Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Síða 7
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988. 7 Fréttir Fjóriijólin á Suðumesjum: Sá ellefu ára var kominn heim til sín „Þaö er ekki rétt aö yngsti öku- maöurinn, sem lögreglan tók, hafi veriö ellefu ára. Drengurinn, en hann er sonur minn, var farinn heim þegar lögreglan skarst í leikinn. Drengurinn á lítiö flórhjól sem gefið er upp fýrir 30 kílómetra hraöa. Þaö er varla hægt að slasa sig á þannig hjóli. En hann var kominn heim þeg- ar lætin hófust," sagöi Reynir Sigurðsson, formaður nýstofnaös fé- lags flórhjólamanna á Suðurnesjum. Um síöustu helgi tók lögreglan fimm ökumenn flórhjóla vegna óleyfilegrar umferðar hjólanna. Sem kunnugt er þá er bannað að aka á hjólunum í þéttbýli og reyndar einn- ig í dreifbýli. Þó má aka á þeim á einkalandi meö leyfi landeiganda, svo framarlega að ekki séu unnin náttúruspjöll með akstrinum. „Það er ekki nokkur friður fyrir lögreglunni. Hjólin mega ekki standa utan við hús, þá erum viö beðnir um að sefla þau inn. Það eru unglingar í lögreglunni því það fást ekki eldri menn í þetta starf. Það er hægt að vinna með lögreglunni en ekki upp á þetta. Þó við séum á hrauni, sem vart er fært fótgangandi, þá er verið að reyna að ná okkur. Við höfum stofnað með okkur félag sem er að reyna að fmna svæði fyrir okkur. Það er ákveðið svæði sem við höfum í huga. Það svæði er á vegum Vamamálanefndar. Við gerum okk- ur góðar vonir um að fá það svæði til leigu. Það et sama vandamálið víða um land. Sveitarfélögin hafa brugðist okkur flórhjólamönnum. Það hefur ekkert verið gert í að útvega svæði fyrir flórhjóhn. Það má selja hjóhn og kaupa. Þaö eru teknir af þeim toll- ar og tryggingar og okkur er gert að skrá þau. Eg get ekki séð hvað mæUr á móti því aö við fáum að aka þeim. Ef þaö fæst ekki verður ríkið að taka hjólin tU baka og endurgreiöa okkur. Ég gæti trúað að hér á þessu svæði séu hjól fyrir um fimm mUljónir króna,“ sagði Reynir Sigurðsson. Reynir sagði það vera mistök að lítUl hluti hjólanna hefði farið yfir umferðareyju og valdið með því skemmdum. Reynir sagði að þeir sem oUu skemmdunum væru fúsir til aö bæta skaðann. „Það er rangt af lögreglunni að vera að elta þessi tæki, tU þess er lögreglan vanbúin. Einn mannanna slasaðist þegar eltingaleikurinn við lögregluna stóð yfir. Það brákaðist í honum mjaðmaliður. Að sjálfsögðu reyndi hann að flýja lögregluna því ekki vildi hann láta taka af sér hjól- ið, sem var á skrá, og þurfa síðan að leysa það út fyrir tvö þúsund krón- ur,“ sagði Reynir Sigurðsson. -sme Reynir Sigurðsson, formaður nýstofnaðs Félags fjórhjólamanna á Suður- nesjum. Reynir er mjög ósáttur við framkomu lögreglu í garð fjórhjóla- manna. DV-mynd Heiðar Baldursson Lögreglan í Keflavík: Skýr fyrirmæli um akstur fjórhjóla Karl Hermannsson hjá lögreglunni í Keflavík sagði aðspurður það rétt vera að yngsti ökumaðurinn, sem tekinn var vegna ólöglegs aksturs flórhjóla um síðustu helgi, væri eU- efu ára. í lögregluskýrslu, sem tekin var, kemur fram að fæðingardagur drengsins er 21. september 1976. Karl sagði einnig að þeir lögreglu- þjónar, sem voru við vinnu þegar ökumennirnir fimm voru teknir, hefðu verið með fyrirmæU frá sér. „Þó að formaður félags flórhjóla- manna telji lögregluþjóna hér unga þá er það svo að fyrirmæhn, sem þeir vinna eftir, koma frá okkur yfir- mönnunum og við erum ekki ungl- ingar," sagði Karl Hermannsson. Hann sagði einnig að enginn hefði verið eltur heldur hefðu mennirnir verið stöðvaðir viö Svartsengi og þeim gefið til kynna að lögreglan myndi færa hjólin á lögreglustöð. Þegar lögreglan óskaði eftir aðstoð óku flest flórhjólin burt og þá hefði maðurinn dottið af hjóUnu og slasast. -sme fatnaður Fæst í nýrri fatadeild í SS-búðinni Glæsibæ. Barna skíðagallar Efni: bómull/ polyester LHir: Ijósblár/dökk- blár hvítur/ Ijósgrænn. Stærðir: 3-6 ára. FjöLskyldaii stendur saman áskíðum Fátt er betra til að efla samstöðu innan fjölskyldunnar en að fara á skíði í Bláfjöllum og njóta samverunnar í snjónum. Ungur nemur, gamall temur eða öfugt - brekkur eru við alira hæfi. Um helgar eru námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Ef einhver vill koma með og prófa er skíðaleiga í þjónustumiðstöðinni - allir geta verið með. BLÁFJALLA- NEFND Komiö í Bláfjöll og standið saman -þaðerheilbrigð skemmtun. Símanúmer í Bláfjalla- skála: 78400 Simsvari: 80111 Sölustaðir: Sportval, Hlemmtorgi og Kringlunni. Markið Ármúla 40. Útilíf, Glæsibæ. Bókaverslunin Veda, Hamraborg og Engihjalla. Sundlaug Kópavogs. Hópferðabifreiðar Teits, Smiðjuvegi 46. BYKO, Kópavogi og Hafiiarfirði. íþrótta- og tómstundaráð, Fríkirkjuvegi 11.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.