Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Side 5
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988. 5 dv Vidtalid Fréttir Jóhanna Reynisdóttir, nýr útibústjóri Verslunarbankans í Keflavík. ísinn brotinn Kona var í fyrsta skipti í sögu Verslunarbankans ráöin útibússtjóri í byrjun þessa árs. Hún heitir Jó- hanna Reynisdóttir og er útibússtjóri bankans í Keflavík. Hún tók viö starfinu 11. janúar síöasthðinn. Jóhanna er 29 ára gömul, fædd og uppalin í Keflavík. Eiginmaöur hennar er Ólafur E. Ólason múrari í Keflavík og eru þau barnlaus. Jó- hanna er meö verslunarpróf frá Verslunarskóla íslands og hefur unnið í Verslunarbankanum í Kefla- vík tæp 7 ár og tvö þau síðustu sem fulltrúi útibússtjóra. „Mér flnnst sérstaklega jákvætt hvað konur tóku mér vel þegar ég tók við starfinu. Ég gæti trúaö aö þeim finnist ísinn loksins brotinn, bæöi hér í Keflavík, þar sem lítið er um konur sem yfirmenn, og einnig í Verslunarbankanum. Ég held að 6 til 8 konur séu útibússtjórar í öllum bönkum landsins og kom það berlega í ljós hversu fáar þær eru þegar kona ein kom inn til mín um daginn og spuröi: Hvar er útibússtjórinn?" - Kom þér á óvart að fá starfiö? „Það kom mér skemmtilega á óvart að fá stöðuna, m.a. vegna þess að ég veit að nokkrir sóttu um. En þetta starf var alltaf draumurinn svo ég er mjög ánægð. Ég þekki starfið nokkuð vel þar sem ég hef unniö flest önnur störf hér í bankanum, auk þess sem ég var fulltrúi útibússtjóra í tvö ár. En þessu starfi fylgir auðvit- að meiri ábyrgð og stærri ákvarðan- ir.“ - Hver eru helstu áhugamál þín? „Vinnan er mjög stórt áhugamál en einnig fer ég mikið á skíði, bæði hérlendis og erlendis. Auk þess fer ég oft i jeppaferðir um hálendið. Ég hef verið mikiö á skíöum og jeppum á jöklum landsins og get ég þá nefnt að ég hef einu sinni farið yfir Vatna- jökul á jeppa. En oftast fer ég á Langjökul vegna þess að ég er með sumarbústað í HúsafelU og því stutt að fara. Förum við þá á jeppum eða vélsleðum upp á jökulinn og er það alveg stórkostlega gaman. í góðu veðri getur maður næstum séð yfir allt landið. Hvað varðar hættuna er hún auðvitað fyrir hendi en það er þess virði því þetta er gífurlega spennandi, auk þess sem við erum vel útbúin. Ég hef ekkert farið á skíði í vetur en ætlaði í skíðaferð til Aust- urríkis í febrúar. Ég varð þó að fresta henni vegna nýja starfsins.“ -JBj Þorrinn genginn í garð: „Confecto la Mille Foto“ og margt fleira góðgæti - á hinum árlega þorramatseðli Bautans á Akureyri Hallgrímur Arason með girnilegan þorramatinn fyrir framan sig. Fremst á myndinni er súrmaturinn beint úr tunnunum en bakatil hákarl og fleira góðmeti ásamt þorramatarbökkunum sem seldir eru beint í verslanir frá Bautanum. DV-mynd gk/Akureyri. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: BLOTO DE TORRES MENU: PRIMO: Suro Bringokolli de Animale SECUNDO: Brenndo Hauses de Rolla TERTIO: Fisces (Hango a Trano) QUARTO: Confecto (La Mille Foto) QUINTO: Huale (Multo Faito) SEXTO: Hacarles (Multo Fýlo) OCTO: Blod de Animales Tortures, mixe a Haframjöle NOVO: Flesko Nikotino (A la Krabbe) DECIMO: Kássa de Rofos EXTRA: Kássa de Kartofles EXTRA: Kaka Flata a Crema de Belia EXTRA: Brauð Bruno (Vindo) EXTRA: Ebaggo de Lunoes FINALE: Mixtura de Tutti - Rettes Afgangés LA CHEF Bena appetito Þá er þorrinn genginn í garð og víða um land taka menn upp þann forna sið að „blóta þorra“. Margir bíða þessa árstíma ávaUt með eftir- væntingu, ekki síst vegna þorramat- arins sem á boðstólum er, og margir sækja þorrablótin af kappi. „Við erum búnir að bjóða upp á þorramat þau 17 ár sem Bautinn hef- ur verið starfandi," segirHallgrímur Arason, einn af eigendum Bautans á Akureyri, í samtali við DV. „Við hefj- umst handa strax og sláturtíðin gengur í garð á haustin, þá er farið að setja matinn í mjólkursýru og síð- an gengur þetta fyrir sig á venjulegan hátt fram að þorra. Mér sýnist að neyslan sé mjög svip- uð frá ári til árs. Hins vegar hefur salan breyst á þann hátt að nú kaup- ir fólk sífeUt meira af sínum þorra- mat í verslunum, og við seljum t.d. mikið af þorramat í Hagkaup,“ sagði HaUgrímur. ÞorramatseðiU Bautans og Smiðj- unnar, sem borinn er fyrir gesti, ber heitið „Bloto de Torres og kennir þar ýmissa grasa. Matseðillinn er á „gol- frönsku" og þar má sjá nöfn rétta eins og „Suro Bringokolli de Ani- male“ - „Brenndo Hauses de Rolla, - Confecto (La Mille Foto)“ og „Hac- arles (Multo Fýlo)“, svo eitthvað sé nefnt. Ef þetta er sett á mannamál þá eru yfir 20 mismunandi réttir á þorra- matseðlinum, hangikjöt, saltkjöt, nýtt kjöt, sviðasulta, hrútspungar, súrir bringukollar, reyktir bringu- köllar, magáll, lundabaggar, reykt hrossabjúgu, .grísasulta, pressað kjöt, hvalur, hákarl, slátur, harð- fiskur og ýmsar tegundir brauða, rófustappa, stúfaðar kartöflur og hrásalat., , , OPID IKVOLD TIL KL. 20 LAUGARDAG KL. 9-16 5°/( staðgreiðslu- A afsláttur V í öllum deildum. Sértilboð matvörumarkaðs Nautahakk ..438,- Nautagúllas ..670,- Nautasnitsel ..690,- Jlií ÁAA AAó % l: a c o z: zj muoij _ ~ u u QQQj j-i MuHiiuuuyum «*ku. Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Simi 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.