Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1988, Blaðsíða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988.
Andlát
Ásta Hulda Guðjónsdóttir, Hlíöar-
vegi 10, Kópavogi, lést í Landspítal-
anum funmtudaginn 9. júní.
Dagbjört Hallgrímsdóttir, Vallar-
braut 2, Seltjarnarnesi, lést í Land-
spítalanum 11. júní.
Sigurður Svavar Gíslason, fyrrver-
andi hótelstjóri á Hótel Borg, lést
aöfaranótt sunnudagsins 12. júní.
Ólafur Pálsson, Hvassaleiti 16, and-
aðist 11. júní.
Anna Jóna Jónsdóttir lést af slys-
forum 11. júní.
Monika S. Helgadóttir, Merkigili,
Skagafiröi, lést í Sjúkrahúsi Sauðár-
króks íostudaginn 10. júní.
Þorsteinn Erlingsson, Austurbergi
38, er látinn.
Jarðarfarir
Egill Óskarsson, Breiðagerði 19,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 15.
júní kl. 10.30.
Guðrún Elísdóttir, Vesturbraut 10,
Hafnarfirði, sem lést í Sólvangi
6.þ.m., verður jarðsungin frá Garða-
kirkju miövikudaginn 15. júní kl. 15.
Útfor Frú Sigriðar Ragnarsdóttur
Michelsen fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 15. júní kl.
13.30.
Friðþjófur Helgason, bifvélavirki og
fyrrum brunavörður, lést 5. júní sl.
Hann fæddist 28. febrúar 1917, sonur
hjónanna Helga Vigfússonar og Val-
gerðar Bjamadóttur. Friðþjófur
kvæntist 1941 Bergdísi Ingimarsdótt-
ur og eiga þau 6 böm, 11 bamaböm
og 1 bamabamabam. Friðþjófur
starfaði síðustu 30 árin hjá Slökkvi-
hði Reykjavíkur. Útfór hans verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Tilkynningar
Fjöltefli í Sjálfsbjargarhúsinu
Sofie Polgar tefUr fimmtudagmn 16. júní
. kl. 12 í matsal Sjálfsbjargarhússins, Há-
túni 12,2. hæð. Gjald kr. 500. Þátttakend-
ur mæti með töfl með sér. Allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir.
af Bólstursverki) sem hægt er að fá smíð-
aða eftir máli. Einnig sófaborð og hom-
borð, hægindastólar og ýmislegt fleira.
Hægt er að velja úölbreytilegt úrval
áklæða í samráði við framleiðendann án
milliliða, á betra verði en annars staðar
þekkist. Einnig er boðið upp á klæðning-
ar á gömlum húsgögnum og þá jafnvel í
stíl við þau nýju. Veggi verslunarinnar
prýða myndir eftir hinn kunna myndlist-
armann Sigurð Þóri og eru þær flestar
falar. Verslunin er opin alla virka daga
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14. Eigandi
og verslunarstjóri er Loftur Þór Péturs-
son.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavikurdeild RKÍ heldur námskeið í
skyndihjálp sem hefst miðvikudaginn 15.
júní og stendur í 5 kvöld. Námskeiðið
verður haldið að Öldugötu 4. Öllum 14
ára og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem
hafa áhuga á að komast á námskeiðið
geta skráð sig í síma 28222. Takmarkaður
fjöldi þátttakenda. Notaö verður nýtt
námsefni sem RKÍ tók í notkun nýlega
og'hefúr gefið góða raun. Nokkuð er um
nýjungar. Lögð verður áhersla á fyrir-
byggjandi leiðbeiningar og ráð til al-
mennings við slys og önnur óhöpp. Talið
er æskilegt að taka námskeiðið allt á 2
ára fresti og riíja upp einu sinni á ári.
Námskeiðinu lýkur með prófi sem hægt
er að fá metið í flestum framhaldsskólum.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
fer í tveggja daga ferð um Snæfellsnes
25. og 26. júní nk. Gist verður á Hótel
Búðum. Upplýsingar gefa: Sigurborg s.
685573 og Asa s. 32872.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 14
í dag, þriðjudag. Spiluð verður félagsvist.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
áformar skemmtiferð í uppsveitir Borg-
arfjarðar laugardaginn 18. júní. Lagt
verður af stað frá Umferðarmiðstöð, BSÍ,
kl. 10. Ekið verður um Norðurárdal,
Grjótháls, Þverárhlið og Hvitársíðu að
Reykholti. Til baka verður ekið um Drag-
háls. Nánari upplýsingar um ferðina í
síma félagsins 28812.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Sumarferð Húsmæðrafélags Reykjavikur
verður farin sunnudaginn 19. júni. Allar
upplýsingar og farpantanir í síma 681742
Þuríður, 14617 Sigríður og 84280 Stein-
unn. Konur eru vinsamlegast beðnar að
láta vita í síðasta lagi fimmtudaginn 16.
júni.
Ferðálög
Utivistarferðir um
landið í sumar
1. 17.-21. júní: Sólstöðuferð fyrir norð-
an. Ökuferð með skoðunar- og göngu-
ferðum ásamt eyjaferðum. Hríséy -
Svarfaðardalur - SigluQörður - Skaga-
fjörður. Boðið verður upp á ferð í Málm-
ey og miðnætursólarferð í Drangey. í
Svarfaðardal eru skemmtilegar göngu-
leiðir, t.d. á GQúfuráriökul og um Heljar-
dalsheiði. Grímseyjarferð ef aðstæður
leyfa. Gist i svefnpokaplássi.
2.16.-19. júní: Núpsstaðarskógar. Tjald-
ferð. Gönguferðir um svæöið. Sambæri-
legt við okkar þekktustu ferðamanna-
staði.
Bólstursverk, ný húsgagna-
verslun
Húsgagnaverslunin Bólstursverk var
nýlega opnuð að Kleppsmýrarvegi 8 í
Reykjavík. í versluninni fást eingöngu
íslensk sófasett og homsófar (framleitt
3. 16.-19. júní: Skaftafell - Ingólfshöfði.
Gönguferðir um þjóðgarðinn og skoðun-
arferð í Ingólfshöfða. Tjöld.
5. 16.-19. júní: Þórsmörk - Goðaland.
Góð gisting í Útivistarskálunum Básum.
Gönguferöir við allra hæfi.
PIZZA-
ELDOFN TIL SÖLU
Ef þú ert svo Ijónheppinn að lesa þessa auglýsingu
eigum við til sölu ítalskan pizza-eldofn í frábæru
standi. Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 688836.
Meiming
Gaman og gott
Norræni kvartettinn er smá-
skrýtin kammergrúppa sem, ef ég
man rétt, var stofnuð vegna ferðar
fjórmenninganna Einars Jóhann-
essonar, Jósephs Fung, Áskels
Mássonar og Rogers Carlson til
Kína hér um árið. í kvartettinum
er klarínett, gítar, handtrommur
og slagverksbatterí, hann er sumsé
dæmigerður samsetningur áranna
upp úr Darmstadt. Músíkin, sem
fjórmenningamir leika, er eflaust
af ýmsu tagi en á tónleikunum sem
þeir voru með á Listahátíð í Bú-
staðakirkju sl. sunnudag voru þeir
með þrjú verk eftir Áskel og síðan
verk eftir Þorstein Hauksson,
Finnann Heininen og Jóseph Fimg,
eitt eftir hvern.
Fyrst var Fantasía um kínverskt
ljóð eftir Áskel fyrir klarínett og
handtrommur, sem höfundurinn
lék með Einari, vel gert og lýsandi
tónverk um árstíðimar (Lí Pó). Síð-
an lék Jóseph Tokkötu fyrir gítar,
sóló eftir Þorstein Hauksson sem
hljómaði afar skipulega, já veru-
lega faUega, f „tónölum" einfald-
leika. Og Impromtu, sem Áskell lék
á trommur, var einnig stórfallegt í
laginu, enda kann Áskell aUra
Listahátíð
Leifur Þórarinsson
manna best að fara með trommu-
efni svo að vit sé í. Sólósónatína
fyrir klarínett eftir Heininen, Dis-
cantus II op 21, lék svo Einar af
sinni sannfærandi snilld. Þetta er
sterkt og ákveðið verk, fullt af
næmgeðja blæbrigðun.
En aðalverkin voru þó eftir hlé,
tveir fuUir kvartettar: Diverti-
mento eftir Áskel og Choreograp-
hic Poems eftir Jóseph Fung. Verk
Áskels er næstum „klassískt“ í
forminu, stefnufast og fullt af lag-
rænum sætleika. Það gerði manni
býsna gott og einnig stykki Jós-
ephs, þó það sé nokkuð lausara í
reipunum. Og allir eru þessir spil-
arar íjórir eins góðir og gerist best
og væri sannarlega gaman og gott
að heyra þá sem fyrst aftur.
LÞ
Fútt í Mendelsohn
Tónleikar Söru Walker messó-
sópran og píanóleikarans Rogers
Vignoles í gærkvöldi, á vegum
Listahátíðar í Óperunni, voru
þægUega skemmtilegir. Sarah er
afar fjölhæf söngkona sem hefur
heiUað fólk lengi upp úr skónum
með ljóðasöng, óperukúnstum og
Listahátíð
Leifur Þórarinsson
jafnvel kabarettsöng og heldur því
áfram um viða veröld.
í gærkvöldi var efnisskráin tví-
skipt, þýskur Lieder (Schubert og
Mendelsohn) fyrir hlé en kabarett-
söngvar og skemmtitónUst á eftir.
Heldur var nú Schubert í daufara
lagi hjá frúnni en sléttur og faU-
egur. Slíkur söngur snertir mann
nú ekki nema mátulega en sem
betur fór var meira fútt í Mend-
elsohn, lögum sem maður hafði
fæst heyrt áður. Sönglög Mend-
elsohns eru mörg meistaraverk á
borð við Schubert og Schumann en
þau heyrast miklu sjaldnar, hvað
sem veldur. Það var því mikiU feng-
ur að heyra Söru Walker fara með
nokkur þeirra, sem hún gerði
reyndar af mikiUi siúlld. Sérstak-
lega var Neue Láebe (sem er Stóð
ég úti í tunglsljósi á þýsku) áhrifa-
mikið og Hexenlied, nornagaldur,
gladdi mannsins hjarta. Kabarett-
lögin eftir hlé voru eftir merkUega
þrenningu, Schönberg, Britten og
Gershwin. Að vísu var ekki mikið
púður í Gershwinflutningnum,
hann var heldur stífur og Utlaus
en Brettl-Lieder Schönbergs (sem
eru eins konar blanda af Atla
Heimi og Fúsa) og ljúfsárir söngvar
Brittens við kvæði eftir Auden
(Calypse, Johnny, Funeral blues)
voru hins vegar með aUt sitt á rétt-
Sarah Walker messósópran.
um stað. Píanóleikur Vignoles var
hreint aíbragð, blæbrigðaríkur og
lifandi. LÞ
Tími og orka
Sýning Jóhanns Eyfells í Galleri Svart á hvrtu
Myndlist Jóhanns Eyfells er í
senn jarðbundin og dulúðug.
Skúlptúrar hans eru yfirleitt frum-
form, mikU um sig og gegnheil, en
merking þeirra rúmast ekki innan
marka sjálfhverfrar naumhyggju.
Yfirbragð þeirra og staðsetning
kaUar stöðugt upp í hugann trúar-
leg minni og háttbundin ritúöl'
áferð þeirra og efnismeðferð
minnir okkur hins vegar á náttúru-
krafta og huglæg gildi eins og
„tíma”, rúm” og „orku”.
MyndUst Jóhanns hefur vissu-
lega verið aUt of lítið til sýnis hér
í heimalandi hans.
Því ber að þakka Gallerí Svörtu
á hvítu fyrir að efna til sýningar á
svokölluðum pappírssamfeUum
Ustamannsins (Paper CoUapsions),
þar sem kristallast ýms þau við-
horf sem Uggja til grundvaUar
myndUst hans í heild.
Þessar samfeUur, eða samlokur,
verða þannig til að stórar og gljúp-
ar pappírsarkir eru lagðar ofan á
ýmiss konar jarðveg, grös eða sand,
og ofan á arkirnar leggur Jóhann
sérstakt mót úr málmi, oftast
kringlótt.
Pappírinn er látinn Uggja undir
þessu fargi í nokkum tíma og
drekkur á meðan í sig raka og líf-
ræn efni, ásamt Ut, úr jarðvegin-
um.
Samvistir við náttúruna
Þannig má segja að náttúran leggi
tíl megináherslur þeSsara verka,
Jóhann Eyfells ásamt einni papp-
irssamfellu sinni.
litbrigði, áferð og Ufræna hrynj-
andi, en hins vegar ákvarðar
tíminn, það er sá tími sem örkin
er samvistum við náttúruna, að
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
mestu leyti hve öfiugar áherslurn-
ar á pappímum verða.
Jóhann sjálfur leggur svo til
frumformið, hringinn, með sínum
margháttuðu skírskotunum, jafnt í
ritúöl sem í reiknivísindi - og þar
með einnig þrýstinginn á pappír-
inn.
AUt er þetta hluti af Ustafílósófíu
sem Jóhann hefur tileinkað sér og
kallar „ReceptuaUsm” (Viðstöðu-
stefna?), en þar sem honum er ekki
gefið aö skýra forsendur sínar með
skýrum og skilmerkilegum hætti,
er nærtækast að rekja þessa nátt-
úrulegu og tUviljunarkenndu sköp-
un langleiðina aftur til Duchamps.
Pappír úti á snúru
Duchamp safnaði til dæmis ryki
á „Stóra Glerið” svonefnda, oginn-
Umaöi það í verkið, auk þess sem
hann hengdi pappír út á snúru og
lét hann velkjast þar í öllum veð-
mm í nokkurn tíma.
Hins vegar er grundvaUarmunur
á afstöðu þessara tveggja Usta-
manna til listaverksins. Duchamp
og sannir sporgöngumenn hans
notuðu tUviljunina tU að grafa und-
an viðteknum myndUstarviðhorf-
um á fremur kaldhæðinn hátt, en
Jóhann virkjar tilvUjanirmSO,
beinir þeim í fyrirfram ákveðinn
farveg með því að velja sér málm-
mót af vissri stærð og gerð, sérstak-
ar tegundir pappírs, jarðveg tíl að
„móta” úr, og „pressutíma”, svo
fátt eitt sé nefnt.
í höndum Jóhanns verður sér-
hver samfeUa að myndrænum vett-
vangi fyrir átök tíma og orku. í
þeim sjáum við sköpunina í sinni
upprunalegustu og kannski sönn-
ustu mynd.
-ai