Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 12
12
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988,
Uppáhaldsmatur á sunnudegi
Gúllasið hans
Helga Pé
„Ég sá einhvem tíma þátt eöa brot úr þætti í norska
sjónvarpinu, þar sem rætt var við matreiðslumann
norsku hirðarinnar," sagði Helgi Pétursson, sjón-
varpsstjama á Stöð 2, er DV leitaði eftir uppáhalds-
uppskrift hans. „Matreiðslumeistarinn var að segja
frá nokkrum uppáhaldsréttum Ólafs Noregskon-
ungs og þar á meðal var þessi, giillas með kúm-
eni, sem ég hripaði niður 1 flýti,“ sagði Helgi enn-
fremur. „Svona réttir þróast ailtaf í meðförum en
þegar ég þarf að ná mér í prik hjá fjölskyldunni,
sem er oft, býð ég í þennan rétt. Hann.hefur ekki
bmgðist.“
Það ervel til fundið hjá Helga að bjóða lesendum
upp á konunglega uppskrift nú þegar heimsókn
Ólafs Noregskonungs er nýlokið. Rétturinn virðist
gimilegur og upplagður í helgarmatinn.
Uppskriftin er ætluð fýrir sex og hún lítur svona út.
Konunglegt gúllas
800 gr nautagúllas.
Tvö græn epli.
Tveir góðir laukar.
Ein sítróna.
Tvær tsk. paprikuduft.
Tvær tsk. kúmen, saxað smátt.
Hveiti, ijómi, salt, pipar og olía.
Saxið eplin og laukinn smátt og steikið vel í olíu.
Stráið papriku yfir og annarri teskeiðinni af kúm-
eninu. Skerið börkinn af sítrónunni með ostaskera,
saxið smátt og setjið út í. Þá er kjötið sett á pönn-
una og ca. ein matskeið af hveiti. Kryddað með
salti og pipar eftir smekk: Látið krauma vel og setj-
ið seinni teskeiðina af kúmeninu yfir. Þegar kjötið
er orðið meyrt er safinn úr sítrónunni kreistur
yfir. Sósan er þykkt með rjóma. Rétturinn er bor-
inn fram með hrísgrjónum og snittubrauði.
-ELA
ÓlafsVhjá
SMÁAUGLÝSINGflR
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022