Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Page 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Bitst|órni - Auglýsirtgar FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988. stjórabúningi þegar hann kom til yfirheyrslu hjá rannsóknarlögregl- .. unni. Hefur honum þótt það viðeig- ^andi klæðnaður. DV-mynd S Watson handtekinn: Ákæia birt í dag? Mikill viðbúnaður var meðal lög- reglunnar á Keflavíkurílugvelli þegar Paul Watson kom til landsins. Landganginum út í flugvélina, sem kom frá Luxemburg kl. 17.45, var lokað og Watson handtekinn um leið og hann birtist. Hann var fluttur út í lögreglubíl og keyrður inn í Kópa- vog þar sem Rannsóknarlögregla ríkisins tók við honum. Þar var hon- um haldið við yfirheyrslu til um kl. hálftvö í nótt. Þá var hann fluttur í Síðumúlafangelsið og þar verður hann á meðan ríkissaksóknari tekur ákvörðun um málið. Verður það seinna í dag en hann er að ígrunda þau gögn sem RLR hefur aflað með yfirheyrslum yfir Watson. Meö Watson komu til landsins ^%nnusta hans, Joan Falwell, og Sten Berg sem er formaður Sea Shepherd samtakanna í Svíþjóð og Bretlandi. Þau sluppu óáreitt inn í landið eftir að hafa gert grein fyrir sínum ferð- um. Sagði Joan að þau væru hingað komin í friðsömum tilgangi og þau ætluðu að halda hér fyrirlestra um hvalveiðar. -SMJ Lfftr^ggingar ili ALÞJÓÐA JLÍ FTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF. I.ÁGML'I.I 5 - RKYKJ AVf K Snii íiSKvH LOKI Þeir segja að Watson haf i bísað skipstjóragallanum áður en hann sökkti hvalbátunum! Hvalstöðin: Gætt með öðru auganu Hvalstöðin í Hvalflrði er á umdæ- missvæði lögreglunnar í Borgamesi. Samkvæmt upplýsingum lögregl- 'innar er ekki lögregluvakt við Hvalstöðina. „Hennar er gætt með öðru auganu," sagði lögreglumaður í Borgarnesi. Vaktmaður frá Hval h/f er í stöð- inni allan sólarhringinn og er hann í símasambandi við lögregluna í Borgamesi. Innan við 30 mínútna akstur er fyrir lögregluna frá Borg- arnesi og að Hvalstöðinni. Lögreglan er við öllu búin ef nauð- syn krefst afskipta hennar. -sme Sex fluttir Beðið eftir Watson. Þau Joan Falwell, unnusta Watsons, og Sten Berg, yfirmaður Sea Shepherd- samtakanna í Svíþjóð og Bretlandi, biðu eftir fréttum af Watson í alla nótta á heimili Magnúsar Skarphéðinssonar hvalverndunarmanns. Að sögn þeirra linnti ekki símhringingum frá heimspress- unni. DV-mynd GVA Paul Watson " fanö þau bestu í heimi „Eg veit ekkert um hvað á að gera við Paul en mér skilst að það verði tekin ákvörðun um það í dag,“ sagði Joan Falwell, unnusta Paul honumtillandsinsígær. Joanfékk Watsons, í samtali við DV í morgun að tala við Watson í síma í gær- en hún kom sem kunnugt er með kvöldi og sagði hún að hann hefði verið rólegur yfir umstanginu og sagt að allir hefðu verið mjög kurt- eisir. „Hann sagði við mig að hann væri ekki hræddur um aö vera sett- ur í fangelsi en hann yrði þó aö vera við öllu búinn.“ Joan sagði að Watson hefði fengið íslenskan lögfræðing, Pál Arnór Pálsson hæstaréttarlögmann, og Páll heföi sagt honum að ólíklegt væri að hann yrði saksóttur. . „EnþóaðPaulveröisetturífang- elsi verður bara aö taka því. Hann gerði sér ávallt Ijóst að fangelsis- vist væri eitt af því sem hann yröi að búa sig undir. Reyndar sló hann á léttari strengi með þaö og sagði að líklega væru íslensk fangelsi þau bestu í heimi til að dveljast í.‘‘ Joan sagði aö hvoragt þeirra heföi trú á að Watson þyrfti aö dveljast lengi í fangelsi. „Meö því myndu íslensk stjórn- völd bara æsa upp umhverfis- vemdarsinna um allan heim og gera Watson að netju þeirra. Ég efast um að þaö sé ætlun þeirra.“ Er þetta hótun? „Nei, alls ekki, bara staöreynd,“ sagði Joan. -SMJ Lögmaður Watsons: Fjórir kostir fyrir hendi „Saksóknari tekur ákvörðun um framhald málsins í dag en það eru nokkrir kostir sem koma til greina,“ sagði Páll Árnór Pálsson, lögmaður Pauls Watson. Hann sagði að þeir möguleikar, sem saksóknari stæði frammi fyrir núna, væru fjórir: Þaö væri hægt að láta Watson lausan, gera kröfu um frekara gæsluvarð- hald á meðan haldið yrði áfram rannsókn málsins eða birta ákæru, en Páll sagði að það væri óvenjulegt ef ákæra lægi fyrir svo snemma. „Nú svo er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að útlendingaeftirlitið fái Watson í sínar hendur og honum verði vísað úr landi.“ Páll sagöi aö saksóknari væri að skoða ákæru vegna hlutdeildar Wat- sons í stórfelldu eignatjóni. Ógreidd- ir olíureikningar væru ekki inni í málinu. Ákvörðunar saksóknara er að vænta í dag. Watson óskaði eftir að Páll yrði verjandi hans. -SMJ Veðrið á morgun: Austanátt og hægviðri Á morgun verður hæg austan- átt á landinu, víða skýjað en úrkomulaust. Frost verður á bil- inu 5 til 10 stig við ströndina en meira inn til landsins. á sjúkrahús eftir harðan árekstur fimm bifreiða Harður árekstur fimm bíla varð við Grænásvegamót á Reykjanesbraut snemma í morgun. Sex manns voru fluttir á sjúkrahús. Sumt fólkið mun vera alvarlega slasað. Bílarnir skemmdust allir verulega. Þegar DV fór í prentun í morgun var lögreglan enn að störfum á slysstað og fréttir því óljósar. * ■sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.