Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12, JANÚAR 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð I lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Mérk og dýr sjálfsblekking Raunverulegt aðalhlutverk ríkisvalds á íslandi er að færa fé úr sjávarútvegi til landbúnaðar. Þetta felur í sér mesta peningaflutning í landinu. Hann nemur í ár nokkrum Keflavíkurflugstöðvum, því að landbúnaður- inn brennir sex milljörðum af ríkisfjárlögum ársins. Fjárheimtan er tiltölulega einföld. Ríkið hefur tekið sér vald til að skrá gengi krónunnar með handafli og hagar skráningunni á þann hátt, að sjávarútvegurinn sé rekinn á því sem næst núlli, samkvæmt umfangsmikl- um reikningum í opinberum hagfræðistofnunum. Þetta er samkvæmt hinni rómversku fyrirmynd í skattheimtu að rýja þegnana, en flá þá ekki. Þjóðarauð- urinn er að mestu upprunninn í hinni einu, sönnu stóriðju landsins, fiskveiðunum, en er síðan dreift um þjóðfélagið til að halda uppi velmegun og landbúnaði. Til réttlætingar kerfinu hefur byggzt upp viðamikið kerfi hugsjóna, er hefur byggðastefnu að þungamiðju. Talið er þjóðlegt og mannlegt að haga málum á þennan hátt og jafnframt er fordæmd sú auðhyggja, sem talin er felast í gagnrýni á hið aldagamla millifærslukerfi. Svipað ástand var fyrir tveimur og þremur öldum, þegar íslenzkir embættismenn úr stétt landeigenda héldu uppi einokunarverzlun konungs til að hindra myndun lausalýðs á mölinni og draga úr atvinnufreist- ingum, sem kynnu að magna kjarakröfur vinnumanna. Miflifærslan hefur lifað góðu lífi öldum saman og fram á þennan dag, af því að hugsjón byggðastefnunnar hefur náð almennri viðurkenningu. Þurrabúðarmenn nútímans, íbúarnir við sjávarsíðuna, taka að vísu óljóst eftir millifærslunni, en skilja ekki eðli hennar. Fólkið í útgerðarplássunum er að vísu stundum að velta fyrir sér, hversu mikið af þjóðartekjunum mynd- ist þar og hversu litlu af þeim sé varið þar. En það dregur ekki af þessu þá ályktun, að millifærsluna eigi að stöðva, heldur vill það fá hluta herfangsins til baka. Hugsjóna- og hagsmunamenn byggðastefnunnar halda stíft fram þeim áhugamálum, sem þeir segjast eiga sameiginleg með þurrabúðarfólki. Þau felast eink- um í að fá til sín sem mest af opinberri þjónustu, er greiðist af sameiginlegum sjóði þjóðarinnar, ríkissjóði. Þannig er pólitísk orka fólks í sjávarplássum virkjuð í baráttu fyrir ríkispeningum í vegi, flugvöll, síma, raf- magn, skóla, sundlaug og vegagöt í fjöll. Baráttan er háð undir merkjum byggðastefnu, sem útvegar smáaura í þetta, en dreifir alvöruupphæðum til landbúnaðar. Sjávarsíðan fær til baka með þessum hætti aðeins hlúta af verðmætasköpun sinni. Fyrst eru nefnilega teknir tfl landbúnaðar og brenndir þar til ösku sex millj- arðar króna árlega af aflafé stefnunnar. Tfltölulega lítið verður því afgangs til annarra verkefna byggðastefnu. Vanmáttur þurrabúðarfólks fellur í farveg andstöðu við Reykjavíkursvæðið, þaðan sem ríkisvaldinu er stýrt. íbúar fiskibæja heimta meira í sinn hlut, í mynd aukinn- ar byggðastefnu. Þeir átta sig ekki á, að hagsmunir Reykjavíkur og sjávarsíðunnar eru hliðstæðir. Miklu hagkvæmara væri fyrir íbúa fiskveiðibæja að fá því framgengt, að gengi krónunnar verði ekki skráð með handafli, heldur eftir framboði og eftirspurn á svip- aðan hátt og í alvöruríkjum. Þá yrði miklu meira af arðinum eftir heima fyrir í bæjum gjaldeyrisöflunar. Stuðningur sjávarsíðunnar við ríkjandi byggðastefnu og við aukna úáröflun tfl hennar er merkasta og dýr- asta dæmið, sem til er um sjálfsblekkingu hér á landi. Jónas Kristjánsson „Víða eru reknar vinnustofur eða vinnustaðir fyrir fatiaöa og þýðingu þess dregur enginn í efa.“ Frá nýju vinnuborði Lengi hefur undirritaður reynt að fylgjast nokkuð með og hafa af- skipti af högum og málefnum fatlaðra og þá máske fyrst og síðast þeim málefnum sem til kasta lög- gjafans koma á ýmsan veg - hinni ytri umgjörð ef svo mætti segja. í meira nábýli Sestur í enn meira nábýli við þessi mál öll verður fljótlega ljóst að af ærnu er enn að taka, á hinum innri málum, á vandamálum dag- anna, erfiði fótlunarinnar og annmörkum, beinum kjörum og aðbúnaði öllum. Fötlun er af svo margvíslegum toga og svo mismunandi að nafnið eitt gefur ekki annað til kynna en fátæklega útleggingu þess í orða- bók og er þá ekki mikið né merki- legt sagt. Fræöileg skilgreining er fjarri mér. Skipting í líkamlega fötlun eða hugfótlun víðs fjarri einnig, en undramargt sækir á og veldur fötlun, meðfædd getur hún verið á ýmsan veg, sjúkdómur valdið ellegar slys eða jafnvel fleira en eitt samverkandi, máske allt. Þetta á ekki aö þurfa að segja neinum sem kominn er til vits og ára en þó hefi ég áður haldið því fram og geri enn - og enn ákveðnar - aö ýmsir vilji staðla fotlun - þægi- legra og léttbærara í sambandi við lausnir sem eiga þá misskilningi málsins samkvæmt að vera algild- ar og alhæfðar og um leið „alltleys- andi“ fyrir alla. Á þessu bar meira að segja nokk- uð á mínum fyrri vinnustað og verð ég þó að segja að almennt setja menn sig miklu betur inn í mál þar (enda ekki þakkandi) en fólk al- mennt gerir. Einangrun og tjáskipti En þegar farið er að horfa til mála úr meiri nálægð koma hin smærri atriði betur fram, smærri í óskilgreindri merkingu því oft eru þau veigamikil og afdrifarík fyrir jafnt hópa sem einstakhnga. Ég nefni dæmi enn og aftur um mjög einangraðan hóp fatlaðra - heym- arlausa - erfiðleika þeirra og okkar varðandi öll tjáskipti ætti aö vera óþarft að tíunda, svo augljósir eru þeir. Þessi hópur er hins vegar fé- lagslega þroskaður, hefur með sér ágætan félagsskap og ekki skortir þar andans kraft eða viljans afl. Ríkissjónvarpið okkar tók upp - að vísu eftir góðan áýting - táknmáls- fréttir, næst á undan aðalfréttum sínum og þó tími væri knappur og ýmsu ábótavant var þarna virki- lega um góða viðleitni að ræða fyrir þennan hóp fólks. En svo kom blessuð samkeppnin því engum dettur í hug aö einka- stöðvar gróðahyggjunnar ætli að leyfa sér þann munað að mæta hópum af þessu tagi. Markaðs- hyggjulögmál þeirra blátt áfram úthýsir þessu fólki. En nóg um það, þó þar sé máske að kvikunpi kom- ið í dag í víðustu merkingu: markaðshyggju einkagróðans eða samhjálp samfélagsins. Og Ríkis- sjónvarpið brást þessum hópi aö hluta fyrir hagsmuni - trúlega Kjallaiinn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ sanna - ef til vill ýkta - gæti jafn- vel hugsast ímyndaða - í öllu „stressinu" út af samkeppninni. Mínúturnar fáu, sem heyrnarlaus- ir fengu næst fréttum, urðu nú svo óendanlega dýrar og dýrmætar að þeim varð að fóma. Nú vita menn aö táknmálsfréttir eru enn, rétt fyrir sjö - samhhða stuttu frétta- ágripi, og hvaö era menn þá að kvarta? Jú, heymarlausir halda því rétti- lega fram að hin eðlilega tenging við myndefnið í fréttunum sé rofin og í öðru lagi þá eiga þeir ekki að vera neinar hornrekur hjá þessari stofnun ahrar þjóðarinnar, þessi hópur er nefnilega hluti hennar. Nú veit ég að forráðamenn Sjón- varpsins vhja gjaman gera vel en eitthvað heldur þó enn aftur af þeim í þessum góða vilja. Hins veg- ar skal því treyst að nýtt útvarps- ráð, ásamt velvhjuðum útvarps- stjóra, taki hér af skarið og setji heymarlausa við sama borð og aðra, svo sem það er unnt. Þetta dæmi nefni ég af því að það er á borði okkar hér sem óleyst vandamál margra mánaða og er, þegar grannt er skoðað, ekkert smámál. Vasapeningar til „framfærslu“ Ég fór th vinkonu minnar á dög- unum sem býr við vasapeninga svokallaða eina sér th lífsframfæris - að sjálfsögðu til viöbótar því húsaskjóh, fæði og almennri þjón- ustu er viðkomandi stofnun veitir henni. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm og alvarlega fótlun er hún vel lif- andi í þess orðs fyhstu merkingu, fylgist vel með, vhl klæða sig sóma- samlega, fara í heimsóknir, njóta lista og menningar og sinna ýmsu öðm sem við öh teljum sjálfsagöa hluti en kosta sitt - kosta margir hveijir mikið. Veit fólk hvað þessi unga kona hefur th ráðstöfunar th þessara margvíslegu félagslegu þarfa sinna, aö ekki sé minnst á klæði sem hún fer að vísu mjög sparlega í að endurnýja af auðskhdum ástæðum? Upphæðin á mánuði er nú í janúar um 4500 krónur - fjögur þúsund og fimm hundruð krónur - eða samtals hehdarupphæð á ári upp á hehar 54 þúsundir - fimmtíu og fjögur þúsund - segi og skrifa. Og ég spurði auðvitað eins og auli: Er þetta mögulegt? og fékk verðugt svar:'„Nei, auðvitað ekki, fólkið mitt hjálpar mér og svo neita ég mér bara um hlutina og það er al- veg að komast upp í vana - hættu- legan vana, heldurðu ekki?“ spurði hún í lokin. „Því annars leggst ég einfaldlega í eymd og volæði." Og ekki meira um þessi ósköp. Verndaðir vinnustaðir Ég nefni þriðja dæmi nátengt þessu, þar sem undrun mín varð mikh, svo meira sé.ekki sagt. Víða eru reknar vinnustofur eða vinnustaðir fyrir fatlaða og þýö- ingu þess dregur enginn í efa. Forstöðu þeirra verkefna og vinnu- staða fylgja óhjákvæmhega ýmsir annmarkar og erfiðleikar og vand- inn oft ærinn við svo ótalmargt sem ekki kemur til á venjulegum vinnu- stað. Forstöðuaðhi shks staðar ber hka oft meiri ábyrgð en gengur og gerist. í einkageiranum í dag hafa þeir menn sem þama standa sig (og þarf jafnvel ekki th!) dágóð laun. En því er nú aldehis ekki að hehsa hjá þessum aðhum - forstöðu- mönnum verndaðra vinnustaða - með umfang, ábyrgð og ýmislegt langt umfram það venjulega. Ef mig misminnir ekki var verið að tala um þriðjung þeirrar upphæðar sem kunningi minn hafði sagt mér daginn áður að hann hefði sem framleiðslustjóri einkafyrirtækis. Jú, upphæðin var eitthvað um 60 þúsund og ég undraðist þetta al- gera vanmat á þessum vandasömu og verðmætu störfum. hér þarf hið opinbera sannarlega úr aö bæta ef unnt á að vera að fá færa og góða menn th að stjóma þessari þjóð- félagslega verðmætu vinnu sem þama fer fram. Hið opinbera þarf nefnhega í þessu sem fleim að fara að gá alvarlega að sér ef ekki á svo aö fara að einungis miölungsmenn, jafnvel undirmálsmenn, fáist þar th ákveðinna starfa. Á borðinu hjá mér er ennþá af æmu aö taka og máski tek ég th síðar. Helgi Seljan „Mínúturnar fáu, sem heyrnarlausir fengu næst fréttum, urðu nú svo óend- anlega dýrar og dýrmætar að þeim varð að fórna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.