Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Page 18
18
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988.
Hreggviður Jónsson:
Brottrekstur Ingva Hrafhs
bendir til ritskoðunar
Ritskoöun á fréttastofu sjón-
varps var til umræðu á Aiþingi
fyrir helgina í kjölfar fyrirspumar
Inga Björns Albertssonar og
Hreggviös Jónssonar um hvaö hæft
væri í frétt, sem birst hefði í Tíman-
um, um aö stjórnmálafréttir væru
ritskoðaðar hjá sjónvarpinu og þá
sérstaklega fréttir sem kæmu af
vinstri væng stjómmálanna.
Menntamálaráðherra, Birgir
ísleifur Gunnarsson, sagðist hafa
fengiö umsögn frá útvarpsstjóra
um málið. Útvarpsstjóri hefði tjáð
honum að þetta væri rógburður og
ekkert mark á frétt Tímans tak-
andi. Sagðist Birgir ísleifur hafa
fullt traust á fréttastofu sjónvarps-
ins og að ekki væri ástæða til að
kafa dýpra í söguburð sem þertn-
an.
Hreggviöur Jónsson sagði að full
ástæða væri til að skipa nefnd til
að kanna þetta nánar. Sagði Hregg-
viður að brottrekstur Ingva Hrafns
Jónssonar benti til að sögur um
ritskoðun gætu verið réttar.
Eiður Guðnason sagði að þessi
fyrirspurn væri mjög furðuleg og í
raun fráleit því hún væri byggð á
slúðurfrétt sem enginn legði nafn
sitt við. Hjörleifur Guttormsson tók
einnig þátt í umræðunni og sagði
að fyrri nefndaskipanir mennta-
málaráðherra um fréttaflutning
sýndu að þaö væri tilgangslaus
aðferð til að upplýsa málið.
-SMJ
Bekkir og blómaker verða sett á Tjarnarbakkann vió Fríkirkjuveg til aó
hressa upp á umhverfið. DV-mynd GVA
Tjömin tekur stakkaskiptum
Órétbnætir viðskiptahættir
og auglýsingaskrum
Út er komið 12. tölublað Verðkönn-
unar Verðlagsstofnunar. Ekki er þó
að flnna verðkönnun í blaðinu, en
hins vegar eru skýrð út lög um órétt-
mæta viðskiptahætti.
Til skýringar eru valin dæmi um
að vara sé auglýst á fölskum forsend-
um og skýrð út lög sem vernda
neytendur gegn uppáþrengjandi
söluaðferðum, s.s. eins og að gefa
kaupbæti, gefa kost á þátttöku í
happdrætti, getraunum eða öðru
þess háttar.
Eitt af hlutverkum Verðlagsstofn-
unar er að sjá til þess að slíkum
lögum sé framfylgt og hefur neyt-
endamáladeild stofnunarinnar æ
oftar þurft að hafa afskipti af slíkum
málum. í fyrra voru t.d. skráð hjá
neytendamáladeildinni 81 mál.
í blaðinu eru rakin dæmi um slík
mál, s.s. að leöurlíki úr polyurethane
hafi verið auglýst sem „leöurlúx".
Svo fóru leikar að Verðlagsráð sá sér
skylt að banna notkun orðsins „leð-
urlúx“ á þeim forsendum að það
gæti villt um fyrir neytendum.
Verðlagsstofnun hefur einnig oft
þurft að hafa afskipti af alls kyns
söluherferðum. í fyrra þurfti stofn-
unin að hafa afskipti af söluherferö-
um tveggja gosdrykkjaframleiðenda.
Annar þeirra bauð þeim neytanda
kr. 100 þúsund sem fyndi milljónustu
gosdós fyrirtækisins. Hinn lét jóla-
sveina fylgja framleiöslu sinni og
áttu þeir, sem safnað gátu 26 mis-
munandi jólasveinum, kost á að fá
íþróttatösku eða glös í verðlaun.
Það var skoðun Verðlagsstofnunar
að í báðum tilvikum væri um uppá-
þrengjandi söluaöferðir aö ræða og
voru því gerðar athugasemdir.
-PLP
„Dagur
Athugasemd við grein um lyksugur
Tjarnarbakkinn við Fríkirkjuveg
mun taka miklum stakkaskiptum á
næstunni. Nú er unnið að því að
hlaða kantinn upp, eftir að hann var
brotinn niður vegna viðgerða á
vatnslögnum. Umtalsverðar breyt-
ingar verða gerðar.
Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, sagði í samtali
við DV að næst Tjörninni verði lágur
og breiður kantur þar sem komið
verði fyrir bekkjum. Ofar verður
komið fyrir steyptum blómakerjum
með trjágróðri. „Áætlað er að planta
í kerin í lok maí. Þetta hefur verið
seinlegt og vandasamt verk en nú
gengur vel. Ég vona að við getum
hresst dálítið mikið upp á miðbæinn
með þessum framkvæmdum og gert
þetta svæði hreinlegra. Þetta svæði
var svolítið úr sér gengið," sagði
garðyrkjustjóri. -JBj
„Dagur
slökkviliðsins"
7. maí
Sigurjón J. Sgurö3Son, DV, ísafixöi:
Félag slökkviliðsmanna um
land allt hefur ákveðið aö halda
„dag slökkviliðsins“ þann 7. maí
hk. Að sögn Þorbjöms Sveinsson-
ar, slökkviliðsstjóra á ísafiröi,
verður opið hús hjá slökkviliðinu
hér 7. maí, sem er laugardagur,
frá kl. 10-17. Þar veröur fólki
sýnd slökkvistööin og starfsemi
hennar auk þess sem fólki gefst
kostur að æfa sig að slökkva eld
meö ýmsum slökkvitækjum.
í dag er í gangi teiknimynda-
samkeppni með 7-9 ára bama á
teikningum tengdum slökkviliö-
inu. Verðlaun verða veitt á „degi
slökkviliösins“ fyrir bestu mynd-
ina.
í DV, þriðjudaginn 26. apríl síðast-
liðinn, er á bls. 29 frétt sem ber
yfirskriftina, „Markaðskönnun
Neytendasamtakanna: 54 gerðir af
ryksugum á íslenskum markaði.“
Viðvíkjandi Nilfisk ryksugum, sem
við flytjum inn og seljum, eru tvær
fullyrðingar í fréttinni sem ekki fá
stáðist.
1. í fréttinni segir: „Eins árs ábyrgð
er á öllum ryksugum. Fálkinn tekur
þó tveggja ára ábyrgð og Fönix fulla
ábyrgð fyrsta árið, lætur kaupanda
greiða einn þriðja annað árið og tvo
þriðju þriðja árið.“
Hið rétta er að Fönix veitir 3ja ára
fulla ábyrgð á mótor, en eins árs
ábyrgö á öðrum hlutum ryksugunn-
ar.
2. í fréttinni segir einnig: „Engin
ryksuga fæst meö leiðarvísi á ís-
lensku og segir þaö sína sögu. Einar
Farestveit hefur þó íslenskan leiðar-
vísi í undirbúningi, og er vonandi að
tröllatrú hinna á tungumálaþekk-
ingu íslenskra neytenda fari minnk-
andi.“
Hiö rétta er að leiðarvísir á ís-
lensku fylgir Nilfisk ryksugum og
hefur gert í marga áratugi. Þótt ná-
kvæmur leiðarvísir á íslensku hafi
jafnan fylgt með Nilfisk ryksugum
er það þó ekki vegna þess að við
höfum ekki trú á tungumálaþekk-
ingu íslenskra neytenda, sem vafalít-
ið er betri en flestra annarra þjóöa.
Hjálagt sendum við eintak af leið-
arvísi og ábyrgðarskírteini á ís-
lensku sem fylgja hverri Nilfisk
ryksugu.
Virðingarfyllst,
Fönix h/f
Viðar Kornerup-Hansen
Athugasemd blaðamanns:
Ofangreindar upplýsingar eru
fengnar úr Neytendablaðinu og
harmar DV að heimild þess hafi
reynst ónákvæm.
-PLP
Nú er vorið loksins komið og klaki
að hverfa úr jörð. í Lífsstíl DV verð-
ur haldið áfram með vorverkin í
garðinum. Að þessu sinni verður
fjallað um kartöflur.
Nú er kominn tími til að láta úts-
æðiskartöflurspíra. í Lífsstílá
morgun verður fjallað um útsæði
og skýrt út hvað stofnútsæði er.
Einnig verða gefnar ráðleggingar
um að setja niður kartöflur.
Lífstíll á morgun fjallar einnig
um skrautfiska. Litið verður á
fiskeldi í heimahúsum og athug-
að hvaða fiskar eru vinsælastir
í fiskabúrum samtímans.
Svo dæmi séu tekin þá eru til
fiskar sem éta úr hendi og láta
klappa sér.
Allt um stofuprýði af skraut-
fiskum í Lífsstíl á morgun.