Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1988, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. UtLönd Tilraunir með vind- og sólar- orku í Jórdaníu Tilraunir meö vind- og sólarorku, sem staðið hafa í Jórdaníu um nokkurt skeiö, virðast ætla að gefa góða raun og standa vonir til þess aö þær skapi möguleika til aukinn- ar ræktunar, auk þess aö spara verulega innflutta olíu. Athygli manna hefur undanfarið einkum beinst að þorpinu Jurf Al- Darawixh, þar sem sett hefur verið upp tilraunastöð sem kannar möguleika orkuframleiðslu með bæöi vindknúnum rafstöðvum og sólarorkusöfnun. Við þorpið hefur verið komið fyrir tveim vindmyll- um sem knýja hvor um sig tuttugu kílóvatta rafal. Við þær hafa veriö settar upp raðir af þiljum sem safna sólarhita og flmmtán kílóvatta sól- arorkurafstöðvar. Auk þess að sjá umhverfmu fyrir raforku, meðan sól skín og vindur blæs, hlaða stöðvar þessar raf- geyma sem taka við þær stundir sem hvort tveggja skortir. Þá er dælustöð, í um þriggja kíló- metra fjarlægð frá þorpinu, knúin vindorku og kerfið allt er tölvu- stýrt. Raforkuvinnslukerfi þetta, sem kostaði um hálfa milljón Banda- ríkjadala, eða nær tuttugu milljón- ir islenskra króna, í byggingu, sér þegar töluverðu svæði fyrir raf- orku. Það lýsir upp hús og stræti, sér sjúkrahúsi fyrir nægri raforku og ætlunin er að í framtíðinni knýi kerfið áveitu. Þeir sem standa að tilraunum þessum telja nú sannað að vind- og sólarorka muni geta leikið stórt hlutverk í Jórdaníu og þá einna stærst í tengslum við uppgræöslu Jandsins. Jarðvegur er fijór á þess- um slóðum en of þurr til að hann nýtist til ræktunar. Áveitur, knún- ar vind- og sólarorku, munu gera ræktunina mögulega. Með því að sjá íbúum þessara svæða fyrir nægri raforku og gera þeim ræktun landsins mögulega vonast stjómvöld til þess að geta stöðvað, jafnvel snúið við þeim flótta sem hefur átt sér stað úr dreifbýli í þéttbýli. Sólarraforkuverum hefur þegar verið komið fyrir á níu afskekktum svæðum í Jórdaníu og á fimm stöð- um knýja þau vatnsdælur. Þar til stöðvar þessar komu til sögunnar varð að flytja dísilolíu á tankbif- reiðum til þessara staða til að knýja litlar rafstöðvar. Auk þess að gera eyðimerkur- landbúnað mögulegan vonast stjórnvöld í Jórdaníu til þess að vind- og sólarorka dragi nokkuð úr olíuneyslu landsins. Jórdanir framleiða sjálfir aðeins um eitt pró- sent af olíuþörf sinni og flytja inn um þijár milljónir tonna af hráolíu ár hvert. Um fjórðungur landsmanna not- ar nú þegar sólarorku til þess að hita vatn. Hefur þetta valdið því Gamli tíminn mætir hinum nýja þar sem fjárhirðar reka hjarðir sinar hjá vindmyllum og sólarorkuverum. Vonir standa til að vinnsla orku úr sól og vindum geti leyst mörg af vandamálum Jórdana á komandi árum. — Simamynd Reuter að vöxtur olíunotkunar í landinu heimshluta sem náð hefur því er orðinn minni en hagvöxtur og marki. er Jórdanía eina landið í þessum Lítil von um frið í El Salvador Baráttan milli stjórnarhermanna og skæruliða i El Salvador heldur áfram og von um frið samningaleiðina er talin litil. Simamynd Reuter Þrátt fyrir fögur orð um frið og toppfundi forseta heldur borgara- styijöldin í E1 Salvador áfram. Stríðið hefur krafist sextíu og fimm þúsund mannslífa og tugir þús- unda neyðast til þess að hafast við í flóttamannabúðum. Aö því er vestrænir stjórnarer- indrekar álíta eru litlar vonir til þess að endi verði bundinn á stríð- iö með samningum. Bæði stjómin, sem fær fjárhagsstuðning frá Bandaríkjamönnum, og samtök skæruliða virðast reiðubúin aö beijast þar til hinn aðilinn gefst upp. í ríkra manna hverfum höfuð- borgarinnar verða menn ekki mikið varir við borgarastríðið. Þar keyra menn á japönskum jeppum, sem eru í tísku núna í E1 Salvador, í stórmarkaðina þar sem vopnaðir verðir gæta þess að menn geti keypt innfluttu vínin í ró og næði. Fátækrahverfin eru þó ekki langt undan en þar blasir við önnur sjón. Þeir sem ekki eru lengur gjaldgeng- ir í stríðinu haltra þar um á hækjum og þangaö koma vörubílar til þess að sækja unga menn í stað hinna. Víða má sjá betlandi böm. Vannærð börn Úti á landi, þar sem átökin fara fram, eru þorp í eyði eftir að hafa orðið fyrir loftárásum. Akrar em ekki ræktaöir því á þeim hefur ver- ið komið fyrir jarðsprengjum. Ungbamadauðinn er níu prósent og fjórðungur allra barna er van- nærður samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum. í ágúst síðastliðnum undirritaði forseti landsins, José Napoleon Duarte, og íjórir aðrir forsetar Mið-Ameríkuríkja friðarsam- komulag. Þar var kveðið á um lýðræðislegar umbætur, aukin mannréttindi og sakaruppgjöf fanga. í samkomulaginu var einnig hvatt til vopnahlés og skorað á er- lenda aðila að hætta stuðningi við skæruliða. Vestrænir stjórnarer- indrekar segja að áætlunin hafi verið fyrirfram dauðadæmd í El' Salvador því samtök skæruliða muni aldrei samþykkja áætlun sem þeir hafi ekki átt þátt í að semja. Sýndarmennska I síöasta mánuði kom Duarte til fundar við hina forsetana í San José á Costa Rica. Fullyrti hann þar að hann hefði gert allt sem í hans valdi stæði til að fara eftir samkomulaginu. í leiðinni kvað hann aðgerðir sandínistastjórnar- innar í Nicaragua aðeins vera sýndarmennsku. Alþjóðleg staðfestingarnefnd gagnrýndi Duarte fyrir það sama. Daginn eftir að hann sneri heim frá Costa Rica skutu hermenn hans að flóttamannabúðum án afláts í tvær klukkustundir. Fullyrtu þeir að skæruhðar hefðu þar bækistöövar sínar. Samtök skæruliða og stjórnin komu tvisvar saman í október til friðarviðræðna en mikið bar á milli. Stjórnvöld segja að lýðræðis- legar breytingar í landinu geri baráttu skæruliða óþarfa og kreíj- ast uppgjafar þeirra. Skæruliðar halda því aftur á móti fram að Duarte dansi eftir pípu Bandaríkja- manna. Vilja þeir þátttöku í stjórn landsins. Viðræðurnar fóru út um þúfur þegar forseti mannréttinda- samtaka og andstæðingur stjórnaF innar var myrtur. Hvor aðili um sig sakaði hinn um morðið. Lík talin Báðir aðilar lýstu yfir vopnahléi í nóvember en börðust samt. Skæruliðar eyðilögöu kaffiupp- skeruna og herinn fór í nokkrar árásarferðir. Mannréttindahópar eru enn að telja lík, bæði uppljóstr- ara sem skæruliðar hafa tekið af lífi og verkamanna sem pyntaðir hafa verið til dauða af öryggissveit- um. Starfsmenn sendiráðs Bandaríkj- anna í E1 Salvador fullyrða að lýðræði sé ekki langt undan í landinu. Benda þeir á aö þing- kosningar eigi að fara fram þann 20. mars. Vinstri menn segja að eins og ástandið sé komi kosningar að engu gagni. Samtök skæruhða hafa hótaö að trufla kosningarnar. Skoðanakönnun sýnir aö áttatíu prósent aðspurðra telja að enginn flokkur sé þess virði að hann verði kosinn. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Halldór Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.