Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Page 27
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
27
Mikil eftirvænting ríkti inni á bókasafni á meðan átta ára krakkarnir léku leikþáttinn um Andrókles. Aö honum
loknum áttu þessir ellefu ára krakkar að sýna leikþátt gerðan eftir sögunni Litla stúlkan með eldspýturnar.
DV-mynd KAE
Gott hljóð var á meðan flutningur leikþáttanna fór fram og fylgdust krakkarnir vel með leik félaga sinna
DV-mynd KAE
Ljónið og Andrókles ræða málin. DV-mynd KAE
Dægradvöl
LHIu jólin í Laugamesskóla:
Fjórðungur nem-
enda tekur þátt í
skemmtiatriðum
Litlu jólin í Laugamesskólanum
eru hefðbundin skemmtun sem ekki
hefur mikiö breyst síðustu áratug-
ina. Skólinn er mikið og failega
skreyttur, bæði skólastofur og gang-
ar, en hann er þannig hannaður, þó
gamall sé, að allar kennslustofurnar
opnast inn á sama salinn og getur
því oft verið býsna hátíðlegt um að
litast þegar allir leggja hönd á plóg-
inn.
Rúmlega fimm hundruð nemendur
eru í Laugarnesskólanum og af þeim
tók stór hluti þátt í skemmtiatriðun-
um eða um 130 krakkar. Til þess að
rúmt yrði um alla var litlu jólunum
fjórskipt á fimmtudag og fóstudag í
síðustu viku og var þá reynt að hafa
aldurskiptinguna sem jafnasta á
skemmtununum og því skemmtu sér
jafnan saman sex ára krakkar og
tólf ára.
Skemmtunin hófst með því að
lúðrasveit Laugarnesskóla lék nokk-
ur lög og gerði það með miklum
sóma. í sveitinni eru um 45 spilarar
og er með ólíkindum hvað stjórnand-
inn, Stefán Þ. Stephensen, hefur náö
miklum árangri með lúðrasveitina
þar sem margir meðhmanna byijuðu
fyrst að læra á hljóðfæri í haust.
Þegar lúðrasveitin hafði lokið leik
sínum tók kór Laugamesskóla við
og söng nokkur lög undir stjóm Sig-
ríðar Asgeirsdóttur og koYn öllum í
fyrsta flokks jólaskap.
Svo kom að því sem minnir flesta
á jólin, að dansa í kringum jólatréð.
Mjög almenn þátttaka var í þeim
dansi og sungu krakkarnir jólasálm-
ana hátt og snjallt við tréð.
Að loknum dansinum var brugöið
á leik, tveir leikþættir sýndir við jóla-
tréð og að lokum flutt leikrit á
leiksviði skólans sem er í stofunni
þar sem tónmennt er kennd á efstu
hæðinni.
Jón Freyr Þórarinsson skólastjóri
stjórnaði skemmtuninni af mikilli
mildi en um leið röggsemi og gekk
allt greiölega og ljúflega fyrir sig.
Ekki var að sjá að nokkmm manni
leiddist og flestir virtust vera komnir
í hiö mesta jólaskap þegar htlu jólun-
um lauk.
-ATA
Þröstur Sigurðsson er tóll ára gamall og í 6. N i Laugarnesskóla. Hann
lelkur á bassatrommu meö lúðrasveitinnl.
DV-mynd KAE
Ég ætla að halda áfram
með hljómsveitinni
segir Þröstur Sigurðsson sem hefuræftí mánuð
„Ég byrjaði ekki aö æfa með
lúðrasveitinni fyrr en í nóvember
en samt lék ég með hljórasveitinni
núna á htlu jólunum,“ sagöi Þröst-
ur Sigurðsson sera leikur á bassa-
trommu í lúðrasveit Laugames-
skóla.
„Það er gaman að spila í lúöra-
sveit, miklu skemmtilegra en ég
hélt. Ég ætla aö halda áfram I
hljómsveitinni.,‘
Þröstur sagði aö það væri ágæt-
lega skemratilegt á Utlu jólunum.
Hann nennti þó ekki að dansa í
kringum jólatréð.
„Skemmtunin hjá minura bekk
var fyrr í dag og þá dansaði ég í
kringum jólatréð. Ég er eiginlega
allt of þreyttur til að dansa aftur
núna," sagði Þröstur. -ATA