Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
23
Fréttir
Eigendur rækjubáta á Bíldudal:
Viljum samkomulag en
ekki hótunarbréf
„Hvergi kemur fram í reglugerö
að ákveðinn kílóafjöldi skuli vera
í kössum og ef stjómendur verk-
smiðjunnar vilja hafa það þannig
hlýtur að þurfa að ná um það sam-
komulagi við útgerðarmenn í stað
þess að senda þeim hótumarbréf.“
Svo segir m.a. í athugasemd sem
rækjubátaeigendur á Bíldudal hafa
sent frá sér vegna ummæla Ólafs
Egilssonar, framkvæmdastjóra
Rækjuvers hf. á Bíldudal, í DV 7.
janúar sl. Eins og fram hefur kom-
ið í DV deila útgerðarmenn og
forráðamenn Rækjuvers hf. um
greiðslur fyrir rækjuafla. Telja hin-
ir fyrmefndu að þeir séu hlunn-
famir í þeim efnum og fái ekki
greitt fyrir allan aflann sem þeir
landa. Hafa þeir farið fram á lög-
reglurannsókn í málinu.
I athugasemdinni, sem útgerðar-
mennimir hafa sent frá sér, segir
ennfremur:
„Samkvæmt reglugerð um með-
ferð og vinnslu rækju um borð í
veiðiskipum og vinnslustöðvum í
landi frá 1984 segir í 1. kafla 5.
grein: „Kassar til geymslu á ferskri
rækju um borð í veiöiskipum og í
landi skulu eigi vera dýpri en 20
sentímetrar."
í 4. kafla 12. grein segir ennfrem-
ur: „Eigi skal fylla kassana þannig
að hætta sé á að rækjan skemmist
af þeim sökum.“
Hvergi kemur fram í reglugerð-
inni að ákveðinn kílóafjöldi skuh
vera í kössunum og ef stjórnendur
verksmiðjunnar vilja hafa það
þannig hlýtur að þurfa að ná um
þaö samkomulagi við útgerðar-
menn í stað þess að senda þeim
hótunarbréf. í samtölum okkar við
fulltrúa hjá Ríkismati sjávarafurða
hefur komið fram að ekki skuli
hafa þykkara lag á rækju í kössum
en 20 sentímetra, burtséð frá stærð
þeirra. Kassar þeir sem Rækjuver
hf. leggur bátunum til eru 20 sentí-
metra djúpir. Séu þeir sléttfylltir
án þess að rækjan sé kramin eru í
þeim ca 43 kíló.
Varðandi meðferð á hráefninu
skal tekið fram að rækjunni er lan-
dað í verksmiðjuna aöeins nok-
kurra stunda gamalli og eins
ferskri og hún getur verið. Það er
alfariö í höndum stjórnenda verk-
smiðjunnar hvemig farið er með
hráefnið eftir að það er þangað
komið.
í lok viðtalsins í DV segir Ólafur
Egilsson að þetta séu 3,3 tonn eða
175.000 krónur sem ógreitt er og
skiptist á 10 báta.
Það rétta er að tonnin eru 5,7 og
gera samtals 285.000 krónur sem
skiptist á 8 báta, frá 5000 á bát upp
í 97.000 krónuf. En um þá tvo báta,
sem Rækjuver gerir út, vitum við
ekki annað en það að áhafnir þeirra
frá gert upp samkvæmt vigtarnót-
um.
Ólafur segir í viðtahnu að ekki
sé um háar upphæðir að ræða á
hvern einstakan bát. Honum finnst
tæpar 100.000 krónur ekki háar
upphæðir, ef marka má ummælin.
Þá hefur hann annað verðmæta-
skyn en við.
Peningaupphæðir eru kannski
ekki aöalmálið heldur það að
stjórnendur Rækjuvers hf. hafa
®ekki rétt til að búa til reglur og fá
á þann hátt hráefni til vinnslu án
þess að greiða fyrir það.“ -JSS
Þrír af íslandsmeisturum Hvatar í frjálsum iþróttum, Pálmi Vilhjámsson,
Bjarni G. Sigurðsson og Steinunn Snorradóttir. DV-mynd Baldur Daníelsson.
Öflugt starf hjá
Hvöt á Blönduósi
Spilað af fjöri
á Selfossi
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Eldri borgarar komu saman í
Tryggvaskála sl.fimmtudag og var
mæting góð eins og venjulega. Gamla
fólkið var ánægt að hittast á ný eftir
tæplega mánaðar jólafrí. Inga
Bjarnadóttir, forstöðukona öldruna-
rdeildar Selfossbæjar, sagði að sér
leiddist að sjá okkur ekki vikulega.
Spilað var af miklu fjöri og hann
Sveinn okkar Sveinsson flutti vísur
dagsins eins og alltaf á fimmtudög-
um. Mikil ánægja með vísumar og
ætlaði lófataki aldrei að linna. Sú
fyrsta var þannig.
Matarskatturinn
Illir þingmenn öðrum meir
elska matarskattinn.
Þar með era orðnir þeir
öllu verri en skrattinn.
Vonskuveður
og mikil hálka
Hólmfriður S. Priðjónsd., DV, Húsavik:
Frá því um jól hefur veður verið
með leiðinlegra móti á Húsavík og í
nágrenni. Flesta daga hefur verið
éljagangur eða skafrenningur. Á
fóstudag hlánaði og gerði þá mikla
hálku, bæði á Húsavík og á vegunum
í kring.
Þrír fólksbílar og einn vörabíll
fuku út af veginum sunnan við Húsa-
vík á fóstudag. Þá var mikil hálka
og hvassviöri. Engin slys urðu á fólki
og bílarnir skemmdust lítið. Mikih
og blautur snjór var fyrir utan veg-
inn og mun hann hafa komið í veg
fyrir slys eða veralegar skemmdir á
bílunum.
Auk bílanna íjögurra lentu margir
vegfarendur í vandræðum vegna
hálkunnar. Til dæmis var þjóðvegur-.
inn á milli Húsavíkur og Akureyrar
að mestu sámfellt svell.
Baldur Danielssan, DV, Blönduósi:
Ungmennafélagiö Hvöt á Blöndu-
ósi hélt uppskeruhátíð ársins 1987
hinn 20. desember sl. í annál, sem
fluttur var, kom fram að blómlegt
starf hefur verið í mörgum íþrótta-
greinum'. Má þar nefna að Hvöt var
sigurvegari í 4. deild íslandsmótsins
í knattspyrnu auk þess sem mjög
öflugt unghngastarf er unnið á veg-
um knattspyrnudeildarinnar.
Hafm var iðkun í tveimur nýjum
íþróttagreinum á árinu, júdó og
körfuknattleik. Tveir flokkar frá
Blönduósi keppa nú á íslandsmótinu
í körfunni undir nafni USAH.
Fyrir nokkru festi félagið kaup á
skíðalyftu, 300 metra langri toglyftu,
sem hefur verið sett upp í Þverár-
fjalli, skammt frá Blönduósi.
Síðast en ekki síst má geta þess aö
flmm íþróttakappar úr Hvöt urðu
íslandsmeistarar á árinu og voru þau
sérstaklega heiðrað. Þetta voru þau
Linda S. Halldórsdóttir, í spjótkasti
meyja, Steinunn Snorradóttir, í 800
metra hlaupi meyja, Bergþór Ottós-
son, í spjótkasti sveina, Pálmi Vh-
hjálmsson, í kúluvarpi stráka, og
Bjami G. Sigurðsson, í hástökki
stráka innanhúss.
Þá vora veitt verðlaun fyrir besta
ástundun, framfarir og valinn efni-
legasti leikmaður í hveijum aldurs-
flokki í knattspyrnu. Knattspyrnu-
maður ársins varð Hermann Arason
og sundgarpur ársins Júlía Guð-
mundsdóttir.
Á hátíðina mættu milli 150 og 200
manns og voru veitingar veglegar.
Það er óhætt að segja að útlitið sé
bjart hvað varðar starfsemi Hvatar
á næstunni því félagið virðist njóta
mikiha vinsælda íbúa staðarins. Fyr-
irtæki á Blqnduósi og sveitarsjóður
hafa styrkt félagiö myndarlega.
FJórir á síld frá Hornafirði
Júlia Imaland, DV, Höfiu
Fimm Homafjarðarbátar fengu
sfldveiðheyfi en fara sennilega ekki
nema fjórir. Þeir bíða nú veðurs að
komast út. Saltaö verður hjá fiski-
nyölsverksmiöjunni og eitthvað
veröur fryst af síld, bæði flök og hefl-
síld.
4700 tonn af síld vora unnin í fryst-
ingu í Fiskiöju Kask í vetur og var
það 730 tonnum meira en unnið var
þar í fyrra. í söltunarstöð fiskimjöls-
verksmiðjunnar var saltað í tæplega
23 þúsund tunnur - í fyrra var saltaö
í 19 þúsund tunnur. Hjá Skinney h/f,
sem byijaöi söltun í haust, vora salt-
aðar 13.280 tunnur og var það þriðja
mesta söltun yfir landið.
Oskum eftir
mönnum til loftnetsuppsetninga, helst vönum mönn-
um. Næg vinna. Uppl, aðeins á skrifstofunni.
Sjónvarpsmiðstöðin, síðumúia 2.
Vinningstölurnar 9. janúar 1988.
Heildarvinningsupphæð: kr. 5.906.029.
1. vinningur var kr. 2.956.693. Aöeins einn þátttakandi var meö fimm réttar tölur.
2. vinningur var kr. 885.339 og skiptist hann á 329 vinningshafa, kr. 2.691 á mann.
3. vinningur var kr. 2.063.997 og skiptist á 9.971 vinningshafa, sem fá 207 krónur hver.
Upplýsingasimi: 685111.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ,
STORSENDING!
LÆKKAÐ VERÐ!
7
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 25. janúar.
Kennt verður á öllu stigum ásamt bókmenntaklúbbi,
samtalshópi og í einkatímum.
Innritun fer fram á bókasafni ALLIANCE
FRANCAISE, Vesturgötu 2 (gengið inn
bakdyramegin), alla virka daga frá kl. 14 til 19 og
hefst fimmtudaginn 14. janúar.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á sama
tíma.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15% stað-
greiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
Greiðslukortaþjónusta.
SEUABRAUT
VANTAR FÓLK í EFTIRTALIN STÖRF
ALMENN AFGREIÐSLUSTÖRF, HEILS DAGS OG
HÁLFS DAGS EFTIR HÁDEGI
★
UNGAN MANN TIL LAGERSTARFA
★
VANAN KJÖTAFGREIÐSLUMANN
★
Frekari upplýsingar á staðnum.
SEUABRAUT