Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Page 30
9 42 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988. Fólk í fréttum Karl Steinar Guðnason Karl Steinar Guðnason alþingis- maður hefur sagt í fréttum DV að möguleikar séu á því að gera nýja kjarasamninga. Karl Steinar er fæddur 29. maí 1939 í Keflavík og lauk kennaraprófi 1960. Hann var kennari í Bamaskóla Keflavíkur 1960-1976 og jafnframt starfsmaður á skrifstofum verkalýðsfélaganna í Keflavik, í fullu starfi þar 1977-1978. Karl Steinar hefur verið þingmaður Reykjaneskjördæmis frá 1978. Hann hefur verið í flokks- stjóm Alþýðuflokksins frá 1960 og ritari Verkalýðs- og sjómannafé- lags Keflavíkur og nágrennis 1966-1970 og formaður frá 1970. Hann hefur veriö í stjóm Verka- mannasambands íslands 1971-1987 og verið varaformaður 1975-1987. Karl hefur verið varamaður í miö- stjórn ASÍ 1976-1984 og ritari Menningar- og fræðslusambands alþýðu frá 1976. Hann var bæjar- fulltrúi í Keflavík 1970-1982 og hefur verið í stjórn Norræna verkalýðssambandsins frá 1981. Kona Karls er Helga Þórdís Þor- móðsdóttir, f. 5. september 1942. Foreldrar hennar em Þormóður Guðlaugsson, fv. afgreiðslumaður í 'Keflavík, og Guðbjörg Þórhalls- dóttir. Böm Karls og Þórdísar eru Kalla Björg, f. 27. febrúar 1962, vinnur hjá Samvinnuferðum, Edda Rós, f. 29. desember 1965, í hagfræð- inámi við Kaupmannahafnarhá- skóla, Guðný Hrund, f. 22. maí 1971, Verslunarskólanemi, og Margeir Steinar, f. 19. júni 1976, nemi. Systk- ini Karls eru, Gunnar, f. 27. júní 1935, verkamaður hjá ESSO á Keflavíkurflugvelli, kvæntur Erla Jósefsdóttur, Jóhanna, f. 14. nóv- ember 1937, starfar á Hrafnistu í Hafnarfirði, gift Erhng Garðar Jón- assyni, rafveitustjóra á Austurl- andi, Selma, f. 31. ágúst 1944, húsmóðir í Keflavík, og Ólafía Bergþóra verkakona, f. 13. febrúar 1946, gift Friðriki Friörikssyni, hlaðmanni hjá Flugleiðum á Kefla- víkurflugvelli. Foreldrar Karls era Guðni Jóns- son, vélstjóri í Keflavík, og kona hans, Karólína Kristjánsdóttir. Faðir Guðna var Jón, b. í Steinum undir Ewafjöllum, bróðir Sigur- veigar, ömmu Guðmundar verk- fræðings og Jóhannesar Einars- sona, forstjóra Cargolux. Jón var sonur Einars, b. í Steinum, Jóns- sonar og konu hans Sigurveigar Einarsdóttur, b. í Kerlingardal í Mýrdal, bróður Þorsteins, langafa Steinunnar, langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur ráðherra. Einar var sonur Þorsteins, b. í Kerhngardal Steingrímssonar, bróður Jóns „eld- prests“. Móðir Jóns var Þórunn, systir Guðrúnar, ömmu Guðjóns Samúelssonar, fyrrverandi húsa- meistara ríkisins, og langömmu Leifs Sveinssonar lögfræðings og Sveins Björnssonar listmálara. Bróðir Þórannar var Oddur, lang- afi Magnúsar Gústavssonar, for- stjóra Coldwaters. Bróðir Þórunnar var einnig Ólafur, lang- afi Georgs Ólafssonar verðlags- stjóra. Þórunn var dóttir Sveins, b. í Skógum, bróður Áma, langafa Helga, afa Más Gunnarssonar, starfsmannastjóra Flugleiðá. Sveinn var sonur ísleifs, b. í Skóg- um Jónssonar, lögréttumanns í Selkoti ísleifssonar. Móðir Guðna var Jóhanna Magnúsdóttir, systir Sigríðar, móður Magnúsar Á. Árnasonar hstmálara, Astu málara og Ársæls, afa Ársæls Jónssonar læknis. Karóhna var dóttir Kristjáns Sveinssonar, sjómanns í Keflavík, (Stjána bláa), b. í Akrahreppi í Skagafirði Pálssonar. Móðir Kristj- áns var Helga Jóhannesdóttir daglaunara í Hafnarfirði Hannes- sonar og konu hans Helgu Jóns- dóttir. Móðir Karóhnu var Guðrún Jónsdóttir, b. á Akri í Njarðvík Jónssonar, b. í Eyjahól í Kjós Jóns- sonar. Móðir Jóns á Ákri var Guðrún Hahdórsdóttir, bróður Þórhaha, langafa Gríms, fóður Ól- afs Ragnars. Móðir Guðrúnar var Guðríður Guðmundsdóttir, systir Lofts, langafa Bjama Jónssonar Karl Steinar Guðnason. vígslubiskups. Bróðir Guðríðar var Þorsteinn, langafi Solveigar, móð- ur Einars Olgeirssonar alþingis- manns. Móðir Guðrúnar Jónsdótt- ur var Ingigerður Jónsdóttir, b. í Berjanesi í Landeyjum Jónssonar, og konu hans, Ingigerðar Jóns- dóttur, b. í Beijanesi Þorsteinsson- ar, b. á Kýlhrauni á Skeiðum Eiríkssonar, b. í Bolholti Jónsson- ar, forföður Bolholtsættarinnar. Afenæli Þórarinn Sigþórsson Þórarinn Sigþórsson tannlækn- ir, Kringlunni 17, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Þórarinn lauk tannlæknaprófi frá'HÍ 1966 og var aðstoðartannlæknir hjá Hauki Clausen 1966-71 en hefur síðan rek- ið eigin tannlæknastofu í Reykja- vik. Þórarinn hefur verið prófdómari við tannlæknadeild HÍ frá 1973. Þórarinn er fyrsti stór- meistari íslendinga í bridge og margfaldur íslandsmeistari og hef- ur margoft spilað með íslenska bridge-landshðinu. þá er hann mik- ill áhugamaður um laxveiði. Þórarinn kvæntist Kristinu Þor- steinsdóttur kennara en þau shtu samvistum 1975. Börn þeirra era Sólveig, f. 23. maí 1964, tannlækna- nemi, og Rannveig, f. 31. maí 1969. Dóttir Þórarins og Guðríöar Magn- úsdóttur er Kristín, f. 27. júlí 1978. Eiginkona Þórarins er Ragnheið- ur Jónsdóttir, f. 25. ágúst 1950. Foreldrar hennar era Jón b. á Hvit- árbakka í Borgarfirði Guðmunds- son og kona hans, Björg Jónsdóttir. Systkini T’órarins eru Guðmund- ur, f. 20. október 1940, skrifstofu- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, kvæntur Herborgu Árnadóttur; Helga f. 23. janúar 1943, viðskipta- fræðingur, gift Þórði Steinari Gunnarssyni hrl.; Jóhanna, f. 10. ágúst 1949, aðstoðarfréttastjóri DV, Þór, f. 5. júlí 1951, forstjóri lyfja- verslunar ríkisins, kvæntur 80 ára______________________ Óskar Sæmundsson, Borgarbraut 15, Grundarfirði, er áttræður í dag. 75 ára Sigurborg Sigurðardóttir, Álfatúni 13, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Nanna Bjarnadóttir, Hólabraut 6, Höfn í Homafirði, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Ragnheiður Bjarnadóttir, Fehsm- úla 2, Reykjavík, er sjötug í dag. Margrét Magnúsdóttir, Höföastíg 7, Bolungarvík, er sjötug í dag. Guönýju Þorgeirsdóttur; Óðinn f. 5. júlí 1951, b. og hreppstjóri í Ein- arsnesi, kvæntur Björgu Jónsdótt- ur; Sigríður, f. 30. júní 1953, arkitekt, gift Hahmari Sigurðssyni leikhússtjóra. Foreldrar Þórarins: Sigþór Karl Þórarinsson, f. 28. janúar 1918, d. 23. janúar 1981, b. og hreppstjóri í Einarsnesi í Borgarhreppi, og kona hans, Sigríður Guðmundsdóttir, f. 11. desember 1917. Faðir Sigþórs var Þórarinn, skipstjóri í Rvík, Jónsson, b. á Svarfhóli í Hraun- gerðishreppi Sigurðssonar, b. í Brekkum í Holtum Runólfssonar. Móðir Þórarins var Gyðríður Steinsdóttir, skipasmiðs á Eyrar- bakka Guðmundssonar. Móðir Sigþórs var Sigríður Gísladóttir, búfræðings í Hlíð í Kohafirði Bjömssonar. Móðir Gísla var Þór- dís Guðmundsdóttir, b. á Kleifum á Selströnd, Einarssonar, dbrm. í Kollafjarðarnesi Jónssonar, föður Ragnheiðar, langömmu Torfa, fv. tollstjóra, og Snorra skálds Hjart- arsona. Móðir Sigríðar var Þórdís Jónsdóttir, b. á Sæbóli í Dýrafirði Bjarnasonar og Guðrúnar Skær- ingsdóttur. Sigríður er dóttir Guðmundur, b. og hreppstjóra á Valbjamarvöll- um í Borgarhreppi Jónssonar, bróður Guðrúnar, ömmu Jóhanns Hjartarsonar skákmeistara. Móðir Sigríðar var Þórunn Jónsdóttir, b. Ferdinand Rósmundsson, Lóni, Viðvíkurhreppi, er sjötugur í dag. Sigriður Samúelsdóttir, Tóvegg, Kelduneshreppi, er sjötug í dag. 60 ára Sigurveig Magnúsdóttir, Tjarnar- götu 14, Vatnsleysustrandarhreppi, er sextug í dag. 50 ára Jón Kristinn Valdimarsson, Gilja- landi 26, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Þórunn Sigurðardóttir, Heiðar- lundi 8, Garðabæ, er fimmtug í dag. Franklín Þórðarson, Litla-Fjarðar- homi, Fehshreppi, er fimmtugur í dag. Þórarinn Sigþórsson. og pósts í Galtarholti í Borgar- hreppi Jónssonar, b. í Galtarholti Jónssonar. Móðir Jóns í Galtar- holti var Þórunn Kristófersdóttir,' bókbindara á Stórafjalli Finnboga- sonar, bróðir Jakobs, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Þórunnar var Sigríður Guðmunds- dóttir, gullsmiös á Kvíum Stefáns- sonar og konu hans, Þórunnar, systur Þórdísar, ömmu Hahdórs Þorbjarnarsonar hæstarréttar- dómara og langömmu Þorsteins skálds frá Hamri. Þórdís var dóttir Þorbjarnar, b. á Helgavatni Sig- urðssonar og konu hans, Margrét- ar Hahdórsdóttur „fróða“ b. á Ásbjamarstöðum Pálssonar. Þór- arinn verður staddur í París á afmæhsdaginn. 40 ára Kristján E. ísdal, Haðarstíg 20, Reýkjavík, er fertugur í dag. Jón Sigurjónsson, SOungakvisl 16, Reykjavík, er fertugur í dag. Steingerður Ágústsdóttir, Víði- grand 31, Kópavogi, er fertug í dag. Guðmundur Björn Hólmgeirsson, Hjallagötu 3, Miðneshreppi, er fer- tugur í dag. Kristín Eyjólfsdóttir, Laugarbraut 7, Akranesi, er fertug í dag. Eðvarð Hallgrímsson, Hólabraut 28, Höfðahreppi, er fertugur í dag. Þórunn Björg Pétursdóttir, Fjarð- arbraut 25, Stöðvarfiröi, er fertug í dag. Jóhann Frímann Helgason, Lá- gengi 8, Selfossi, er fertugur í dag. Andlát Halldóra Guðrún Tryggvadóttir, Nesbala 32, Seltjamamesi, andað- ist í Landspítalanum föstudaginn 16. janúar._______. ■ . . Geir Herbertsson prentsmiðjustjóri lést 17. janúar. Andrés Mariasson lést á heimih sínu í Osló 16. desember sl. Jón Júlíusson prentari, Laugarás- vegi 30, andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 17. janúar. Tvíburasystkinin Jóhannes Guðmundsson og Oddný Guðmundsdóttir. Jóhannes Guðmundsson og Oddný Guðmundsdóttir Systkinin Jóhannes Guðmundsson og Oddný Guðmundsdóttir, Ból- staðarhlíð 45, Reykjavik, eru átta- tíu og fimm ára í dag. Þau fæddust að Skinþúfu í Vallhólmi í Skaga- firði þar sem nú heitir Vallanes en ólust upp frá fjögurra ára aldri á Reykjum í Tungusveit, voru þar í fjögur ár, og síðan að Syðra-Vatni í Efribyggð og bjuggu þar með for- eldrum sínum í þrjátíu og þrjú ár. Jóhannes var í Alþýöuskólanum að Laugum 1925-26 og í búfræðin- ámi að Hvanneyri 1926-28. Hann tók við búi á Syðra-Vatni, ásamt Oddnýju, þegar móðir þeirra lést 1941. Oddný var í þénustu á vetrum hjá fjölskyldu Sveins Árnasonar Bjarman á Akureyri og einn vetur hjá Magnúsi Jónssyni, prófessor í Rvík, og tvo vetur hjá Jörgen Hans- en í Rvík. Jóhannes og Oddný bjuggu að Reykjakoti í Ölfusi 1944-1966 en fluttust þá th Reykja- víkur. Jóhannes var húsvörður við MH 1966-1972 og starfar þar enn að hluta til. Oddný starfaði þar viö ræstingar en hætti störfum 1975. Oddný hefur ætíö búið hjá bróður sínum og séð um heimihð eftir að móðir þeirra lést. Jóhannes var um skeið í sýslunefnd fyrir "Lýtings- staðahrepp en hann hafði um tíma eftirlit með heyforða og nyt kúa fyrir Fóðurbirgðafélag og Naut- griparæktarfélag Lýtingsstaða- hrepps. Þá var Jóhannes í skattanefnd Lýtingssaðahrepps um skeið. Jóhannes og Oddný áttu fimm systkini: Guörún, f. 1899, d. 1987, bjó lengst af hjá foreldrum sínum og síðan hjá Jóhannesi og Oddnýju, Pétur, f. 1900, d. 1967, bílstjóri í Rvík og var ásamt öðram fyrsti bílstjórinn sem annaðist fólksflutn- inga milh Reykjavíkur og Akur- eyrar, fyrri kona hans,. Guðrún Sveinsdóttir, er látin, seinni kona hans, Guðrún Jakobsen, er einnig látin; Ingibjörg, f. 1905, er látin, gift Friðbirni Snorrasyni, b. i Brekku- koti í Efribyggð og síöar ráðsmanni i Reykjakoti í Ölfusi; Sigurður, f. 1910, rak loðdýrabú á Sauðárkróki og vann við gróðurhús í Reykja- koti; Björg Sigríður, f. 1913, býr á 'Sauðárkróki. Foreldrar Jóhannesar og Oddnýj- ar voru Guðmundur, b. á Syðra- Vatni, Björnsson og kona hans Anna Jóhannesardóttir. Faðir Guðmundar var Björn, b. á Mal- landi á Skaga, Guðmundssonar, bróður Ólafs, föður Arnljóts, prests og alþingismanns á Bægisá. Anna var dóttir Jóhannesar, b. í Lýtings- staöakoti, bróöur ívars, langafa Guðmundar í. Guðmundssonar ráðherra. Jóhannes var sonur Jóns, b. á Syðsta-Vatni, Jónssonar, b. á Syðsta-Vatni, Hannessonar. Móðir Jóns Jónssonar var Guðrún Aradóttir, systir Helgu, langömmu Stefáns, afa Stefáns Islandi. Móðir Jóhannesar var Guðrún Vigfús- dóttir af Stóru-Brekkuætt. Jóhann- es og Oddný verða ekki heima á afmæhsdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.