Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988.
5
Fréttir
Fallið frá samkomuhaldi í Húsafelli um verslunaimannahelgina
Farið fram á 2 milljónir
í launakostnað lögreglu
- og 100 þúsund krónur í bensínkostnað
Falliö hefur verið frá fyrirhuguöu
samkomuhaldi í Húsafelli um versl-
unarmannahelgina, vegna þeirra
krafna sem sýslumaður Mýra- og
Borgaríjarðarsýslu setur varðandi
skemmtanahaldiö.
Talsmenn Ungmennasambands
Borgaríjarðar og Björgunarsveitar-
innar OK, sem annast hafa skemmt-
anahald í Húsafelh, segja að kröfur
um greiðslu fyrir löggæslu á samko-
munni séu þvílíkar að ekki sé fjár-
hagslegur grundvöllur fyrir sam-
komuhaldi. Eins hafl verið gerð
krafa um aldurstakmark er útiloki
ákveðinn aldurshóp frá samko-
munni sem þó hafi átt að vera áfeng-
islaus.
Kostnaðaráætlun sýslumanns
vegna samkomuhaldsins hljóðar upp
á tæpar þijár milljónir. Þar af er
beinn launakostnaður fyrir 24 lög-
reglumenn á 7 tólf tíma vöktum tæp-
ar tvær milljónir og þátttaka í bens-
ínkostnaöi vegna aðkeyptra lög-
reglumanna 100 þúsund.
„Við getum engan veginn staðið
undir þessum kostnaöi. Félögin eiga
engar eignir. Sýslumaður var tilbú-
inn að ræða ýmsar hliðar skilyrö-
anna en var óhagganlegur varðandi
þijú atriði. Það eru aldurstakmarkið,
að aðstandendur hátíöarinnar leiti
eftir áfengi á samkomugestum með
og undir stjórn lögreglu og loks
kostnaðurinn. Að setja fram þessar
kröfur og skilyrði er það ákma og að
neita okkur um skemmtanaleyfi.
Hann hefði getað sagt nei strax,“
sagði Bjami Áskelsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Oks, í samtali
viðDV.
Hann sagði ennfremur að samstarf
aðilanna hefði alltaf verið gott og
sætti því furðu að sýslumaður kæmi
með slíkar kröfur og skilyrði án sam-
ráðs við félögin. Hefði ýmislegt farið
miður á samkomunni í fyrra og það
verið rætt á fundi í haust. Þar hefðu
alhr verið tilbúnir að bæta um bet-
ur, ekki síst varðandi skipulag og
þjónustu.
„Þeim sem ég hef talað við, þar á
meðal aðila úr dómsmálaráðuneyt-
inu, finnast kröfur sýslumanns vera
út í hött. Það verða allir hvumsa sem
heyra þetta.“
Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í
Borgamesi, segir að hlutirnir hafi
alls ekki verið útræddir. Þama hafi
ýtmstu hugmyndir verið á ferðinni
og þá miðað við 10 þúsund manna
mót. Ef samkoman yrði minni í snið-
um drægist kostnaöur saman sem
því næmi.
Norrænir bamalæknar þinga:
Vöxtur og þroski
bama til umræðu
Vöxtur og þroski bama er aðalum-
ræðuefnið á þingi norrænna barna-
lækna sem nú stendur yfir í húsa-
kynnum Háskóla íslands. Þingið
hófst í gær og lýkur því á fimmtudag.
Fjögur sérsvið bamalæknisfræð-
innar em tekin fyrir á þinginu; ill-
kypja meinsemdir, sjúkdómar í
taugakerfi, meltingarfærum og inn-
kirtlum sem meðal annars geta leitt
til truflunar á vexti og þroska bama.
Fyrirlesarar em víðs vegar af Norð-
urlöndunum auk prófessoranna
Tanner frá Lundúnaháskóla og Free-
mans frá John Hopkins háskóla í
Bandaríkjunum. -J.Mar
„Það er eins og félögin hafi þurft
ástæðu til að hætta við en samkoman
í fyrra þótti takast miður vel. Kostn-
aöaráætlunin er ekkert sem viö bú-
um til. Við miðum við gjaldskrá frá
dómsmálaráðuneytinu yfir útselda
vinnu lögreglumanna. Eg undir-
strika að þama vom hugmyndir á
ferðinni, tölur sem slegið var fram.
Varðandi aldurstakmark og áfengis-
leit var búið að ræða þau atriði á
fundum. Vísa ég þeirri gagnrýni til
fóðurhúsanna," sagði Rúnar Guð-
jónsson.
Hann bætti því við að það sem hann
hefði lesið og heyrt frá aðstandend-
um samkomunnar væri út í hött. í
ár hefði verið farið snemma af stað
með skipulagningu í Ijósi fenginnar
reynslu og væri það nýnæmi af hálfu
yfirvalda.
„Það erum við sem berum þrátt
fyrir aUt ábyrgð á að þetta fari sóma-
samlegafram." -hlh
AFMÆUSTILBOÐ
á þvottavélum
! 'nt ef l‘dlð •'
nQ 0/’ frá því við opnuðum
í Borgartúni28
bauð Blomberg okkur nokkurt
magn af úrvalsþvottavélum á ein-
staklega hagstæðu verði.
Við bjóðum þér að njóta þessa
hagstæða tilboðs.
'A fWffif
Bjombero
Þau gerast ekki betri.
m W5
* Fjöldi þvottakerfa
* E-sparnaöarkerfi
* Frjálst hitaval
* Tölvustýrður mótor
* Áfangavinding, mesti
vinduhraði 1200 sn/mín.
* Hraðþvottakerfi, gardínuþvottakerfi
* Aqua-stop, flæðiöryggi
* Íslensk handbók fylgir
Afmælistilboð
kr. 59.900,-
VM 930
* Fjöldi þvottakerfa
* E-sparnaðarkerfi
* Frjálst hitaval
* Tölvustýrð vinding, 650/900 sn.
* 5 mismunandi vatnshæðir
* Flæðiöryggi
* Stál að innan
’ Ryðvarið ytra byrði
* Íslensk handbók fylgir
Afmælistilboð
kr. 54.900,-
Afmæliskjör: Útborgun 8000 kr.
- Eftirstöðvar á 10 mánuðum
ÍL'
Eínar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI