Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 63
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
63
Meiming
Mannlysingar sem nsa hatt
Emil Björnsson:
Litrikt fólk - æviminningar II
Bókaútgáfan Örn og Örlygur 1987.
Fyrsta bindi æviminninga Emils
Björnssonar, dagskrárstjóra sjón-
varpsins, kom út í fyrra og kallaðist
Á misjöfnu þrífast börnin best. Þar
segir frá uppvexti og unglingsárum
í afskekktri, austfirskri sveit. Nú
berst höfundur hins vegar út í
hringiðu lífsins og margmenni og
kallar bók sína Litríkt fólk. Hún
ber nafn með rentu. Þó er ekki svo
að skilja að hér segi aðeins frá öðr-
um en honum sjálfum. Gatan er
hans og fólks hans en ótrúlega
margir verða á vegi hans og hann
gengur ekki fram hjá fólki án þess
að hafa af því nokkur kynni. Þessir
samferðamenn eru auðvitaö
misjafnlega htríkt fólk en séra
Emil kann þá list að láta það njóta
sín í frásögn.
Emil Björnsson hefur þennan
miðkafla ævisögu sinnar með því
að stíga um borð í Súðina austur á
Breiðdalsvík og gera síðan innreið
sína í Reykjavík meö pokaskjatta á
öxl. Þaðan hggur leiðin í heimsfjós-
ið á Korpúlfsstöðum. Frásögnin af
vistinni á því setri er býsna fjörleg
og er engu líkara en höfundur
skemmti sér vel við þær minning-
ar, enda var hann þá sautján ára.
Á menntaveginum
En frá fjósgötunni lá leiðin á
menntaveginn, fyrst til Laugar-
vatns, síðan th Akureyrar og loks
suður aftur í Háskólann, hvar það
helst hann varast vann, varð að
koma yfir hann - prestsskapurinn.
Enda má enginn sköpum renna
segir séra Emil og hefur víst nokk-
uð til síns máls
Lýsing séra Emhs á skólastjórun-
um, Bjarna á Laugarvatni og
Sigurði Guðmundssyni á Akureyri,
kennurum skólanna og skólasystk-
inum - einkum bræðrum - er
öndvegiskafli, ekki aðeins bráð-
skemmthegur og ljóslifandi heldur
einnig skhríkur og heimhdardrjúg-
ur um þessar tvær menntastofnan-
ir - alþýðuskólann og hámennta-
skólann. Þeir voru hvor á sínu
landshorni og vafalaust ólíkir um
margt en þó furðulega samferða að
menntastefnu og marksókn, báðir
lýðháskólar í raun. Það er th að
mynda ekki ónýtt að fá hér ljósan
vitnisburð séra Emils um það
hvernig Bjami á Laugarvatni leysti
feimna og tunguhefta sveitaungl-
ingana úr viðjum þagnar og gerði
þá máli mælta á mannfundum,
ekki aðeins einn og einn heldur
hópinn allan. Og þó var Bjarni eng-
inn yfirburða málsnillingur, eða
kannski var það einmitt vegna þess
að hann gat lyft slíku Grettistaki.
Ætli hann hafi ekki verið drjúgur
samverkamaður Sigurðar meist-
ara á Akureyri á þessum akri. Og
síðan kemur lýsingin á Sigurði.
Hún hefst á þessum fátæklegu! orð-
um: „Segulah sumra manna er
ótrúlegt og óútskýranlegt. Sigurð-
ur Skólameistari, skrifað nieð
stórum staf, var svo rammsegul-
magnaður að útgeislun áru hans
sindrar gegnum aht fráfyrsta fundi
okkar í minni mínu.“ Já, skyldi
pilturinn hafa átt erindi í skóla
hans? Og þeir voru fleiri „sérsmíð-
aðir“ kennarar þessa skóla. Nefna
má Steindór, Brynleif og Þórarin.
Það fór ekki fram hjá séra Emil og
hann kann enn að lýsa því svo að
manni hitnar í brjósti.
Písiarganga hamingjunnar
Séra Emil segir einkasögu sína
af opinskárri einlægni, stundum
fógnuði. Hann lýsir píslargöngu
lífshamingju sinnar í húsnæðis-
leysi og fátækt léttilega, svo að
lesandi fylgist samúðarfullur með,
ber með honum í huga áföllin og
gleðst þegar úr rætist. Þetta er
mergur og megin hvers góðs sjálfs-
fjallalind. Enginn var skyldari ljós-
vakanum, andlegri, meiri ljúfling-
ur, þurfti jafnvel ekkert að segja til
að hafa djúp, yljandi áhrif, þar sem
hann kom eða var. Engan hefi ég
því þekkt sem hjartalags vegna, og
hæfileika til kærleiksþjónustu,
hefði verið jafnkjörinn til að gerast
liðsmaður kirkju, er starfaði í
sannleika í anda Krists. En hann
gat aldrei hugsað sér að taka
prestsvígslu... Andríki hans var
langoftast álíka yfirlætislaust og
fuglakvak í mó. Þó voru ætíð virk
eldvörp undir niðri, sem logastólp-
ar stóðu upp úr þegar viðkvæm
brjóstkvikan bólgnaði. Þegar því
var að skipta kom í ljós að ljúfling-
urinn var einnig mikill skapmaður,
sem hefði getað varpað um borðum
víxlaranna. Vinur minn, sem fann
sárt til með aumasta jarðarmaðki,
hefði sjálfur ekki skorast undan að
líða píshr fyrir meðbræður sína,
og það sem samviska hans vissi
sannast og réttast, ef þess hefði
gerst þörf.“
Svona lýsa ekki aðrir en þeir sem
skilja og kunna orð af hneigja.
Skemmtileg og djúpskyggn
Síðast í bók séra Emils er margt
vel sagt um samverkamenn í Ríkis-
útvarpinu á langri samleið, ýmis-
legt glettið og fylgir jafnvel
hnyttinn dægurkveðskapur. Skil-
rík dæmi um átök í þungri reynslu
í einkalífi tala áhrifamiklu en þó
mildu máli th lesenda og enda hug
þeirra í eigin barm.
Saga séra Emhs hefur marga
bestu kosti góðrar sjálfsævisögu.
Hún er skemmtileg og djúpskyggn
í senn. Hún er bráðvel rituð, oftast
með glaðlegri upplyftingu, jafnvel
einlægri lífshrifningu, en einnig
áhrifasterk í alvöru sinni. Margar
mannlýsingar hennar eru perlur.
En sagan virðist ekki öll í þessari
bók. Eitthvað mun ósagt en höf-
undur gefur ekki ljósar bendingar
um það við bókarlok hvort fram-
hald verður - en við lifum í
voninni.
AK
Séra Emil Björnsson með úrklippum a( nokkrum fyrrverandi starfsmönnum.
Bókmenntir
Andrés Kristjánsson
ævisöguritara. Og hann gleymir
ekki elskunni sinni, henni Álfheiði,
og fer ekki í neina launkofa með
hug sinn til hennar, og það verður
varla annað sagt en honum hafi
enst ástin bærhega því ekki efast
maður andartak um að fullur hug-
ur fylgi máh þegar hann upptendr-
ast í orði á prenti núna á ehiárun-
um. Það væri líka ófyrirgefanlegt
að stinga því undan þegar píslar-
ganga hamingjunnar verður shk
sigurfór manneskjunnar.
Litadýrðin fer enn vaxandi
í seinasta þriðjungi bókar sinnar
víkur séra Emh enn meira að lita-
dýrð samferðamannanna og þar
kennir margra grasa, enda er sá
hópur harla fjölmennur og skjóttur
í besta lagi þótt séra Emh frábiðji
sér auðvitað slíkt lýsingarorð um
htadýrð mannlífsins umhverfis sig.
En þama koma margir stórhöfð-
ingjar við sögu því að starfsvið séra
Emils hefur mjög verið við götu
þeirra. Þarna eru alþingismenn og
aðrir stjórnmálamenn tímabhsins,
útvarpsmenn, blaðamenn og
kirkjuleiðtogar, auk margra kvista
af almúgatrénu sem séra Emil
gengur ekki framhjá, enda era þeir
hka margir hveijir „sérsmíðaðir",
hamingjunni sé lof.
Kafli um trúarviðhorf séra Emils
og „nýguðfræði" hans, svo og
snertingu við guðsmenn sam-
tímans, er allrar athygh verður og
sú hugvekja á enn brýnt erindi við
okkur.
Nærfærnar mannlýsingar
Séra Emil ber hinu litríka sam-
ferðafólki sínu oftast harla vel
söguna og hefur um það hin bestu
orð. Þó undrast ég hversu vel hon-
um lætur þessi sighng milli skers
og báru og hve laginn hann er að
láta hið orðmjúka umtal samræm-
ast réttmætri og sannferðugri
mannlýsingu og maður sér lítt örla
á háðlofi í þessum vinmælum. Ég
þykist geta borið ofurlítið um þetta
því að það vhl svo til að ég tel mig
hafa nokkur kynni, bæði tilsýndar
og persónulega, af allmörgum
þeirra manna sem séra Emil nefnir
til sögu sinnar og ég get ekki betur
séð en hann bregði upp réttum
myndum af þeim mörgum hverj-
um. Ég nefni til dæmis hve vel
hann lýsir Þorsteini Valdimars-
syni, skáldi, vini sínum og bróður
í guðfræðidehd. Ég þekkti Þorstein
allvel á síðari árum hans og naut
einstakra gáfna hans og manngerð-
ar. Ég get ekki annað en fært séra
Emh sérstakar þakkir fyrir orð
hans um Þorstein Valdimarson í
þessari bók og sthli mig ekki um
að tilfæra nokkrar línur:
„Hugarlind hans var hrein sem
2x150 W
magnari
kr. 6.000,
Skóföng
kr. 500.-
Glás af vörum með 10-30% kynningarafslætti
Mælar fra
kr. 900,-
wg tfarnapassarar
5 og kalltæki frá
M.. kr. 1.200,-
ALTMULIGT
Laugavegi 134 Hinum megin viö Hlemm S. 624050
Bílahátalarar frá kr. 1.000,-
Headphone frá kr. 290,-
Heyrnartappar frá kr. 200,-
Kassettur kr. 75,-
Bílaloftnet kr. 650,-
Spennubreytir í bíla kr. 300,-
Nálar í plötuspilara frá kr. 140,-
Hleðslubatterí frá kr. 200,-
Gjallhorn kr. 10.000,-
Kassettustatíf frá kr. 380,-
Kaplar, tengi, smáliðar,
verkfæri, díóður, sjálfvör.
Mixerar frá
3.050,-
Styri-
pinnar frá
kr. 55,-
Hátalarar
kr. 400,-
frá
Tinsuga
Lóðboltar
kr. 330,-
Hljoðnemar
frá kr. 470,-
Hleðslutæki fyrir
öll hleðslubatterí
kr. 1.000,-
Styripinni og
leikir fylgja
Casio reiknivélar
og hljómborð
SONY HOME COMPUTER
HET IIT
ni i mrn s ■
CASIO
SflbfÆff
Leiktolva
500
LZ
ammmm
E3