Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 28
28
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Fréttir
Fangelsi á Ártúnshöfða:
Grannurinn geymdur
- óvíst hvort fangelsið verður byggt
Grunnur fangelsisins við Tungu-
háls í Reykjavík, sem byrjað var
að byggja 1978, hefur staðið
óhreyfður í næstum áratug og
verður áfram óhreyfður á næs-
tunni. Skortur á íjárveitingum
hefur hamlað framkvæmdum ahan
tímann.
Jón Sigurðsson dómsmálaráö-
herra sagði í samtali við DV að
hann vildi endurskoða byggingará-
formin á þeim forsendum að líklega
væri fangelsið orðið úrelt að því er
varðar afplánunarfanga en fang-
elsinu var upphaflega ætlað að
leysa af hólmi Síðumúlafangelsið
og Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg. Telur dómsmálaráð-
herra vænlegra að snúa sér fyrst
að smærri lagfæringum annars
staðar í kerfinu. Endanleg ákvörð-
un um afdrif grunnsins hefur ekki
verið tekin en hann verður geymd-
ur enn um sinn. Ef fangelsið verður
ekki byggt verður grunnurinn
sennilega seldur og þar byggt ann-
að hús að sögn dómsmálaráðherra.
-JBj
Grunnur fangelsisins við Tunguháls í Reykjavík hefur staðið óhreyfður í næstum áratug.
Forgangsverkefni í fangelsismálum í stjómarfrumvarpi:
Sérfangelsi fyrir
gæsluvarðhaldsfanga
Jón Sigurðsson dómsmálaráð-
herra hyggst innan skamms leggja
fram á Alþingi nýtt frumvarp til
laga þar sem kynnt verður ný
stefna í fangelsismálum. í frum-
varpinu verða tiilögur um breytt
skipulag fangelsismála - bæði yfir-
stjórn og innra skipulag.
Dómsmálaráðherra hefur einnig
sett upp 5 forgangsverkefni í fang-
elsismálum landsins sem sum hver
munu koma inn í frumvarpið.
Þar skal fyrst nefnt nýtt kvenna-
fangelsi í Kópavogi sem tekur til
starfa á næsta ári. Þá hyggst ráð-
herra koma upp deildaskiptingu á
Litla-Hrauni sem gæti gert það að
verkum að t.d. siafbrotamenn og
eiturlyfjasjúklingar yrðu einangr-
aðir frá öðrum fóngum sem teljast
á betrunarvegi. Einnig verður
vinnuaðstaða fanga og starfs-
manna bætt.
Nýtt gæsluvarðhaldsfangelsi í
Reykjavík er einnig meðal for-
gangsverkefna, auk þess sem
viöhaldsþörf Hegningarhússins á
Skólavörðustíg verður könnuð á
komandi ári. Þá leggur ráðherra til
að ríkið kaupi jörðina að Kvía-
bryggju þar sem nú er fangelsi.
Auk þess hefur dómsnlálaráð-
herra skipað nefnd sem mun kanna
möguleika á að koma á ólaunaðri
vinnu í þágu samfélagsins í stað
fangavistar í vissum tilfellum. -JBj
Kvenna-
fangelsi í
notkun
næsta ár
Nýtt kvennafangelsi verður tekið
í notkun snemma á næsta ári og
verður það við Kópavogsbraut 17 í
Kópavogi þar sem Unglingaheimili
ríkisins er nú til húsa.
Jón Sigurðsson dómsmálaráð-
herra sagði í samtali við DV að
fangelsið muni rúma 10 til 12 fanga
en til samanburðar mætti nefna að
nú væru tvær konur í fangelsi hér
á landi en flestar urðu þær fimm á
þessu ári. Tilfinnanlegum skorti á
fangelsisrými fyrir konur er því
aflétt með tilkomu nýja kvenna-
fangelsisins. Undanfarin ár hafa
kvenfangar verið vistaðir við ófuU-
nægjandi skilyrði í Bitru í Hraun-
gerðishreppi og Hegningarhúsinu
við Skólavörðustig.
Á fjárlögum næsta árs er fjárveit-
ing sem hljóðar upp á 15,8 milljónir
króna til reksturs fangelsisins og
nauðsynlegra breytinga á hús-
næðinu svo það geti þjónað sínu
hlutverki. -JBj
Samfélags-
þjónusta í stað
fangavistar
Jón Sigurðsson dómsmálaráð-
herra skipaði fyrir nokkru nefnd
sem mun kanna hvort ólaunuð
vinna í þágu samfélagsins geti
komiö til greina sem refsiúrræði í
stað fangavistar í framtíðinni.
Jón sagði í samtali við DV að
dæmi væru um slíkar refsiaðferðir
í sumum nágrannalanda okkar, s.s.
Noregi, Danmörku og Bretlandi.
„Sem dæmi má nefna aö hugsan-
legt væri við okkar aðstæður að
beita þessari refsiaðferð við menn
sem gerast brotlegir við lögin
vegna áfengissýki og yrðu þeir þá
skyldaðir til að fara í meðferð sam-
tímis. En öll rök sem mæla með og
á móti þessari aðferð verða skoðuð
vandlega áður en nokkrar ákvarð-
anir verða teknar“ sagði ráðherra
að lokum.
-JBj
Upptökuheimilið í Kópavogi verður gert að kvennatangelsi.