Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Side 18
18
MÁNUDAGUR' 11. JÚLÍ 1988.
Nauðungaruppboð
á lausafé
1. Eftir kröfu Jóns Eiríkssonar hdl. fer fram nauðungaruppboð á 100 eining-
um af Hauneböck steypumótum_þriðjudaginn 12. júlí 1988 kl. 17.00 að
Hamraborg 3, norðan við hús.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
TIL SÖLU FASTEIGNIR Á
ÍSAFIRÐIOG í BORGARFIRÐI:
Tilboð óskast í eftirtaldar húseignir:
Pólgötu 2 og Hafnarstræti 16 (lóð), ísafirði. Stærð
hússins er 843 m3. Húsið verður til sýnis í samráði
viðÓla M. Lúðvíksson, skrifstofustjóra sýsluskrifstof-
unnar á Isafirði, sími (94) 3733.
Skólagötu 10, ísafirði. Stærð hússins er 613 m3.
Húsið er til sýnis í samráði við Ólaf H. Kjartansson
skattstjóra, sími (94) 3788.
Hjallaveg 11, ísafirði. Stærð hússins er 936 m3. Hús-
ið verður til sýnis í samráði við Kristinn Jónsson,
Vegagerð ríkisins, Isafirði.
Bæ III, Andakílshreppi, Borgarfirði. Stærð hússins
er 789 m3. Húsið verður til sýnis í samráði við Rúnar
Guðjónsson sýslumann, sími (93) 71205.
Tilboðseyðublöð liggja frammi í húsunum og á skrif-
stofu vorri. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora,
Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 f.h. þriðjudag-
inn 19. júlí nk. en þá verða þau opnuð í viðurvist
viðstaddra bjóðenda.
II\1NKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
VÖRUKYNNING
VIÐ KYNNUM
PLAYMAT - UNIMAT
STYRO-CUT
PRINT & DESIGN
Hobby-tækin margfrægu ásamt
margvíslegum varahlutum
í EMCO vélar og tæki
Playmat, verð kr. 4.500,-
Styro-cut, verð kr. 6.975,-
Unimat 1, verð kr. 6.700,-
Print &design. verð kr. 6.860,-
EMCO-BUÐIN
BORGARTÚNI 27, 2. HÆÐ, SÍMI 21518
BAKHÚS Á MILLI HEGRA HF. OG CASA
Opið btéf til menntamálaráðherra vegna lektorsstöðu hjá HÍ:
„Vér einir
vHum“
„Vi alene vide“ (vér einir vitum)
var orðtæki eins einvaldskóngsins
danska sem allt þóttist vita betur
en aðrir en vitið þótti ekki í sam-
ræmi við sjálfsálitið og hrokann.
Er þér ekki svipað farið, Birgir
ísleifur, þegar þú þykist vita betur
en Háskóli íslands hvað þar skuli
kennt og hverjir séu hæfastir til
þess?
Því að mitt er valdið,
mátturinn og ...
í tíð einvaldskóngsins var ekki
spurt um hæfni manna við stöðu-
veitingar heldur voru embættin
veitt augnþjónum og gæðingum
valdamanna. Lengi hefur eimt eftir
af þessum ósið viö embættisveit-
ingar hér á landi.
Sérstaklega hafa ráðherrar litið á
flokksskírteini í „réttum“ flokki
sem mikið hæfileikamerki. Háskól-
inn hefur þó hin síðari ár, eftir að
dómnefndir voru teknar upp,
nokkuð fengið að vera í friði fyrir
þessari spillingu. Krafan um að
fagleg sjónarmið ráði embættis-
veitingum en ekki flokksskírteini
hefur og átt æ meira fylgi að fagna
í þjóðfélaginu og heftir það ekki
síst birst í kosningaáróðri þíns
flokks, B. ísleifur.
Er skipan Hannesar merki um
stefnubreytingu? Á nú aftur að
hverfa til gamla lagsins, B. ísleifur?
Þá lætur þú hafa eftir þér (DV 1.
júlí) að þú eigir ekki að vera sjálf-
virkur gúmmístimpiU á ákvarðanir
Háskólans. Hvemig er það, kann-
ast þú ekki við ákvæði, sett af fyrir-
rennara þínum, Sverri Hermanns-
syni, um að við skipanir í lektors-
stöður sé ráðherra skylt að hlíta
niðurstöðum dómnefnda um hæfi
umsækjenda. (DIu heilli náði þetta
ákvæði ekki til lektorsstöðunnar í
stjómmálafræði.)
Þú átt sem sagt að vera gúmmí-
stimpill, enda er óeðlilegt að ráð-
herra hafi meiri afskipti af stöðu-
veitingum við Háskólann en for-
seti, þ.e. aðeins formleg. Hvaða
náðargáfa ætti svo sem að gera þig
svo ríkan af visku að þú vitir betur
en Háskólinn hvað honum er fyrir
bestu?
Átyllur ráðherra
Hvemig réttlætir þú svo þínar
gjörðir? Þú gengur fram hjá tveim
mönnum, sem dómnefnd Háskól-
ans dæmir hæfa, þeim Ólafi Þ.
Harðarsyni (sem hafði nær ein-
róma stuðning bæði deildarfundar
félagsvísindadeildar og nemenda í
stjómmálafræði) og Gunnari Helga
KjaUarinn
Birgir Þórisson
Stundar framhaldsnám
í stjórnmálafræði
í Bandaríkjunum
Kristinssyni en veitir stöðuna
manni sem dómnefnd í ítarlegri og
vel rökstuddri umsögn telur van-
hæfan (hæfur að hluta þýðir á
mæltu máli vanhæfur).
Afsakanir þínar em þijár: a. aö
dómnefnd hafi verið óheiðarleg og
annarleg sjónarmið hafi ráðið áliti
hennar. b. að Hannes hafi mesta
menntun (og næga) og c. Hannes
hafi skoðanir sem æskilegt sé að
haldið sé á lofti í félagsvísindadeild
(sbr. greinargerð þína og ummæli
í Morgunblaðinu föstudaginn 1.
júlí).
Heimskuleg ásökun
Ásökunin um vanhæfni dóm-
nefndar er út í hött en þar sem þú
hundsar álit dómnefndarinnar
verður þú að gera hana tortryggi-
lega. Þú berð þaö á nefndina aö hún
sé vanhæf: a. þar sem nefndar-
menn hafi aðrar stjómmálaskoö-
anir en Hannes, b. vegna kunnings-
skapar dómnefndarmanna við einn
umsækjanda öðrum fremur, c.
vegna vanþekkingar á stjómmála-
fræði.
Tveir lagaprófessorar, Jónatan
Þórmvmdsson og Sigurður Líndal,
era afgreiddir með vanþekkingu á
stjómmálafræði. Ekki veit ég um
Jónatan en Þórólfur Þórlindsson
prófessor, deildarforseti félagsvís-
indadeildar, hefur opinberlega
staðfest þekkingu Siguröar Líndal
sem er mjögfjölhæfur fræöimaður.
Hvað aöra ásökunina, aörar
stjórnmálaskoöanir, varðar þá er
hún bæöi heimskuleg og út í hött.
Heimskuleg þar sem ómögulegt er
að skipa dómnefnd eingöngu pólit-
ískum samherjum umsækjenda.
Út i hött þar sem a.m.k. einn dóm-
nefndarmanna, Sigurðar Líndal,
er, eins og alþjóð veit, flokksbróðir
Hannesar Hólmsteins.
Ekki er mér kunnugt um hvað
Jónatan eða Gunnar gera í kiör-
klefanum því aö ekki hafa þeir flík-
að því. Þá stendur eftir Svanur
Kristjánsson, sem er nafnkunnur
félagshyggjumaður, og mun þess-
ari ásökun til hans stefnt. Er það
ipjög ómaklegt því aö Svanur er
strangheiðarlegur fræðimaður sem
forðast það eins og heitan eldinn
að láta sínar persónulegu stjóm-
málaskoðanir hafa áhrif á fræðilegt
mat sitt. Frekar mun hann hafa
látið Hannes njóta þess en gjalda
að þeir em andstæðingar í stjóm-
málum.
Þá stendur eftir kumúngsskapur-
inn og mun átt við kminingsskap
Svans og Gunnars við Ólaf Þ. Harð-
arson (og reyndar Gunnar Helga
Kristinsson líka) en allir hafa þess-
ir menn kennt við félagsvísinda-
deild. Þessi ásökun fær ekki staö-
ist. Bæöi er aö dómnefndarálitið er
vel rökstutt og eins sanna dæmin
það (kennarastaða í aðferðafræði)
aö þaö að hafa kennt við deildina
hefur ekki áhrif á niðurstöðu dóm-
nefndar. Þú skuldar því dómnefnd-
armönnum afsökunarbeiðni. Það
er afar ósmekklegt að reyna að
fegra eigin gjörðir með óhróðri um
jafnmæta menn. Manni býður í
gmn að hér eigi við: „Margur held-
ur mig sig“. Að klíkuskapur þinn
og þinna manna við að troða Hann-
esi aö sé undirrótin að áburðinum
á háskólamenn.
Birgir Þórisson
„Bæöi er aö dómnefndarálitiö er vel
rökstutt og eins sanna dæmin það
(kennarastaða í aðferðafræði) að það
að hafa kennt við deildina hefur ekki
áhrif á niðurstöðu dómnefndar.“
Mörgum reynist erfitt að
hafa hemil á búreikningun-
um. Dæmi um hið gagn-
stæða eru þátttakendur í
heimilisbókhaldi DV. Á því
fólki sannast að með góðri
skipulagningu og yfirsýn
yfir eyðslu má spara svo um
munar.
( Lífsstíl á morgun verður
fjallað um hvernig hægt er
að skipuleggja innkaupin
þannig að þau fari ekki úr
böndunum.
Hestamennska er mjög vinsæl tómstundaiðja
þessa dagana. Þúsundir íslendinga eiga hesta
og ríða útreglulega. Eins og vera bera metast
hestamenn um það hver eigi besta gæðinginn.
Máli sínu til stuðnings er gjarnan farið út í sögu-
legar skýringar og ættir raktar til frægra stóð-
hesta. Það skiptir ekki minna máli af hvaða stofni
eða kyni hrossið er. Menn halda ótvírætt fram
ágæti eftirlætisstofns síns, rétt eins og þegar bíl-
eigendur rífast um mismunandi bílategundir.
Stundum verður svo heitt í kolunum hjá hesta-
mönnunum að rifrildið endar með handalögmál-
um.
Sjá nánar um ættfræði hesta í Lífsstíl á morgun.