Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 54
54
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Merming
- segir Þuríður Pálsdóttir, annar hofundur bókarinnar „Á besta aldri“
„Eg haföi sjálf slæma reynslu af
tíöahvörfunum og fékk mörg ein-
kenni þeirra. Ég var þó ekki á því
aö gefast upp og reyndi aö finna
einhverjar bækur um málið en
komst þá að því aö ekkert slíkt les-
efni var til á íslensku. Ég varö aö
panta mér bækur og tímarit að ut-
an ef ég vildi fræöast eitthvað um
þetta tímabil í lífi konunnar. Ég er
viss um aö það heföi hjálpað mér
geysilega mikið ef ég heföi haft
aðgang að bók eins og.þessari á sín-
um tíma,“ sagði Þuríöur Pálsdóttir
en hún hefur í samvinnu viö Jó-
hönnu Sveinsdóttur sett saman og
skrifað bókina „Á besta aldri“ sem
nýlega er komin út hjá Forlaginu.
„Á besta aldri“ fjallar um hiö
svokallaða breytingaskeið kvenna.
Tíöahvörfin fara mjög misjafnlega
meö konur, sumar finna tiltölulega
Ódý
9g varidaður
fnaðuá
r
fa
Fæst í nýrrí
fatadeild í
SS-búðinni
Glæsibæ.
Herra
vindjakki.
Efm:
35% bómull
65% polyester
Litir:
dökkgrár/
Ijósgrár
Stærðir:
S-M-L-XL.
Verð:
2.526
Bpw** G LÆSIBÆ
lítið fyrir þeim en aðrar þjást veru-
lega bæði líkamlega og andlega. í
bókinni er leitað svara við ýmsum
vandamálum sem koma upp hjá
konum á þessum aldri og fjallað
um breytingaskeiðið, helstu fylgi-
kvilla þess og alvarleg einkenni
eins og beinþynningu, þunglyndi
og aðra andlega þjáningu og hvem-
ig best er að bregðast við þessum
erfiðleikum. Þá er fjallað um breyt-
ingaskeið karla, kynlíf, fæðuval og
líkamsrækt fyrir fólk sem komið
er á þennan viðkvæma aldur.
„Ég hef mikið verið beðin um að
halda fyrirlestra um tíðahvörf
kvenna undanfarin ár.
Það var svo fyrir tveimur ámm
að Jóhann Páll Valdimarsson hjá
Forlaginu bað mig um að skrifa bók
um efnið en þá hafði ég ekki tíma
til þess. Mér fannst einnig eðlilegra
að einhver úr heilbrigðisgeiranum
semdi slíka bók. Ekkert hefur orðið
úr því ennþá og þess vegna sló ég
til að vinna bókina svo framarlega
sem ég fengi færa manneskju til
að vinna með mér. Þá kom Jó-
hanna til skjalanna og samstarf
okkar hefur verið sérlega gott og
ánægjulegt. Mikið hefur mætt á
Jóhönnu sem skrifaði bókina."
Þuríður sagði að það væri synd
hvað konur kviðu því að komast á
þennan tíðahvarfaaldur, en þessi
ár ættu einmitt að geta verið mjög
góð. Þá væru konur yfirleitt lausar
við barnauppeldi, húsbyggingar
BókmenntaviðtaJið
Axel Ammendrup
væru afstaðnar og þær ættu að
geta haft það ögn rólegra en áður.
„Á móti kemur að á svipuðum
tíma og konur komast á breytinga-
skeiðið fer þeim að finnast þær
orðnar gamlar og ekki eins aðlað-
andi og eftirsóknarverðar og áður.
Nútímakonur sætta sig ekki við
það þegar þeim er sagt aö hafa ekki
áhyggjur af tíðahvörfunum, þetta
batni allt eftir 5-6 ár. 5-6 ár. er mik-
ill tími þegar fólk er komið á
þennan aldur. Fyrir utan aö það
getur tekið líkamann allt að 10-15
árum að jafna sig fullkomlega eftir
að breytingaskeiðiö hefst.
Það er því mjög mikilvægt að
konur geti brugðist rétt við breytt-
um skilyrðum, mætt vandanum og
gert gott úr því sem þær geta ekki
breytt. Þess vegna er bók eins og
þessi nauðsynleg. Handbók sem
allar konur geta flett upp í, bæði
þær sem eru að komast á þennan
aldur og ekki síður þær yngri sem
geta þá undirbúið sig og gert þessi
ár sem hafa reynst svo mörgum
erfið að sínum bestu árum.
Enda er það svo að við höfund-
arnir spönnum allt þetta aldurs-
svið sem um er að ræða. Ég er orðin
sextug og því komin yfir þetta skeið
en Jóhanna er ung og ekki komið
að því hjá henni enn en þó rétt fyr-
ir hana að gefa þessu vandamáli
gaum,“ sagði Þuríður Pálsdóttir.
„Á besta aldri“ er aögengileg og
öll hin snyrtilegasta í uppsetningu.
Bókina prýða margar snotrar ljós-
myndir eftir Rut Hallgrímsdóttur.
-ATA
i - barnagæsla.
Verð 1.990.
TÆKNILflND________________
^ Laugavegi 168, sími 18055.
Nauðsynleg handbók
fyrir allar konur
Þuríður Pálsdóttir með bókina sem hún skrifaði i samvinnu við Jóhönnu Sveinsdóttur, „Á besta aidri“.
DV-mynd BG
lÁntar fa 6i/P
fparíw ad $&ja bil?
SMA AUGLYSING I DV GETUR LEYST VANDANN.
Smáauglýsingadeild
- sími 27022.
V/SA