Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 2. MAl 1988.
Víðaátök
fyrsta maí
Hátíðisdagur verkalýðsins var í
gær haldinn hátíðlegur víða um heim
með kröfugöngum og öörum sam-
komum. í mörgum löndum kom tíl
átaka milli þátttakenda í aðgerðum
verkalýðsins og varð sums staðar
mannfall. Víða einkenndust hátíðar-
höldin af átökum milli launþega og
stjórnvalda.
í Suður-Afríku sökuðu leiðtogar
verkalýðsfélaga þeldökkra stjórn-
völd um aö ráðast kerfisbundið gegn
réttindum verkamanna í landinu.
Telja þeir tilvist verkalýðsfélaga ógn-
að af aðgerðum stjórnvalda.
í Póllandi kom til átaka þegar lög-
regla réðst gegn þátttakendum í
mótmælaaðgerðum gegn stjónvöld-
um í mörgum borgum landsins. Að
sögn sjónarvotta kom tíl átaka í Var-
Oeinkennisklæddur lögreglumaður ræðst með kylfuna á lofti að þátttakanda
i aðgerðum Einingar í Varsjá í gær. Símamynd Reuter
sjá, Poznan og Plock, þar sem
mótmælaaðgerðir fóru fram um leið
og opinber fundarhöld, skipulögð af
yfirvöldum. Lögreglan í Varsjá beitti
kylfum, háþrýstu vatni og táragasi
til að dreifa þúsundum stjómarand-
stæðinga.
í Suður-Kóreu kom tii harðra átaka
milli lögreglu og þúsunda róttækra
stúdenta og verkamanna sem kröfð-
ust þess að fijáls verkalýðsfélög yrðu
heimiluð í landinu. Um þrjú þúsund
mótmælendur kröfðust þess að
stjórnvöld létu þegar af því sem þeir
kölluðu kúgun verkalýðsfélaga. Kö-
stuðu þeir grjótí og bensínsprengjum
en lögreglan táragasi á mótí.
í Tyrklandi létu tveir lífið og að
minnsta kosti sjötíu voru handteknir
í átökum við lögregluna í Istanbui.
Um fimmtán hundruð manns, aðal-
lega stúdentar og félagar í verkalýðs-
félögum, söfnuðust saman í helsta
viðskiptahverfi borgarinnar. Átökin
voru þau hörðustu sem hafa átt sér
stað á hátíðisdegi verkalýðsins síðan
árið 1980.
í ísrael einkenndust hátíðarhöldin
í gær af kröfugöngum og mótmæla-
aðgerðum, bæði ísraela og Palestínu-
manna. í Tel Aviv tóku liðlega tvö
hundruð þúsund ísraelar þátt í
kröfugöngu sem var hin fjölmenn-
asta í sögu Ísraelsríkis. Gangan fór
friðsamlega fram og hiö sama var að
segja af aðgerðum víðast hvar í ísra-
el. Á herteknu svæðunum á Vestur-
bakkanum og Gaza-svæðinu aflýstu
verkalýðsfélög Palestínumanna öll-
um hátíðarhöldum. Að sögn útvarps-
ins í ísrael voru flestir palestínskir
verkamenn af herteknu svæðunum
við störf sín í ísrael í gær.
Hátiðarhöldin fóru að sjálfsögðu
friðsamlega fram í Sovétríkjunum.
Hér þiggur Raisa Gorbatsjov, eigin-
kona aðalritara sovéska kommún-
istaflokksins, kaffi á Rauða torginu
í Moskvu. Símamynd Reuter
Meira en tvö hundruð þúsund ísraelar tóku þátt i kröfugöngu um miðborg
Tel Aviv í gær. Þetta mun vera fjölmennasta ganga á degi verkalýðsins i
sögu Ísraelsríkis. Simamynd Reuter
Klæðnaður þriggja óeirðalögreglumanna í Seoul stendur í Ijósum logum
eftir að eldsprengju var varpað að þeim i átökum við róttæka stúdenta og
verkamenn sem kröfðust heimildar til að stofna sjálfstæð verkalýðsfélög i
Suður-Kóreu. Simamynd Reuter
MAZDA626 kostarnúfrá aðeins698
þúsund krónum.
Opið laugardaga frá kl. 1 — 5
BILABORG HF.
FOSSHALSl 1.S.68 12 99.
„HEIMSINS BESTI BILLI!
Nú 5. árið í röð kusu lesendur hins
virta þýska bílatímarits „AUTO
MOTOR UND SPORT“ MAZDA 626
„HEIMSINS BESTA BÍL“ í milli-»
stærðarflokki innfluttra bíla. Hinn
nýi MAZDA 626 hefur fengið fá-
dæma góðar viðtökur um víða veröld
og eru þessi verðlaun aðeins ein í
röð fjölmargra viðurkenninga, sem
hann hefur hlotið. Betri meðmæli
fást því varla!!