Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 1988.
9
dv Útlönd
Umræður
um
þurrkana
Anna Bjamason, DV, Denver:
Sihanouk segir af sér
Norodom Sihanouk prins tilkynnti
í gær að hann segði af sér sem leið-
togi stærstu skæruliðahreyfingar
Kampútseu og var tilkynningin stað-
fest í morgun. Tilkynningin kom
skömmu eftir að ASEÁN-ríkin, riki
Suöuraustur-Asíu, og fulltrúar vest-
rænna ríkja funduðu um leiðir til að
koma á friði í landinu eftir níu ára
styrjaldarástand.
Sihanouk sagði að vegna alvar-
legra ástæðna, sem ekki væri hægt
að útskýra á þessu stigi málsins,
neyddist hann til að segja af sér.
Hann kvaðst myndu fara í útlegð til
Frakklands.
Á fundi ASEAN var Sihanouk
prins viðurkenndur sem hinn eini
sanni leiðtogi Kampútseu og sá eini
sem gæti stuðlað að friði í landinu.
Sihanouk átti að koma til Indónes-
íu í dag til undirbúnings friðarvið-
ræðum hinna stríðandi aðila í Kamp-
útseu sem halda á þar í landi þann
25. þ.m. Að sögn diplómata getur af-
sögn Sihanouks haft slæm áhrif á
friðarviðræðurnar, en í morgun til-
kynnti utanríkisráðherra Indónesíu
að engar breytingar hefðu orðið á
fyrirhuguðuni áætlunum þrátt fyrir
afsögn Sihanouk prins. Allir fjórir
aðilarnir, sem eigast við í styrjöld-
inni í Kampútseu, hafa þegið boð
Indónesíu og munu koma til við-
ræðna, en það verður í fyrsta sinn
sem allir aðilar hittast.
Sihanouk flúði Kampútseu árið
1978 þegar innrásarlið Víetnama
steypti stjóm rauðu kmeranna.
Hann hefur barist gegn því að rauðu
kmerarnir komist til valda á nýjan
leik. Sihanouk hefur nefnt son sinn,
Norodom Ranariddh prins, sem eftir-
mann sinn í stöðu leiðtoga skæru-
liðahreyfingarinnar.
Reuter
Sihanouk prins, leiðtogi skæruliða-
hreyfingarinnar í Kampútseu, sagði
af sér i gær og kvaðst mundu fara
í útlegð til Frakklands.
Símamynd Reuter
Umræður hefjast í dag á Banda-
ríkjaþingi um neyðarráöstafanir
vegna þurrkanna og hitabylgjunnar
sem nú þegar hafa eyðilagt stóran
hluta kom-, hveiti- og sojabaunaupp-
skerunnar á stórum svæðum í mið-
vesturríkjunum, á sléttunum í Norð-
ur- og Suður-Dakota og Iowa.
Sú staðreynd blasir við að afleið-
ingamar verði verri en dæmi éru til
síðan 1930 og þar sem segja má að á
þurrkasvæðunum sé að hluta til
matvælaforðabúr heimsins mun
þetta alvarlega ástand ekki aðeins
hafa áhrif á afkomu bandarískra
bænda heldur setja mörk sín á efna-
hag iandsins og hafa áhrif á efnahag
annarra landa, meðal annars ís-
lands.
Afleiðinga neyðarástandsins gætir
í tæplega tvö þúsund sveitarfélögum
í 37 ríkjum Bandaríkjanna. Verst
settir eru um 700 þúsund bændur á
sléttunum í Mississippidalnum og
nágrenni hans.
Korn og hveiti er dautt á stórum
svæðum þó það standi enn og upp-
skeran því ónýt. Annars staðar gæti
hressileg rigning enn bjargað hluta
uppskerunnar en slíkrar úrkomu sjá
veðurfræðingar engin merki.
Engin þjóð framleiðir jafnmikið af
hveiti og korni og Bandaríkjamenn
og bregðist uppskera í Bandaríkjun-
um hefur það áhrif á alla heims-
byggðina. Uppskerubresturinn á
sojabaunum verður þó líklega enn
afdrifaríkari. Bein neysla slíkra
bauna er óveruleg en efni unnin úr
þeim eru notuð til ótrúlegustu hluta.
Hver Bandaríkjamaður neytir óaf-
vitandi um 16 til 18 lítra af sojabauna-
olíu á ári í alls kyns iðnaöarvörum,
lyflum- og matvælum. Þriðjungur
sojabaunaframleiðslu þessa árs er
ónýtur ef ekki rignir mikið á næstíi
vikum.
Ríkisstjórar þeirra ríkja, sem Miss-
issippiáin rennur um, telja nú rétt-
lætanlegt að lækka vatnsborð vatn-
anna miklu til að auka rennsli Miss-
issippi. Það telja Kanadamenn ganga
bijálæði næst vegna áhrifa þess á
siglingar um vötnin og það myndi
einnig hafa gífurleg áhrif á raforku-
kostnað víða, til dæmis í New York-
ríki.
TOYOTA
jumvero Kr.
Tilboðsverð kr.
9l4.u(JU.-
814.000.-*
Jumvero
Tilboðsverð kr. 749.000.-*
* Verð án afhendingarkostnaðar
RÝMINGARSALA!
Til að rýma fyrir árgerðum 1989 verða
Corolla GT-i bílarnir seldir á júníverði með
100.000 kr. afslætti.
KAUPBÆTIR!
Þeir sem koma fyrstir fá kaupbæti því þeir geta
valið sér álfelgur að verðmæti 35.000 kr. eða
sóllúgu að verðmæti 45.000 kr.
Tilboð þetta gildir til 15. júlí.
TIL AFGREIÐSLU STRAX!