Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988. 7 Atvinnumál Afleit staða ullar- og fataiðnaðarins: Um 500 manns hafa misst atvinnuna síðustu tvö ár Afleit staöa íslensks ullariönaös hefur ekkj farið framhjá neinum síð- ustu árin og nú er svo komið að þessi iðnaður er nánast að líða undir lok. Það er aðeins stórfyrirtækið Álafoss sem heldur velh og þá eftir miklar og gagngerar skipulagsbreytingar sem kostuðu marga starfsmenn at- vinnuna. Hin minni fyrirtæki hafa Fréttaljós Sigurður M. Jónsson hins vegar mörg hver ekki lifaö af þessar breytingar og hafa orðið að hætta starfsemi. Það hefur víða kom- ið sér afskaplega illa því sums staðar voru þau nánast eina iðnaðarstarf- semin og skarð þeirra verður ekki fyllt. Lætur nærri að um 500 manns hafi misst atvinnu sína hjá ullarfyr- irtækjum á síðustu tveim árum og þó mest á siðasta ári. En þaö er ekki bara í ullariónaðin- um sem kreppt hefur aö. Annar iðnaður og náskyldur, fataiðnaður- inn, hefur látið verulega undan síga og eru þau teikn á lofti að hann sé að mestu að hverfa úr iðnaðarflóru landsins. Fylgir þáð þróun annars staðar á Vesturlöndum en Asía virð- ist vera að verða einráð á þessum markaði enda stjamfræðilegur mun- ur á launakostnaði hér og þar. Útlit er fyrir að þeir framleiðendur, sem vilja halda velh, verði að láta fram- leiöa sína vöru í Asíu. Hér ér um að ræða vinnuaflsfrekan iðnaö og þró- unarlönd standa auðvitað mun betur að vígi þar. Það er því útlit fyrir að hér sé að hverfa úr landi iðnaður sem veitti hátt í 1500 manns atvinnu þegar best lét. Óvíst er að þessi iðnaður komi til baka. Dauðalistinn langur Á síðustu tveim árum hefur mikill flöldi sauma- og prjónastofa lagt upp laupana og er því dauðalistinn lang- ur. Samkvæmt upplýsingum Reynis Karlssonar hjá Landssamtökum sauma- og prjónastofa htur hann þannig út: Katla hf. í Vík Sunna á Hvolsvelh Astra á Selfossi Framtak hf. á Selfossi Pijónastofa Hildu á Selfossi Dúkur hf. í Reykjavík Garðapijón hf. í Garðakaupstað Karitas hf. í Dalasýslu Útskálar hf. á Raufarhöfn Sif í Aðaldal Viola hf. á Skagaströnd Pólarpijón hf. á Blönduósi Þá misstu margir atvinnu sína þeg- ar Pijónastofa Borgarness hiætti starfrækslu saumastofu sinnar. Reynir sagði að hstinn væri langur og bætti því við að hann óttaðist að hann ætti eftir að lengjast enn frek- ar. Reyndar barst sú frétt á meðan á samantekt þessarar greinar stóð að um 30 manns hefðu misst vinnu sína þegar pijónastofan Dyngja sagði upp starfsfólki sínu. Það er líklega tákn- rænt fyrir ástandið. „Það er enginn vafi á því að hrun hefur orðið í þessum iðnaði - það þarf engan speking til að sjá aö það þýðir lítið að standa í þessum iðn- aði,“ sagði Reynir Karlsson. Hann bætti því við að samdrátturinn væri í raun enn meiri því árin á undan hefðu mörg fyrirtæki til viðbótar þessum orðið að leggja upp laupana. Hætta til aö forðast gjaldþrot Eitt þeirra fyrirtækja, sem nú eru að hætta, er Pijónastofan Iðunn hf. og er aðdragandi lokunar hennar lík- lega nokkuð dæmigerður. Að sögn Njáls Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra Iðunnar, er ekki um annað að ræða. „Við hættum til að verða ekki gjaldþrota," sagði Njáll og bætti við: „Við erum orðnir of dýrir hér á landi, það er ekki hægt að flyfla út verð- bólgu.“ Taldi Njáh að fyrir fram- leiðslu sem þessari væri tæplega lengur grundvöllur hér á landi. Þegar mest var, 1978, unnu 45 manns hjá Iðunni en nú vinna um 15 manns þjá fyrirtækinu til mars- loka við að Ijúka verkefnum en þá verður lokað. Ástæðurnar margar í skýrslu á vegum iðnaðarráðu- neytisins, sem byggist á athugun sem Þjóðhagsstofnun gerði á stöðunni í ullariðnaðinum, eru ástæður slæmr- ar afkomu taldar þessar - skýrslan var birt í nóvember 1987: 1. Misgengi verðþróunar á erlendum mörkuðum og innlendar kostnaðar- hækkanir. 2. Nokkur verðlækkun á afurðum sem stafar annars vegar af beinum verðlækkunum og hins vegar af lækkun á gengi dollars. 3. Miklar kostnaðarhækkanir innan- lands. Undir þetta tóku flestir þeirra sem við var rætt en Jón Sigurðarson, for- stjóri Álafoss, benti á þijár ástæður til viðbótar sem mætti rekja til ullar- fyrirtækjanna sjálfra: í fyrsta lagi heföi framleiðslugetan hér byggst of hratt upp sem hefði leitt til undir- boða. í öðru lagi heföi á sama tíma ekki náðst að þróa vörumar eins og skynsamlegt mætti teljast. Hönnun og markaðsöflun hefði ekki farið saman. í þriðja lagi sagði Jón að ís- land væri hálfgert villimannaland fyrir iðnrekendur. Ofurvald fiskiðn- aðarins væri mikið og iðnrekendur væru fórnarlömb fastgengisstefn- unnar. Baldur Pétursson, deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu, bætti viö þetta: „Þróunin aö undanfómu hefur verið sú að bilið milh þessarar iðngreinar og sjávarútvegs hefur breikkað. Sjávarútvegurinn hefur fengið mikl- ar hækkanir á erlendum mörkuðum en ullariðnaðurinn ekki.“ Baldur taldi gengisstefnuna ekki vera aðal- vandamálið - hún væri aðeins ein afleiðing vandans. Hann taldi að framleiðendur heföu ekki fengið frið til til að sinna hönnunar- og mark- aðsstörfum vegna 'óstöðugs efna- hagsástands hér á landi. Hvort sem framleiðendur hafa fengið frið eða ekki til að sinna hönn- unarstarfi þá hafa þeir legið undir ámæh fyrir að framleiða vöm sem sé svo ljót að enginn vilji kaupa hana. Margt í framleiðslunni hefur ekki tekið neinum breytingum í áratugi. Ekki er hér þó átt við lopapeysurnar sem flestum þykja klassískar, sem bendir á þá staðreynd að þessi iðnað- ur á líklega líf sitt undir því að geta kynnt sig á þjóðlegum nótum. Þá hefur veriö bent á að gæðum ís- lensku ullarinnar hafi hrakað og hún sé því tæpast lengur sú gæðavara sem við viljum vera láta og byggt markaðsstarf okkar á hingað til. Hvaö gera verkalýðsfélögin Nú eru kjarasamningar lausir síð- an 1. janúar og er það hald manna aö Iðja, félag iðnverkafólks, verði að gera ákveðnar launakröfur. Hversu sanngjamar sem þær verða á enginn von á að geta borgað samkvæmt þeim. „Þessi iðngrein hefur nánast hrun- ið og ekki ofsagt að ástandið sé alvarlegt. Það er þó ljóst að ekki er hægt aö bregðast, við þessu á neinn hátt af hálfu verkalýðsfélaganna," sagði Guðmundur Þ. Jónsson, for- maður Iðju. Hann játaði því að þetta ástand veikti samningsaðstöðuna en átti þó ekki von á sérsamningum við þennan iönað. „Auðvitað verður þessi grein að bjóða upp á sambæri- legar greiðslur og aðrar iðngreinar." Tækin seljast ekki Þegar gjaldþrot hefur blasað við fyrirtækjum hafa þau setið uppi með fiárfestingu í tælflum sem þau losna engan veginn við. Á þetta bendir meðal annars Halldór Einarsson hjá Henson: „Ég bíð auðvitað verulegt tjón af þessu gjaldþroti uppi á Akranesi. Allt var verðtryggt í bak og fyrir. Þama hefur verið byggt upp glæsi- legt hús og vélakostur. Húsið stendur auðvitað fyrir sínu en vélakosturinn er því sem næst verölaus. Ekki er hægt að selja hann hér á landi því enginn getur notað þetta hér. Eini möguleikinn er að selja vélarnar til útlanda og þar fæst varla hátt verö fyrir þær,“ sagði Halldór. Því má segja að flárfesting í vélum þessara fyrirtækja sé í raun glötuð viö gjaldþrot þeirra. Veð, sem hafa verið bundin við þær, munu því ólík- lega skila veðeigendum fullu verði. Þetta, ásamt því að allt er veösett, gerir það að verkum að iðnrekendur eiga erfitt með aö útvega veö. „Þaö em mjög dýrar vélar í þessari iðngrein og get ég nefnt sem dæmi að ein prjónavél getur kostað á við einbýlishús. í raunvirði em þessi tæki hins vegar lítils virði þegar illa árar,“ sagði Reynir Karlsson. Njáll Þorsteinsson hjá Iðunni var bjartsýnni á að geta selt tæki-sinnar verksmiðju. Hann sagði að þeirra tæki væm fullkomlega samkeppnis- fær og átti hann von á að vel gengi að losna við tækin. Njáll sagði reynd- ar að svipuð vandamál væru í nágrannalöndunum en ekki væri mikill kostnaður því samfara að senda tækin út. Á þessi iðnaður framtíð hér? Það horfir þunglega um framtíö ullar- og fataiðnaðar hér á landi og telja sumir að verið sé að berjast gegn gangi tímans með því að halda þessum iðnaði lifandi. „Ef ullariðnaður getur byggt á sér- stöðu íslands á hann framtið fyrir sér,“ sagði Jón Sigurðarson. Hann taldi að eitthvað af litlu fyrirtækjun- um ættu framtíð fyrir sér.....þeir sem eru dugmestir". Hann sagöi aö þeir hjá Álafossi ætluðu ekki að auka afkastagetu sína heldur yrði einblínt á hönnun og markaðssetningu. „Tvö ár eiga að segja okkur mikið um það hvort við eigum einhveija framtíö fyrir okkur.“ Álafoss hefur nú hækkaö vörur sínar og sagði Jón aö enn væri óljóst hveiju þaö skil- aöi. Óvíst er hvemig erlendir kaupendur taka þessari hækkun sem er 20-30%. Aðrir framleiðendur munu einnig vera í þann veginn að hækka sína vöru. „Ég efast um að þessi iðnaður, sem nú er að hverfa á braut, komi nokk- um tímann til baka. Þetta verður alltaf láglaunaiðnaður og þróunin er okkur andsnúin," sagði Njáll Þor- steinsson hjá Iöju. -SMJ 20001 1000- Starfsmenn í ullariönaöi Fækkun á milli ára alls 500 starfsmenn Fjöldi 1984 1987

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.