Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Blaðsíða 35
MÁNUÐAGUR 11. JÚLÍ 1988. 47 Líjsstfll Heimilisbókhaldið í maí: Haekkun um 24,2% frááramótum Tæplega 95% verðbólga á áiinu Meðaltalsmatarkostnaöur á mann reyndist kr. 6.736,20 í maímánuði. Samkvæmt þessu hefur matur hækkað um 24,2% frá áramótum. Þetta jafngildir 94,8% verðbólgu á árinu. Framfærsluvísitala hefur hækkað um 8,6% á sama tíma. Matarkostnaður hefur hækkað stöðugt hjá þátttakendum í Heimilis- bókhaldi DV það sem af er ársins. Nokkrar sveiflur hafa verið á tíma- bilinu, og hefur komið fyrir að með- altalsmatarkostnaður á mann hafi lækkað milh mánaða. Samkvæmt þessum tölum þá hefur vísitölugrunnur framfærsluvísitölu skekkst frá því hann var settur 1984. Hlutur matvæla hefur aukist um 3,3% á tímabilinu janúar til maí að báðum mánuöum meðtöldum. Haldi þessi þróun áfram mun hlutur mat- væla vega mun-þyngra í heildarút- gjöldum eða um 20%. Til að halda matarreikníngunum f lágmarkí þarf bæði tfma og utsjónar- semf. Hægt að úr litlu segir Halldóra Magnúsdóttir húsmóðir „Það er hægt að gera margt og mikiö úr litlu,“ sagði Halldóra Magnúsdóttir húsmóðir, en frá hennar heimili komu lægstu töl- urnar í Heimilisbókhaldi DV að þessu sinni. Hún og maður hennar, Guðmundur Magnússon,. eyddu aöeins 4.011 krónum í mat á mann í maímánuði. „Þetta er afskaplega auðvelt. Viö erum bæði neyslugrönn og lítið til fæðis. Við notum þetta smotterí sem enginn lítur við í dag.“ Halldóra kváðst viðhafa ýtrustu nýtni í heimilishaldinu. Aldrei væri keyptur neinn óþarfl og í sunnudagssteikina vefur hún upp slögog steikir. „Ég kaupi alltaf þaö sera ódýrast er. A raánudögum fæst oft kjöt á tilboðsverði í Hagkaup. Við borð- um einnig mikinn flsk. Hér er aldr- ei keypt srajör eða tjómi, undan- renna er eina mjólkurvaran sem hér er á boröum.“ Halldóra kvaðst ennfremur baka allt sitt brauð sjálf og grænmeti og ávextir væru aldrei keypt, það væri einfaldlega of dýrt En hvað hafa þau hjón venjulega í matinn? „Við boröum yfirleitt hafragraut í hádeginu ásamt einni brauðsneið. Á kvöldin höfum við svo heitan mat, yfirleytt flsk eða kjöt. Við er- um bæði gömul og okkur var inn- rætt nýtni frá blautu barnsbeini." Halldóra sagði að eina leiðin til aö haldamatarreikningunum niðri væri að gefa sér góðan tlma í inn- kaupin. Tími væri hins vegar af skornum skammti hjá flestum. „Ég geri mér fulla grein fýrir því að margt fólk eyöir gifúrlega miklu í mat. Eg sé oft aö fólk er aö versla fyrir helgar, oft örþreytt eftir vinnu. Þá er gjaman einhverju hent í körfuna sem fljótlegt er aö elda. Þetta kostar mikla peninga. Það er ekki alveg raunhæft að bera okkur saman við þetta fólk því viö höfum mikinn tima.“ -PLP Meðaltalsmatarkostnaður á mann 8000 6000- 4000 2000- E2 Hver mánuður + 24,2% Apríl Lægst 4.011 ámann Alls bárust upplýsingar frá 39 manns að þessu sinni. Lægsta talan reyndist vera kr. 4.011 krónur á mann. Hæsta talan var kr. 15 þúsund á mann í mat á mánuði. Bæði heimil- in eru í Reykjavík. Athygli vekur hve bihð er breitt milli þátttakenda að þessu sinni. Hæsta talan er nær fjórfalt hærri en sú lægsta. Aðrir þátttakendur virð- ast einnig skiptast í tvö horn. Annars vegar er fjöldi manns með tæpar fimm þúsund krónur á mann á mán- uði en á hinn bóginn er fólk með tíu þúsund krónur og yfir. Á meðfylgjandi súluriti er sýnd þróun síðustu fimm mánaða. Athygli vekur að miklar sveiflur eru milli mánaða. Ekki veröur komist hjá því að skýra þessar sveiflur. Janúar hefst með því að lagður er söluskattur á öll matvæli. Til að stemma stigu við verðhækkunum sem af þessu leiða var tollalögum breytt. Þá lækkuðu tollar verulega á ýmsum matvælum og vörugjald var tekið af. Áhrif tollabreytinga komu ekki fram strax. Tölur febrúarmánaðar eru mun lægri. Ástæðan er sú aö þama fara tollalækkanir að skila sér út í verö- lag. Mánuöurinn er einnig aðeins styttri. Marsmánuður er 80% hærri en febrúar. Þama kemur inn dýrt páskahald og fermingar hafa sitt að segja. I apríl lækka tölumar aftur enda páskar og fermingar að baki. Maí- mánuður staðfestir niðurstöður aprílmánaðar og sýnir raunar hækk- un. Raunhækkun á matarkostnaði er samkvæmt þessu 24,2% á tímabil- inu. DV vill hvetja lesendur sína til að senda inn tölur fyrir júnímánuö. Þær eru grundvöllur þess að hægt sé að mæla áhrif síðustu gengisfellingar. -PLP EINSTAKT EFNl TIL RAKAVARNAR polp last Byggingaplastið með rauðu röndinni 1 £ I £ I 1 £ I á 1 £ I • Þolir raka, loft og hita margfalt á við önnur sam- bærileg efni. • Þróað í samvinnu við Rannóknastofnun byggingariðnaðarins. • Tíföld ending. Þolplast frá Plastprenti - þar sem rakavarnar er þörf. I £ I , 9 £ Plastprent hf. J Fosshálsi 17-25, sími 685600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.