Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988. Viðskipti Hátt í 300 milljóna króna offjárfesting í rútubílum - segir Gunnar Sveinsson, framkvæmdastjóri BSÍ Gunnar Sveinsson, framkvæmda- stjóri Bifreiðastöðvar íslands, BSÍ, og félags sérleyfishafa, segir að gífur- leg ofljárfesting sé nú í rútubílum á íslandi. Metur hann þessa offjárfest- ingu á bilinu 200 til 300 milljónir króna. Það er ekki aðeins að rútubíl- um hafi fjölgað heldur veröa rúturn- ar sífellt stærri sem fluttar eru til landsins. í rekstri rúta eru tvö félög, Félag sérleyfishafa og Félag hópferðabíl- stjóra. „Það hefur sérstaklega orðið mikil aukning hjá hópferðamönnun- um," segir Gunnar. Hann nefnir sem dæmi aö fyrir fjórtán árum, árið 1974, hafi sérleyf- ishafar átt 144 rútur og hópferða- menn 89 bíla. Nú er fjöldi hópferða- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Spansjóðsbækurób. 18-20 Ab Spanreikningar 3jamán. uppsogn 18-23 Ab 6mán. uppsogn 19-25 Ab 12mán. uppsogn 21-28 Ab 18mán. uppsogn 28 Ib Tékkareikningar, alm 8-10 Ab.Sb Sértékkareikmngar 9-23 Ab Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsogn 4 Allir Innlán meðsérkjörum 20-30 Vb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6-6,50 Vb.Sb Sterlingspund 6,75-8 Úb Vestur-þýskmbrk 2.25-3 Ab Danskar krónur 8-8,50 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 30-32 Bb.Lb Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 31-34 Bb.Lb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupqenqi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-35 Sp Utlán verðtryggð . Skuldabréf 9.5 Allir Útlán til framleiðslu Isl. krónur 29,5-34 Lb SDR 7,75-8.50 Lb Bandarikjadalir 9,00-9,75 Úb Sterlingspund 9,75-10.50 Lb.Bb,- Sb.Sp Vestur-þýskmork 5,25-6,00 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 44.4 3.7 á mán. MEÐALVEXTIR Óverðtr. júní 88 32 Verðtr. júní 88 9,5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júni 2051 stig Byggingavisitala júní 357,5 stig Byggingavisitalajúni 111,9 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 6%' april. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veróbréfasjóða Avöxtunarbréf 1,1349 Emingabréf 1 2,888 Einingabréf 2 1,669 Einingabréf 3 1,851 Fjolþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,340 Kjarabréf 2,893 -Lífeyrisbréf 1.452 Markbréf 1,507 Sjóðsbréf 1 1,393 Sjóósbréf 2 1,240 Tekjubréf 1,428 Rekstrarbréf 1,5677 HLUTABRÉF Soluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 115 kr. Eimskiþ 234 kr. Flugleiðir 212 kr. Hampiðjan 112 kr. Iðnaðarbankinn 148 kr. Skagstrendingur hf. 220 kr. Verslunarbankinn 114 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 121 kr. Tollvörugeymslan hf 100 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. bíla kominn yfír 235 og bílar sérleyf- ishafa eru 179. Sætaaukning er hlut- fallslega mun meiri þar sem rútum- ar eru stærri en áður. „Ástæðan fyrir þessari fjárfestingu er allt of mikil bjartsýni manna. Enda eru eigendaskipti á rútum mjög Gunnar Sveinsson, framkvæmda- stjóri BSÍ, segir að gífurleg offjár- festing sé nú í rútubilum á íslandi. „Þumalputtareglan er sú að góð rúta kostar svipað og eitt einbýlis- hús.“ tíð. Menn fara ekki á hausinn með rúturnar heldur kaupa nýir menn bílana, gjarnan rútubílstjórar sem vilja spreyta sig á sjálfstæðum at- vinnurekstri. Bjartsýnin er því mikil þannig að aUt sem heitir hið gullna jafnvægi á milli framboðs og eftir- spurnar er fyrir bí.“ Að sögn Gunnars kostar ein rúta af dýrustu og stærstu gerð um 15 milljónir króna. Og þær ódýrustu kosta um 4 til 5 milljónir. „Þumal- puttareglan er sú að góð rúta kosti svipað og eitt einbýlishús." Gunnar segir ennfremur að eitt af því sem hafi hleypt fjárfestingaskrið- unni af stað sé framboð á notuðum 3 til 4 ára rútum í Þýskalandi. „Þetta hefur orðið til þess að menn hafa keypt rútur án þess að umsvif þeirra hafi verið að aukast. Enda er nú svo komið að rekstur rúta er mjög erfið- ur.“ Verð farmiða með sérleyfishöfum og hópferðabílum myndast ekki á frjálsum markaði. Það er ákveðið af hinu opinbera. Fyrir fjórtán árum voru sæti allra rútanna 7.700 talsins en nú eru þau rúmlega 14.200. Fjöldi sæta hefur því tvöfaldast á fjórtán árum. -JGH Rúta á rútu ofan. Fyrir fjórtán árum voru 233 rútur á íslandi með um 7.700 sæti. Nú eru 414 rútur með rúmiega 14.200 sæti enda er rekstur rúta orð- inn mjög þungur og erfiður að sögn Gunnars Sveinssonar. Gifurleg þensla er enn i byggingar- iðnaðinum. Það sem af er þessu ári hefur verið miklu meira steypt en i fyrra. Gífurieg þensla í byggingariðnaðinum - mlklu meirí sementssala en í íyira Gífurleg þensla er nú í byggingar- íðnaðinum og mun meiri en í fyrra og fannst þó mörgum nóg um. Sem- entsverksmiöja ríkisins seldi yfir 37 þúsund tonn af sementi fyrstu fimm mánuði þessa árs á móti rúmlega 26 þúsund tonnum fyrstu fimm mánuð- ina í fyrra, aö sögn Haröar Geirlaugs- sonar, yfirmanns á söluskrifstofu Sementsverksmiöju rikisins í Reykjavík. Sementssalan var á milli 4.700 og 7.600 tonn á mánuði fyrstu fjóra mán- uðina. En í maí, þegar voraði, kom mikill kippur i söluna. Um 11.800 tonn seldust í mai á móti um 10.700 tonnum í fyrra. Að sögn Haröar býst hann viö sam- drætti í sölu sements með haustinu þegar útlit er fyrir að dragi úr smíði bygginga. -JGH Gunnar Hall hagsýslustjóri: Ófrágengið hvar ég hef störf Gunnar Hall hagsýslustjóri. Hættir í lok mánaðarins. „Það er ófrágengiö hvar ég hef störf en ég hætti hér og læt af störfum hagsýslustjóra þriðjudaginn 28. júní,“ segir Gunnar Hall hagsýslu- stjóri en hann sagði mjög óvænt upp því starfi í vor vegna óánægju sem hann hefur ekki viljað tjá sig frekar um. Að sögn Gunnars hefur hann rætt viö nokkra aöila um nýtt starf en ennþá er það ekki komið á hreint hvert hann fer. „Ég vonast til og reikna með að vera búinn að ráða mig annars stað- ar þegar ég hætti hér í lok mánaðar- ins.“ Samkvæmt heimildum DV hefur enn ekki verið gengið frá ráöningu nýs hagsýslustjóra. -JGH Kristinn Finnbogason, varaformaður bankaráðs Landsbankans. „Ráðn- ingu þess aðstoðarbankastjóra sem átti að hefja störf um áramótin hefur verið frestað fram á haust." Landsbankinn: Ráðningu aðstoðar- bankastjóra frestað Kristinn Finnbogason, varaform- aður bankaráðs Landsbankans, segir að í haust verði ráðið í stöðu aöstoð- arbankastjóra sem auglýst var til umsóknar í vetur. Þá voru þrjár að- stoðarbankastjórarstöður bankans auglýstar og bárust 27 umsóknir. Þeir Jóhann Ágústsson og Brynj- ólfur Helgason, áður framkvæmda- stjórar bankans, voru ráðnir aðstoð- arbankastjórar í apríl. Jafnframt var ráðningu þess þriðja slegið á frest en samkvæmt auglýsingunni átti hann að hefja störf frá og með næstu ára- mótum er Sigurbjöm Sigtryggsson lætur af störfum aðstoðarbanka- stjóra. Að sögn Kristins er verið að reka endahnútinn á ákveðnar skipulags- breytingar innan bankans og verður ekki ráðið í stöðuna fyrr en þær liggjafyriríhaust. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.