Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Blaðsíða 40
52
MANUDAGUR.i1. JÚLÍ 1988.
Afmæli
■ j*í
á
Málfríður Sigfiisdóttir
Málfriður Sigfúsdóttir.
Málfríður Sigfúsdóttir, Klepps-
vegi 6, Reykjavík, er níræð í dag.
Málfríður fæddist að Hólmalátr-
um á Skógarströnd og ólst þar upp
í foreldrahúsum. Föður sinn missti
Málfríður 1914 og dvaldi hún hjá
móður sinni á Hólmalátrum til
1932. en þá flutti Málfríður til
Reykjavíkur. Þar var hún þénandi
og stundaði síðan saumaskap í
fjölda ára.
Maður Málfríðar var Zophanías
Bjarnason, sjómaður í Reykjavík,
en hann er látinn fyrir allmörgum'
árum.
Málfríður átti fjórar systur en
þrjár þeirra eru látnar. Systur
hennar: Anna, húsfreyja, síðast á
Hólmalátrum, f. 11.3.1896, giftDaða
Kristjánssyni b. þar, en þau eru
bæði látin. Meðal barna þeirra má
nefna Sigfús skáld og rithöfund;
Þórdís, húsmóðir á Akureyri og
síðar í Reykjavík, f. 3.4. 1897, gift
Lúðvík Möller kaupmanni, en þau
eru bæði látin; Sólveig, er starfaði
við húshjálp og saumaskap, f. 30.4.
1900, lést á þessu ári; Unnur, lengi
húsfreyja í Timgu í Hörðudal og
síðar í Reykjavík, f. 2.12. 1901, en
maður hennar, Styrkár Guðjóns-
son, lést í fyrra.
Foreldrar Málfríðar voru Sigfús
Jónasson, b. að Hólmalátrum, og
kona hans, Arndís Finnsdóttir frá
Háafelli í Dölum.
Foreldrar Sigfúsar voru Jónas
Guðmundsson, b. á Bíldhóli, og
önnur kona hans, Sólveig Jónas-
dóttir.
Jónas var sonur Guðmundar á
Bíldhóli, Vigfússonar þar, Einars-
sonar á Vörðufelli, Sæmundssonar,
b. á Kjarlaksstöðum, Þórðarsonar,
prófasts á Staðastað, Jónssonar
biskups á Hólum Vigfússonar.
Arndís var systir Sveins, fóður
Ásmundar myndhöggvara. For-
eldrar Amdísar voru Finnur Bene-
diktsson, b. og hreppstjóri á Háa-
felli í Dölum, og Þórdís Andrés-
dóttir, b. á Þórólfsstöðum, Andrés-
sonar. Móðir Finns var Guðrún
Guðmundsdóttir, systir Þórdísar,
langömmu Ragnheiðar, móður
Snorra Hjartarsonar skálds og
Törfa, fv. tollstjóra og sáttasemj-
ara. Þórdís var einnig langamma
Áslaugar, ömmu Hjálmars Ragn-
arssonar tónskálds.
Andrés á Þórólfsstöðum var
bróðir Jóns, langafa Sigríðar,
ömmu Friðriks Ólafssonar stór-
meistara.
Málfríður verður ekki heima á
afmælisdaginn.
Steinn Stefánsson
Steinn Stefánssoh, fv. skólastjóri á
Seyðisfirði, er áttræður í dag.
Steinn fæddist að. Reynivöllum í
Suðursveit en óx upp á Kálfafelli.
Hann gekk átján ára á unglinga-
skóla hjá Sigurði Thorlacius á
Djúpavogi og síðan á kennaraskóla
en lauk kennaraprófi 1931. Frekara
nánj síðar á ævinni: Söngkennar-
anámskeið á Laugarvatni 1932.
Sundkennaranámskeið í Reykjavík
1934. Skólaheimsóknir í Sovétríkj-
unum og Kaupmannahöfn 1953.
Skólaheimsókn á vegum danska
kennarasambandsins 1956. Fram-
haldsnám í orlofi 1957-1958: Hljóm-
fræði hjá Róbert A. Ottóssyni, org-
anleikur og flautuleikur í Reykja-
vík; enska og skólamál í Englandi;
söngkennsla og tónmyndun í
Kaupmannahöfn.
Steinn hóf kennslu ungur að
árum. Farkennari var hann í Suð-
ursveit 1927-1929. Kennari við
Bamaskóla Seyðísfjarðar 1931-
1945. Stundakennari á Seyðisfirði
1933-1936. Kennari viö unghnga-
skóla á Seyöisfirði 1933-1946.
Skólastjóri Barna- og gagnfræða-
skóla Seyðisfjarðarkaupstaðar
1946-1975. Skólastjóri Iðnskóla
Seyðisfjarðar 1965-1975.
Afskipti Steins af félagsmálum
eru m.a. eftirfarandi: BæjarfuUtrúi
á Seyðisfiröi 1942-1954 og 1962-1966,
sat í bæjarráði síðara tímabilið.
Varafulltrúi í bæjarstjóm 1938-
1942 og 1958-1962. Landskjörinn
varaþingmaður Sósíahstaflokksins
1953-1956. í stjórn SósíaUstafélags
Seyðisfjarðar frá stofnun þess,
lengst af formaður. Formaður
barnavemdamefndar Seyðisfjarð-
arkaupstaðar 1938-1946. Stofnandi
Kennarasambands Austurlands
1944 og formaður þess við og við.
Söngstjóri ýmissa söngsamtaka frá
1939. Stjómandi Samkórsins
Bjarma á Seyðisfirði frá stofnun
hans 1946. Kirkjuorganleikari
Seyðisfj arðarkirkj u og stjórnandi
kirkjukórs 1955-1975.1 stjóm toga-
raútgerðarfélagsins Bjólfs hf.
1953-1957. í stjóm íþróttafélagsins
Hugins á Seyðisfirði um árabil. Var
veittur riddarakross Fálkaorðunn-
ar 17. júní 1988.
Rit: 12 sönglög, gefin út af söfnuði
Seyðisfjarðarkirkju 1976, Fjöl-
skyldusöngvar, Reykjavík 1987.
Skólasaga Seyðisfjaröar, en hún
verður gefrn út nú á næstunni að
tilhlutan Seyðisfjarðarkaupstaðar.
MiMll fjöldi ritgerða og greina í
blöðum og timaritum um áratugi.
Kona Steins var Arnþrúður Ing-
ólfsdóttir, fyrrum bónda á Vakurs-
stöðum í Vopnafiröi síðar verka-
manns á Seyðisfirði og formanns
Verkamannafélagsins Fram,
Hrólfssonar, og konu hans Guð-
rúnar Eiríksdóttur. Arnþrúður
fæddist 14. ágúst 1916 og andaðist
25. júní 1964. Hún var systir Hrólfs,
bæjarstjóra á Seyðisfirði og síðar
sveitarstjóra í MosfeUssveit; Brynj-
ólfs, ráðúneytisstjóra samgöngu-
málaráðuneytis; og Kristjáns,
fræðslustjóra Austurlands. Guð-
rún móðir Amþrúðar var systir
Brynjólfs Eiríkssonar símaverk-
stjóra.
Börn Steins og Amþrúðar em:
Heimir, sóknarprestur og þjóð-
garösvörður á Þingvöllum, kvænt-
ur Dóm ÞórhaUsdóttur; Iðunn, rit-
höfundur í Reykjavík, gift Bimi
Friðfinnssyni, aðstoðarráðherra;
Steinn Stefánsson.
Kristín, fjölbrautaskólakennari og
rithöfundur á Akranesi, gift Jóni
Hálfdánarsyni eðUsfræðingi; Ing-
ólfur, fjölbrautaskólakennari á Sel-
fossi; og Stefán, héraðslæknir á
Þingeyri.
Foreldrar Steins voru Stefán,
hreppstjóri, trésmiður og bóndi að
KálfafelU í Suðursveit, Jónsson, og
kona hans Kristín Eyjólfsdóttir.
Móðir Stefáns var Steinunn, dótt-
ir Auðbjargar Sigurðardóttur á
Brunnum, langömmu meistara
Þórbergs, Auðbjörg var einnig
móðuramma Benedikts, fóður séra
Gunnars rithöfundar. Þá var Auð-
björg fóðuramma Guðnýjar, móð-
urömmu Einars Braga, rithöfund-
ar og skálds.
Kristín var dóttir Eyjólfs b. og
hreppstjóra á Reynivöllum, Run-
ólfssonar b. og hreppstjóra á Mar-
íubakka, Sverrissonar b. í Seglbúð-
um, Eiríkssonar b. á Geiralandi,
Bjamasonar b. þar, Eiríkssonar.
Steinn Stefánsson er nú búsettur
að Laugarnesvegi 37 í Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á af-
mæUsdaginn í SafnaðarheimiU
Laugameskirkju milU kl. 16 og 19.
Þorleifiir Guðnason
Þorleifur Guðnason, Rómarstíg
1, Suðureyri, er sjötugur í dag.
Þorleifur fæddist á Kvíanesi við
Súgandafjörð, sonur hjónanna Al-
bertínu Jóhannesdóttur og Guðna
Jóns Þoleifssonar.
Þórður Einarsson verslunar-
maður, Hlíf, ísafirði, er áttræður í
dag.
Hann fæddist á ísafirði, ólst þar
upp og hefur búið þar aUa tíð.
Þórður hóf störf hjá Kaupfélagi
ísfirðinga tvítugur að aldri og hefur
unnið þar ósUtið fram á þennan
dag. Þar á hann því sextíu ára
starfsafmæU í október, enda er
hann sá núlifandi maður sem
lengst hefur starfað hjá Samvinnu-
hreyfingunni.
Þórður er tvígiftur. Fyrri kona
hans var Ragnheiður Jóhannsdótt-
ir, en þau áttu einn son, Hermann,
nú flugumferðarstjóra í Keflavík.
Hermann er giftur Auði Árnadótt-
ur og eiga þau fjögur böm.
Seinni kona Þórðar var Guðbjörg
Þorleifur er þriðji elstur ellefu
systkina. Hann hóf búskap á Norð-
úreyri við Súgandafjörð 1955 og bjó
þar til ársins 1970 en þá flutti hann
til Suðureyrar. Þar starfaði hann
fyrst við afgreiðslu Ríkisskips en
Magnúsdóttir úr Bolungarvík, en
hún lést í desember 1973. Með Guð-
björgu átti hann dóttur, Svanhildi,
sem gift er Magna Ö. Guðmunds-
syni, netagerðarmeistara á ísafirði,
en þau eiga þijár dætur.
Þórður gekk í fóðurstaö dóttur
Guðbjargar, Sólveigu Huldu Jóns-
dóttur. Sólveig býr í Keflavík, gift
Páh Jónssyni, en þau eiga fjögur
böm.
Þórður átti ellefu systkini, en á
nú eina systur á lífi. Sú er Vil-
helmina, húsmóðir í Reykjavík, gift
Sveini Marteinssyni.
Foreldrar Þórðar vom Einar
Guðmundsson, skósmiður á
ísafiröi, og kona hans Svanhildur
Jónsdóttir.
fór síðan að vinna við fiskvinnslu
sem hann stundar enn.
Sambýliskona hans er Maríanna
Jensen.
Árin sem stúdentar og verkamenn
sameinuðust í harðvítugri
baráttu gegn ofríki ríkisstjórna
hins vestræna heims.
Allt um þaö og lygilegustu
uppákomur þessarar aldar . . .
Upplögð afmælisgjöf.
Þórður Einarsson
Til hamingju með daginn
85 ára 60 ára
Ásmundur Bjarnason, Suðurgötu 25, Akranesi. Vilborg Á. Sigurðardóttir, Hamars- braut 17, Hafnarfirði.
80 ára 50 ára
Jón Bjarnason, Þóristúni 7, Sel- fossi. Baldvin Þórðarson, Dalbraut 27, Reykjavík. Þorsteinn Þorsteinsson, Geithömr- um, Svínavatnshreppi. Ólafur Þ. Guðmundsson, Hvassa- leiti 56, Reykjavík. Marta Sveinbjörnsdóttir, Hrísholti 6, Garðabæ. Kjartan Herbjörnsson, Snæ- hvammi, Breiðdalshreppi. Sigurlaug Ólafsdóttir, Hólum, starfsmannahúsi, Hólahreppi. Gísli Pétursson, Hjöhum 25, Pat- reksfirði. Sigurður Ingimarsson, Flugumýri, Akrahreppi.
75 ára 40 ára
Guðrún Andrésdóttir, Smyrla- hrauni 2, Hafnarfirði. Guðrún Kristjánsdóttir, Starra- stöðum, Lýtingsstaðahreppi. 70 ára Birgir Stefónsson, Laugarási H, Biskupstungnahreppi. Eric Paul Calmon, Fífuseli 11, Reykjavík. Haraldur Arngrímsson, Rauðási 14, Reykjavík.
Sigríður Jónsdóttir, Víkurbraut 14, Grindavík. Karsten Iversen, Reykási 27, Reykjavík.
Leiðrétting í afmælisgrein um Hjörtfríði með komið á framfæri: Kristín Láru Guðbrandsdóttur 7.7. sl. var Sesselja á þrjú börn og var elsti hún nefnd Hjörtína en hennar rétta sonur hennar, Róbert, alinn upp nafn er Hjörtfríður Lára. Hún er hjá móðurforeldrum sínum; Guð- hér með beðin velvirðingar á þess- brandur og Jakobína eiga tvo börn um mistökum. en auk þess á hann eina dóttur frá Þá fékk ættfræðisíðan rangar því fyrir hjónaband; Jón Brynjar upplýsingar um barnabörn hennar og Emiha eiga ekki tvö heldur þrjú og er því réttum upplýsingum hér böm.
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandend- ur þeirra til að senda því myndir og upplýs- ingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síð- asta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022