Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 26
26 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Dægradvöl_______________________________d\ Allir í jólaskapi á litfu jólunum Þaö var sannarlega jólalegt i Laugarnesskóla á litlu jólunum og flestir þátttakendur i hátíðaskapi. Stórt jólatréð var glæsilega skreytt og á veggjum og handriðum voru teikningar og jólaskreytingar eftir núverandi og fyrrverandi nemendur skólans. DV-mynd KAE Það er ekki lengur um að villast. Jólin eru að koma! Fyrstu öruggu vísbendingarnar um að jólin séu í nánd eru yfirleitt jólasveinninn í glugga Rammagerð- arinnar og jólaauglýsing frá heild- versluninni Festi. Síðan fer vísbendingunum fjölgandi, mest þó í formi auglýsinga, jólatilboða og leikja auk þess sem jólahappdrættis- miðar streyma inn um bréfalúgurn- ar. Um leið og jóiaauglýsingar og gylliboð flæða inn í stofur almenn- ings á sér stað annað streymi og ekki eins ánægjulegt. Það er streymi fjár- magns úr bankabókum og ávísana- reikningum þessa sama almennings út á markaðinn. Ein er þó sú vísbending um að jólin séu alveg á næsta leiti sem ekki teng- ist fjárstreymi og gylliboðum. Það eru litlu jóiin, jólahátíðir barnaskól- anna. Þessar hátíðir eru einkar ánægjulegar þvi þar koma saman prúðbúnir og fallegir krakkar sem hlusta á skemmtiatriði eða taka jafn- vel þátt í þeim, dansa svo í kringum jólatré og syngja jólasöngva af hjart- ans innlifun. Og fullorðna fólkið, sem er viöstatt Utlu jóUn, en það færist í vöxt að foreldrar komi með börnun- um í skólann þessa daga, komast jafnvel í enn meira jólaskap en börn- in. Bæði er andrúmsloftið fyllt boðskap jólanna og einnig rifjast upp gamlar minningar. Þá bætir það enn á jólaskapið að þessar skemmtanir koma ekki svo mjög viö pyngju for- eldranna. Litlu jóUn rifja tU dæmis upp hjá foreldrunum jólailminn sem barst frá rauðu eplunum og yfirgnæfði jafnvel lyktina af ydduðum blýönt- um sem einkenndu skólabyggingar. Minningar um spennuna sem fylgdi því að telja jólakortin sem hver nem- andi fékk frá sínum skólasystkinum. Fjöldi jólakortanna gaf nefnilega ein- dregið til kynna hversu vinsæll maður var. Og kæmu mörg jólakort frá bekkjarsystkinum af gagnstæðu kyni eða jafnvel úr öðrum bekkjum var það mikiU sigur. SUkar og viðlíka hugrenningar má gjaman sjá endurspeglast í augum foreldranna þegar þeir fylgjast stoltir með afkvæmum sínum fyUast jóla- skapi. En þegar fer að líða á skemmtunina rifjast það einnig upp fyrir foreldrunum að tæpast hefst aö ná upp sama jólaskapinu hjá krökk- unum á sjálfum jólunum með einu epU og jólakortum. Þeim er því viss- ara að fara að huga að jólagjafainn- kaupum og um leið víkur tárvotur endurminningasvipurinn af andliti þeirra fyrir örvæntarglampa. En bara sem snöggvast því boðskapur jólanna er sterkur og fagur og hátíða- skapið nær aftur yfirhöndinni. -ATA Ofsalega gaman að leika í leikriti - sógðu Kristínn og Snorri sem léku hemtenn ,JÞað er ofsalega garaan aö leika Kristinn og Snorri voru nánast á í leikriti. En við kvíðum samt pínu- nálum á meðan þeir röbbuðu viö lítið fyrir að koma fram,“ sögðu DV því að þeir voru að bíöa eftir Kristinn Svanur Jónsson og Snorri því að verða kaUaðir inn á sviðið. Laxdal Karlsson, átta ára gamlir Það er ekkert grín aö stíga á fjalim- félagar í 2. bekk S. ar i fyrsta skipti á ævinni og viötal „Viö eigum að leika hermenn í viö blaöamann með tilheyrandi leikþætti um Andrókles og ljónið. myndatökum var ekki til að draga Það er gaman að vera á Utlu jólun- úr spennunni. um en við eigum ekki að dansa í „Á morgun er okkar skemratum kringum jólatréð fyrr en á morg- og þá ætlum við að dansa í kringum un.“ jólatréð þó svo við eigum að leika Litlu jólunum var fjórskipt í strax á eftir,“ sögðu félagarnir Laugarnesskóla, tvær skemmtanir Kristinn og Snorri. voru á Fimmtudaginn í síðustu viku -ATA og tvær á föstudaginn. Krístinn Svanur Jónsson og Snorri Laxdal Kartsson, báðir i öðrum bekk S. Þeir voru pínulitið stressaðir því þeir biöu eftir að verða kallaðir inn á sviðið. DV-mynd KAE
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.