Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1988, Page 36
48
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1988.
Sviðsljós
Uppgangur hjá
Disney-
fyrirtækinu
Mikill úppgangur er nú hjá Walt Disney-kvikmyndafyrirtækinu og arð-
ur mikill af framleiðslu síðasta árs. Þaö eru aðallega tvær myndir sem
stuöla að þessari velgengni, myndimar „Three Men and a Baby“ (Þrír
menn og barn) og „Good Moming Vietnam".
Fyrmefnda myndin hefur skilaö inn arði að verðmæti hvorki meira
né minna en 6 milljarðar króna, og sú síðarnefnda tæpum íjórum og
hálfum milljarði. Báðar þessar myndir em arðmestu myndimar í sögu
Disney-fyrirtækisins. Kvikmyndafyrirtæki Disneys ber heitið Touchstone
pictures.
Aðrar greinar fyrirtækisins ganga einnig vel, myndbönd frá þeim em
vinsæl og sérstök sjónvarpsrás, sem fyrirtækið rekur, er vinsæl meðal
Bandaríkjamanna. Þessi mikli arður hefur gert það að verkum að hluta-
bréf í fyrirtækinu hafa hækkað mjög í veröi og menn líta björtum augum
á framtíöina hjá Disney-kvikmyndafyrirtækinu.
Hjá menntaskólum landsins standa nú yflr próf og margir nemendur ná
þeim áfanga að útskrifast nú í vor. Þaö er siður að „dimittera" á ákveðnum
degi fyrir prófin og klæða nemendur sig þá í sem frumlegasta búninga í til-
efni dagsins og ganga um götur og gera spreU. Einn slíkur hópur nemenda
úr Menntaskólanum í HamrahUð kom við á DV og virðist hafa fengið hug-
mynd um búning sem ekki hefur verið notuö áður. Þeir voru klæddir sem
Personal-verjur og voru reyndar með nokkur sýnishorn í réttri stærð hang-
andi utan á búningunum. Það er ekki ofsagt aö veijurnar hafi vakiö óskipta
athygU vegfarenda sem áttu leið fram hjá.
og framleiðandi, George Lucas, er að senda frá
um dverga á vegum Disney-fyrirtækisins og á mynd-
in að heita „Willow“. George Lucas og Ron Howard, sem er leikstjóri
myndarinnar, eru hér í stórum hópi dverga sem fara með hlutverk i
myndinnl. Sfmamynd Reuter
Tilflnn-
ingaríkt
verk
Undanfamar vikur hefur ís-
lenska hijómsveitin staðið í
ströngum æfingum fyrir flutning
verksins Námur sem fram fór
fyrir skömmu. Það voru aörir
tónleikar íslensku hljómsveitar-
innar og stjórnandi var Guð-
mundur EmÚsson.
Verkið Námur er tvískipt, fyrri
hlutinn eru verk tileinkuð tón-
skáldunum Atla Heimi Sveins-
syni, Páli P. Pálssyni og Þorkeh
Sigurbjörnssyni. Síðari hlutinn
nefnist Sturla og er verk eftir
Atla Heimi Sveinsson. Er ætlunin
að tengja flutning að nokkra leyti
þáttum úr íslandssögunni.
Tónleikarnir voru haldnir í
Bústaðakirkju fyrír skömmu.
Ljósmyndari DV brá sér á æfing-
ar hljómsveitarinnar og náði
nokkrum bráðskemmtilegum
myndum af Guðmundi Emilssyni
stjórnanda íslensku hljómsveit-
arinnar.
Við fyrstu sýn mætti ætla aö hér
sé bardagamaður í japanskri
sjálfsvarnarlist á ferð, en ekki
er allt sem sýnist. Það er Guð-
mundur Emilsson, stjórnandi
íslensku hljómsveitarinnar, sem
lifir sig svo eftirminnilega inn í
hlutverk sitt viö stjórnun á verk-
inu „Sturlu" hjá íslensku hljóm-
sveitlnni. DV-myndir GVA
Mick Jagger fyrir rétti
í síðustu viku var popparinn Mick
Jagger önnum kafinn við að veijast
ásökunum annars tónlistarmanns
fyrir rétti í New York. Tónlistarmað-
urinn Peter Ahey sakaði Jagger um
að hafa stohð lagi frá honum og gert
vinsælt undir nafninu „Just Another
Night“ sem er á breiðskífu Jaggers,
„She's The Boss“ sem út kom á árinu
1985.
Réttarhöldin vöktu mikla athygh,
ekki aðeins fyrir eðh málsins, heldur
hvernig málflutningurinn fór fram.
Mick Jagger kom með fuht af hljóm-
listartækjum í réttarsal, sphaði og
söng lög til þess að veija sig og reyndi
á þann máta að bera af sér ásakanir
Alleys. Auk þess höfðu báðir aðhar,
sækjandi og sakbomingur, ráðið sér
færastu tónlistarsérfræðinga úr tón-
skólum New York-borgar th þess að
skera úr um hvort ásakanirnar væra
réttar eða rangar.
Peter Ahey, sem er reggae tónhst-
armaður frá Jamaíka, krafðist
200-350 mihjóna í skaðabætur fyrir
stuldinn, en það er áætlaður gróði
af laginu. Mick Jagger hafði betur í
þessari viðureign, og var hann
dæmdur sýkn saka, en ekki er vitað
hvort hin sérkennilega vöm Jaggers
hafði úrslitaáhrif um hvernig fór.
Jagger yfirgefur réttarsalinn eftir „hljómleika", sem hann hélt þar, í viðleitni til þess aö verjast ásökunum um
lagastuld. Simamynd Reuter
Þaö var reggae hljómlistarmaðurinn
Peter Alley, sem sakaði Jagger um
lagastuld frá sér, á laginu „Just
Another Night“ sem Jagger gerði
frægt. Simamynd Reuter
„Dimitterað"