Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 25
i ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1988. 25 Tíðarandi Reykingavamir orðnar að hugsjón hjá mér „Ég byrjaði að reykja þegar ég var tólf ára en hætti því daginn sem ég byrjaði að vinna hjá Krabba- meinsfélaginu fyrir þremur og hálfu ' ári,“ sagði Ásgeir Rúnar Helgason sem er umsjónarmaður reykingavarnanámskeiðanna sem haldin eru á vegum Krabbameins- félagsins. „Þegar ég hætti að reykja notaði ég á sjálfan mig ýmis brögð sem ' ég hafði lært meðan ég var í sál- fræðinámi við Háskólann. Ég myndaði reyklaus svæði í kringum mig. Ég hætti til dæmis að reykja heima hjá mér nema þá úti á svöl- um og reykti ekki í vinnunni. Þegar ég hætti alveg að reykja varð það því ékki eins erfitt og annars heföi orðið. Það er lítið vit í því að draga úr reykingum með því að skammta sér vissan fjölda af sígarettum. Eina leiðin er að skapa sjálfum sér reyklaus svæði.“ Ásgeir sagði að oft á tíðum væri það erfiðari sálfræðileg raun en hk- amleg að halda reykbindindi. „Líkamlegu fráhvarfseinkennin hverfa oftast á nokkrum dögum. Menn verða gjarnan eirðarlausir, skapvondir og vita ekki hvað þeir eiga að gera við hendurnar á sér. Þetta er tímabundið ástand. En ef menn lenda í sálfræðilegum svipt- ingum freistast þeir oft til að kveikja sér í sígarettu. Þess vegna er lögð áhersla á það á námskeið- unum hjá okkur að sýna mönnum og sanna hvað það er alvarlegur - segir Ásgeir Rúnar Helgason hjá Krabbameinsfélaginu Asgeir Rúnar Helgason sér um reykingavarnanámskeiðin hjá Krabba- meinsfélaginu og notar þar ýmis brögð sem hann notaði á sjálfan sig þegar hann hætti að reykja. DV-mynd BG hlutur að fara að reykja aftur. Við verðum beinlínis að hræða reykingafólk með því að sýna þvi staðreyndir lífsins. Það er ljóst að í mörgum tilfellum stytta reykingar líf fólks verulega en í enn fleiri tilfellum leggja reykingarnar fólk í kör síðustu ár ævinnar án þess í rauninni að stytta lífið svo mjög. Þetta er marg- sönnuð staðreynd sem flest feykingafólk veit af en megnar ein- hvem véginn ekki að meðtaka samt sem áður. Þess vegna er nauð- synlegt að sýna fólki þetta svart á hvítu og það gemm við á námskeið- unum.“ - Hvað á fólk að gera sem viR hætta að reykja? „Það sem gerir þetta mál svo flók- ið er að það eru nánast engar algildar reglur til. Þetta er svo ein- staklingsbundið. Sumir vilja til dæmis halda því fram að menn eigi að forðast kaffidrykkju en það er heldur ekki algild regla. Ég jók til dæmis mikið mína kaffidrykkju eftir að ég hætti að reykja á meðan aðrir eiga mjög erfitt með að drekka kafíi án þess að reykja. Einu algildu reglurnar em þær að menn eiga að forðast þá hluti sem þeir hafa áður tengt reykingum og stunda meira þá hluti sem ekkert tengjast tóbaki, svo sem líkamlega hreyfingu. Líkamsræktin bæði dregur úr tóbaksfíkninni og mætir afleiðingum aukinnar matarlystar sem oft fylgir því að hætta að reykja." - Er þeim sem einu sinni hefur vanið sig af reykingum óhætt að fá sér eina sígarettu eða vindil á góðri stundu án þess að falla? „Þeir sem hafa reykt án þess að verða nikótínistar geta það en þeir em fáir. Talið er að 85-90% reykingamanna séu nikótínistar og er þetta hlutfall nákvæm spegil- mynd af drykkjumönnum og áfengi. Talið er að 10-15% þeirra sem nota áfengi verði alkóhólistar. Ein sígaretta er oftast nóg til að fella reykingamann þó hann hafi veriö í bindindi í nokkur ár en þessi 10-15% geta leyft sér að reykja eina sígarettu eða vindil á góðri stundu án þess að falla með látum.“ - Heldurðu að þú sért endanlega hættur að reykja eða óttastu að geta sprangið einhvem tima í framtíðinni? . „Ég veit orðið það mikið um af- leiðingar reykinga að ég mun ekki byija á þessum ósóma aftur nema að ég lendi í einhverri shkri and- legri þrengingu eða þunglyndi aö ég hugsi sem svo að það skipti ekki miklu máh hvað ég sé að gera lík- amanum. Þegar ég byrjaði hjá Krabbameinsfélaginu tók ég þetta að mér sem hvert annað starf en núna veit ég það mikið um afleið- ingar reykinga að ég get ekki annaö en gert reykingavarnir að hug- sjón,“ sagði Ásgeir Rúnar Helga- son. -ATA Núna finnast mér reykingar hlægilegar - segir Hrafn Sigurðsson sem hætti að reykja fyrir einum mánuði og ætlar ekki að byrja aftur „Jákvæðu áhrifin af því að vera hættur að reykja eru miklu meiri en neikvæðu fráhvarfseinkennin. Ég sef betur, vinn betur, hef meiri matarlyst, betra úthald og mér líð- ur á allan hátt mun betur en á meðan ég reykti," sagði Hrafn Sig- urösson, framkvæmdastjóri Sölu- félags garðyrkjumanna, en hann hætti að reykja fyrir mánuði og fór á námskeið hjá Krabbameinsfélagi íslands til að auðvelda sér reyk- leysið. „Ég hef margoft hætt að reykja en hef alltaf spmngið á limminu. Stysta reykingabindindið mitt held ég að sé einn klukkutími. En stund- um hef ég ekki reykt í nokkra mánuði. Hættan hjá mér er sú að eftir þijátil fióra reyklausa mánuði er ég búinn að gleyma því hvað hð- anin batnaði mikið við að hætta að reykja og held upp á bindindið með góðri sígarettu og þá er sagan öh.“ Hrafn sagðist hafa hætt að reykja fyrir mánuði vegna þess að hann var að byija í nýju starfi sem krafð- ist allrar starfsorku hans. „Vinnuþrekið eykst mikið þegar menn hætta að reykja. Tími reykingamanna er einnig ódrýgri því þár þurfa eilíflega að vera að fara í „smókpásur“. Mér þykir hka óstjórnlega vænt um sjáífan mig og þess vegna var ég oft aö hugsa um að hhfa líkamanum og hætta að reykja. Konan mín vissi af því og henni þykir einnig vænt um mig og þess vegna var hún búin að panta tíma fyrir mig á reykinga- varnanámskeiði hjá Krabbameins- félaginu án þess að tala við mig. Ég var hættur að reykja þegar ég byrjaði á námskeiðinu en það hjálpaði mér mjög mikið. Það vita allir að það er óhollt að reykja. Ég vissi það ekki síður en aðrir en þó meðtók ég ekki sannindin að fullu. En í námskeiðinu innprentaðist skaðsemi reykinganna svo í mig að ég held að það verði ekki aftur snúið. Ég er búinn að reykja í fiölda ára og ég veit að ég er búinn að skaða líkamann heilmikið með þessum tjöruaustri. Ég veit líka að það er ekki til neins að vera að sjá eftir þessum árum en ég er með það á hreinu að ég ætla ekki að eyöi- leggja meira." Hrafn sagði að það væri mun þægilegra að hætta að reykja í dag en það var fyrir tveimur til þremur árum. „Þá var almenningsálitið ekki eins eindregið á móti reykingum og það er í dag. Þá þótti það sjálf- sagt að reykja og þeir sem kvörtuðu undan reyk voru áhtnir einhveijir nöldurseggir. Nú er bannað að reykja í leigubílum, almennings- vögnum og í opinberum bygging- um. Enginn reykir í verslunum eða kemur inn í skrifstofuhúsnæði og púar þar án þess að fá til þess sér- stakt leyfi. Heima fyrir era krakk- arnir með áróður sem þeir hafa lært í skólunum og það er þess vegna óþægilegt að reykja þar. Reykingafólk er orðið annars flokks persónur og menn eru farnir að skammast sín fyrir mengunina sem þeir valda og biðjast afsökunar á sjálfum sér og ósómanum. Til þess að komast í betri hópinn og teljast menn með mönnum verða þeir því að hætta að reykja. Þetta er mikil breyting frá því sem áður var.“ Hrafn sagðist hafa verið rudda- legur reykingamaður áður en hann hætti. „Ég reykti tvo pakka á dag og nánast hvar sem var nema þar sem reykingar voru beinlínis bannaðar. Ef ég var á fundum fór ég fram á þaö að mega reykja þó svo að eng- inn annar reykti. Ég reykti heima þó enginn annar reykti þar og tölu- verð andstaða væri gegn reyking- um mínum. Konan og krakkarnir fóru fram á það að ég reykti ekki í stofunni meðan alhr væru að horfa á sjónvarpiö en ég fór ekki mikið eftir því. Ég sat að vísu ná- lægt dyrum og þóttist blása reykn- um annað en inn í stofuna en þaö var meira til að sýnast. Núna er ég sannfærður um að ég byija ekki aftur að reykja. Ég tel mig hafa meðtekið fylhlega þann hrylhng sem ég er að gera líkama mínum með því að reykja. Mér finnast reykingar beinlínis hlægi- legar og asnalegar núna. Ég er meðvitaður um það að ég er hættur að reykja og mér hður vel með þeirri staðreynd enda hefur líðanin verið aht önnur og betri, bæði lík- amlega og andlega, frá því ég hætti að reykja,“ sagði Hrafn Sigurðsson. -ATA „Nei takk, ég er sko hættur og ætla aldrei að byrja aftur,“ sagöi Hrafn Sigurösson, framkvæmdastjóri Sölufé- lags garðyrkjumanna, þegar honum var boðin sigaretta. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.