem and- aðist þann 14. desember, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðju- daginn 22. desember kl. 13.30. Björn Ólafsson matreiðslumaður, Skólabraut 21, Seltjamamesi, verður jarðsunginn þriðjudaginn 22. des- ember kl. 15 frá Fossvogskirkju. Jóna Oddný Halldórsdóttir verður jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós þriðjudaginn 22. desember kl. 14. Guðmundur Sk. Guðlaugsson, fyrrv. forstjóri, Hvassaleiti 8, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 22. desember kl. 16.30. Egill Fr. Hallgrímsson, fyrrverandi verksfjóri, Bragagötu 38, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 22. des. kl. 13.30. Tryggvi Jónsson lést 11. desember sl. Hann var fæddur á Drangsnesi við Steingrímsfjörð þann 14. sept- ember 1914. Foreldrar hans vom Jón Brynjólfsson og Lovísa Jónsdóttir. Árið 1951 stofnaði Tryggvi fyrirtækið Kjöt og rengi hf. ásamt Amljóti Guö- mundssyni og ári síðar ORA hf. með Arnljóti og Magnúsi J. Brynjólfs- syni. Síöan mnnu þessi fyrirtæki saman í eitt, ORA - Kjöt og rengi hf., og varð Tryggvi strax forstjóri fyrirtækisins. Eftirlifandi eiginkona hans er Kristín Magnúsdóttir. Þau hjónin eignuðust tvö börn. Útfór Tryggva verður gerð frá Dómkirkj- unni í dag kl. 13.30. Tilkyimingar Rokkbúðin Þrek heitir ný hljóðfæraverslun sem hefur verið opnuð að Grettisgötu 46 í Reykja- vík. Rokkbúðin býður upp á umboðssölu fyrir notuð hljóðfæri ásamt nýjum hljóð- færum og fylgihlutum. Söngkerfisleiga verður á staðnum. Eigendur verslunar- innar eru Jósep Sigurðsson og Þórður Bogason. Gjafakort á Don Giovanni íslenska óperan hefur hafið sölu á gjafa- kortum á Don Giovanni eftir W.A. Mozart. Frumsýnt verður 19. febrúar nk. Hljómsveitarstjóri er Anthony Hose, leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir. Leik- mynda- og.búningahönnun er í höndum Unu Collins og lýsingu annast þeir Sveinn Benediktsson og Bjöm B. Guð- mundsson. í helstu hlutverkum eru Kristinn Sigmundsson, Bergþór Pálsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Gunnar Guð- bjömsson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Sigríð- ur Gröndal og Viðar Gunnarsson. Gjafakortin em til sölu í íslensku óper- unni og einnig á eftirtöldum stöðum: Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18, Bókabúð Máls og menn- ingar, Laugavegi 18, Bókaverslun ísafold- ar, Austurstræti 10, Bókaverslun Snæbjamar, Hafnarstræti 4, ístóni hf, Freyjugötu 1, Fálkanum, Suðurlands- braut 8 og hjá Hinu íslenska bókmennta- félagi, Þingholtsstræti 3. Skák DV Æsispennandi úrslitaskák í heimsmeistaraeinvíginu: Kasparov varði tftilinn vann síðustu einvígisskákina í 64 leikjum Garrí Kasparov og Anatoly Karpov ræða möguleikana að lokinni 24. einvígisskákinni í Sevilla. Kasparov vann eftir miklar sviptingar og náði þar með að verja heimsmeistaratitilinn. Heimsmeistaranum Garrí Ka- sparov tókst að rífa sig upp eftir tapið í næstsíðustu einvígisskák- inni í SeviUa. Lokaskák einvígisins tefldi hann óaðfinnanlega og knúði Karpov til uppgjafar í 64 leikjum. Er skákin fór í bið, eftir 41 leik, hafði Kasparov peði meira en stór- meistara greindi á um hve vinn- ingslíkur hans væru miklar. Það var ekki fyrr en eftir 57 leiki sem áhorfendur skyujuðu að hann væri að vinna. Karpov hugsaði sig þá um í 40 mínútur og fann enga við- unandi vöm. Einvíginu lauk með jafntefli, 12-12, sem nægir Kasparov til að halda titlinum. Mikið jafnræði var með þeim félögum og skiptust þeir á um að hafa forystuna. Undir lok- in virtist Kasparov hins vegar standa með páimann í höndunum, þar til hann tapaði 16. skákinni. Þá var eins og hann væri að bugast. í næstu skákum tefldi hann augljós- lega til jafnteflis og er hann svo tapaði 23. skákinni töldu flestir Karpov öruggan með sigur. Þetta er í fyrsta skipti í sögu heimsmeistarakeppninnar að skákmeistara tekst að snúa ein- víginu sér í vil með því að vinna síðustu skákina. Þetta var æsi- spennandi skák og ekki spillti hrikalegt tímahrak Karpovs undir lok fyrstu setu fyrir spennunni. Spænska sjónvarpið sýndi beint frá einvíginu í fimm stundir á fóstu- dag. Skákhstin á nú miklum vinsældum að fagna á Spáni og örlagarík átök meistaranna í síð- ustu skákunum tveim auka skák- áhuga eflaust um heim allan. Að skákinni lokinni sátu kapp- arnir við borðið og ræddu mögu- leikana. Karpov tók tapinu íþróttamannslega, enda getur það varla talist afhroð að tapa heims- meistaratitli á jöfnu. Áhorfendur létu mjög í sér heyra og fógnuðu köppunum ákaft. „Garrí, Garrí," var hrópað og er Campomanes, for- seti FIDE, birtist á sviðinu var hann púaöur niður í tvígang. Grunnt er á því góða milli hans og heimsmeistarans. Kasparov fær 1,75 milljónir svissnenskra franka að launum fyrir sigurinn, eða tæpar 50 millj- ónir íslenskra króna. Hann heldur heimsmeistaratitlinum næstu þrjú árin en Karpov verður að láta sér lynda að bætast í hóp sigurvegar- anna úr áskorendaeinvígunum í Kanada, þar sem Jóhann teflir við Kortsnoj. Þar er teflt um réttinn til að skora á heimsmeistarann Ka- sparov eftir þrjú ár. Flestir búast við því að Karpóv muni enn mæta Kasparov að þeim tíma liðnum. Þeir hafa nú teflt 120 einvígisskákir innbyrðis og staðan er 601/2-5914, Kasparov í-vil. Þannig tefldist 24. og síðasta skák einvígisins í Sevilla frá því hún fór í bið á föstudag: Hvítur hefur bersýnilega tals- verðar vinningslíkur en hve miklar? Þetta er spurningin sem brann á vörum skákunnenda frá fóstudagskvöldi og fram á laugar- dag. Sumir sögðu helmingslíkur en aðrir tóku dýpra í árinni. Haft var eftir einum stuðningsmanni Ka- sparovs að staðan væri nálægt því að vera unnin - sigurlíkur allt að 90%. Miðað viö framhald skákar- innar má búast við að sannleikur- inn liggi nær seinni tölunni. 42. Kg2 g6 Þetta er áreiðanlega besta varn- arleiðin. Með peðastöðuna Skák Jón L. Árnason óhreyfða kæmist svartur fyrr en síðar í þrot. Hvítur myndi sækja fram með peðum sínum, koma mönnum sínum haganlega fyrir og brjótast svo í gegn. 43. Da5 Dg7 44. Dc5 Df7 45. h4 h5 Hindrar h4-h5 í eitt skipti fyrir öll. Peðsleikir Karpovs liafa þó þann augljósa annmarka aö biskup hvíts getur nú ógnað þeim. Þvi verður erfiðara fyrir Karpov að tefla endataflið ef uppskipti yrðu á drottningum. 46. Dc6 De7 47. Bd3 Df7 48. Dd6 Kg7 49. e4 Kg8 50. Bc4 Kg7 51. De5+ Kg8 52. Dd6 Kg7 53. Bb5! Kg8 54. Bc6 Nú er ljóst hvað fyrir hvítum vakir. Hann ætlar sér að leika 55. Db8 og síðan 56. Db7 og bjóða drottningakaup eða þrengja enn meir að svörtum ella. Karpov reyn- ir að hindra þetta með næsta leik en án árangurs. 54. - Da7 55. Db4! Dc7 56. Db7 Dd8(?) í raun var svartur knúinn til drottningakaupa. Eftir 56. - Dxb7 57. Bxb7 Rd7 sleppur riddarinn út. Það er hins vegar ljóst að hvítur á frábæra vinningsmöguleika í þessu endatafli, ef ekki unnið tafl. Því hyggst Karpov freista þess að veij- ast með drottningamar inni á borðinu en nú verður hann mót- spilslaus. 57. e5! Karpov er í leikþröng. Eftir 57. - Kh8 væri 58. Df7 afar óþægilegt og 57. - Rh7 ýrði svarað með 58. Dd7 Dxd7 59. Bxd7. Þessa stöðu ætti hvítur að vinna létt því að riddari svarts er lokaður inni. Peð hvíts halda honum frá g5 og f6 og biskup- inn valdar þriðju undankomuleið- ina, d7-reitinn. Svartur þolir ekki að tefla peðsendatafl og getur því ekki sett riddarann á d7 í kóngs- valdi. Hvítur myndi sækja fram með kóng simi án þess aö svartur fengi neitt að gert. Eftir fjörtíu mínútna umhugsun tók Karpov þann kostinn að leika drottningunni en þá missir hann vald af mikilvægum reit í herbúð- unum. 57. - Da5 58. Be8! Dc5 Hvítur hótaði 59. Df7+ og vinna riddarann. 59. Dn+ Kh8 60. Ba4! Enn er Karpov í leikþröng. Hvít- ur þarf aðeins að koma biskupnum á skálínuna bl-h7. Þá gæti svartur ekki varið g-peðið og myndi missa annað peð í leiðinni. 60. - Dd5+ 61. Kh2 Dc5 62. Bb3! Nákvæmast. Til að svara 62. - Rh7 með 63. Bxe6 - drottningin verður að valda f2. 62. - Dc8 63. Bdl Dc5 64. Kg2 - Og Karpov gafst upp. Hann get- ur ekki hindrað Bf3-e4 og peðin á kóngsvængnum yrðu dauöadæmd. -JLÁ Meiming Hátíð í bæ Kammersveit Reykjavíkur var með sína árlegu jólatónleika í Ás- kirkju í gær. Að þessu sinni voru fluttir ítalskir konsertar, eftir Vi- valdi, Tartini, Manfredini og Giuliani, þar af tveir eftir Vivaldi. Fyrst var gullfallegur konsert fyrir tvo trompeta og strengi eftir Vivaldi. Einleikarar voru þeir Lár- us Sveinsson og Ásgeir H. Sigur- grímsson og var leikur þeirra undur hreinn og sterkur. Sömu- leiðis var leikur Kammersveitar- innar (konsertmeistari: Hlíf Sigurjónsdóttir) hreinn og beinn í þessu verki en nokkuð skorti á fest- una í sumum öðrum verkanna á efnisskránni. Næst kom fagottkonsert, einnig eftir Vivaldi, og fór Rúnar H. Vil- bergsson með einleikshlutverkið. Leikur hans var mjög áferðarfall- egur og allt að því ljóðrænn en kannski einum of hógvær til að halda fullri athygh. En Rúnar er greinilega prýðishlásari. Og Laufey Siguðardóttir, sem lék einleik í þriðja konsertinum, fiðulukonsert eftir Tartini, er einnig ljómandi Tónlist Leifur Þórarinsson hljóðfæraleikari. Samt var leikur hennar ekki alveg í „fókus“ að þessu sinni, hvort sem um er að kenna æfmgarleysi eða öðru. Reyndar grunar mig að Kammer- sveitin hafi ekki gefið sér eins mikinn tíma fyrir þessa tónleika og oft áður og er það vissulega miður því maður gerir óneitanlega æ meiri kröfur til hennar. Fjórði einleikskonsertinn var svo fyrir gítar og strengi eftir M. Giul- iani sem var reyndar samtímamað- ur Beethovens en greinilega ahnn Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur. upp í annarri sveit. Arnaldur Am- arsson lék á gítarinn en hann er einn af okkar bestu gítarleikumm og bregst aldrei. í lokin var svo Concerto grosso í C dúr, „Jólakon- sert“ og þar meö hátíð í bæ svo um munaöi. Gleðileg jól. LÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.