Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Page 11
MÁNUDAGUR ll. JÚLl^.
11
Utiönd
InnanHokksdeilur
veikja stöðu Shamirs
fyrir kosningarnar
Innanflokksdeilur í Herut, harðlínu-
flokki Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra ísraels, gætu verulega skaðað
gengi flokksins í'þingkosningunum
sem haldnar verða 18. nóvember nk.
Kosningamar etja saman Likud-
bandalaginu, þ.e. Herutflokknum og
Frjálslyndum sem saman mynda
bandalagið, og Verkamannaflokki
Shimon Peres utanríkisráðherra,
sem setið hafa saman í ríkisstjóm í
flögur ár.
Prófkjör í Herutflokknum
Fulltrúaráð Hemtflokksins fund-
aði í síðustu viku og var þá settur
saman framboðshsti fyrir kosning-
amar. í tilraun til að binda endi á
deilur innan flokksins hafði Shamir
ákveðið að annað sætið færi til Mos-
he Arens, ráðherra án ráðuneytis,
og að Ariel Sharon iðnaðarráðherra
fengi þriöja sætið. í kosningimum á
flokksþinginu hlaut Sharon aftur á
móti annað sætiö en Arens það
þriðja. Fréttaskýrendur telja að
Sharon og David Levy, húsnæðis-
málaráðherra, hetðu þrýst Aren í
þriðja sætið eftir að Aren hatði skor-
að á Levy um annað sætið.
Kosning Benyamin Netanyahu,
fyrrum sendiherra ísraels hjá Sam-
einuðu þjóðunum, í fimmta sætið og
Benyamin Begin, sonar Menachem
Begin, í sjöunda sætið getur vegið
nokkuð upp á móti því fylgistapi sem
flokkurinn hefur orðið að þola vegna
deilna eldri flokksfélaga. Verka-
mannaflokkurinn hefur einmitt
gagnrýnt Hemt flokkinn fyrir litla
nýbreytni í valdastigum flokksins. í
júní valdi Verkamannaflokkurinn 16
nýliða á framboðslistann en hann
telur alls 45 manns.
í samtah við ísraelska útvarpsstöð
sagði Shamir að vist væri skoðanaá-
greiningur innan flokksins, eins og
væri í öhum stjómmálaflokkum, en
um klofning væri ekki að ræða. Hann
sagði einnig að skoðanaágreiningur
þessi myndi engin áhrif hafa á hæfni
bandalagsins til stjómunar.
Uppreisn Palestínumanna
kosningamál
Afstaða Hemtflokksins og Verka-
mannaflokksins til friðarviðræðna í
Miðausturlöndum er mjög ólík. Þetta
mál hefur reynst mikiö hitamál í
kosningunum vegna uppreisnar Pal-
estínumanna á herteknu svæðunum.
Verkamannaflokkurinn er hlynnt-
ur viöræðum aðila á alþjóða grund-
velh og einhvers konar samkomulagi
sem felur í sér að ísraelar gefi eftir
hluta herteknu svæðanna. Likud-
bandalagið er mótfalhð friðarvið-
ræðum á vegum Sameinuðu þjóð-
anna því þeir telja aö slíkt myndi
veikja stöðu ísraelsmanna.
Skoöanakannanir í ísrael sýna að
hörð afstaða Hemt flokksins til upp-
reisnar Palestínumanna nýtur tölu-
verðra vinsælda meðal ísraela, en
klofningur innan flokksins gæti
dregið nokkuð úr þessum vinsæld-
um.
Engin kona í framboði
Líkumar á sigri Hemt flokksins, í
þingkosningunum em einnig taldar
hafa minnkaö vegna þess að hvorki
#
..
I:
Áður Nú
Khaki-buxur 1.490 500
Galla-buxur 1.490 500
Joggingpeysur 1.425 600
Joggingbuxur 1.190 400
Peysur 2.490 1.900
Skyrtur 1.790 400
Gailajakkar 2.900 1.400
Dömujakkar 2.790 1.395
Barnabuxur 1.100 600
Áprentaðirbolir 600 300
konur né arabar eiga sæti á hsta
aðalráðsins yfir væntanlega fram-
bjóðendur. Reuter
Heldur hefur kólnað milli Yitzhak Shamirs og Shimon Peres á síðustu
mánuðum, og vafasamt að þeir nái saman á næstunni. Simamynd Reuter
GARÐURINN ÞINN VERÐUR
GÖTUPRÝÐI
EF ÞÚ KLIPPIR LIMGERÐIÐ
MEÐ
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16, s. 691600.
AIWA* AIWA8 AIWA" AIWA AIWAB AIWAa AIWA
HEFUR ÞIÐ EKKI ALLTAF LANGAÐ í
ALVÖRU HLJÓMTÆKI
CP-770 frá
AIWA
* 2x50W magnari
* 5 banda grafískur tónjafnari
* Quartz-stýrt útvarp með digital-
aflestri, FM-, mið- og langbylgja
* 24 stöðva minnisforval
* Spectrum analyser
* Surround system
* Alsjálfvirkur plötuspilari
* Tvöfaltsegulband, þaraf annað
með sjálfvirkri til baka spilun og
upptöku
* Fjarstýring
STORKOSTLEG VERÐLÆKKUN!
VERÐ ÁÐUR KR. 54.550,- STGR.
VERÐ NÚ KR. 49.200,- STGR.
AIWA ER BETRA
B
D i i
[\aaio
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
Sendum í póstkröfu
VIIDARK/OR
VISA
írURð
KREPIT