Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
3
Halla Margrét Árnadóttir og Valgeir Guðjónsson voru (ulltrúar íslands í
fyrra. Nú hafa rúmlega hundrað lög borist í undankeppnina.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Rúmlega eitt hundrað
lög bárust
„Liðlega helmingi fleiri lög bárust
í söngvakeppnina í ár heldur en í
fyrra og þykja mér það miklar gleði-
fréttir. Fólk ætlar greinilega að koma
íslandi hærra en í sextánda sætið í
næstu keppni í stað þess að gefast
upp,“ sagði Björn Emilsson, upp-
tökustjóri sjónvarpsins og jafnframt
framkvæmdastjóri íslensku söngva-
keppninnar, í samtah við DV.
Rúmlega hundrað lög bárust í
keppnina en skilafrestur rann út í
fyrradag. Dómnefndin er skipuð full-
trúum frá Félagi íslenskra tónskálda
og textahöfunda, Sambandi hljóm-
í keppnina
plötuframleiðenda, Félagi íslenskra
hljómhstarmanna og RUV og mun
hún hefjast handa við að hlusta á
lögin og velja þau 10 bestu úr eftir
miðjan janúar. Höfundar þeirra
verða kynntir seinna í mánuðinum
en sjónvarpið kynnir lögin í lok mars
eins og þau munu hljóma í loka-
keppninni og fer kynningin fram
með svipuðu sniði og í fyrra. Vinn-
ingslagið fer svo til Dublin á írlandi
þar sem söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva fer fram 30. apríl.
-JBj
Hollustuvemd ríkisins og banvænir ostar:
Grannt fylgst með
„tískubakteríunni“
Við fylgjumst grannt með þessu
máli enda má segja að þetta sé tísku-
bakterían í ár. Það er fuht af rann-
sóknarstofum um allan heim sem
eru að skoða þessa bakteríu," sagði
Frankhn Georgsson, gerlafræðingur
hjá Hollustuvernd, þegar hann var
spurður um bakteríu þá sem greinst
hefur í ýmsum ostategundum er-
lendis á undanfórnum árum. Hún
hefur fundist í osti í Sviss og þar er
talið að rekja megi allt að 30 dauðs-
fóh frá 1983 th þessara menguðu osta.
Nú hafa borist spurnir af bakter-
íunni í Danmörku og hún greinst í
ostunum „Opus 84“, „Creme Royal“
og „Blue Moon“.
Franklín sagði að hér væri ahs
ekki um nýja tegund af bakteríu að
ræöa. Nýtt er hins vegar að menn
rekja sýkingartilfelh til mengaðra
matvæla enda virðist sem bakterían
lifl af ýmsa meðferð á matvælum.
Þá er hún varasöm vegna þess að
hún getur fjölgað sér í kæhgeymslu.
Við hitun drepst hún hins vegar.
Bakterían heitir hsteria-monocyto-
genes og hefur verið þekkt í mörg
ár. Erlendar rannsóknir hafa sýnt
að allt að 5% heilbrigðra einstakhnga
hafa þessa bakteríu í saur. Ef menn
veikjast hins vegar af henni þá er
dánarhlutfallið hátt eða um 30%.
Að sögn Frankhns hafa komið upp
sjúkdómstilfehi í Bandaríkjunum og
Kanada sem rakin hafa verið til mat-
væla sem menguö hafa verið af
þessum gerli. Helst hefur athyghn
beinst að ostum, nánar tiltekið lin-
ostum, og hafa Bandaríkjamenn nú
hert eftirlit sitt með innflutningi á
ostum, sérstaklega með thliti til þess-
arar bakteríu.
-SMJ
Rækjustríðið á Bíldudal:
Rannsókn hafin
„Lögreglunni hefur verið afhent
málið og rannsókn er hafin," sagði
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaöur
Barðastrandarsýslu, þegar DV
spurði hann hvað liði lögreglurann-
sókn þeirri sem rækjubátaeigendur
á Bíldudal hafa farið fram á. Beiðn-
ina um rannsókn lögðu þeir fram
vegna þess að þeir telja að Rækjuver
hf. á Bíldudal greiði þeim ekki fyrir
ahan þann afla sem þeir landa th
verksmiðjunnar.
„Það voru nokkuð margir aðhar
sem skrifuðu undir beiðnina um lög-
reglurannsókn," sagði Stefán „en ég
hef ekki töluna yfir hversu margir
þeir voru. Rannsókn af þessu tagi
tekur alltaf talsverðan tíma. Ég benti
útgerðarmönnunum á að réttara
væri fyrir þá að fá sér lögmann og
láta hann leggja fram kröfu um það
sem ógreitt er. Sú málsmeðferð hefði
gengið fljötar. En þeir kusu að fara
þessa leið. Það er útilokað að giska
á hversu langan tíma rannsóknin
tekur en hún er sem sagt hafin.“
-JSS
Fréttir
- - - 1 s .. - % % %Jv ■ w.
Með haglabyssu á mávaveiðum við Slippstöðina á Akureyri:
, ,Við vorum í
hættu
Gylfi KriBtjáruson, DV, Akuxeyri:
„Ég fuhyrði að við vorum í hættu
þegar skothríðin hófst en það sem
bjargaði okkur var hvernig byss-
unum var miðað," sagði Konráð
Jóhannsson, starfsmaður Shpp-
stöðvarinnar á Akureyri, í samtali
við DV 1 gær en hann varð fyrir
því um helgina ásamt vinnufélög-
um sínum að skotið var úr hagla-
byssu í áttina að þeim á
vinnusvæði Shppstöövarinnar.
„Við voram þrír vinnufélagarnir
aö ganga frá skemmu í átt að bátn-
um Hvanney, sem við vorum að
vinna í. Við vorum komnir hálfa
leið út á viðlegukantinn þégar við
heyrðum tvo skothvehi og síöan
einn strax á eftir. Einnig heyrðum
við hagladrífuna skeha á skemmu-
byggingunni og á planihu fyrir
aftan okkur. Við hlupum þá strax
austur fyrir skemmuna og sáum
þar trihubát á siglinu og mann
frammi á honum aö mundá byssu.“
Konráð sagði að yfirvérkstjóri
hjá Shppstöðinni hefði þegár hringt
á lögreglu og kært atþurðinn.
Mennimir tveir á bátnufn sigldu
síðan inn í smábátahöfnina nærri
Shppstöðinni og þremenningamir
fóru þangað. Ætluðu þeir að ræða
við mennina, sem brugðustilla við,
og kom tíl snarpra oröaskipta áður
en lögreglan kom á vettvang.
Mennimir munu hafa verið að
slgóta á máva sem voru á flugi við
hús Slippstöðvarinnar. Skotlína
þeirra var hins vegar yfir þvert
vinnusvæði stöðvarinnar og hefði
getað farið hla. Á annan tug manna
var að vinna um borð í Hvanney
og heyrðu þeir einnig skothvellina.
KÆRKOMIN
NYJUNG
í SKEMMTANALÍFI
LANDSMANNA!
Stofnun MÁNAKLÚBBSINS
markar tímamót í skemmt-
analífi landsmanna. MÁNA-
KLÚBBURINN er einkaklúbb-
ur og hafa eingöngu félagar
og gestir Jjeirra aðgang að
honum. MANAKLÚBBURINN
er ætlaður fólki sem vill fara
út að borða og skemmta sér í
þægilegu umhverfi og njota
Ætlar þú ekki £
góðrar kvöldstundar í góðra
vina hópi eða með viðskipta-
vinum. Frestur til þess að
gerast stofnfélagi í klúbbnum
rennur út 20. janúar næstköm-
andi. Skráning félaga fer fram
hjá veitingastjórum klúbbsins
sem gefa allar nánari upplýs-
ingar alla virka daga í símum
23333, 23335 og 29098.
i slást í hópinn?
Brautarholti 20, símar 23333, 23335 og 29098.