Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Page 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
Meiming
Söngur í Norræna húsinu
Þaö debúteruðu tvær ungar og
efnilegar messósópransöngkonur
um síðustu helgi og báðar í Norr-
æna húsinu. Við sögðum frá þeirri
fyrri, Svanhildi Sveinbjörnsdóttur,
í blaöinu í gær. Hún söng á laugar-
daginn. Daginn eftir var svo
Þórunn Guðmundsdóttir með
mikla og vandasama efnisskrá og
haíði Jónas Ingimundarson til
halds og trausts við píanóið. Þór-
unn lauk annars einsöngvaraprófi
héðan úr Tónlistarskólanum fyrir
þremur árum en hefur síðan dvalið
við framhaldsnám í Bandaríkjun-
um.
Hún byrjaði tónleikana afar fall-
ega, með lögum eftir Mozart og þar
heyrði maöur strax að hún er góð-
ur músíkant með þjálfaðan smekk.
Tónlist
Leifur Þórarinsson
Röddin er að vísu ekki stór og á
eftir að þroskast en hún kom þess-
um yndislegu lögum vel til skila.
Sama má segja um íslensku lögin
eftir Björgvin og Pál og var gaman
að heyra sjaldgæf lög eins og Sum-
ar og Söknuð eftir þann síðar-
nefnda. En það var þó sérstaklega
í lögum eftir Poulenc, Banalités,
Þórunn Guðmundsdóttir.
sem Þórunn heillaði mann með
léttum, ísmeygilegum blæbrigðum
sem gefa til kynna að hún eigi
framtíð á leiksviði.
Eftir hlé voru lög eftir Grieg,
Hugo Wolf og Richard Strauss og
þjóðlagaútsetningar eftir Matyas
Seiber. Mætti segja mér að Þórunn
eigi nokkuð í land með sumt eftir
slíka höfunda. En nógur er tíminn.
Jónas Ingimundarson fór létt
með að styðja söngkonuna til stór-
ræðanna enda er hann einn albesti
meðleikari söngvara sem hér hefur
starfað, gerir aldrei of mikið en
hérumbil alltaf rétta hluti á réttum
stað.
LÞ.
Igærkvöldi
Jón Páll Sigurjónsson skrifstofumaður:
KvennahandboWnn góður
Ekki fór nú mikið fyrir hljóð-
varpinu hjá mér í gærkvöldi. Ég
hafði misst af 6 fréttum á Bylgjunni
en náði 7 fréttum í Hljóðvarpinu
þó þær færu nokkuð fyrir ofan garð
og neðan vegna láta við kvöldverð-
arborðið. Fréttirnar finnast mér
vel unnar yfirleitt og ekki að undra
því að við eigum orðiö harðsnúið
hð fréttamanna.
Ég horfði á íþróttaþátt á Stöð 2.
Það er gaman að sjá hvað kvenna-
handboltamönnum hefur farið
fram. Fréttir á Stöð 2 horfði ég ekki
á. Uppsetning á 19:19 er ekki fyrir
minn smekk. Of mikill auglýsinga-
fnykur af honum. Fréttir og veður
voru á sínum staö í Rikissjónvarp-
inu, ég missi helst ekki af þeim.
Bingóiö fór af stað í gær á Stöð 2
en enginn í íjölskyldunni hafði náð
sér í miöa svo að drengirnir stilltu
á Ríkissjónvarpiö. Þar var Stuð-
púöinn á fullu sem þeir höfðu
ómælda áiTægju af. Ég blundaði á
meðan en vaknaði upp við
skemmtilega dýralífsmynd á Stöð
2.
Síðan leiö Dallas yfir skjáinn en
ég skrapp í sturtu á meðan og skildi
J.R. einan eftir inni í stofu. Ósköp
notaleg tilfinning. Klukkan er orð-
in hálftólf og Robert Mitchum er
með aðalhlutverkið í bandarískri
sjónvarpsmynd á Stöð 2. Hann er
einn af uppáhaldsleikurum mín-
um. Hver man ekki eftir honum í
þáttunum um mister Marlowe? Þaö
sem ég hef séð af myndinni lofar
góðu en ég ætla að hverfa inn í
draumalandið og býð ykkur góöa
nótt.
Þorsteinn Pálsson um bankastjóramál Landsbankans:
Meiri háttar
mistök hvemig
malið bar að
- mér er ógeðfeltt að úttala mig um málið, segir Ámi Vilhjálmsson
Heimili hjónanna var í risi þessa húss við Klapparstíg.
DV-mynd S
lát konunnar á Klapparstígnum:
Gæsluvarðhalds krafist
yfir eiginmanni hennar
Jarðarfarir
Sæmundur Einar Þórarinsson, sem
andaðist 4. janúar, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
12. janúar kl. 13.30.
ögn Pétursdóttir lést á sjúkradeild
Hrafnistu í Hafnarfirði 3. janúar.
Jarðarforin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Ólafur G. Jónsson hárskerameistari
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju 'miövikudaginn 13. janúar kl.
10.30.
Ámi Sigurðsson, fyrrverandi hafn-
sögumaður, Álfaskeiði 64, Hafnar-
firði, verður jarösunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðviku-
daginn 13. janúar kl. 13.30.
Útför Hjálmfríðar (Fríðu) Sigurð-
ardóttur, fer fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 14. janúar kl.
13.30.
Jónas Hallgrimsson frá Felli lést 4.
janúar sl. Hann var fæddur í Miðeyj-
arhólmi í Austur-Landeyjum 2. apríl
1902. Foreldrar hans voru þau hjónin
Sigurveig Sveinsdóttir og Hallgrímur
Brynjólfsson. Eftirlifandi eiginkona
hans er Sigríður Sóley Sveinsdóttir.
Útför Jónasar verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Fundir
Kvennadeild
Flugbjörgunarsveitarinnar
verður með félagsfund í félagsheimilinu
miðvikudaginn 13. janúar kl. 20.30. Bingó.
Kaffiveitingar.
Tapað - Fundið
Gullarmbandskeðja tapaðist
Dömugullarmbandskeðja tapaðist sl.
fósíudag viö Eiðistorg eða í Þverholti.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í
síma 27022 (Ásta eða Margrét).
Köttur týndur úr Hlíðunum
Grábröndóttur fressköttur (ómerktur)
tapaðist fyrir jól frá Mávahlíö 43. Ef þú
hefur einhverjar upplýsingar þá vinsam-
legast haíðu samband við Siggu í síma
24595. Fundarlaun.
Tilkynningar
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
þriðjudag. Kl. 14 félagsvist, kl. 17 söngæf-
ing, kl. 19.30 bridge.
Tónleikar
Háskólatónleikar
i Norræna húsinu
Fyrstu háskólatónleikar á vormisseri
verða haldnir í Norræna húsinu mið;
vikudaginn 13. janúar kl. 12.30-13. Á
tónleikunum mun Einar K. Einarsson
flytja BWV998 eftir Bach og Æfingar nr.
•> 8, 3, 5, 11 og 12 eftir Villa-Lobos. Einar
Kristján Einarsson lauk burtfararprófi
1982 frá Tónskóla Sigursveins. Kennarar
hans voru Gunnar H. Jónsson og Joseph
Fung. Einar stundar nú framhaldsnám í
Manchester hjá Gordon Grosskey og Ge-
org Hadjinikos. Einar hefur komið fram
á tónleikum á íslandi, Spáni og í Eng-
landi.
„Æth það sé ekki komið fram sem
ég vil láta uppi. Mér er ógeðfellt að
úttala mig um þetta mál. Þarna er
um ágreining að ræða. Ég tel
Tryggva vera farsælli mann fyrir
bankann og fer ekki ofan af þeirri
skoðun minni,“ sagði Ámi Vil-
hjálmsson prófessor, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í bankaráöi
Lanjsbankans, í samtali við DV í
morgun en hann sagði sig úr banka-
ráðinu í gær. Áma hefur greint á viö
forystumenn Sjálfstæðisflokksins
sem vilja tryggja Sverri Hermanns-
syni bankastjórastöðu við bankann.
Árni sagði að hann heföi ekki veriö
beittur þrýstingi til að segja af sér
og tæplega væri hægt að tala um
þrýsting á hann um að skipta um
skoðun og styðja Sverri. Hann sagð-
ist hafa rökrætt málið við sína menn.
Ef þeir hefðu látið undan viðhorfi
sínu og sætt sig við að hann fór ekki
eftir óskráðum reglum sem gilda þá
heföi hann setið áfram.
Árni sagöi að það kæmi sér ekki á
óvart þótt hann tryggði Sverri kosn-
ingu með því að segja af sér. Hann
sagðist ekki vera viss um að með því
að sitja áfram í bankaráðinu hefði
hann getað tryggt Tryggva Pálssyni
kosningu. Það gæti ýmislegt gerst
þar til að kosningu kemur. Hann
sagðist hafa vonað að breiður stuðn-
ingur yrði við kosningu Tryggva en
svo heföi greinilega ekki orðið.
Meiri háttar mistök
Þorsteinn Pálsson forsætisráö-
herra og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins var spurður hvort þrýst .hefði
verið á Áma í málinu?
„Ekki til að segja af sér. Við rædd-
um við hann og lögöum á það áherslu
að samstaða yrði með ráðherrum og
bankaráðsmönnum flokksins og nið-
urstaðan varð sú að hann kaus að
víkja úr ráðinu. Málið bar að með
kynlegum hætti milli jóla og nýárs
án þess að forystumenn flokksins
vissu um það. Rætt hafði verið um
að málið kæmi til afgreiðslu síðar í
vetur eða vor. Því kom það flatt upp
á okkur að máliö skyldi tekið upp
milh jóla og nýárs. Ég lít á það sem
meiri háttar mistök hvernig það bar
að. Og ég frétti ekki af bankaráðs-
fundinum fyrr en um kvöldið eftir
að hann hafði verið haldinn. Við
höfðum ékkert rætt viö okkar banka-
ráðsmenn um málið, töldum það
vera vorverk,“ sagði Þorsteinn Páls-
son. -S.dór
Rannsóknarlögreglan hefur óskað
eftir að eiginmaöur konunnar, sem
fannst látin á heimili sínu á sunnu-
dagskvöld, verði úrskurðaður í
gæsluvarðhald til næstu mánaða-
móta.
Maðurinn var handtekinn á heim-
ili þeirra hjóna á sunnudagskvöld.
Var. hann þá mikið drukkinn. Fram-
burður hans var mjög óljós á
sunnudag. Eftir hádegi í gær hófust
yfirheyrslur á ný.
Sakadómur Reykjavíkur hefur ósk
RLR um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
manninum til meðferðar. Síðar í dag
mun úrskurður liggja fyrir.
Konan sem lést hét Gréta Birgis-
dóttir og var hún 26 ára gömul.
Eiginmaður hennar er 51 árs gamall.
-sme
Hjartanlega þakka ég öllum þeim
sem glöddu mig á 80 ára afmæli
mínu, 23. desember sl., með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum og
gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur framtíðina.
Lifið heil.
ÞORLÁKUR JÓNSSON
Grettisgötu 6