Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Robert
Redford
fórnaði frelsi sínu fyrir skömmu.
Sovétríkin voru orðin eini stað-
urinn þar sem hann gat bara ver-
iö eins og ég og þú og ferðast um
tiltölulega óþekktur. En ekki
lengur. Nýlega komst hann í
uppáhald hjá sovéskum íjölmiðl-
um og greinar um hann birtust í
þremur dagblöðum þar, einnig
birtist hann í sjónvarpinu. Red-
ford var að taka þátt í glasnost-
æðinu og var einn af þeim er sáu
um námskeið um umhverfismál,
ásamt því að taka átta af myndum
sínum í ferð um Sovetríkin. Að
sjálfsögðu kaus hann að leggja
mesta áherslu á „AU the Presid-
ent’s Men“.
Whoopi
Goldberg
og maöur hennar David Claessen
munu halda upp á tveggja ára
hjúskaparafmæli sitt þann 1.
september nk. En samkvæmt
breska blaðinu Daily Mirror þá
hafði víst Whoopi sagt að David
hefði aöeins gifst sér til komast
áfram í kvikmyndaiðnaðinum.
Eiginhagsmunaseggurinn sá.
Hvað hjónabandiö varðar, voru
engar upplýsingar géfnar um
það.
George
Michael
virðist vera inn undir hjá happa-
stjömunum þessa dagana. Síðan
plata hans „Faith“ kom út í okt-
óber hafa fimm af lögunum kom-
ist á topp bandaríska listans.
Platan sjálf stendur sig síst verr,
því nú er hún einnig söluhæsta
platan vestanhafs. George Mic-
hael tókst þó svolítið, sem engum
hvítum á hörund hefur tekist áð-
ur, það er aö ná fyrsta sætinu á
Usta blakkra tónlistarmanna.
Mannlegur sveigjanleiki
Stephanie af Mónakó ætti nú að
geta gifst Mario sínum, því faðir
hennar hefur gefið samþykki sitt.
*•]
Haldið þið að það væri munur að geta burstað i sér tennurnar með tánum
og þar að auki i svona stellingu! Ulla Matteson heitir hún þessi og er frá
Flórída. Hún hefur atvinnu af því að fetta sig og bretta i fjölleikahúsum
erlendis, hvað annað?
Góður árangur þrátt
fyrir lágt hitastig
Arnia Ingótfsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Árlega er haldinn blómasöludagur
á Egilsstöðum sem nefndur er Græna
torgið. Þá koma saman blóma- og
garðplönturæktendur fyrir framan
barnaskóla Egilsstaða og setja upp
sölubása. Síðan flykkjast blómaunn-
endur að og kaupa.
Margt fólk var saman komið á
Græna torginu í ár og létu Fjarð-
arbúar ekki sitt eftir liggja heldur
komu margir langt að til að ná sér í
plöntur. Óku langan veg. Ræktendur
voru allir ánægðir bæði með upp-
skeru ræktunarinnar og svo upp-
skeru sölunnar. Að sögn minnugra
manna hefur hitastig verið mjög svo
lágt á Austurlandi í vor og veður-
íræðingar segja hita vel undir meöal-
lagi. En það aftraði ekki né dró úr
framleiðslu blómaræktenda.
Stephanie
fær leyfi til að
giftast Mario
sínum
Rainier fursti af Mónakó er nú
sagður hafa skipt um skoðun varð-
andi val dóttur sinnar á lífsförunaut
og gefið samþykki sitt fyrir giftingu.
En Stephanie hneykslaði föður sinn
með því að heimta meira en það, því
hún vill konunglegt brúðkaup.
Stephanie finnst nefnilega að hún
eigi skilið að fá eins dýra og skraut-
lega brúðkaupsveislu og systir henn-
ar fékk er hún gifti sig í fyrra skipt-
iö. Er hún sögð hafa minnt karl föður
sinn á að til þeirrar veislu voru boðn-
ir um 700 gestir, og Stephanie vill
ekkert minna.
Sú staðreynd að Rainier hefur gefið
samþykki sitt hefur komið öllum vin-
um þeirra og kunningjum í algjör-
lega opna skjöldu, því hingað til hef-
ur maöurinn neitað að hitta unnusta
dóttur sinnar, þó að parið sé nú búið
að hanga saman í eitt og hálft ár.
Það gengur þó íjöllunum hærra aö
Rainier hafi sjálfur í hyggju aö festa
ráð sitt og kvænast Iru von Fursten-
berg. En eins og Mario, sem hefur
heldur slæmt orð á sér, þá má segja
að daman sú sé kona með fortíö. Hin
fyrrum ítalska leikkona giftist tvi-
svar og skildi jafnoft áöur en hún
varð 25 ára. Fyrir utan það hefur hún
birst heldur léttklædd í nokkrum
myndum.
Rainier er sagður hafa ráðfært sig
við ráðgjafa sína um að giftast Iru,
en þeir töldu að sú gifting myndi
hafa slæm áhrif á ímynd Mónakó.
Svo Rainier hefur fallið frá þeirri
hugmynd um sinn, en þetta gæti
hafa haft áhrif á skoðun hans á
Mario.
Rainier sagði víst Stephanie frá
samþykki sínu á ólympíuleikunum í
Calgary í febrúar síðasthðnum, en
hún varð svo ill út í föður sinn, er
hún heyröi skilmálana, að hún talaði
ekki við hann það sem eftir var af
leikunum.
Stephanie ætlar sér þó ekki aö gef-
ast upp og bjóst við aö þau Mario
myndu bíða með brúðkaupið í ár eöa
svo, ef ske kynni aö faðir hennar
breytti um skoðun og gerði sér ljóst
að Mario er ekki eins slæmur og
hann heldur. Hún er stolt af Mario
sínum og hefur svo sannarlega ætlað
sér að giftast honum með þeirra skil-
málum.
Verslað á græna torginu á Egilsstöðum. DV-mynd Anna
Rainier fursti er sagður vera sjálfur
i giftingarhugleiðingum, og hyggst
hann kvænast Iru von Furstenberg.