Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988.
LífsstíU
Blýmengun:
Alvarlegt umhverfisvanda-
mál um heim allan
Blý er ekki bara í bensíni. Þaö er
einnig í loftinu, í umhverfmu og
jafnvel í fæðunni. Margt bendir til
aö milljónir um allan heim séu meö
vægablýeitrun.
Er ríkisstjórnir um heim allan
tóku til bragðs að minnka blýnotk-
un í bensíni kom þaö ekki til af
engu. Blýeitrun var oröin verulegt
vandamál sem ekki var unnt aö
leiða hjá sér öllu lengur. Mesti
mengunarvaldurinn var bensín og
er langt síöan blýlaust bensín
var sett á markaö í ýmsum lönd-
um.
Nú, meira en áratug siðar, kemur
í ljós að blýinnihald í blóði bama
í þessum löndum er enn of hátt.
Skýringin er aö aðrir mengunar-
valdar eru enn virkir.
Almenn
blýeitnm
Stöðugt fleiri rannsóknir
sýna fram á almenna væga blý-
eitrun. Þetta hefur meðal annars
í fór með sér minnkandi greind
barna og lélegri námsárangur.
Og mengunin er í öllu umhverf-
inu. Allt frá niðursuðudósum, en
þeim er lokað með blýinnsigli, til
búsáhalda eru mengunarvaldar.
Einnig hefúr ýmis málning hátt
blýinnihald.
Blý er því að finna í fæðunni
sem við neytum, loftinu sem við
öndum að okkur, búsáhöldum og
jafnvel í ryki úti á götu. Þetta blý
sest allt til í likamanum með
ýmsum afleiðingum.
Skyldi þetta vera „óblýtt"?
Hættanvið
blýmengun
Líkaminn þarfnast ekki blýs
en tekur það samt sem áður til
sín. Hann losar sig ekki við það
heldur geymist það í vefjum, að-
allega í beinum. Þaðan kemst það
eftir mislangan tíma út í blóðrás-
ina. Þá fer það að hafa slæm áhrif
áfrumustarfsemi.
Þetta hefur það í for með sér
að miðaldra karlmenn eiga frek-
ar á hættu að fá of háan blóð-
þrýsting ef þeir hafa mikið blý í
líkamasínum.
Vanfærar konur eru einnig í
áhættuhóp. Ef þær lenda í mikilh
blýmengun aukast til muna líkur
á fósturmissi, að barnið fæðist
fyrir tímann eða andvana.
Þeir sem eru þó í hvað mestri
hættu eru böm frá fimm mánaða
aldri til sex ára. Samkvæmt
könnunum sem gerðar hafa verið
á bandarískum börnum á for-
skólaaldri eru 17% þeirra með
hættulega mikið blý í blóði. Þessi
17% barna sýndu áberandi slak-
ari námsárangur en önnur. Beint
samband reynist því vera á miRi
námsárangurs og blýeitrunar.
Blýmengun
íandrúms-
Ioftinu
Rannsóknir á setlögum í ís-
hjúp Noröur- og Suðurpólsins, á
setlögum í sjó og árhringjum
gamalla trjáa sýna að blýmengun
í andrúmsloftinu jókst nyög við
upphafiðnbyltingar. Stærsta
stökkið var þó upp úr 1920 er
byijað var að blanda blýi í bens-
ín. Bensín er því helsti megnun-
arvaldurinn, enda hefur meng-
unin minnkað til muna við al-
menna notkun blýlauss bensíns.
Þetta er því minnkandi vandamál
enalvarlegtsamt.
Vandað
fæðuval
góðvöm
Það helsta sem hægt er að
gera til að sporna við eituráhrif-
um blýs er að vanda vel fæðuval.
HeppUegasta fæðan er eggja-
hviturík, með litlu af mettuðum
Neytendur
fitusýrum og auðug af steinefn-
um eins og járni, fosfór, sinki og
kalki.
Einnig þarf að gæta að því að
keramikvörur, eins og diskar,
mál og bollar, séu ekki með blý-
málningu. Þá er nauðsynlegt að
gæta að þvi hvort málning inni-
haldi blý. Ein helsta orsök blý-
eitrunar í börnum er einmitt sú
að þau hafa lagt sér flögur úr
flagnandi málningu til munns.
Spyijið áður en þið kaupið.
-PLP
Ólafur Sigurðsson næringarfræðingur:
Lýsi hefur jákvæð
áhrif á psoriasis
Tilraunir hafa sýnt fram á að
fiskoliur, sem innihalda EPA fitu-
sýru, geti haft jákvæð áhrif í meö-
ferð psoriasis. í nýlegri rannsókn,
sem framkvæmd var á Royal Hall-
amshire spítalanum í Sheffield í
Englandi, tóku 28 sjúklingar þátt í
12 vikna tilraun. Þeir voru allir
haldnir krónískum psoriasis.
Sjúklingamir voru valdir af handa-
hófi og notað tvöfalt blindsýni til
að komast hjá svonefndum
„placebo“ áhrifum eða þóknunar-
hrifum. Sjúklingarnir fengu 10
belgi á dag með lýsisþykkni (1,8 g
EPA) eða olífuolíu. Þeim var uppá-
lagt að breyta í engu mataræði eða
lyfjameðferð.
Astand sjúklinga var metið í upp-
hafi og eftir 4, 8 og 12 vikur. Eftir
8 vikur varð marktæk minnkun í
kláða og roða í þeim hópi sem fékk
lýsisþykknið, umfram þóknunar-
hrif. Þeir sem fengu plöntuolíu-
belgina urðu ekki fyrir þessum
áhrifum.
Líkur eru til þess að truflanir i
efnaskiptum fitusýra hafi áhrif á
sjúkdómsferli psoriasis. Höfundar
rannsóknarinnar telja að EPA fitu-
sýran í fiski ýti burt bólguhvetjandi
fitusýrum eins og sýnt hefur verið
fram á við meðhöndlun á liðagigt.
Er þar um að ræða samkeppni milli
EPA og arakídonfitusýrunnar sem
myndast úr línolfitusýru sem mik-
ið er af í plöntuolíum. Hefur EPA
fitusýran betur og eru jákvæðu
áhrifin þannig til komin að mati
visindamannanna.
Höfundarnir telja einnig að nægi-
legt sé að neyta daglega um 150 g
af feitum fiski til að fá sama magn
EPA fitusýru. Þess má geta hér að
í þorskalýsi er um 10% af EPA.
Tvær matskeiðar (20-30 g) á dag
ættu því að vera vel útilátið í þess-
um tilgangi.
Þessar niðurstöður munu líklega
renna enn styrkari stoðum undir
þá kenningu að fitusýrur úr fiskol-
íum af omega-3 gerð geti verið lífs-
nauðsynlegar. Hafa ýmsir þekktir
vísindamenn velt fyrir sér þeirri
spumingu hvort ekki þurfi að taka
tillit til þess magns sem einstakl-
ingur neytir af plöntuolíum ef ráð-
leggja á t.d. lýsi sem forvöm gegn
m.a. hjarta- og æðasjúkdómum.
Hafa því ýmsar spumingar komið
fram eins og hvað er æskilegt hám-
arksmagn omega-6 fitusýra, sérs-
taklega þegar heildarfituneysla er
minnkuð. Einnig, ef jákvæð virkni
omega-3 fitusýra er vegna bælingar
á virkni omega-6 fitusýra, er þá
æskilegt að minnka neyslu omega-6
fitusýra? Hvert er þá æskilegt hlut-
fall omega-3 og omega-6 fitusýra í
fæðunni?
Það er því ljóst aö aukinna rann-
sókna er þörf til að svara þessum
spumingum og er jákvæð niður-
staða um áhrif fiskfitu á psoriasis
aðeins eitt lítið skref í þá átt.
Heimildir. Lancet 20/2 '88, Chem. & Ind.
7/3 '88 og Food Technology mai 1988.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í maí 1988:
Matur og hreinlætisvörur
Annað
kr.
kr.
Alls kr.