Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 67
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Meiming 67 Skírlífi og vinnusemi Hatldór Laxness. Dagar hjá múnkum. Vaka-Helgafell 1987. Út er komin ný bók eftir Halldór Laxness nóbelsskáld. Inni í bókinni er önnur bók frá árinu 1923 eftir ungan mann sem haföi nýlega ákveðið að bæta Kiljan við nafn sitt og ganga í söfnuð kaþólskra, kannski að einhverju leyti í yfir- bótaskyni því að Kiljan þessi hafði nýlega fregnað að hann ætti lausa- leiksbarn í vændum, ávöxt verald- legra þanka og gáleysis - ef manni leyfist að raða saman þeim at-. burðum sem gamli maðurinn segir frá og setja þá í orsakasamhengi. Hér er. í fyrsta sinn birt dagbók Halldórs Kiljan Laxness frá fyrri dvöl hans með Benediktsmunkum í klaustrinu Saint Maurice í Clerv- aux í Lúxemborg. Utan um dag- bókina hefur Halldór Laxness tekið saman frásögn af lífi þessa unga manns, fyrir og eftir klausturvist- ina. Sú frásögn er byggð á bréfum skáldsins unga og ótraustu minni þess gamla sem segir þó að eftir lestur bréfanna hafi sumt orðið svo „ljóslifandi fyrir mér að engu var hkara en það heföi gerst í gær.“ Þarna er sagt meira en áður hefur komið fyrir sjónir almennings en lesandinn vill enn meira og hugsar með sér að nú sé kominn tími til að birta úrvalúr þeim bréfum sem skáldið vitnar til svo að hægt sé að komast milliliðalaust að unga manninum með trúgirnina, skálda- náttúruna og stóru hugsanirnar sem áttu eftir að breytast í Stein Elliða í Vefaranum mikla frá Kasmír. Lifað harðlífi Dagbókin segir frá átökum við munklífið, baráttu líkama og anda, satans og drottins, þess sem heimt- ar vellíðan strax og vill sofa út og hins sem kýs verðlaun síðar að verki loknu, ýmist í þessum heimi eða í félagi engla á himnum eftir ævilanga kvöl á jöröinni. Ungi maðurinn hefur það mark- mið hæst að vinna mikið, skrifa bækur og láta ekki undan freisting- um heimsins. Við fylgjumst með hvernig bókin Undir Helgahnúk kemst smám saman á pappírinn, á milli tíu og tuttugu síður á dag sem skáldinu þykja lítil aíköst og kvart- ar oft yfir að verkið gangi hægt. Stundum er það andlaust og ómögulegt en fyrir kemur að Kiljan hufur von um að það verði mikið listaverk. En hefði Kiljan sett punkt þarna - eins og vinur hans Bengt Balhn í klaustrinu sem veik- ist skyndilega og deyr - er óvíst að okkur hefði þótt mikið til bókar- innar koma. Þegar ungi Halldór leggur á sig harðlífið og lemur sjálf- an sig áfram til skrifta undir aga klaustursins er afraksturinn skáld- verkið Undir Helgahnúk sem veldur sosum engum hvörfum en visar fram á ýmsa ókomna snilld. En þegar hann hefur losað sig und- an harðlífi munkanna og hleypir átökunum upp á yfirborðið í stað þess að þegja þau í hel með bæna- þulu yfir talnabandi þá verður til sú glæsilega saga sem ásamt Bréfi til Láru markaöi upphaf íslenskra nútímabókmennta: Vefarinn mikli frá Kasmír. Má kannski nokkuð af því læra. Barist við vindmyllur Auk stríðsins við bókarskrifin er spaugilegt að fylgjast meö augngot- um þorpskvenna til skrýtna út- lendingsins úr klaustrinu. Samkvæmt frásögn dagbókarinnar Bókmenntir Gísli Sigurðsson og bréfum Kiljans frá þessum tíma hefur djöfullinn haft úti öll spjót að senda honum fagrar kónur og syndum spilltar. í kirkjunni æsa þær hann upp og á götunum leggja þær lykkju á leið sína til að gera sig til fyrir honum og fanga augna- ráð hans meö sínu. Hann má hafa sig allan við að lenda ekki í neti þeirra svo að lesanda dettur helst í hug að þarna gangi mikið kyn- tröll um götur. Enda þótt hægur vandi sé að brosa að áhyggjum unga mannsins kemur þarna vel fram sú afskræming mannlegs hfs sem kirkjuboðin kalla fram. Eðh- legustu hlutir vaxa um of og umbreytast í eitthvað djöfullegt sem menn berjast endalaust við eins og vindmyllur. Snobb og mikilmennskubrjálæöi virðast aftur hafa þrifist ágætlega um daga hjá múnkum. Kiljan litli verður foj við þegar Guðrún í Graf- arholti auðmýkir hann með því að biðja um grein í sveitarblaðiö Dag- renning í Mosfehssveit - sem hann „neitaði náttúrulega" - en þykir hins vegar ákaflega hreint mikið til þess koma að þekkja útlagaprins frá Portúgal og fá að sitja til borðs og sýna sig með frönskum prófess- or. „Meinlaust þvaður" í baráttunni við guðdóminn er veröldin aldrei langt undan. Kiljan sér aö löng grein hans um dásemd- ir kaþólskunnar er: „Meinlaust þvaður. Þaö er hægast að taka munninn fullan á meðal skoðana- bræðra sinna!“ Hann sveiflast til og frá, „á í geysilegum stríðum við hégómadýrkun", er stundum hreinn og „laus við allar girndir" en glímir þó alltaf við hugsanir „sem þvert ofaní vhja minn brjót- ast inní vitund mína.“ Og þegar hann biöur Guð „að hann gefi mér kraft til að færa mig að fóm. Að hann tortími því sem sjálfs mín er, en geri smæð mína aö íbúð anda síns“ þá er „voðalega sterk taug sem togar mig aftur hina leiðina." Guði sé lof að sú taug var nógu sterk! G.S. Er vegurinn hall? Vertu því viðbúin/n að vetrarlagi ^jumferoar Ódýri skómarkaðurinn Hverfisgötu 89 ÍSLENSKA SPÁDÓMSBÓKIN Frábær bók um SPILASPÁ, LÓFALESTUR og BOLLASPÁ. Fæst í öllum bókaverslunum og einnig póstsend í pöntunarsíma 62 34 33. Útgáfufélagið BR©S VÉLMENNI OG TÆKI 4 GERÐIR QUICK- \ SHOT LASER BYSSA FALLEGAR DÚKKUR Tónlistarbangsi LEIKFANGAVERSLI ÞINGHOLTSSTRÆTI 1 - MIBA SÍMI 24666
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.