Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988.
Fréttir dv
Hugsanleg lausn á vanda samvinnuhreyfingarinnar:
Sambandið verði hlutafélag
til að forðast skuldafen
eigið fé samvinnuhreyfíngarinnar skrapp saman um 915 milljónir
„Stóraukin skuldsetning til þess að fjármagna eigin taprekstur og rekstr-
artöp annarra, ásamt fjárfestingum sem engum arði skila, geta hæglega
orðið til þess að ofbjóða greiðslufjárstöðunni á þann veg að Sambandið
bíði af því mikinn og varanlegan skaða," sagði Geir Geirsson, endurskoð-
andi Sambandsins, meðal annars I skýrslu sinni á aöalfundinum.
Samvinnuhreyfmgin stendur nú á
tímamótum. Gríðarlegur taprekstur
á fyrirtækjum hennar í fyrra kallar
á uppstokkun. Sambandið tapaði 220
milljónum í fyrra og á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs hafa hátt í 200
milljónir þegar tapast. Kaupfélögin
töpuðu samanlagt 358 milljónum í
fyrra og mörg þeirra ramba nú á
barmi gjaldþrots. Sameiginlegt tap
fyrirtækja samvinnuhreyfingarinn-
ar nam í fyrra nær 580 milljónum
og staðan hefur síst skánaö þaö sem
af er þessu ári.
Þessi staða krefst víðtækra breyt-
inga á rekstri og uppbyggingu sam-
vinnuhreyfingarinnar. Það yekur
því athygli að lítið sem ekkert var
fjallað um aðgerðir til bjargar á aðal-
fundi Sambandsins á Bifröst í lok
síðustu viku. Forráðamennfyrirtæk-
isins rétt drápu á nokkur atriöi en
því fór fjarri að fulltrúum á aðal-
fundi væri gefin heildarmynd af
þeim aðgerðum sem ráðgerðar eru
og kynntar hafa veriö í stjórn Sam-
bandsins.
Það er sama með hvaða hætti staða
Sambandsins og kaupfélaga er skoð-
uð, útkoman er alltaf jafnhrikaleg.
Eigið fé hreyfingarinnar
skrapp saman um 915 milljón-
ir
í fyrra brann upp 171 milljónar
króna hagnaðm- Sambandsins af sölu
eigna. Eigið fé fyrirtækisins rýmaði
um 83 milljónir sé miðað við verð-
lagsbreytingar. Það jafngildir því að
þaö hafi borið 2,5 prósent neikvæða
vexti.
Stofnsjóðir kaupfélaganna í Sam-
bandinu rýmuðu um 6,7 milljónir
miðaö við lánskjaravísitölu. Ástæð-
an er sú að Sambandið greiddi 12
prósent vexti á innstæður þessara
sjóða á meðan verðlag hækkaöi um
rúm 22 prósent. Eignir kaupfélag-
anna í Sambandinu bám því um 8
prósent neikvæða vexti.
Eigiö fé kaupfélaganna rýmaði um
660 milljónir miðað við fast verðlag.
Þessi rýmun eiginfjár kaupfélag-
anna jafngildir því að það hafi borið
13 prósent neikvæða vexti.
Sé tekið mið af söluhagnaði Sam-
bandsins af eignum í fyrra má því
segja að um 915 milljónir hafi bmnn-
iö upp í taprekstri á fyrirtækjum
samvinnuhreyfingarinnar á árinu
1987.
Sífellt meiri skuldir til að
fjármagna tapreksturinn
í skýrslu endurskoðenda Sam-
bandsins á aðalfundinum kom fram
að lítil ástæða væri til bjartsýni um
reksturinn á næstu misserum.
„Sambandið hefur undanfarin tvö
ár notið þess að nettó fjármagnsgjöld
hafa verið í lágmarki. Þessu hefur
valdið samsetning skulda og eigna
og þróun gengis. Það sem af er þessu
ári hefur þessi þróun snúist viö og
er líklegt að fjármagnskostnaðurinn
á árinu verði Sambandinu mjög
þungbær. Á sama tíma eru ekki sjá-
anleg nein batamerki í afkomu deild-
anna. Það er því full ástæða til þess
að hafa þungar áhyggjur af þeim erf-
iðleikum sem framundan eru í
rekstri Sambandsins."
Síöar 1 skýrslunni segir:
„Stóraukin skuldsetning til þess að
fjármagna eigin taprekstur og
rekstrartöp annarra, ásamt fjárfest-
ingum sem engum aröi skila, geta
hæglega orðið til þess að ofbjóða
greiðslufjárstöðunni á þann veg aö
Sambandið bíði af því mikinn og var-
anlegan skaöa.“
Með öðrum orðum þýðir þetta aö
staða Sambandsins sé það slæm og
horfur það dökkar að ef ekki verði
gripið fljótt til róttækra aðgerða megi
búast við alvarlegum greiðsluíjárerf-
iöleikum hjá fyrirtækinu.
í ljósi þessa eru skiljanleg umrnæh
Guðjóns B. Ólafssonar forstjóra um
að 18 milljóna króna arðgreiöslur af
2,5 milljarða eign Sambandsins í
dótturfyrirtækj um þess séu ófull-
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
nægjandi. Þessi eign er 93 prósent
af eigin fé Sambandsins, utan stofn-
sjóóa og séreignarsjóða kaupfélag-
anna.
Sambandið verði
almenningshlutafélag
í ræðu sinni á aðalfundi Sambands-
ins ræddi Valur Arnþórsson, for-
maður stjómar, meðal annars um
nauösyn þess að leita leiða til að fá
inn í fyrirtækið nýtt eigið fé. Sam-
keppnisaðilar samvinnuhreyfmgar-
innar gætu gert þetta meö hlutafjár-
útboði en Sambandið og kaupfélögin
þyrftu á sama tíma að byggja starf-
semi sína á dýru lánsfé. Hann benti
á að samvinnuhreyfmgin í Bretlandi
væri rekin sem hlutafélag, Co-opera-
tive Wholesale Society Iimited. í
ræöu sinni notaði Valur nýyrði, sam-
vinnualmenningshlutafélag, yfir það
form sem hann taldi henta sam-
vinnuhreyfingunni í framtíðinni.
Hugmyndir Vals eru það róttækar
að ljóst er að grípa þarf til aðgeröa
vegna lélegrar stöðu Sambandsins
og kaupfélaganna áður en mögulegt
er að framkvæma þær. í viötah við
DV sagði Guðjón B. Ólafsson for-
stjóri það sjálfgefið að lækka þyrfti
kostnað þegar ekki væri hægt aö
auka tekjurnar. Þetta þýðir meðal
annars uppsagnir starfsfólks. Varð-
andi kaupfélögin hamrar Guðjón á
nauðsyn sameiningar við misjafnar
undirtektir kaupfélagsmanna. Meðal
annars samþykkti aðalfundurinn að
varlega skyldi farið í þeim málum á
næstu misserum.
Fallist á máttlausa
málamiðlun varðandi
verslunina
Af öðrum aðgerðum hafa fáar verið
kynntar utan breytingar á verslun-
ardeild Sambandsins.
Verslunardeildin hefur tapað um
340 milljónum í fyrra og á fyrstu fjór-
um mánuðum þessa árs. Hugmyndir
Guðjóns B. Ólafssonar og Ólafs Friö-
rikssonar, framkvæmdastjóra deild-
arinnar, voru þær að kljúfa deildina
frá Sambandinu og stofna um hana
sameiginlegan rekstur með kaup-
félögunum. Þetta nýja verslunar-
samband átti síðan að leigja verslan-
ir kaupfélaganna og reka þær frá
einni skrifstofu. Sambærilegar leiðir
hafa verið famar á Norðurlöndun-
um. Þessi tillaga var felld í stjóm
Sambandsins.
í hennar stað var ákveðið að stofna
hagsmunasamtök kaupfélaganna,
Samtök samvinnuverslana, sem
ynnu við hlið verslunardeildarinnar.
Á fundi til undirbúnings stofnunar
þessara samtaka var rætt um nánari
samvinnu og samstarf.
Þeir munu hins vegar fáir innan
samvinnuhreyfingarinnar sem trúa
því að þessi aðgerð nái að slá á tap
verslunardeildarinnar og verslunar-
reksturs kaupfélaganna. Á aðalfund-
inum benti Valur Arnþórsson á að
kaupfélögin gætu aðeins aö htlu leyti
aukiö viöskipti sín viö verslunar-
deildina. Það er því hætt við að hún
verði enn þungur baggi á Samband-
inu og bæti htið hag kaupfélaganna.
Það er víst að tap verður á rekstri
Sambandsins og vel flestra kaup-
félaganna á þessu ári. Guðjón B. 01-
afsson hefur lýst því yfir að hann
stefni á hallalausan rekstur á árinu
1989. Hvaða leiðir hann ætlar að fara
svo þaö takmark náist mun koma í
ljós á næstu misserum. Þá mun og
koma í ljós hvers kyns samvinnu-
hreyfing kemur út úr þeim slag.
í dag mælir Dagfari
Omar á Stöð 2
Þá er Ómar aö pakka saman á
fréttastofu Sjónvarps og ætlar aö
flytja á Krókhálsinn til þeirra á
Stöð 2. Það fer að verða fátt um flna
drætti þama á Laugaveginum því
þegar eru margir búnir að hafa
vistaskipti á undan Ómari. Þaö
hefur ekki komið að nokkru haldi
þótt útvarpsstjóri hafi margsinnis
bent á það í Morgunblaðsgreinum
sínum aö ekki sé orð að marka Jón
Ottar. Jón Óttar og hans hð er í
stöðugri sókn meðan ríkisapparat-
ið horfir í gaupnir sér og skilur
ekkert í því að menn, sem hafa
aldrei lært að búa til sjónvarp, hafi
gert margt það á einu ári sem ríkis-
sjónvarpinu hefur ekki tekist á hð-
lega tveimur áratugum. En Stöð 2
dælir út fréttum, rush og menning-
arefni í bland og lætur sig engu
skipta að til skamms tíma var tahð
útilokað að reka útvarp, hvaö þá
sjónvarp, án þess að stóri bróðir
væri með puttana í öllu, allt frá
virðulegum samkomum útvarps-
ráðs, þar sem póhtískir fulltrúar
leggja mat á það hverjum er treyst-
andi til að fara með fréttir ehegar
lesa fyrir böm, og niður í póhtíska
baktjaldamakkið í stofnumnn út-
varps og sjónvarps þar sem smá-
kóngamir reyna aö gera sig breiða
og hygla vinum og samflokks-
mönnum leynt og ljóst. Ingvi Hrafn
sagði á sínum tíma aö á sjónvarp-
inu væm áminningarbréf frá yfir-
mönnum upp um alla vegggi á
vinnustöðum fréttamanna og ann-
arra starfsmanna. Var svo aö skilja
að mönnum væri helst veitt áminn-
ing fyrir að gera eitthvað en hins
vegar mun það ekki þekkjast að
menn fái ánúnningu fyrir að gera
ekki neitt. En á meðan gera þeir á
Stöð 2 allt sem þeim dettur í hug
án þess að spyija kóng eða prest
heldur notast við eigið hyggjuvit.
Þeir þurfa ekki að láta fuUtrúa póh-
tískra flokka fara höndum um þá
hugmynd að fá Ómar Ragnarsson
til starfa heldur einfaldlega ráöa
manninn. Sagt er aö þeir hafi boðið
honum góð laun enda á Ómar það
skihð. Þeir á Stöð 2 þurfa heldur
ekki að bera undir einn eða neinn
hvaö þeir greiða fólki í laun, frekar
en að þeir þurfa aö láta aöra ákveða
hvað afnotagjaldið skuh vera hátt.
En mikiö skelfing verður nú ríkis-
sjónvarpið fátaéklegra eftír að Óm-
ar er farinn. Þegar hann byrjaði
sem fréttamaður héldu sumir að
það yrði erfitt fyrir hann að skflja
á milli fréttamannsins og skemmti-
kraftsins en auðvitað fór hann létt
með það eins og annað. En það eitt
að sjá Ómar á sKjánum kemur fólki
í gott skap svo ekki sé nú minnst
á það þegar hann er í forsvari fyrir
spumingaþáttunum vinsælu.
Eflaust verður eitthvert fjaðrafok
innan sjónvarpsins í kjölfar brott-
farar Ómars. Formaður útvarps-
ráös skammar útvarpssljóra sem
skammar síðan framkvæmda-
stjóra sjónvarps sem svo skammar
aöstoðarframkvæmdastjórann en
hann skammar síðan settan frétta-
stjóra sem hraðar sér heim og
skammar hundinn sinn. Reyndar
hlýtur ýmsum að sveha móður
þama á fréttastofunni eftir að staða
fréttasljóra var auglýst laus til
umsóknar og einir þrír fréttamenn
sóttu rnn auk doktors Sigrúnar. En
yfirstjóminni leist ekki betur á Uð-
iö en svo aö hún hóaði í mann úti
í bæ og grátbað hann um að sækja
sem hann og gerði og fékk starfið.
AUt þetta vesen hefur sett sitt mark
á fréttatíma sjónvarpsins sem er
oftar en ekki vægast sagt leiðinleg-
ur og fmmkvæði fréttastofunnar í
lágmarki nema þegar Ómar er á
fljúgandi ferðinni út og suður um
landið og finnur hvarvetna frétta-
efni. Það er aht annar bragur á
fréttastofu Gufunnar því þar eru
menn naskir á að finna fréttir og
gera sér mat úr þeim. Og þeir virð-
ast meira aö segja komast upp með
það að sauma að mönnum ef nauð-
syn þykir en slíkt htur út fyrir aö
vera bannað á fréttastofu sjón-
varps. Eflaust á Jón Óttar eftir að
selja marga afruglara út á Ómar
Ragnarsson því ömgglega passar
hann að hafa Ómar í læstri útsend-
ingu við og við til að ergja þá sem
enn hafa ekki látið sér segjast og
slegist í hóp áskrifenda á Stöð 2.
Það er hins vegar orðin brýn
spuming hvort ekki er tímabært
að kaupa aUsherjar afruglara á rík-
issjónvarpiö tíl að 'greiða úr því
mgh sem þar virðist ríkja. Auðvit-
að er naumt skammtað frá ríkinu
en það afsakar þó engan veginn það
stefnu- og stjómleysi sem þama
ríður húsum og lýsir sér best í því
að stofnunin getur ekki einu sinni
haldiö í sinn besta mann.
Dagfari