Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Page 39
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. 39 Iþróttir Klárt rangstöðumark færði Arsenal stig - Arsenal og Everton skildu jöfh, 1-1, á Highbury Rangstöðumark færði Arsenal stig Leikur Arsenal og Everton í beinni útsendingu í sjónvarpinu var köflótt- ur. Everton gekk betur í fyrri hálfleik og þá skoraöi miðvörðurinn Dave Watson mark Everton eftir frábæran einleik og fyrirgjöf frá gamla brýninu Peter Reid. Arsenal gekk betur í síö- ari hálfleik og jafnaði með marki David Rocastle. Þegar Rocastle skor- aöi ærðust leikmenn Everton því þeir vildu meina að Rocastle hefði verið rangstæður. ■ Colin Harvey, framkvæmdastjóri Everton, svo og Peter Reid hlupu dómaranum Ken Redfeam og línuverðinum Brian Hawes til hjálpar og var markið dæmt gott og gilt þrátt fyrir mót- mæh Evertonmanna. Leikmenn Arsenal hefðu hæglega getað unnið leikinn því þeir áttu nokkrar góðar markagerðartilraunir sem lofuöu góöu en brugðust er aö markinu kom. Paul Merson sem kom inn á sem varamaður fyrir Kevin Richard- son átti þrumuskot að markinu sem Nevifle Southall varði en hann hélt ekki boltanum sem barst til Paul Davis. Skoti hans var bjargað á línu. Arsenal er enn í öðm sæti en Ever- ton í fimmta sæti. • Leikur West Ham var fjörugur og skemmtilegur á að horfa. Fyrri hálfleikur var markalaus en strax þremur mínútum eftir að síðari hálf- leikur hófst skoraði Stewart Robson fyrsta mark leiksins. Mirandinha jafnaði á 79. mínútu en Paul Ince skoraði sigurmarkið mínútu síðar. Hann var fluttur á spítala fyrir viku og héldu menn helst að hann væri með botnlangabólgu. Sú sjúkdóms- greining hefur ekki átt við rök að styðjast ef marka má framgöngu hans í þessum leik. Loksins vann Tottenham leik Eftir að hafa spilað níu deildarleiki án sigurs vann Tottenham loksins leik. Fómarlamhið var Derby og á eigin heimavelh. Þegar Terry Vena- bles var ráðinn framkvæmdastjóri Tottenham fyrir tæpum mánuði hjuggust aðdáendur hðsins við kraftaverki, en eins og hann sagði: „Hvernig er hægt að ætlast th að ég geri miðlungslið að stórhði á svip- stundu.“ í leiknum gegn Derby gekk Tottenham iha th að byrja með ög hélt markvörðurinn Tony Parks hð- inu á floti meö góðri markvörslu en þrátt fyrir það tókst John Gregory að skora mark fyrir Derby á 37. mín- útu. í síðari hálfleik jafnaði belgíski landsliðsmaðurinn Nico Claessen eftir að Peter Shhton hafði hálfvarið skot frá Chve Allen. Og það var Allen sjálfur sem skoraði sigurmarkiö rétt undir lok leiksins, eftir góðan undir- búning Osvaldo Ardiles og ungs leikmanns Paul Moran. Gary Mabb- utt þurfti að bregða sér frá í leiknum til að láta gera að sári sem hann hlaut og voru saumuð 16 spor í hann. Efstu liðin brugðust að mestu Efstu lið 2. deildar gerðu ekki mikla lukku um helgina. Middlesbro og Aston Vhla náðu einungis jafntefli á meðan að Bradford, Manchester City og Crystal Palace töpuðu. Hull og Ipswich unnu. Manchester City tapaði öðr- um leiknum í röð Hinir ungu leikmenn Manchester City virðast ekki hafa taugar í topp- baráttu ef taka má mark aö árangri þeirra í tveimur síðustu leikjunum sem hafa báðir tapast. Nú lá liðið gegn Oldhamhðinu sem gerir út frá borginni Oldham sem er stutt frá Manchester. Slysamark kom gestun- um á bragðið. Markvörðurinn Perry Suckling sem sphaöi sinn fyrsta leik á þessu keppnistímabih, lenti í því að skora sjálfsmark á 13. mínútu. Tommy Wright sendi knöttinn með kollspymu í slá Manchestermarks- ins og skaust knötturinn í höfuð Sucklings og í markiö. Paul Stewart jafnaði í síðari hálfleik en Tommy Wright skoraði sigurmarkið undir lok leiksins. • Huh bar sigurorð af Crystal Palace og skaust í fimmta sætið. Gary Parker skoraði fyrsta markið á 33. mínútu en Phh Barker jafnaði fyrir Palace. Gordon Dyer skoraði sigurmark Hull á 44. mínútu. í síðari hálfleik skipti Crystal Palace um gír án þess að bera nokkuð úr býtum. Liðið saknaði markaskorarans Ian Bright. Huh hefur ekki tapað á heimavelli síðan á nýársdag þessa árs. Peter Reid stekkur hér með tilþrifum yfir Tony Adams, enska landsliðsmann- inn í Arsenal. Símamynd Reuter • Steve Archibald sem spilaði sinn fyrsta leik með Blackburn tókst ekki að skora gegn Birmingham en það gerðu félagar hans þeir Colin Hendrie og Scott Sehars. Blackburn hefur ekki tapað þrettán dehdarleikj- um í röð eða síöan hðið tapaði á heimavelh fyrir Middlesbro 26. sept- ember síðastliðinn. Blackburn er nú í sjötta sæti 2. dehdar en baráttan á toppnum þar er geyshega hörð. • Middlesbro náöi einungis markalausu jafntefli gegn Bourne- mouth. Middlesbro hefur ekki tapað leik síðan 3. október, eða 14 leikjum í röð, og er hðið með mjög trausta vöm sem hefur ekki fengið á sig mark í síöustu sjö dehdarleikjum. Baráttan á toppnum er þaö hörð að ekki munar nema átta stigum á Middlesbro sem er í efsta sæti og Blackburn sem er í sjötta sæti. En neðst er Reading með 15 stig og hefur ekki unnið í síðustu tíu viðureignum sínum. Shrewsbury er næstneðst með 17 stig og Huddersfield er þriðja neðst meö 19 stig. -EJ Um þessar mundir eru fyrstu bankakort- in að falla úr gildi. Athugaðu því strax hvað þitt kort gildir lengi. Ef það er útrunnið bíður þín nýtt kort í bankanum þínum og þú ættir að sækja það við fyrsta tækifæri. Þannig kemstu hjá óþæg- indum sem ógilt bankakort getur valdið. ^Hér sérðu gildistíma bankakortsins Bankakortlð- tákn um traust tékkaviðskipti. Alþýðubankinn, Útvegsbankinn, ER BANKAKORTIÐ ÞITT í GILDI? ! LL < D Búnaðarbankinn, Verzlunarbankinn, Landsbankinn, og Sparisjóðirnir. Samvinnubankinn, £

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.