Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 41
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. 41 Nýjar bækur Með mörgu fólki Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firði, hefur gefið út bókina Með mörgu fólki eftir Auðun Braga Sveinsson. Þessi bók fjallar fyrst og fremst um fólk við ólík skilyrði og í mismun- andi umhverfi - frá afdal tii Austur- strætis - ef svo má að orði komast. Með mörgu fólki var sett og prent- uð í Prentsmiðju Árna Valdemars- sonar og bundin í Bókbandsstofunni Örkinni. Kápu gerði Auglýsingastofa Þóru Dal, Hafnarfirði. Bókin er 279 bls. Verð kr. 2350. Öspin og ýlustráið Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar- firði, hefur sent frá sér bókina Öspina og ýlustráið, smásagnasafn eftir Har- ald Magnússon. Haraldur fæddist á Árskógsströnd við Eyjafjörð 1931. Hann ólst upp í Eyjafirði og Skaga- firði fram að tvitugsaldri. Lengst af hefur hann búið í Hafnarfirði. Þetta smásagnasafn er fyrsta bók höfundar en þessar sögur og fleiri til hefur hann skrifað í frístundum sín- um undanfarin ár. Öspin og ýlustráið var sett og prentuð í Prismu, Hafnarfirði, og bundin í Bókfelb. Kápu teiknaði Stef- án Grétarsson. Bókin er 168 bls. að stærð. Verð kr. 1990. Nýjar Tinnabækur Fjölvaútgáfan hefur nú byrjað end- urútgáfu á Tinnabókunum sem fyrst komu út á íslensku fyrir 10-15 árum en hafa verið uppseldar og ófáanleg- ar um langt árabil. Nýlega komu út tvær Tinnabækur í þessari nýju út- gáfu, sem forðum í þýðingu Lofts Guðmundssonar. * Önnur heitir Tinni í Tíbet en hin Sjö kraftmiklar kristalskúlur og er sú síðari eins konar fyrri hluti Fang- anna í sólhofinu og gerist meðal Inka í Andesfjöllum. Báðar fialla þær um ferðalög Tinna og Kolbeins kafteins vinar hans á dularfullar slóðir. Hinar nýju Tinnabækur eru í hópi stærri teiknisagna, hvor um sig 62 bls. og auðvitað allar prentaðar í full- um litum í samstarfi við Casterihan útgáfuna í Tournai í Belgíu. Verð kr. 598 hvor. Þar fást fjarstýrðir bílar af ölium gerðum og í mörgum verðflokkum. Jeppar — Pickup — Buggi — Rallí — og kappakstursbílar, með til- heyrandi mótorum og fjarstýringu. Bílstjórar frá 3ja til 95 ára, jafnt próflausir og með próf aka bílum frá Tómstundahúsinu. Póstsendum — Góð adkeyrsla, næg bílastæði. avegi 164 Slmi 21901 m Á S G JE I R JAKO B S S O N 0 mW Jmm IflfXlK JAItUXX II.VIIÍSVM.l MIIH.HWdUK S K U G G S HAFNARFJARÐARJARLINN Einars saga Þorgilssonar Ásgeir Jakobsson Bókin er ævisaga Einars Þor- gilssonar utn leið og hún er 100 ára útgerðarsaga hans og fyrirtækis hans. Einar hóf út- gerð sína 1886 og var því út- gerðin aldargömul á síðasta ári og er elzta starfandi út- gerðarfyrirtæki landsins. Þá er og verzlun Einars Þorgiissonar einnig elzta starfandi verzlun landsins, stofnuð 1901. Einar Þorgilsson var einn af „feðrum Hafnarfjarðar," bæði sem atvinnurekandi og bæjar- fulltrúi og alþingismaður. Þá er þessi bók jafnframt almenn sjávarútvegssaga í 100 ár og um það saltfisklíf, sem þjóðin lifði á sania tíma. FANGINN OG DÓMARINN Þáttur af Sigurði skurði og Skúla sýslumanni Ásgeir Jakobsson Svonefnd Skurðsmál hófust með því, að 22. des. 1891 fannst lík manns á skafli á Klofningsdal í Önundarfirði. Mönnum þótti ekki einleikið um dauða mannsins og féil grunur á Sigurð Jóhannsson, sem kallaður var skurdur, en hann hafði verið á ferð með þeim látna daginn áður á Klofningsheiði. Skúla sýslu- manni fórst rannsókn málsins með þeim hætti, að af hlauzt 5 ára rimma, svo nefnd Skúla- mál, og Sigurður skurður, sak- laus, hefur verið talinn morð- ingi í nær 100 ár. Skurðsmál hafa aldrei verið rannsökuð sérstaklega eftir frumgögnum og aðstæðum á vettvangi fyrr en hér. BÆR í BYRJUN ALDAR HAINARFJÖRÐUR MEÐ MÖRGUFÓLKI Audunn Bragi Sveinsson ÖSPIN OG ÝLUSTRÁIÐ Haraldur Magnússon Magnús Jónsson Bær íbyrjun aldar — Hafnar- fjördur, sem Magnús Jónsson minjavörður tók saman, er yfirlit yfir íbúa og hús í Hafn- arfirði árið 1902. Getið er hvar húsin voru staðsett í bænum, hvort þau standa enn o.s.frv. Síðan er getið íbúanna. Og þar er gífurlega mikill fróðleikur samankominn. Ljósmyndir eru af fjölda fólks í bókinni. Allur aðaltexti bókarinnar er handskrifaður af Magnúsi, en aftast í bókinni er nafnaskrá yfir þá sem í bókinni eru nefndir, alls 1355 nöfn. Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr- verandi kennari og skólastjóri, hefur ritað margt sem birst hefur í blöðum og tímaritum í gegnum árin í ljóðum og lausu máli, og einnig hefur hann ritstýrt nokkrum bók- um. Bók sú sem hér birtist fjailar fyrst og fremst um fólk við ólík skilyrði og í mismun- andi umhverfi, — frá afdal til Austurstrætis, ef svo má að orði komast. Meö mörgu fólki er heitið, sem höfundur hefur valið þessu greinasafni sínu. Mun það vera réttnefni. Haraldur Magnússon fæddist á Árskógsströnd við Eyjafjörð 1931. Hann ólst upp í Eyja- firði og Skagafirði fram að tvítugsaldri. Nú býr hann í Hafnarfirði. Þetta smásagna- 'safn er fyrsta bók Haraldar, en þessar sögur og fleiri til hefur hann skrifað í frístundum sín- um undanfarin ár. Sögurnar eru að ýmsu.leyti óvenjulegar og flestar fela þær í sér boð- skap. Þetta eru myndrænar og hugmyndaauðugar sögur, sem höfða til allra aldurshópa. SKV6GSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEMS SF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.