Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
15
Fjölmiðlabylting fyrir hvem?
„Nýir menn og konur hafa verið að
koma heim úr fjölmiðlanámi erlendis
og þeim varð að skapa atvinnu.“
Nú er veriö að velja „menn árs-
ins“ og sýnist sitt hveijum. Ósjald-
an verða fyrir valinu stjómmála-
menn sem hafa verið nálægt
myndavélum á síðastliðnu ári og
eru orðnir að þekktum andlitum.
Menn líta því oft þannig á að það
sé fyrir bestu að kjósa þessa aðila
menn og konur ársins.
Ef ég mætti velja menn og konur
ársins 1987 og 1988 og 1989 og öll
ár, þangað til hugarfarsbreyting á
sér stað í heiminum, þá myndi ég
velja allt það fólk, sem býr við mis-
rétti og valdbeitingu og fær ekki
að sjá glaðan dag, hvort sem er í
fangelsi eða býr viö örbirgð eða
pólitíska kúgun. En mætti ég velja
„orð ársins" þá yrði það fjölmiðla-
byltingin því ekkert er það orð í
íslensku máli sem hefur verið jafn-
oft tuggið ofan í okkur á síðastliðnu
ári og legg ég jafnframt til að fjöl-
miðlabyltingunni verði valið annað
orð á árinu 1988. Ekki veit ég gjörla
hvaða orð það skyldi vera en ef til
vill er orðið „hugmyndasprenging"
ekki íjarri lagi.
Hættulegur varaforði
Hugmyndasprenging eða fjöl-
miðlabylting er fyrirbæri sem
hlaut að koma. Gerjunin var orðin
svo mikil undir niðri í þjóðfélaginu
fáeinum mánuðum áður en út-
varps- og sjónvarpsrekstur var
gefinn frjáls. að hinir rótgrónu
stórnmálaflokkar urðu að sam-
þykkja nýju fjölmiðlalögin til þess
KjaHarinn
Friðrik Ásmundsson
Brekkan
blaðafulltrúi
að veita þeirri gerjun í nýjan far-
veg.
Eitt ár fór í að velta upp hug-
myndum. Annað ár hefur fariö í
að skipta um vinnu. Menn eru að
leita fyrir sér á milh fjölmiðla,
finna hugmyndum sínum farveg.
Launahækkanir hafa oröið hjá fjöl-
miðlastéttunum og er það til góðs.
Nýir menn og konur hafa verið að
koma heim úr fjölmiðlanámi er-
lendis og þeim varð að skapa
atvinnu. Hefði þetta dugmikla fólk
ekki fengið störf við nýju fjölmiðl-
ana er hætta á því að það hefði
orðið að ryðja sér brautir í stöðn-
uðu flokkskerfi og það hefði
auðvitað aldrei verið liðið. Það var
offramboð af fólki með nýjar hug-
myndir en vandann tókst að leysa
með því aö leyfa öllum að tala út
um öll mál á öllum bylgjum og
stöövum. Fjölmiðlabyltingin kom á
réttum tíma en fyrir hvern?
Fylgstmeðhinum
Það er ánægjulegt að sérhver
skuli hafa fengiö fjölmiðil við sitt
hæfi og ef-einhver vill hlusta á
poppmúsík allan sólarhringinn
getur hann það á nokkrum rásum.
Þá eru fréttimar með líflegri
uppákomum. Meira að segja veöur-
fræðingarnir hjá ríkissjónvarpinu
byijuðu að brosa án tilefnis og þá
má sannarlega tala um að bylting
hafi átt sér stað.
Nokkur orka hefur farið í það hjá
nýju miðlunum að fylgjast hver
með öðrum og þylja upp hver ann-
ars fréttir. Þetta er eöhlegt á fyrsta
skeiðinu þegar verið er að kanna
undirtektir hlustenda og áhorfenda
auk þess sem þarf að láta auglýs-
endur finna að menn séu með allt
á hreinu.
Þegar fram líöa stundir munu
stöðvamar skapa sinn eigin farveg
og leita eftir „öðruvísi" fréttum.
Fréttir um hinn venjulega mann
og málefni hans vildi ég sjá oftar á
næsta ári. Þættir eins og Maður
vikunnar hjá ríkissjónvarpinu,
samtal við listamenn á Stöð 2 og
ýmiss konar einlægir samtalsþætt-
ir eru af hinu góða.
Sumir sem stjórna samtalsþátt-
um í sjónvarpinu verða þó að vera
gagnrýnni við val viðmælenda
sinna. Mikið er af ágætu fólki til
sveita en einnig em til menn sem
hafa ekkert að segja og er hvim-
leitt að hlusta á spyril leggja
viðmælanda sínum stööugt orð í
munn og gesturinn segir lítiö ann-
að en: „Jamm og jæja“, og snýtir
sér rækilega til áherslu.
Aukin þjóðernishyggja
Þegar þetta fór allt saman af stað
á sínum tíma héldu margir að ís-
lenskan yrði útdautt tungumál á
örfáum árum. Engilsaxneskan
. myndi kaffæra okkur og börnin
myndu tala ensku um næstu jól af
völdum fjölmiðlafársins.
Vissulega hafa hellst yfir okkur
áhrif alls staðar frá en því fer fjarri
að við séum að drukkna. Frekar
virðist að öll erlendu áhrifin, sem
svo snöggt flæddu hér inn hafi
verkað sem eins konar flotholt.
Flotholt sem lögðust allt í kringum
okkur og vöktu okkur upp. Spum-
ingin var: Ætlið þið að standa
ykkur eða eigum við aö taka við?
Við ákváðum að standa okkur og
snúa vöm í sókn.
Það hjálpaði okkur mikið að fá
leiðtogafundinn hingað. Það gaf
okkur aukið sjálfstraust í barátt-
unni gegn erlendu áhrifurtum en
ég er hræddur um að ef ekki hefði
komiö til leiötogafundarins hér, þá
hefði barátta okkar verið erfiðari.
Leiðtogafundurinn veitti okkur
töluvert sjálfstraust. Við gerðum
þetta allt á örskömmum tíma, betur
en nokkur annar hefði getaö gert.
Hin gífurlega atorka okkar íslend-
inga er að ná hámarki þessa
dagana. Aldrei hafa selst fleiri ís-
lenskar hljómplötur, aldrei fleiri
íslenskar bækur og kvikmynda-
gerö og annað efni er á fullu í
vinnslu. Nýjar hugmyndir eru
stöðugt að fæðast.
Horfum fram á veg
Bjartsýni og þrautseigja er hið
eina sem þarf. Við trúm á okkur
sjálf og látum ekki í minni pokann
fyrir neinum. Horfum fram á veg
með bjartsýni að leiöarljósi þá fer
allt vel á nýbyijuðu ári.
Friðrik Ásmundsson Brekkan
Um upphaf mannlífs
- síðari grein -
í fyrri grein minni um þetta efni,
sem birtist í DV 6. þ.m„ var lýst
hvemig tvær frumur frá karli og
konu sameinast í eina og mynda
hið undurflókna forrit, með ótöld-
um milljónum „skipana“ og „boð'a“
- og ný mannvera verður tO.
Það var einnig rætt hvað gerist
fyrstu vikuna, vöxtur fóstursins og
fleira.
Hvernig myndast líffærin?
Þegar hin nýmyndaða „lífskúla“
hefir fest rætur í legveggrium á 7.
degi fer hún að vaxa mjög hratt.
Fjögurra vikna gamalt er fóstrið
orðið 4 til 6 milllmetrar að lengd
og hefur tekið á sig mannsmynd
þótt örsmátt sé.
í lok 3. viku er hryggurinn að
myndast, einnig taugakerfið, nýr-
un, lifrin og meltingarfærin. 24
daga gamalt hefur fóstrið ekki
handleggi eða fætur en á 26. degi
fara að vaxa fram handleggir og
tveim dögum síðar vaxa fram fót-
leggir.
I sjöundu viku eru allar 20 mjólk-
urtennurnar til staðar og á 40 til
42 daga gömlu hefur tekist að mæla
heilabylgjur. Á sama tíma eru eyr-
un, nefið tungan og varimar að
taka á sig æ skýrari mynd. Augun
eru að þroskast og á 35. degi eru
sjáöldrin farin að taka á sig hinn
endanlega augnalit. Á 44. degi hafa
augnalokin vaxið yfir augim til að
vemda þau og hinar ljósnæmu
sjónfrumur og opnast ekki aftur
fyrr en á sjöunda mánuði. í lok 8.
viku eru öll líffæri til staðar, og
sjánaleg, en á mismunandi þroska-
stigi. Öll 40 vöðvakerfi líkamans
eru til staðar og fyrstu vöðvahreyf-
ingar byija. Tveggja mánaða er
fóstrið um 3 sentímetrar og það
getur snúið sér við á um 2 sekúnd-
um, af eigin rammleik.
Tveggja mánaða gamalt getur
barnið fundið til, hjartað slær,
heilabylgjur mælast, fingrafórin
eru mótuð, þaö getur kreppt hnef-
ana og tekið utan um hlut með
hendinni, það getur synt til og frá
Kjallariim
Tryggvi Helgason
flugmaður, Akureyri
og létt bank á líknarbelginn fær það
til að hrökkva við.
Hvernig þróast
öndunarkerfið?
í 11. til 12. viku byrjar það að
anda og upp frá því andar það
stanslaust til dauðadags. Fyrst
andar það aö sér vökvanum sem
það flýtur í, öndunarfærin og vöðv-
ar þjálfast og styrkjast og lungun
haldast hrein, allt tíl fæðingar, en
þá skipta lungun skyndilega um
hlutverk og anda aö sér lofti og
vinna súrefni úr loftinu.
Rannsóknir hafa sýnt að reyking-
ar móður hafa þau áhrif að hægja
á andardrætti fóstursins um allt
að 20%. Þetta er talið valda
hægari þroska bamsins eftir fæð-
ingu og auka líkur á andvana fæð-
ingu.
Hvenær eru öll
líffæri starfandi?
í 11. til 12. viku (3 mán.) eru öll
líffæri starfandi. Þriggja mánaða
ert þú orðinn 5 til 6 sentímetrar að
lengd og þyngdin er um 30 grömm.
Allar hreyfingar eru orönar kraft-
meiri og léttari þú getur kreppt tær
og fingur, snúið höfðinu, hreyft
munn og varir, drukkið og kyngt
vatninu sem þú flýtur í, þú sofnar
og vaknar reglulega og þar sem
raddböndin eru mótuð þá gætir þú
látið til þín heyra ef þú hefðir loft.
í 14. viku ert þú farinn að heyra
og í lok fjórða mánaðarins ert þú
orðinn um 20 sentímetrar að lengd.
Hárið er farið að vaxa á höfðinu
og einnig augabrúnir og augnhár.
Beinmergur er aö myndast sem
fjölgar rauöu blóðkornunum.
Þyngdin er um 250 grömm. Hjart-
slátturinn heyrist mjög greinilega,
og hjartað dælir 25 lítrum á dag.
20 vikna getur barnið lifað utan
móðurinnar með þeirri tækni sem
nú er tiltæk. Ef sterku ljósi er beint
að kviði móðurinnar þegar fóstrið
er 18 vikna þá hreyfir það hendum-
ar og reynir að skyggja fyrir ljósið
og hlífa augunum. Sömuleiðis ef
spiluð er hávær tónlist þá reynir
það að berá hendumar fyrir eyrun.
Eftir þennan tíma stækkar barnið
mikið og þyngist en viku fyrir fæð-
ingu hættir það allt í einu aö
stækka og virðist búa sig undir
sjálfa fæðinguna. Þá hafa fmmu-
skiptingar orðið 41 sinni, aðeins
ijórar em eftir til fullórðinsára. Við
fæðingu em frumur líkamans
orðnar um 2000 milljarðar að tölu.
Tryggvi Helgason
„Fjögurra vikna gamalt er fóstrið orðið
4-6 mm að lengd og hefur tekið á sig
mannsmynd þótt örsmátt sé.“