Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 69

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 69
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. DV Ólyginn sagði... Burt Lancaster einn afkastamesti leikarinn í Hollywood, er orðinn 74 ára gamall. Hann lætur há- an aldur ekki hindra sig í ástamálunum enda er hann í fullu fjöri. Hann var giftur sömu konunni í 32 ár en þau skildu árið 1969. Þá fór hann að vera með einni sem var tuttugu árum yngri. Nú er hann búinn að losa sig við hana og búinn að fá sér eina 35 ára sem heitir Susan Scherer og er aðeins 39 árum yngri en hann. Henrik prins eiginmaður Margrétar Danadrottningar, er tals- verður vandræðagepill. Hann hefur hvað eftir annað komið konungsfjölskyl- dunni í vandræði með athæfum sem ekki eru sam- boðin konungbornu fólki. Lögreglan hefur margoft tekið hann fyrir að keyra á ólöglegum hraða, nú síðast á 170 kílómetra hraða. Ef hann væri eins og við hin væri hann löngu búinn að missa prófið og sæti líklega inni fyrir öll þessi brot en hefur sloppið með áminn- ingar og sektir hingað til. MelissaGilbert sem lék Láru í þáttunum um Húsið á sléttunni, þessi með stóru framtennurnar, þykir ein glæsilegasta stjarnan í Hollywood nú. Hún hefur síðan árið 1981 verið í nán- um tengslum við hjarta- knúsarann Rob Lowe, en þegar hún fór að tala um brúðkaup lét hann sig hverfa. Melissa lýsti því yfir nýlega að Rob væri hennar eina stóra ást og hún vildi engan annan en hann. Rob Lowe hefur samt ekki látið sér segjast. Sviðsljós Hérna eru „rónarnir“ tveir, Faye Dunaway og Mickey Rourke, ásamt höfundi bókarinnar sem myndin Barfly er byggð á. Vandlátari nú en áður Fremur hljótt hefur verið um leik- konuna Faye Dunaway síöustu sjö árin. Á þeim tíma flutti hún aðsetur sitt til Englands og bjó þar með ljós- myndaranum Terry O’Neill. Nú hefur Faye gengið í gegn um sárs- aukafullan skilnað við hann og ætlar sér stóra hluti í kvikmyndum á ný. Hún tók að sér hlutverk á móti einni skærustu stjörnu Hollywood nú um þessar mundir, Mickey Rourke. Hlutverk þeirra eru frekar óvenjuleg því að þau leika bæði róna sem eru hálfpartinn í strætinu. Myndin er byggð á ævisögu Charles Bukowski. Faye heldur því fram aö það hafi verið þess virði að leika þetta hlut- verk og myndin fær alla vega góða dóma vestanhafs. Faye Dunaway fékk á sínum tíma óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina Network en er ekki síöur fræg fyrir hlutverk sín í myndunum Bonnie og Clyde, Chinatown og The eyes of Laura Mars. Hún hefur einnig leikið í mörgum myndum sem þóttu mis- heppnaðar eins og The Wicked Lady og Supergirl. Faye Dunaway segist nú ætla að aöeins að taka við hlutverkum sem hafa upp á eitthvað að bjóða hvað metnað varðar og er myndin Barfly ágætisbyrjun á þeim ferli. Krakkarnir jafnt sem fullorðna fólkið kunnu vel að meta það sem hljómsveitin Boney M. bauð þeim upp á. Mynd-GVA „Bnín stúlka Hljómsveitin Boney M. frá Vest- út af. í vor á þessu ári var þessi ur-Þýskalandi var mjög vinsæl á vinsæla hljómsveit lífguð við og árunum 1975-81, en síðan karl- hefur farið í hljómleikatúra víða söngvari sveitarinnar, Bob Farrell, um lönd. hvarf af vettvangi, lognaðist hún Boney M. náði gífurlegum vin- í hringnum“ sældum á sínum tíma með lögum eins og Ma Baker og Brown girl in the Ring svo einhver séu nefnd. Hljómsveitin söng þessi lög á skemmtistaðnum -Evrópu fyrir stuttu og einnig síðar með íslensk- um skemmtikröftum á jólahátíð í Háskólabiói fyrir ungu kynslóðina þar sem þessi mynd var tekin. Breyttur og nýr Nú dugir ekki lengur að greiða sig á gamla mátann eins og Díana gerði hér áður því hún virðist vera búin að breyta um stíl. Nú sést mun stærri hluti andlitsins og hárið tekið saman að aftan á frekar óvenjulegan máta. Nú er aldeilis að hafa snör handtök og breyta um stíl en ekki er víst aö stíll allir hafi ráð á demantshálsskraut- inu sem fylgir með hjá Díönu. Þessa nýju greiðslu sýndi Díana fyrir nokkrum dögum í konunglega óperuhúsinu í London á sýningu um ævintýrið um Öskubusku. Sýningin var haldin til styrktar lungnasjúkl- ingum í Bretlandi. Diana sýndi nýja ifnu i hárgreiðslu fyrlr nokkrum dögum. Simamynd Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.