Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988.
Viðskipti___________________________________________________________________________
Byggingariðnaðurínn:
Stóru verktakafyrirtækin
hafa nóg að gera í sumar
Talsmenn stóru verktakafyrir-
tækjanna segja að nóg verði að gera
í sumar í byggingariðnaðinum en lít-
ið að venju í jarðvegsvinnu. Þeir
segja það ofsagt að um svimandi
þenslu sé að ræða í byggingariðnað-
inum. Mjög mikiO samdráttur vlrðist
í byggingu verslunar- og atvinnuhús-
næðis vegna offramboðs af slíku
húsnæði á markaðnum. Kraftur í
íbúðabyggingum bæti það þó upp.
Öll fyrirtækin bæta við sig umtals-
verðum fjölda af starfsfólki í sumar.
„Eins og glorsoltnir úlfar
eftir verkefnum“
„Það er nóg aö gera í byggingar-
vinnunni en samt finnst mér alls
ekki hægt að tala um gífurlega
spennu. Við hjá Hagvirki gætum
bætt við okkur fleiri verkefnum í
byggingarvinnunni. Hins vegar er
ennþá ládeyða í jarðvegsvinnunni.
Þar erum við eins og glorsoltnir úlfar
eftir verkefnum," segir Ragnar Ath
Guðmundsson, aðstoðarforstjóri
Hagvirkis hf.
Að sögn Ragnars var fyrirtækið
með um 350 manns í vinnu í fyrra
þegar mest var en í sumar verður
það með um 250 manns. Greinilega
nokkur samdráttur á milli sumra.
Hagvirki er þekktasta og stærsta
verktakafyrirtæki landsins og á
langstærsta flota jarðvegsvinnu-
tækja á íslandi. Vegna verkefna-
skorts í jarðvinnunni er hann að
hluta ónýttur, að sögn Ragnars Atla.
Spenna vegna mikils
framkvæmdahraða
„Sumarið ætlar að verða gott. Það
sem mér fmnst alvarlegast er hvað
ÖU verk sem verið er að byrja á eiga
að klárast á skömmum tíma. Þetta
þýðir aftur spennu á markaðnum,
yfirborganir og þess vegna þenslu.
Það einkennilegasta er að stjómvöld
stýra þessu. Það er brýnt verkefni
að lengja framkvæmdatíma verk-
efna. Það er eins og að allt þurfi að
klárast á einum degi,“ segir Sigurð-
ur Sigurjónsson, forstjóri Byggða-
verks.
Byggðaverk er líklega þekktast fyr-
ir að byggja Kringluna og nú er það
með umfangsmikið verk á Nesjavöll-
um fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. „Við
bætum við okkur svona um 20 manns
í sumar,“ segir Sigurður.
SH-verktakar standa í ströngu
„Það er mjög mikið að gera hjá
okkur í sumar. Við verðum með að
minnsta kosti 120 manns í vinnu á
móti um 60 sem við vorum með í
vetur,“ segir Gylfi Gíslason hjá SH-
verktökum.
SH-verktakar klára Ölfusárbrúna í
sumar, byggja bílastæði fyrir Kringl-
una, íþróttahús og sundlaug í
Garðabæ og íbúðir fyrir aldraða í
Hafnarfirði. Fyrirtækið steypir jafn-
framt mikið af gangstéttum fyrir
bæjarfélög á hveiju sumri. SH-verk-
takar eru líklega þekktastir á síðari
árum fyrir að hafa búið til göngin
undir Miklubrautina á móts við
Kringluna. Rætt er um þá sem spútn-
ika á meðal verktaka.
Helstu verkefni sumarsins
Þau verkefni sem ber hæst í sumar
í byggingarvinnunni eru framhald á
framkvæmdum við Nesjavelli,
Kringlubílastæðin, íþróttahúsið í
Garðabæ, skóli í Hafnaríirði, bíla-
geymsla við Vesturgötuna, ráðhúsið
í Reykjavík, íbúðir Steintaks við
Skúlagötuna, Háskólabíó, ýmsar
brýr og göng fyrir Reykjavíkurborg,
Ölfusárbrú, framkvæmdir fyrir fisk-
eldisstöðvar, 40 íbúða fjölbýlishús
Búseta í Grafarvogi auk ótal íbúða-
bygginga.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 19-20 Ib.Ab
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 19-23 Ab.Sb
6mán. uppsógn 20 25 Ab
12mán. uppsógn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareikninqar 9-23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5 4 Ab.Úb. Lb.Vb. Bb.Sp
Innlán með sérkjörum 19-28 Lb.Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb
Sterlingspund 7.75 8,25 Ub
Vestur-þýsk mörk 2 3 Ab
Danskar krónur 7,75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 29.5 32 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupqengi
Almennskuldabréf 31 35 Sp
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 32.5 36 Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
isl. krónur 30.5 34 Bb
SDR 7,75-8,25 Lb.Bb, Sb
Bandarikjadalir 8,75-9,5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11-11,5 Úb.Bb. Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5-5,75 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6 3,8 á mán.
MEÐALVEXTIR
överðtr. april. 88 35,6
Verðtr. april. 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala april 1989 stig
Byggingavisitala april 348 stig
Byggingavisitalaapril 108,7 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% . april
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1,5063
Einingabréf 1 2,763
Einingabréf 2 1.603
Einingabréf 3 1,765
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,767
Lifeyrisbréf 1.389
Markbréf 1.440
Sjóðsbréf 1 1,339
Sjóðsbréf 2 1,221
Tekjubréf 1.367
Rekstrarbréf 1.08364
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv,:
Almennartryggingar 128 kr.
Eimskip 215 kr.
Flugleiðir 200 kr.
Hampiðjan 144 kr.
Iðnaðarbankinn 148 kr
Skagstrendingur hf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr
Tollvörugeymslan hf. 100kr.
(1) Við kaup á viðskiptavfxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb.=-Verslunaibankinn, Sp =-Sparisjóð-. .
irnir.
Reykjavík:
með því hæsta í 20 ár
Raunverð fjölbýlishúsa í Reykjavík
var um síðustu áramót orðið með því
hæsta sem þekkst hefur í 20 ára sögu
Fasteignamats ríkisins. Þetta er til-
komið vegna gífurlegra hækkana á
verði fjölbýlishúsa í Reykjavík síð-
astliðið haust. Raunverðið er fundið
þannig út aö söluverð húsanna er
boriö saman við lánskjaravísitöluna.
Sú verðhækkunarbylgja sem hófst
í ágúst síðastliðnum stóð fram i nóv-
ember en þá dró úr henni. Áberandi
er hvað margar litlar íbúðir seljast
og hve hátt veröið á þeim er.
Frá júlí til september á síðasta ári
voru þriggja herbergja íbúðir með
hæst meöalverð á fermetra, en
tveggja herbergja íbúðimar skutust
á toppinn síöustu mánuði ársins.
-JGH
íslendingarselja
srfellt meira til
Grænlands
íslendingar fluttu út vörur til
Grænlands fyrir um 123 milljónir
króna á síðasta ári. Þetta er þref-
alt meira en frá árinu 1986.
Grænlendingar kaupa mest af
útgerðar- og fiskvinnsluvörum og
annarri iðnframleiðslu af okkur
íslendingum. Ennfremur hófum
við dijúgar tekjur af þjónustu
eins og flugi til Grænlands.
-JGH
Dósagosið flæðir nú hjá Kók og
Egils. Hér er það drykkurinn Tab frá
kókverksmiðjunni sem kominn er á
dósir og farinn að flæða á færiband-
ínu. " DV-mynd KÁE
Verð ibúða í fjölbýlishúsum í Reykjavík hefur sjaidan verið eins hátt og
um síðustu áramót í 20 ára sögu Fasteignamats ríkisins. Aðeins síðustu
mánuði ársins 1982 var verðið hærra.
Landsmenn keyptu
bíla fyrir þrettán
milljarða í fýrra
Landsmenn eyddu hvorki meira
né minna en um 13 milljörðum í kaup
á bílum og bílavörum í fyrra. Þetta
er gífurleg aukning frá árinu 1986 og
nemur hún 58 prósentum. Þá eyddu
landsmenn um 8,3 milljörðum í bíla-
kaup.
Eins og vænta mátti var þetta
mesta aukningin hjá versluninni í
landinu á síðasta ári. Þenslu gætti
einnig í sölu á byggingarvörum.
Seldar voru byggingarvörur á síð-
asta ári fyrir um 7,9 milljarða á móti
um 5,6 milljörðum árið 1986.-JGH
Kók og Egils í stór-
ræðum með dósagos
Miklar breytingar eru hjá Verk-
smiðjunni Vííilfelli og Ölgerð Eglis
Skallagrímssonar varðandi dósagos.
Kókið á áldósunum er orðið íslenskt
en til þessa hefur það verið innflutt,
sömu sögu er að segja um aðra
drykki kóka kóla-verksmiðjunnar.
Nýjungin hjá Egils eru sjálfar dósirn-
ar, Egilsdrykkir fást nú á dósum.
Vélin hjá Vífíifelli getúr fýllf á 25
til 33 þúsund dósir á klukkustund.
Sjálfvirkni er geysileg við framleiðsl-
una og við hana vinna aðeins þrír
starfsmenn.
Upptakarinn á Egilsdósunum hef-
ur verið auglýstur sem sérstakur.
Hann er áfastur og losnar ekki frá
við opnun dósanna. Það er hið gamla
og rótgróna Egils-appelsín sem verð-
ur sett á fyrstu dósimar. -JGH
Frumvarpáalþingi:
Bankarnir
opnaðir
fyrir
útlendingum
Viðskiptaráðherra hefur mælt
fyrir athyglisverðum frumvörp-
um á alþingi sem snerta við-
skiptalífið. Meginatriði þeirra er
almenn heimild til erlendra
banka og viðurkenndra erlendra
fjármálastofiiana til þess að eiga
allt að 25 prósent hlutafjár í ís-
lenskum hlutafjárbönkum.
Eins er kveðið á um að bankar
og sparisjóðir setji í starfsreglum
sínum hámark á lánveitingar til
einstakra aðila og kveði jafn-
framt á um tryggingar fyrir
lánum og beri þessar starfsreglur
undir bankaeftirlit Seðlabank-
ans.
Loks er meö frumvörpunum
stefnt að lögfestingu reglna til að
girða fyrir hagsmunaárekstra af
ýmsu tagi.
-JGH
Frekar
mynd af
flugmönnum
en
flugfreyjum
Flugfreyja hafði samband við
Viðskiptasíðuna vegna fréttar
sem bar yfirskriföna Flugfólk
Flugleiða er ekki eins drjúgt og
flugfólk keppinautanna. Með
fréttinni birtist mynd áf flugfreyj-
um óg var viðmælandi blaðsins
óhress með það og útskýrði þaö
með þessum orðum:
„Hinn hái áhafnakostnaöur
stafar af því aö ódýrara er að
hafa flugraenn á launum yfir vet-
urinn, þegar minna er að gera,
en að segja þeim upp. Það sama
er ekki með flugfreyjurnar enda
er mörgum sagt upp á haustin og
þær endurráðnar á sumrin þegar
annríkið byrjar. Þess vegna er
óréttlátt að birta mynd af flug-
freyjum þegar verið er að tala um
ónóga nýtingu flugfólks.1'