Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 22
22
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORG AR
Starf yfirmanns fjármála- og rekstrardeildar Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar er laust til umsóknar. Viðskipta-
fræðimenntun áskilin.
Upplýsingar veitir félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar í síma
25500.
Umsóknir á þartilgerðum eyðublöðum sendist starfsmanna-
haldi Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir 5. janúar nk.
Gott verð á góðum bíl
BX 16TRS Citroen 1984, ekinn 78.000 km.
Verð 400.000 kr.
Ghbusn
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
VINNUFATABÚÐIN
Laugavegi 76, Hverfisgötu 26
PILOT LEÐURJAKKAR
NÝKOMIÐ
Fréttir
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Þorskaflinn kominn
í 358 þúsund lestir
Fyrstu 11 mánuði ársins voru
veiddar 358 þúsund lestir af þorski
sem er 27 þúsund lestum meira en
var á sama tíma í fyrra. Því hefur
verið spáð að þorskaflinn fari í 390
þúsund lestir og er alls ekki útilok-
að að sú spá rætist. Hafrannsókn-
arstofnun lagði til að ekki yrðu
veiddar fiema 300 þúsund lestir af
þorski í ár.
Heildaraflinn fyrstu 11 mánuðina
er heldur minni en var í fyrra eða
1.401.260 lestir á móti 1.476.853 í
fyrra. Munurinn liggur allur í
minni loðnuveiði og hörpudis-
kveiði. Nú hafa veiðst 670 þúsund
lestir af loðnu á móti 798 þúsund
lestum á sama tíma í fyrra. Veiddar
hafa verið 11.344 lestir af hörpu-
diski en í fyrra 13.276 lestir.
í ár hefur verið veitt meira af öll-
um fisktegundum nema þessum
tveimur, en var fyrstu 11 mánuðina
í fyrra.
I nóvember var togaraaflinn mun
minni í ár en í fyrra og kemur það
heim og saman við þá ördeyðu sem
sjómenn segja nú vera á miðunum.
Heildarbotnfiskafli togaranna í
nóvember varð 23.857 lestir en var
í fyrra 26.604 lestir. Nú veiddust
12.314 lestir af þorski en í fyrra 17.
868 lestir. -S.dór
Hlutur smábáta í heildar-
aflanum hefur minnkað í ár
í bréfi, sem Landssamband smá-
bátaeigenda hefur sent frá sér
varðandi þeirra hlut í kvótafrum-
varpinu, segir að hlutur smábáta í
heildar botnfisk- og flatfiskaflanum
hafi minnkað í ár um 0,28% ef mið-
að er við árið 1986. Árið 1985 var
aíli smábáta 28.085 lestir eða 4,80%
af heildaraflanum í botn- og flat-
fiski. Árið 1986 var afliþeirra 36.648
lestir eöa 5,80% en í ár er hann
37.410 lestir en það er 5,52% af
heildaraflanum.
Heildaraflinn var árið 1986 varð
632.283 lestir en árið 1987 verður
hann 677.301 lest. Þessir útreiking-
ar hafa verið gerðir á skrifstofu
Landssambands smábátaeigenda
og eru þeir gerðir eftir gögnum frá
Fiskifélagi íslands. Varðandi árið í
ár er stuðst við aflatölur fyrstu 10
mánaða ársins og þær framreikn-
aðar til áramóta.
í bréfinu er greint frá því að fjölg-
un smábáta milli áranna 1986 og
1987 sé um 250 bátar. Þrátt fyrir
þessa fjölgun eykst hlutur þeirra í
heildaraflanum á botn- og flatfiski
ekki. Fullyrt er í bréfinu að fjölgun
smábátanna sé yfirgnæfandi í svo-
kölluðum „sunnudagsbátum," sem
komi fiskveiðum sáralítið við.
-S.dór
bveinberg Laxdal tekur upp kartóflur I veðurbliðunnl 12 dögum fyrir |ól.
DV-mynd: GK, Akureyri
Eyjafjörður:
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sveinberg Laxdal og fjölskylda
hans að Túnsbergi í Eyjaflrði munu
hafa nýuppteknar kartöflur með
jólasteikinni þótt sllkt tíðkist ekki að
öllu jöfnu eins og gefur að skilja.
„Við áttum eftir að taka upp úr
smáskika og kíktum á það núna og
það reyndist allt í lagi með kartöfl-
urnar,“ sagði Sveinberg er DV kom
við hjá honum um helgina. Ekki var
um mikið magn að ræða, einhver
hundruð kíló, en kartöflumar reynd-
ust vera í góðu lagi og sýnir þaö betur
en margt annað hvemig tíöarfar
menn í Eyjafirði hafa búið við í vetur.
„Ég man ekki eftir því að þetta
hafi gerst áður enda hefur tíðin verið
alveg einstök," sagði Sveinberg en
hann er með umsvifamestu kartöflu-
bændum í Eyjafirði.