Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Side 12
12
MÁrNUDAGUR 11. JÚLÍ 1988.
Utlönd
Flúðu
Sjúkrabilstjóri í Aþenu kælir sig í
hitanum sem hefur orðið fimmtán
Grikkjum að bana.
Simamynd Reuter
Gagniýna vopnasölu
Háttsettur ísraelskur embættis-
maöur gagnrýndi í gær nýjan
vopnasölusamning Breta og
Saudi-Araba. Kvað hann samning-
inn ógna öryggi ísraels og grafa
undan friðartilraunum í Mið-Aust-
urlöndum.
Yflrvöld í Saudi-Arabíu sneru sér
til Bretlands til að fá að kaupa vopn
eftir að stuðningsmenn ísraels á
Bandaríkjaþingi komu hvað eftir
annað í veg fyrir vopnasölu Banda-
rikjanna til Saudi-Arabíu.
hHann
Yfirvöld í Makedoníu í Júgóslav-
íu eru byrjuð að skammta vatn
vegna hitanna sem þar rikja en
hitinn hefur verið rúmlega 40 gráð-
ur í nokkra daga. Fimm Júgóslavar
eru sagðir hafa látist af völdum
hitanna.
í Grikklandi hafa að minnsta
kosti fimmtán manns látið lífiö af
völdum hita siðustu daga. Flestir
sem látist hafa voru aldraðir með
veikt hjarta og öndunaröröugleika.
Skortur á loftræstingu á sjúkra-
húsum er verulegt vandamál, sér-
staklega þar sem skurðaðgerðir
fara fram.
Feröamenn láta hitann ekkert á
sig fá og kæla sig í gosbrunnum.
Miiljón Aþenubúar flúðu hitann
um helgina og héldu til stranda eða
fjalla.
Fahd, konungur Saudí-Arabíu,
elns og Lurie teiknar hann.
VIII hjálpa Zambíu
Leiðtogi breska Verkamannaflokksins, Neil Kinnock, ásamt Gleny konu
stnni við rústir húss i Zambiu sem suður-afriskir hermenn eyðilögðu.
Simamynd Reuter
Neil Kinnock, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, hvatti i gær sljóm
Bretiands til þess aö veita Zambíu þá þijátíu milljóna punda aöstoö sem
fryst hefur veriö vegna deilu yfirvalda þar í landi við Alþjóða gjaldeyris-
sjóðinn. Kinnock er á ferðalagi í Afríku og var Zambía fyrstí áfangastað-
ur hans.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og nokkrir vestrænir aðilar hafa fryst um
tvö hundruð milljóna dollara aöstoö við Zambíu síðan stjómin þar hætti
í fyrra viö áætlun um efnahagsumbætur sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
hafði gert. Yfirvöld í Zambíu kváðu áætlunlna geta komið af stað óeirðum
og hafa í staðinn kynnt sina eigin áætlun.
Husseln í Kaívó
Perónistar kjósa
frambjóðanda
Að sögn Antonio Cafiero, flokks-
leiðtoga Perónista, stjórnarand-
stöðuflokksins í Argentínu, verður
Carlos Saul Menem forsetaframbjóö-
andi ilokksins í forsetakosningum
sem haldnar verða í landinu næsta
ár. Menem hlaut 53% atkvæða í
fyrstu forkosningunum flokksins tíl
forseta sem haldnar hafa verið í Arg-
entínu. Mótframbjóðandi hann, An-
tonio Cafiero, hlaut 46% atkvæða.
Kosningaþátttaka var innan við 40%
en búist var við spennandi kosning-
um. Varaforsetaefni Menem er Edu-
ardo Duhale.
Menem hlýtur sinn styrk að mestu
frá verkamönnum og verkalýðsfé-
lögum eða frá grasrótarstuðnings-
mönnum perónista. Hann hefur ver-
ið fylkisstjóri í La Rioja héraði síðan
Raul Alfonsin forseti tók við völdum
1983 og batt enda á átta ára stjórn
hersins.
Fréttaskýrendur telja ólíkegt að
Menem hljóti stuðning sjálfstæðra
kjósenda og telja að með kosningu
hans verði verk perónista í forseta-
kosningunum næsta ár erfiðara en
ella.
Reuter
Carlos Saul Menem vann sigur i fyrstu forkosningum perónista sem haldn-
ar hafa verið. Hann hlaut alls 53% atkvæða. Simamynd Reuter
Orói
um
Manuel Clouthier, forsetafram-
bjóðandi Þjóðlega framfaraflokks-
ins í Mexíkó, hótaði að ílokkurinn
myndi hvetja til borgaralegs mót-
þróa ef úrslit forseta- og þingkosn-
inganna sl. miðvikudag virtust
vera fölsuð.
í kjölfar kosninganna er mikill
órói í stjórnmálum í Mexíkó. Bæöi
stjómarflokkurinn, Mexíkanski
byltingarflokkurinn, og vinstri
stjómarandstaðan hafa lýst yfir
sigri í þessum kosningum. Bylting-
arflokkurinn hefur ekki tapað
kosningum í 60 ár og stjómarand-
staöan hefur ásakað hann um
kosningasvik.
í mexíkönsk-
stjómmálum
Cuauhtemoc Cardenas, fram-
bjóðandi vinstri flokkanna í
landinu, sagði að samkvæmt fyrstu
tölum hefði hann hlotið rúmlega
38% atkvæða, Carlos Salinas de
Gortari, frambjóðandi Byltingar-
flokksins, rúmlega 32% og Clouthi-
er rúmlega 25%. Sjónvarpið í Mex-
íkó, dyggur stuðningsaðili Bylting-
arflokksins, tilkynnti aftur á móti
að de Gortari heföi hlotið 49% en
Cardenas 27%.
Cardenas sagði aö hann myndi
leita til dómstóla yrði Salinas lýst-
ur sigurvegari kosninganna. Og
sem fyrr segir hefur Clouthier hót-
að borgaralegum mótþróa. Hver
sem úrslitin verða er ljóst að
stjórnmál í Mexíkó hafa fengið á
sig nýjan svip, stjórnarandstaðan
hefur aldrei fyrr hlotið slíkan
stuöning og styrk. Líklegt er að
stjórnarandstaðan hafi nú unnið
töluvert fylgi og sæti á þinginu en
auk forseta var kosið um 64 þing-
sæti í öldungadeildinni og 400 af 500
sætum í fulltrúadeild. Erfitt veröur
fyrir Sahnas, ef hann tekur við
stjórnartaumunum af de la Madrid
forseta, að hundsa stjórnarand-
stöðuna eftir þessar kosningar.
Reuter
Forseti Egj-píalands, Hosni Mu-
barak, sagði á laugardaginu að íran
bæri einnig ábyrgð á því að íranska
farþegaþotan var skotin niður yiir
Persaflóa.
Mubarak lét þessi ummæli íáila
eftir þriggja klukltustunda viðræö-
ur viö Hussein Jórdaniukonung
sem heimsótti Mubarak til að ræða
hvemig koma mætti á friði í Mið-
Austurlöndum. Báöir hvöttu þeir
írani til aö ganga að vopnahlésá-
lyktun Öryggisráðs Sameinuöu
þjóðanna.
Varðandi vopnasölusamning
Breta og Saudi-Araba sagöi Hus-
sein aö arabar geröu allt sem í
þeirra valdi stæöi til að verja sig.
Vopn frá Sovétríkjunum
Yfirvöld í Kuwait geröu samning
viö Sovétríkin um sölu á vopnum
til Kuwait aöeins tveimur dögum
eftir að öldungadefld Bandaríkja-
þings greiddi atkvæði með því að
stööva vopnasölu til landsins.
Samningurinn var undirritaöur á
laugardag samtímis því sem for-
sætisráðherra Kuwaits, Saad al-
Abdullah, hélt til Washington til
aö fá að kaupa vopn af Bandaríkja-
mönnura. Forsætisráöherrann
flaug í þotu þeirri sem stuðnings-
menn Iransstjómar rændu í apríl
siðastliönum. Sovébnenn gerðu vopnasölu-
Reuter samníng vlð yfirvöld í Kuwait.
Hussein Jórdaníukonungur heim-
sótti um helgina Mubarak Egypta-
landsforseta til viðræðna um
ástandið i Miö-Austurlöndum.
Símamynd Reutor
Orsaka olíuslyssins á
Norðursjó enn leitað
Orsakir olíuslyssins á Norðursjó, Talið er líklegt að um gasleka hafi
þegar sprenging varð í borpallinum verið að ræða. Paul Adair, sérfræð-
Piper Alpha, eru ekki kunnar enn. ingur í meðferð olíuleka og olíuelda,
Margaret Thatcher, forsætiráðherra Bretlands, ræddi ásamt eiginmanni
sínum við björgunarmenn sem starfað hafa við björgunaraðgerðir við Pi-
per Alpha oliuborpallinn. Símamynd Reuter
hefur unnið að því að komast um
borð í pallinn til að loka þeim bor-
holum sem enn eru opnar og tíl aö
komast að raun um orsakirnar en
slæmt veður hefur hamlað tilraun-
um Adairs og manna hans. Aðeins
hafa sautján lík fundist enn sem
komið er en eitt hundrað sextíu og
sex manns létu lífiö í slysinu sem er
versta olíuslys í Norðursjó í sögunni.
Occidental olíufyrirtækið í Banda-
ríkjunum, sem á Piper Alpha, hefur
hrundið af stað eigin rannsókn á or-
sökum slyssins. Auk þess hefur
breska stjórnin sett í gang rannsókn-
ir á orsökum þessa slyss.
Occidental neitaði í gær ásökunum
fyrrum öryggisvarðar á palhnum
þess efnis að öryggismálum hafi ver-
ið ábótavant á Piper Alpha. Maður-
inn sagði að of mikið álag hefði verið
á stuðningsfótum pallsins. Skosku
blööin hafa og haft fréttir af því að
fyrirtækið hafi verið varaö við gas-
leka á pallinum rétt áöur en slysið
varð. Talsmaður Occidental neitar
því alfarið.
Reuter