Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. 35 DV Monaco með örugga fovystu Síðasta umferðln í frönsku 1. deildinni í knattspymu fyrir vetrarfrí var leikin um helg- ina. ' Franskir knattspyrnumenn taka skóna fram að nýju að loknu fríinu 20. febrúar. • Monaco sem hefur verið með forystu í 1. deildinni í allan vetur hélt áfram sigurgöngu sinni um helgina er liðiö sigraði Paris Saiht Germain, 2-1, á heimavelli. Óvæntustu úrsMn urðu í leik Brest og Marseille en Brest gerði sér lítið fyrir og sigraði, 2-1. Þetta var fimmti sigur liösins í vetur en liðiö hefur hins vegar tapað í þrettán leikjum. • Úrslit í leikjúnum urðu þessi: Bordeaux-MontpéUier.1-0 Brest-Marseille......2-1 Cannes-Toulouse......l-l Laval-Auxerre........0-0 Iille-Lens...........1-1 Racing Paris-Metz....2-0 Nantes-Nice..........0-1 Saint-Etienne-Niort..2-0 Toulon-Le Havre......3-0 Monaco-PSGermain.....2-1 • Eftir 24 umferðir er Monaco efst meö 35 stig. Bordeaux og Matra Racing Paris eru jöfn í öðru til þriðja sæti með 32 stig. Saint Etienne er í fjóröa sæti með 28 stig og Auxerre er í • fimmta sæti með 27 stig. JKS ....................... Hver er þessi Bomba? Það er óhætt að segja að fáir íþróttamenn hafa vakið jafn mikla athygli siöustu vikumar og ítalinn Alberto Tomba. Hann er nefndur „Bornban" í heima- landi sínu vegna þeirrar sprengingar sem uppgangur hans hefur valdið í skíðaheim- inum. Tomba er aðeins 21 árs gam- all, átti raunar afmæli á laugar- dag og hugðist færa sjálfum sér sigurlaun af því tilefni en annað kom á daginn eins og sjá má annars staöar á síðunni. Eins og aldur ítalans gefur ótvirætt til kynna vissi hann vart hvað snéri fram eða aftur á skíðum þegar Ingemar Stenmark hóf að renna með þeim hætti sem nú er frægt orð- ið. Þess má geta að Tomba er lög- reglumaöur að aðalstarfi en sinnir skíðunum í hjáverkum. íþróttir Þessir kappar komust allir á pall í heimsbikarmóti nú um helgina. Pirmin Zurbriggen, rásnúm- er 14, sýndi loks lit og hreppti silfur. Simamynd Reuter Skíðastökk Finnski gullkálfurinn kominn á sigurbraut - Matti Nykanen vann í Sapporo í Japan Finnska stórstimið Matti Nykanen vann yfirburðasigur í skíðastökki á laugardag. Var keppt á ólympíupall- inum í Sapporo í Japan og aðeins eitt stökk látið ráða. Það seinna féll niður vegna veðurs. Stökk Nykanen í Japan mældist 91,5 metrar og þótti stíll hans glæsi- legur að vanda - fékk 113,4 stig fyrir tilþrifin. Nykanen þótti þó ekki mik- ið til síns hlutar koma: „Þetta var hreint ekkert sérstakt stökk. Það var bæði of mikill snjór og vindur,“ sagði hann í spjalli við heimspressuna. Með þessu stökki Nykanen dró heldur betur saman með honum og Tékkanum Pavel Bloc. Sá hefur for- ystuna í stigakeppni heimsbikarsins, er með 80 stig en Finninn er með 75. Bloc olli miklum vonbrigðum á laug- ardag, varð þá átjándi, stökk aðeins 78 metra. Næstm- Nykanen á laugar- dag kom hins vegar Austurríkismað- urinn Werner Schuster, stökk 85 metra slétta og hlaut 99,8 stig fyrir þann árangur. Bronsið hreppti Tékk- inn Martin Svagerko, stökk 83,5 metra og hlaut fyrir bragðið 96,1 stig. -JÖG AJpagreinar: Staðan í heims- bikamum flokkur 1. Albert Tomba (ÍTA).125 2. Pirmin Zurbriggen (SVI) ...,91 3. GuntherMader(AUS)....45 4. HubertStrolz(AUS)....„42 5. RudolfNierlich(AUS)..40 6. HelmutMayer(AUS)......37 7. IngemarStenmark(SVÍ)..,.36 8. RobBoyd(KAN).........36 9. RichardPramotton(ÍTA)...36 10. Frank Wörndl (V-ÞÝ) 32 Kvenna- flokkur í kvennaflokki er Figini efst með 92 stig, á hælum hennar er Femandez Ochoa með 75 stig. Wachter kemur síðan í þriðja sæti meö 70 stig. -JÖG Tomba „bomba“ hreppti gullið rétt eina ferðina - vann í svigi á sunnudag ítahnn Tomba náöi ekki settu marki á laugardag en hann hugðist vinna sinn fimmta skíðasigur í röð í heimsbikarnum. Féll hann úr keppni í stórsviginu í fyrstu umferð, fór Bráútina geysilega vel en sleppti hlið- um í lokin og féll úr í kjölfarið. „Heimurinn er ekki að farast“ „Heimurinn er ekki að farast," sagði Tomba eftir ferð sína, „ég vinn í staðinn í sviginu á sunnudag.“ Og það voru orð að sönnu. Tomba sigraði nefnilega með glæsibrag. Raunar varö tvöfaldur ítalskur sigur því Richard Pramotton varð annar, rúmri hálfri sekúndu á eftir landa sínum. Mót helgarinnar í karlaflokki fóru annars fram í Kranjska Gora í Júgó- slavíu. Úrsht í stórsviginu vöktu einna mesta athygli ef frá er tahnn fimmti sigur „bombunnar". Óþekkt- ur skíðamaður hreppti nefnilega guhið í þeirri grein. Helmut Mayer frá Austurríki vann sinn fyrsta sigur á ferlinum, var eini maðurinn sem fann rétta svarið við brautinni á laugardeginum. Keyrði þá geysilega vel í báðum ferðum. Þá varð svissneski guhdrengurinn Pirmin Zurbriggen annar. Rétti loks- ins úr kútnum eftir rysjótt gengi það sem af er skíðaárinu. Þess má th gamans geta að gamh jaxlinn Inge- mar Stenmark varð niundi í stórsvig- inu. Er hann enn í fremstu röð þrátt fyrir spádóma um annað snemma hausts. Virðist Svíinn ódrepandi, á enda að baki einhvem glæsilegasta feril skíðamanns í sögunni. „í dag ræftist draumur" „í dag rættist draumur." Þetta sagöi hin 27 ára gamla v- þýska stúlka Christa Kinshofer Götlein en hún vann gull á laugar- dag, sitt fyrsta í heimsbikamum á ferlinum. Varð hún fyrst í svigi kvenna í Piancvallo á Ítalíu, tæpri hálfri sekúndu á undan næstu stúlku. Sú var Patricia Chauvet frá Frakk- landi. Þriðja sætið féh hins vegar í hlut Veroniku Sarec frá Júgóslavíu. Annars vakti veðrið einna mesta athygli í skíðakeppni kvenná, skyggni var með eindæmum slæmt, sá varla út úr augum vegna þoku. Fæst í nýrri fatadeild í SS-búðinni Glæsibæ. Barna skíðagallar. Efni: bómull/ polyester Ijósblár/dökk- blár hvltur/ Ijósgrænn. Stærðir: 3-6 ára. Verð: nii Ódý aður r pgva naður fa 1.966.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.