Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Side 20
20
Fréttir
MÁNUDAGUR 11. JÚLl 1988.
DV
Kirkjubæjaridaustur:
Byggja upp ferða-
mannaþjónustu
„Það hefur verið gert töluvert átak
til að byggja upp ferðamannaþjón-
ustu hér á Kirkjubæjarklaustri síð-
astliðin ár. Ráðist var í að byggja
þijú hús á sjö árum og hefur gisti-
rými aukist um 36 hótelherbergi,"
sagði Margrét ísleifsdóttir, hótel-
stýra á Hótel Eddu á Kirkjubæjar-
klaustri.
Kirkjubæjarklaustur hefur löng-
um verið vinsæll ferðamannastaður,
enda stutt á marga fallega staði.
Fjöldinn allur af ferðamönnum
heimsækir þorpið á sumrin, að sögn
Margrétar, og er oft erfiðleikum
bundið að fá gistipláss í júlí og ágúst.
Alls standa ferðamönnum til boða 64
hótelherbergi í þorpinu. Auk þess er
tjaidstæði í nágrenninu.
Heimamenn tóku sig saman á fyrri
hluta áttunda áratugarins og stofn-
uðu hlutafélag sem ætlað var að
vinna aö bættri aðstöðu fyrir ferða-
menn. Félagið, sem hlaut nafnið Hót-
el Bær, keypti gamla hótehð í þorp-
inu arið 1974. Sex árum síðar var
ráðist í að reisa hús sem rúma myndi
10 hótelherbergi. Tveimur árum
seinna var annað hús reist og árið
1987 var þriðja og síðasta húsið reist.
Það ár gengu Þróunarfélag íslands
og Ferðaskrifstofa ríkisins til liös við
heimamenn. Gisti- og veitingaaðstað-
an á Kirkjubæjarklaustri er rekin af
Hótel Eddu.
Að sögn Margrétar standa vonir til
að hægt verði að auka við veitingaað-
stöðuna, en á sumrin er eingöngu
boðið upp á veitingar í húsnæði skól-
ans. „Ferðamannaþjónustan er eina
hráefnið sem við höfum úr að vinna
og margir íbúar þorpsins og byggðar-
innar í kring sýna því mikinn áhuga.
Bændur hafa tekið myndarlega á
þessum málum og bjóða margir gist- -
ingu á landi sínu. Einnig hafa ein-
staka bændur byggt sumarhús á
landi sínu og bjóða ferðamönnum
upp á hjólhýsagistingu,“ sagði
Margrét.
Erfiður rekstur yfir veturinn
„Hér er mikiö um aö vera á sumr-
in, en yfir veturinn vantar atvinnu-
tækifæri. Mikill samdráttur í land-
búnaöi hefur komið niður á þorpinu
og tækifæri fyrir ungt fólk eru ekki
mörg yfir vetrarmánuðina. Starfs-
menn hótelsins eru flestir heima-
menn og erum viö ekki í vandræðum
með að fylla þær stööur," sagði
Margrét.
Margir hafa atvinnu á vegum
kaupfélagsins, en að auki er rekið
bifreiðaverkstæði, trésmíðaverk-
stæði, upplýsingamiðstöð og heilsu-
gæslustöð á Kirkjubæjarklaustri.
Það er nokkuð gott fyrir þorp með á
milli 150 og 200 íbúa.
Hótelið, þ.e. veitingáaðstaðan og
nýbyggingamar, er rekið allt árið,
en að sögn Margrétar er reksturinn
þungur yfir vetrarmánuðina. „Við
búum á einu dýrasta upphitunar-
svæði á íslandi og það gerir okkur
erfitt fyrir yfir veturinn. Á síðasta
ári fleyttu sumarmánuðirnir okkur
ekki yfir veturinn. Okkur vantar
aðstöðu fyrir ráöstefnur og funda-
höld í þorpinu en slíkt myndi koma
sér mjög vel,“ sagði Margrét ísleifs-
dóttir.
StB
Útflutningur lambakjöts:
Yfir 600 tonn
árlega frá
Austfjórðum
til Færeyja
Yfir 600 tonn af lambakjöti eru seld
árlega til Færeyja. Á síðasta ári voru
flutt út 631,4 tonn af lambakjöti að
verðmæti 63,4 milljónir króna sem
þýðir að kílóið af lambakjöti er selt
á um 100 kr. á fob verði.
Megnið af því lambakjöti, sem flutt
er til Færeyja, kemur frá Egilsstöð-
um og nærliggjandi sveitum. Meðal
annars hefur sláturhúsið, sem hætt
er aö slátra í, á Borgarfiröi eystra
geymt töluvert magn af kjöti sem
sent hefur verið til Færeyja. En sem
kunnugt er var allt fé á Borgarfirði
eystra skorið niður vegna riðuveiki,
ekki sést lifandi fé innan marka
Borgarfjarðar.
Að sögn Bjöms Ágústssonar, full-
trúa kaupfélagssijóra Kaupfélags
Héraðsbúa, er mun meiri hagræðing
í því að flylja kjötiö til Færeyja frá
Austíjörðum vegna minni flutnings-
kostnaðar.
Kjötiö, sem geymt er í Borgarfirði,
kemur frá Kaupfélagi Héraðsbúa á
Egilstöðum á hveiju hausti. En það
er geymt þar vegna plássleysis á
Egilstöðum. Síðar er það flutt frá
Borgarfirði til Reyöarfjarðar eða til
Seyðisfjarðar. Þaöan er það flutt til
Færeyja með skipum Sambandsins.
-GKr
Elna lambakjötlð sem Borgfiröingar komast I snertlngu við er I grlsjum.
Hér sést þegar verið er að stalla lambakjöti sem á að fara til Færeyja.
DV-mynd GVA
Ökuleikni var haldin á Seyðis-
firði 1 ágætis veöri og var þjól-
reiðakeppnin sú fiölmennasta á
landinu. Miög góö þátttaka var
■einnig í ökuleikninni og urðu
úrslit þau í kvennariðli að í fýrsta
sæti lenti Lilja Finnbogadóttir og
á hæla hennar í ööru sæti lenti
Ásdís Pálsdóttir. í þriðja sæti
lenti svo Sveinhildur Isleifsdóttir.
Besta tímann í brautinni haföi
Ásdís og hlaut hún Timex úr ft-á
Nesco í Kringlunni. í kariariöli
urðu úrslit þau að í fyrsta sæti
lenti Jón Sveinlaugsson með 178
refsistig. í ööra sæti lenti Rögn-
valdur H.Jónsson með 197 refsi-
stig og í þriðja sæti lenti Hlynur
Oddsson raeð 208 refsistig. Besta
timann í brautinni hafði Rögn-
valdur, eða 97 sek„ og hlaut hann
Timex úr frá Nesco í Kringlunni.
í hjólreiðakepninni lenti í fyrsta
sæti eldri riðils Vilhelm Adolfs-
son og hjólaði hann villulaust í
gegnum brautina. Þór Vilmund-
arson lenti í öðra sæti og hafði
hann besta timann í brautinni.
Þór hlaut Timex úr frá Nesco í
Kringlunnl fyrir þann árangur. í
þriðja sæti lenti Finnbogi Einar
Steinsson. í yngri riðli urðu úr-
slit þau að i fyrsta sæti lenti
Heimir Óskarsson. í öðru sæti
lenti Pétur Þór Valdimarsson og
í þriðja sæti rétt á eftir Hrönn
Sigurðardóttir. Verðlaunin í öku-
leiknina gáfu Karrinn og Shell
búðin á Seyðisfirði. -AG
Keppandí nr. 15 tók brautina með
glæsibrag.
■ •• |
in í sumar
Á Sauðárkróki var haldin fjöl-
mennasta ökuleikni- og reiöhjóla-
keppni í sumar. í reiðhjólakeppn-
inni urðu úrslit í yngri riðli þau
aö í fyrsta sæti lenti Órvar Pálmi
Pálmason með 77 refsistig. í öðru
sæti varð Hólmar Sigmundsson
með 79 refeistigog í þriöja Fannar
Valur Haraldsson meö 80 refsi*
stig. Hefur sjaldan veriö jafnari
keppni. í eldri riðli lenti í fýrsta
sæti Þorsteinn Jónsson með 65
refsistig, í öðru Daníel Kristjáns-
son raeð 67 refsístig og því þriðja
Valdimar Birgisson með 70 refsi-
stig.
í ökuleikninnl skipuðu menn
sér þétt í efstu sætin. í fyrsta
sæti lenti Rúnar Gíslasonmeö 141
refsistig, í öðru Steindór Árnason
meö 145 refsistig og í þriðja Þórð-
ur Þórðarson með 184 refsistig. í
kvennariðli varö Jóna Björk Sig-
urðardóttir efst með 164 refsistig,
í öðru Katrin Andrésdóttir með
216 refsistig og rétt á eftir henni
kom Þórey Eyjólfsdóttir raeð 218
refsistig. Verðlaunin í ökuleikn-
inni gáfu Bókabúð Brynjars og
Toyota umboöið á Sauðárkróki.
-AG