Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Side 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Cybill Shephard
sem leikur í sakamálamynda-
flokknum „Moonlighting" á
móti Bruce Willis, átti tvíbura
um daginn og varð að taka
sérfrí frá þáttunum. Þáttaröð-
in er óhemjuvinsæl í Japan,
jafnvel vinsælli en í Bandaríkj-
unum. Þess vegna buðu
japanskir leikfangaframleið-
endur henni 40 milljónir
króna ef hún kæmi fram í
auglýsingu fyrir þá með tví-
þurana með sér. Hún sagði
nei takk, tvíburarnir mínir eru
ekki söluvara.
Tom Selleck,
sem fyrir stuttu kvæntist
dansmeynni Jillie Mack, hef-
ur neitað konunni sinni um
að eignast barn með henni.
Hún á enga ósk heitari en að
eignast barn en hann er óbif-
anlegur. Hann lék nefnilega í
kvikmyndinni „Three men
and a baby" fyrir skömmu og
barnaskrækirnir og lætin fóru
svo í hann að hann segist
vera kominn með ofnæmi fyr-
ir börnum.
Mats Wilander,
sem er þekkt tennisstjarna frá
Svíþjóð, er margt meira til lista
lagt, annað en spila tennis.
Hann er nefnilega í sænskri
rokkhljómsveit sem heitir
„The husbands", og spilar oft
á næturklúbbum í Stokk-
hólmi. Aðal-keppinautur
hans í í tennis í Svíþjóð er
Stefan Edberg sem reyndar
er núverandi Svíþjóðarmeist-
ari í Tennis.
„Nei, með þér ferðast ég ekki lengur, þú ert brjálaður ökumaður," sagði Skúli rafvirki um leið og hann stökk út
úr kerrunni hjá jólasveininum. DV-myndir GK
„Hvað, er þessi þarna að hlæja að mér?“ segir Eiríkur Fjalar en Eiríkur
var einn af gestunum á þrettándagleði Þórsara á Akureyri.
Þretíánda-
gleði
á
Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þrettándagleði íþróttafélagsins
Þórs á Akureyri er fyrir löngu orðin
fastur punktur í tilverunni þar í bæ.
Þórsarar hafa gengist fyrir slíkri
gleði í áratugi á þrettándanum og að
þessu sinni var vandað til hlutanna.
Fastir liðir á þessu samkomum eru
fíflalæti púka og trölla, glens jóla-
sveina, sem eru að kveðja manna-
byggðir, og skemmtiatriði, svo sem
þjóðdansar, ávarp álfakóngs og
söngvar. Síðan er „kryddað" með
öðrum skemmtiatriðum og að þessu
sinni fengu Akureyringar í heim-
sókn nokkra „Laddasyni" og má af
þeim nefna Eirík Fjalar, Skúla raf-
virkja og undrabamið Gulla sem
„sagði það“. Vegleg brenna var á
svæðinu, flugeldasýning í lokin og
var þessi samkoma vel sótt að venju.
Krakkarnir voru hálfhræddir við tröllin sem hafa það að venju að koma á þrettándagleðina.
DV
Leikari faH-
inn í valinn
Trevor Howard í einu frægasta hlut-
verki sínu sem Bligh skipstjóri í
„Uppreisninni á Bounty".
Símamynd Reuter
Nú fyrir skömmu lést einn af kunn-
ari leikurum Breta, Trevor Howard,
sem var á 71. ári þegar hann lést.
Leikarinn Trevor Howard var
fæddur árið 1916 í Englandi. Hann fór
ungur í leiklistarskóla en fór ekki að
geta sér gott orð á sviði fyrr en upp
úr 1940. Nafn hans fór fyrst að heyr-
ast frá hvíta tjaldinu árið 1944 þegar
hann lék í kvikmyndinni „Brief
Encounter". Síðan fór hann að leika
í kvikmyndum vestanhafs upp úr
1950, þá 34 ára gamall.
Howard var tilnefndur til óskars-
verðlauna fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni „Sons and Lovers"
sem gerð var árið 1960. Honúm auðn-
aðist þó ekki að fá óskarinn á lífsleið-
inni þó hann léki í mörgum frægum
myndum. Einna þekktastar mynda
hans eru „Uppreisnin á Bounty“ þar
sem hann lék Bhgh skipstjóra á móti
Marlon Brando, „Greifmn af Monte
Christo", „Mary Queen of Scots“ og
„Superman".
Trevor Howard var kvæntur leik-
konunni Helen Cherry. Hann veikt-
ist skyndilega fyrir stuttu og lést
skömmu síðar.
Myndin er ekki frá handtökunni
heldur, þegar Sean Penn var að
lumbra á ijósmyndara. Madonna, til
hægri, horfir skelfd á aðfarirnar.
Borgaraleg handtaka
Sean Penn, eiginmaður Madonnu,
er einn þekktasti leikari hvíta tjalds-
ins af yngri kynslóðinni og af
mörgum talinn leiðtogi í þeirra hópi.
Hann er einnig þekktur fyrir ofbeld-
isfullt skap sitt. Nýlega afplánaði
hann meðal annars fangelsisdóm
fyrir að lemja ljósmyndara.
Hitt er öllu óalgengara að hann fái
hrós fyrir að fylgja lögunum eða vera
réttum megin við þau. Hann fram-
kvæmdi borgaralega handtöku á
manni, Steven Stillbower sem er 32
ára gamall vörubílstjóri. Hafði sá
gerst svo grófur að aka trukk í gegn
um grindverk á lóð Seans, skemma
garðinn verulega, og láta sig síðan
hverfa. Sean Penn fór ásamt lögreglu
og framkvæmdi handtökuna en sam-
kvæmt lögum má lögregla ekki
framkvæma handtöku sjálf fyrir
minniháttar brot nema hafa veriö
vitni að brotinu. Sean fékk mikið
hrós hjá lögreglunni fyrir yikið.
Fyrir mánuði sótti Madonna um
skilnað frá Penn en hefur nú dregið
skilnaðarkröfuna til baka enda er
Sean oröinn svo góður strákur.