Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988.
3
I>V
Fréttir
ísland er áfram stærsta
útflutningsland saltsíldar
- um helmingur alls síldarafla okkar fer til soltunar
Á sama tíma og aörar síldveiöiþjóðir
nýta ekki aö meðaltali nema 5% til
10% af síldarafla sínum til söltunar
fer um helmingur aflans hér á landi
í söltun. ísland er stærsta útflutn-
ingsland saltsíldar og hefur svo veriö
nokkur undanfarin ár.
Á þeirri síldarvertíð sem nú er aö
ljúka var sett met í löndun Suöur-
landssíldar því saltaðar veröa rétt
tæpar 290 þúsund tunnur. Um jól var
búið aö saita í tæpar 260 þúsund
tunnur en síðan staöfestu Sovét-
menn pöntun upp á 30 þúsund
tunnur til viöbótar. Árið 1986 var
saltað í 278 þúsund tunnur og hafði
þá aldrei veriö saltaö jafnmikið af
Suðurlandssíld.
Til samanburðar má geta þess að á
árunum 1935 til 1968 að Norðurlands-
síldin hvarf var að meðaltali saltað
Þetta Evrópukort sýnir helstu neyslusvæði saltaðrar sildar og þar af leið-
andi helstu viðskiptavini okkar íslendinga varðandi saltaða sild. Samkvæmt
upplýsingum Sildarútvegsnefndar er neysla sildar mikil á svæðinu með
feitustu punktunum, sem er Sovétríkin, töluverð á svæðinu sem miðpunkt-
arnir eru, Sviþjóð, Finnland, Danmörk, Holland, Vestur- og Austur-Þýskaland
og fremur lítil þar sem fínustu punktarnir eru.
í 182 þúsund tunnur á ári, fyrir utan
örfá toppár, sem söltun varð heldur
meiri það sem saltað var nú. Margir,
sem ekki muna tíma Norðurlands-
síldarinnar, halda að á þeim árum
hafl söltun verið miklu meiri en nú
en samkvæmt upplýsingum frá Síld-
arútvegsnefnd er svo ekki.
-S.dór
fari fram 5.-10. mars.
Meira úrval
en nokkru sinni.
Opið um helgina
eins og vant er.
Síðumúla 30 - sími 68-68-22