Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Side 36
48
MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Samantha
Fox
á nokkur góö ráð til sextán ára
stúlkna sem hafa reynt fyrir sér
á söngbrautinni meö litlum ár-
angri. Hún ráðleggur þeim aö
gerast fyrirsætur. Sjálf var hún
búin að syngja inn á tvær litlar
plötm* á þessum áldri en þær
urðu aldrei vinsælar. Samantha
gafst þó ekki upp heldur varð vin-
sælasta „blaðsíðu 3“ fyrirsætan í
Sun í Bretlandi. Hún sneri sér svo
aftur að söng og nú með miklu
betri árangri og var lagið hennar
„Naughty Girls“ nýlega ofarlega
í Bandaríkjunum.'
Imelda
Marcos
og skósafnið hennar hafa nú ver-
ið gerð ódauðleg, því búið er að
kvikmynda líf Imeldu og starf.
Hér er á ferðinni ein enn míníser-
ían og heitir hún „A Dangerous
Life“ og fjallar um fall Marcosar
og uppgang Cory Aquino. Munu
þættirnir verða sýndir í Banda-
ríkjunum næsta haust. Ekki gekk
Kvikmyndatakan áfallalaust.
Hætta varð við tökur í Manila,
en þættimir þess í staö teknir upp
á Sri Lanka, í óeirðunum þar.
Jodie
Foster
hefur meira en nóg að gera á ár-
inu. Jodie, sem nú er 25 ára, leik-
ur konu, sem var nauðgað, í
myndinni „The Accused" . Sú
mynd er væntanleg á markaðinn
í september. Hún er nú að leika
í „Backtrack“ á móti Dennis Hop-
per og mun sú mynd fjalla um
mafíuna. Jodie segist ekki leika í
gamanmyndum.
Snjóbillinn á jöklinum í upphafi ferðar. DV-myndir ÁEA
Miðnæturferð með snjóbíl á Snæfellsjökul:
Fegurðin rann saman í ein-
stæðu litaspili náttúrunnar
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafevík;
Hótel Nes og Ólafsvíkurkaupstaður
eru með áætlunarferðir á Snæfells-
jökul og um síðustu helgi gafst frétta-
ritara DV tækifæri til aö fara með.
Lagt var af stað frá hótelinu um mið-
nætti með lítilli rútu og ekið rakleiö-
is upp á Jökulháls og tók sú ferð
aðeins hálftíma. Ekið var eftir slóð
sem rudd var í þessum tilgangi og
alla tímaim var undirritaður með
fiðring í maganum því þetta var jóm-
frúferðin.
Þegar upp var komið blasti Snæ-
fellsjökull við í allri sinni fegurð og
við rætur hans renndi vélsleðafólk
sér í kringum snjóbfi, sem þangað
var fluttur til að aka ferðafóUd á jök-
uUnn. Ekki höfðu vélsleðamenn
mikla trú á að þetta verkfæri ætti
eftir að komast upp á topp og hristu
höfuðið þegar snjóbíUinn spólaði í
fyrstu brekku og bentu upp jökulinn
á tvo jeppa sem komnir voru lan-
gleiðina upp. En þaö var ekkert veriö
að gefast upp þó færið væri ekki sem
best, heldur reynt á öðrum stað og
upp brekkuna fór spjóbíllinn.
Eftirleikurinn auðveldur
Þegar þessi brekka var að baki var
eftirleikurinn auðveldur og nú
renndum við hiklaust í áttina að
toppnum. Á leiðinni fórum við fram
úr jeppunum tveimur og varö þá ein-
hveijum að orði gamla máltækið
„kemst þó hægt fari“. Þetta var strax
gripið á lofti og snjóbílnum gefið
nafnið „Hægfari". En þrátt fyrir
nafnið tók feröin frá jökulrótum og
upp á topp aðeins rúman hálftíma
og klukkan því rétt orðin hálftvö.
Stórkostlegt útsýni
Útsýnið, sem blasti við þegar upp
var komið, er ólýsanlegt. Við okkur
blasti í suðri Faxaflóinn og Reykja-
nesskaginn - í austri Snæfellsnesiö
sjálft og langt inn á hálendiö. I norðri
Breiðafjörðurinn og Vestfjarðakjálk-
inn og í vestri opið haf og rann þar
saman í eitt himinn og haf í einstæðu
htaspili náttúrunnar.
Var nú setið og beðið sólarupprás-
arinnar og sú sjón var engu lík að
sjá hvemig morgunsólin sveipaði
jökulinn gullnum ljóma og því engin
furða þó einhver spyrði í hálfum
hljóðum hvers vegna heimurinn gæti
verið svona fagur.
Það var erfitt að slíta sig frá slíku
útsýni og erfið ákvörðun að fara nið-
ur aftur. En það var komið langt
fram á nótt og því ekki til setunnar
boðiö. „Hægfari" snerist upp í and-
stæðu við nafnið og aðeins fimmtán
mínútum síðar vorum við komin nið-
ur.
Enskum samferðamanni varð að
orði aö þetta væri í fimmta skipti,
sem hann kæmi til íslands, en þetta
væri langbesta ferðin sem hann hefði
farið í og ætla ég ekkert að rengja
hann. Eitt er víst - ég ætla aftur.
Fyrstu sólargeislarnir um miðja nótt voru engu likir.
Hundalíf er betra líf
Samkvæmt þvi sem sálfræðingur
nokkur segir væru mennirnir betur
komnir ef þeir tækju hunda sér til
fyrirmyndar.
Hver segir að hundar lifi einhveiju
hundalífi? Eftir því sem bandarískur
sálfræðingur segir ættu menn að
taka sér hunda til fyrirmyndar og
fara að hegða sér eins og þeir því.
þannig muni menn komast hjá
streitu.
Sálfræðingur þessi segir að hundar
geti kennt okkur hvernig losna skuli
við hugsanir og aðstæður sem valda
okkur streitu. Um leið og við losnum
við þær munum við geta notið sömu
hamingju og sömu róar og hundar
njóta.
Hér koma svo nokkrir punktar sem
hafa ber í huga:
1. Vertu tryggur. Trygglyndi styrkir
vináttu og sambönd.
2. Hvilstu þegar þú ert þreyttur.
Hundar hlaupa um og hamast
þangað til þeir verða lúnir. Þá
leggjast þeir niöur og hvíla sig.
Þetta er vegna þess að hundar
ganga ekki fram af sér og það ætt-
ir þú ekki að gera heldur. Þegar
þér finnst að þú þurfir á hléi að
halda skaltu taka þér það. Þú end-
urnýjar orkuna og kemur meiru í
verk.
3. Vertu innan um annað fólk. Hund-
ar eru félagsverur og það eru
mennirnir líka. Það er mjög mikil-
vægt að blanda geði við annað fólk
ef maður vill viðhalda heilbrigðu
viðhorfi. Við höfum þá líka ein-
hvern til að deila með gleði og sorg
og það léttir á spennu.
4. Taktu tíma fyrir sjálfan þig. Hund-
ar leita stundum einveru til að
endumýja orkuna, en þeir leita
jafnan aftur félagsskapar. Við get-
um líka grætt á því að vera ein,
slaka á og losna við álag dagsins.
5. Gráttu. Hundar væla þegar þeim
líður ekki vel en því miður hefur
mörgu fólki verið kennt að gráta
ekki. Grátur er náttúruleg leið til
að losna við sársauka.
6. Vertu ekki langrækinn. Þegar
hundum er refsað, jafnvel þótt þeir
hafi ekki átt það skilið, þá koma
þeir aftur til húsbænda sinna um
leið og fer að róast. Með því aö
læra að láta ekki móðganir og aðr-
ar neikvæðar árásir hafa áhrif á
okkur getum við komið í veg fyrir
að reiði og óánægja vaxi í huga
okkar.
Og þá er bara að hafa auga með
hundunum til að læra að losna við
streitu og spennu sem hijáir svo
marga í nútímaþjóðfélögum.