Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Side 44
T
F R E
TTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 1988.
Hvammstangi
minntivelásig
Júlíus Guðni Antonsson, Hvammstanga:
Á annað þúsund manns sótti af-
mælishátíð á Hvammstanga um
holgina í tilefni 50 ára afmæhs
Hvammstangahrepps en íbúar á
Hvammstanga eru 675. Hátíðahöldin
tókust afburða vel og var margt til
skemmtunar bæði á laugardag og
sunnudag. Meðal annars var vígð ný
göngubrú á Hvammsá. Fullyrða má
að Hvammstangi hafl minnt vel á sig
með hátíðahöldunum en þeim verða
gerð nánari skil í máh og myndum
síðar hér í blaðinu. -hsím
Brotist inn í
Breiðholtsapótek
Brotist var inn í Breiðholtsapótek,
Alfabakka 12, aöfaranótt laugardags.
Ekki virðist miklu hafa verið stolið.
Brotist var inn í Freddabar í
Tryggvagötu aðfaranótt sunnudags
þar sem skiptimynt var stolið. Eins
var brotist inn í Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur í Aðalstræti 16 þar sem
þjófarnir fundu nokkra Bandaríkja-
dali. Loks var sýningargluggi Jens
guhsmiðs í Pósthússtræti brotinn og
einhverju af skartgripum stohð.
Að sögn lögreglunnar var þetta
róleg helgi sem rekja mætti til þess
hve margir hefðu farið út úr bænum.
-hlh
Einn tekinn á
143 km hraða
Lögreglan á Selfossi tók um helgina
25 ökumenn fyrir of hraðan akstur.
Fóru mælingar fram á Hellisheiði, í
Svínahrauni og Ölfusi. Á bilinu frá
klukkan hálfníu til ehefu á laugar-
dagskvöld voru 6 teknir. Hraöi þeirra
mældist frá 106-143 km. Töluverð
þoka var þá á Heiðinni og lélegt
skyggni. Sagði lögreglan að aigengur
hraði hefði verið um 120 km.
«'<• Bíl var stohð í Hveragerði aöfara-
nótt sunnudags og fannst hann í Þor-
lákshöfn í gærmorgun. Tveir menn
hafa verið handteknir grunaðir um
þjófnaðinn og ölvun við akstur.
Fundust þeir í húsi í Þorlákshöfn.
-hlh
LOKI
Ekki er að spauga
með þá útnesjamenn.
Keflavíkurbæ vantar 100 milljónir:
Bæjarráð samþykkti
mikinn niðurskurð
- kalla varð saman neyðarfúnd bæjarráðs vegna aðhaldsaðgerða
„Það er rétt að þaö hefur gengiö
mjög illa aö innheimta garalar
slnildir bæjarins þannig aö fjár-
hagsáætlun fer liklega í vaskinn,"
sagði Vilhjálraur Ketilsson, bæjar-
stjóri Keflavikur, en bærinn á úti-
standandi um 100 milljónir króna
hjá bæjarbúum. Þetta eru aöallega
gamlar skuldir bæjarbúa og fyrir-
tækja.
Bæjarráð hefúr haldiö neyöar-
fund þar sem samþykktar voru
míög hertar aöhaldsaðgerðir til að
endar nái saman. Auk þess var
samþykkt að grípa til harðra inn-
heimtuaðgerða.
„Staðan er engan veginn eins góð
og við geröum ráð fyrir. Þaðer ljóst
að það dregur mikið úr fram-
kværadum auk þes sem dregið
verður úr rekstri bæjarins.“
Vilhjálmur sagði að staðgreiðslu-
fyrirkomulagið gerði það liklega að
verkum að bæjarfelagið ætti, að
sumra dómi, um 20 til 25 milljónir
útistandandi hjá ríkissjóði. Endan-
legu uppgjöri við ríkissjóð, sem
vera átti i júlí, hefur verið frestað
fram í október.
Meðal þeirra aðgerða, sem fallist
hefúr verið á í bæjarráði, er að
engar hækkanir frá fjárhagsáætl-
un verða samþykktar. Þær stofn-
anir bæjarfélagsins, sem standa
illa, verða því að skera niður í
rekstri sínum eða brúa sjálfar bilið
fram að næstu Oárhagsáætlun. Þá
kemur til greina að endurskoða
lækkanir og niðurfellingu fast-
eignagjalda þannig aö frá þeim
verði horfið. Einnig verður ein-
hverju starfsfólki sagt upp.
Vilbjálmur sagði aö staða Kefla-
víkur væri líklega ekkert einsdæmi
raeðal sveitarfélaga sem mörg hver
ættu nú í miklum erfiðleikum.
-SMJ
Skólaskákmeistari íslands í yngri flokki, Helgi Grétarsson, sést hér tefla fjöltefli á fjölskylduhátíð barna- og ungl-
ingadeildar útvarpsins og skáta í gær. Helgi sigraði þá fimmtán sem hann tefldi viö og mátti ekki tæpara standa
því steypiregn leysti hátíðina upp skömmu eftir að myndin var tekin. Um það bil 1000 manns sóttu hátíðina sem
haldin var undir kjörorðunum „Leikum okkur saman". DV-mynd JAK
Þjóðhagsspáin enn á floti
ÞjóðhagsspáfráÞjóðhagsstofnun spánni var gert ráð fyrír að við- eins slæm og áður var gert ráð fyr-
ætti að hggja fyrir í þessari viku skiptahailinn yrði um 11 milljarðar ir. Hátt verð á mjöli, lýsi, áh og
en ýmsar stærðir úr spánni hafa en fjármálaráðuneytið vildi endur- kisiljámi veldur þar mestu.
orðið tilefni bjartsýni hjá ráöa- skoöa þá tölu og hafa hana lægri. -SMJ
mönnum nú þegar. í drögum aö Þá munu viðskiptakjör ekki veröa
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
á Suðvest-
urlandi
Norðaustan gola eða kaldi um
allt land. Skýjað um norðan- og
austanvert landiö og sums staðar
dálítil súld. Víðast léttskýjaö á
Suðvestur- og Vesturlandi en
sums staðar þó síðdegisskúrir.
Hiti 7 til 15 stig.
Hvolsvöllur:
Fjóriráslysadeild
- eftir harðan árekstur
Harður árekstur tveggja fólksbíla
varð á Suöurlandsveginum þar sem
hann hggur um Hvolsvöll um hádeg-
isbil í gær. Komu bílarnir hvor úr
sinni áttinni og er talið að annar bíl-
stjórinn, sem var eldri maður, hafi
ætlað inn á bensínstööina og þá beygt
í veg fyrir hinn bílinn sem í voru
þrír farþegar.
Voru allir fluttir á slysadeildina í
Reykjavík eftir slysið. Tveir far-
þeganna úr öðrum bílnum fengu að
fara heim að aflokinni skoðun en sá
þriöji fótbrotnaði og brákaðist á
hendi. Eldri maðurinn brákaðist á
hendi og vankaðist eitthvað.
Bílarnir eru gerónýtir.
Ensk kona fótbrotnaði á göngu með
ferðahóp í Fljótshlíð í gær og var hún
flutt á slysadeild. Ekki er vitað um
tildrög slyssins.
________________________-hlh
Tvær kýr drápust
af völdum eldingar
Tvær kýr á bænum Svarfhóli í
Leirársveit drápust er eldingu laust
niöur í þrumuveðrinu í gærdag.
Voru þær á beit við bakka Laxár í
Leirársveit ásamt fleiri kúm þegar
þrumuveörið gekk yfir.
„Ég var inni í skemmu þegar þessi
óskaplegi hávaði heyrðist. Eg leit út
til að athuga hvort dýrin hefðu ærst
og sá þá tvær kúnna liggja dauðar
við árbakkann. Sú kýr er stóð næst
vankaðist eitthvað,“ sagði Björg
Tómassen, húsfreyja á Svarfhóli, í
samtali við DV í morgun.
Sagði hún að tvö göt væru í gegn
um árbakkann eins og spjóti hefði
verið kastað. Virðist eldingin þá hafa
komið niöur á tveim stöðum. Voru
kýmar urðaðar strax í gær. Virðast
ósköpin ekki hafa haft áhrif á nyt
hinna. -hlh
26 voru teknir
fýrir hraðakstur
Tuttugu og sex ökumenn vom
teknir fyrir of hraðan akstur á veg-
akaflanum frá Vatnsskarði til Brúar
í Hrútafirði. Var einn mældur á 135
kílómetra hraða, en allir mældust vel
yflr 100 kílómetra. -hlh