Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1988, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Smygl í Arfelli:
Innsigluðu vömgám til
að blekkja tollarana
Við stikkprufuskoðun á gám um
borö í Árfelli, leiguskipi Sambands-
ins, fundu tollarar á dögunum 80
kassa af bjór, 10 flöskur af áfengi,
12 sígarettukarton og eitt mynd-
bandstæki sem reynt var að smygla
til landsins. MáUö leystist fljótlega
og viöurkenndu 7 skipveijar eign
sína á smyglvamingnum. Skip-
stjóri og yfirvélstjóri Árfells eru
þýskir og áttu ekki aðUd að smygl-
inu.
í gámnum voru vörur tU mis-
munandi aðUa og var hann hvorki
fullhlaðinn né innsiglaður við
komuna um borð. Ákváðu 7 skip-
verjanna á ÁrfelU því að nýta það
pláss sem ónýtt var í gámnum und-
ir smygUð og tíl aö slá ryki í augu
tollaranna settu þeir innsigU á
gáminn. Það bragð tókst hins vegar
ekki.
Ómar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar Sam-
bandsins, sagði DV að mennimir
hefðu haldið störfum sínum en
fengið að vita að ekkert mætti út
af bera svo þeir misstu ekki störf
sín.
Ef skipveijar hefðu hins vegar
átt við innsigh, sem voru fyrir á
gámum þegar þeir komu um borð,
heföi máliö verið mun alvarlegra
og mennirnir umsvifalust reknir.
Væri innan við helmingur gám-
anna um borö innsiglaður. Væri
það annaðhvort sendandi vörunn-
ar eða skipadeUdin sem innsiglaði
þá.
-hlh
Sóðaskapur í Reykjavík
Sóðaskap má því miður víða finna í Reykjavík
sem og öðrum sveitarfélögum. Þessi ruslahaug-
ur er í miðju iðnaðarhverfi, eða viö Eldhöfða á
Ártúnshöfða. Þetta samsafn af drasli er öllum
sem sök eiga á til háborinnar skammar. Það
er verðugt verkefni i hreinsunarátaki borgarinn-
ar aö hreinsa til á þessari lóö.
DV-mynd GVA
Leiöangur Áma Friðrikssonar
til Grænlands:
„Það hefur mátt skilja á mönnum hins vegar vera þvert á óskir
um niðurstöðu þessa leiöangurs aö Grænlendinga.
þar hafi ekkert fundist sem komi Niðurstaða þessa leiðangurs
mönnum á óvart Það virðist engin breytir ekki því sem áður hefur
loðna hafa fundist við austurströnd veriö haldið fram varðandi loönu-
Grænlands eins og Grænlendingar göngur á miUi þessara landa. Hins
þó hafa viljað halda fram,“ sagði vegar er of snemmt aö draga álykt-
Jón B. Jónasson hjá sjávarútvegs- anir af einum leiðangri og hyggjast
ráöuneytinu um niðurstöður úr Danir og Grænlendingar fara í
leiðangri Áma Friörikssonar en fleiri rannsóknarleiðangra og haía
skipiö er nýkomiö úr rannsóknar- falast eftir Áma Friörikssyni aö
leiðangri við strendur Grænlands. ári.
Stóð leiðangurinn frá 7. september Jón B. Jónasson sagöi aö þaö
til 25. september. Það er græn- hefði greinilega komið fram í þess-
lenska flskrannsóknastofnunin um leiðangri aö loðnan hefði verið
sem leigði skipiö til þessa verkefnis að breyta um hegöun á síðustu
og sáu danskir vísindamenn um tveim árum. Það hefði sést vel viö
rannsóknimar. veiðamar aö undanfömu. Undir
þetta tók Hjálmar Vilhjálmsson
Grænlendingarhafalöngumhaldið fiskifræöingur sem sagði að nú
því fi-am að loöna úr stofliinum væri greinilega ekki venjulegt
milli íslands og Gtænlands haldi ástand. Hjálmar sagöi aö í ljós hefði
sig mikiö inni á grænlenska land- komið aö sjórinn var mjög hlýr á
grunninu. Þvi hafa þeir viljað fá vesturhluta svæðisins og það gæti
stærri kvóta við útdeilingu .veiöi- hugsanlega skýrt hve lítiö væri af
heimilda. Leiöangurinn nú átti aö loönu á svæðinu.
styöja þetta en niöurstaöan virðist -SMJ
í dag mælir Dagfari____________
Allirsigruðu
Safnaöarstarfiö í Fríkirkjunni er
enn í fréttum. Er það með hreinum
ólíkindum hversu öflugt krikju-
starf er unniö í þessum sjálfstæöa
söfnuði og eins og Dagfari hefur
margoft bent á gæti þjóökirkjan
margt af þessu lært. Nú er þaö
meira aö segja talin virk þátttaka
í kirkjustarfinu aö mæta ekki til
leiks þegar kosningar fara fram í
sókninni. Stuöningsmenn séra
Gunnars vom nefnilega hvattir til
að kjósa ekki í þeirri allsheijar-
atkvæðagreiðslu sem stjómin efndi
til um blessaðan prestinn, og þegar
í Ijós kom að rétt tæplega þúsund
manns kusu vom Gunnarsmenn
fjótir til aö útskýra aö afgangurinn
af söfnuöinum, það er rúm þijú
þúsund, hefðu svarað kalhnu. Og
með því aö sitja heima vom þeir
orðnir virkir í atkvæöagreiöslunni
og safnaðarstarfinu samkvæmt
skilgreiningum prestsins sjálfs.
Hér eftir mun séra Gunnar vænt-
anlega telja það góða kirkjusókn
þegar fámennt veröur í messunum
þjá honum vegna þess að fjarveran
lýsir áhuganum og vilja safnaöar-
meðlima til að láta kirkjustarfið til
sín taka. Ef menn vilja styðja prest-
inn þá er sem sagt besta ráðiö að
láta ekki sjá sig, hvorki í kosning-
um né messum. Og presturinn mun
leika á alls oddi ef og þegar messu-
fall veröur sökum fámennis. Það
verður hans stærsta stund.
Annars er mikið gaman að þess-
um átökum í Fríkirkjunni. Maður
er eiginlega alveg miður sín yfir
því að vera ekki meðlimur í söfnuö-
inum. Þaö er líka sama hvorum
megin maöur stendur. Meö því að
vera á móti presti mætir maður og
kýs gegn honum og vinnur stóran
sigur því allir segja já við þeirri
spurningu hvort reka eigi prestinn.
En með því að vera með presti
mætir maður ekki á kjörstað og
hrósar sigri yfir því að þeir séu
fleiri sem sitja heima heldur en
hinir sem kjósa.
Þetta er að vísu í fyrsta skipti sem
kosningar vinnast með því að kjósa
ekki en það stafar af þeirri sann-
kristnu og einfóldu reglu að telja
alla þá sem heima sitja til stuön-
ingsmanna sinna. Það væru nú al-
deilis sigrarnir hjá stjómmálafokk-
unum ef þeir hvettu stuðnings-
menn sína til aö taka ekki þátt í
kosningum og lýsa svo yfir sigri
með vísan til þeirra sem ekki ski-
luöu sér á kjörstað. Sigrún forseta-
frambjóöandi notaði að vísu þessa
aöferð í forsetakosningunum í vor
en þessi siguraðferð hefur ekki ver-
ið viö lýði annars staðar og er vel
þess virði að nýta sér hana í aukn-
um mæli. Sérstaklega fyrir þá sem
ekki eiga von í mörgum atkvæðum
ef svo óheppilega vildi til, aö allir
mættu á körstað.
Leikar standa nú þannig í Frí-
kirkjusöfnuöinum að báðar fylk-
ingar lýsa yfir sigri. Þeir sem fengu
öll atkvæöin og hinir sem fengu
ekki atkvæðin. Það er til happs að
stuðningsmenn séra Gunnars film-
uðu alla kjósendur og vita núna
upp á hár hveijir eru í hvorri fylk-
ingu, enda er þaö nauðsynlegt fyrir
klerkinn í framtíðinni að vita
hveijir eru réttlátir og hveijir
ranglátir. Hingað til hefur það háð
öllu kirkjustarfi í landinu að prest-
amir vita aldrei hveija þeir eiga
að blessa og hveija ekki, en nú
hefur Fríkirkjusöfnuðurinn og
presturinn sjálfur enn og aftur
fundið upp nýja leiö í kristnitö-
kunni, og segi menn svo aö Frí-
kirkjan sé ekki leiöandi afl í guðstr-
únni!
Af prestinum er það að segja aö
hann er víst kominn út af sakra-
mentinu þrátt fyrir sigur sinn í
allsheijarkosningunni og nú er
búið að taka bæði lyklana og laun-
in af honum. Laun heimsins em
vanþakklæti, sér í lagi þegar tillit
er tekiö til þess, áð presturinn fékk
ótvíræða traustsyfirlýsingu frá
þeim sem ekki kusu. Og það eru
einmitt þeir sem em virkir í safn-
aðarstarfinu.
Næst mun verða boðað til safnað-
arfundar og þá má gera ráð fyrir
því að andstæðingar prestsins láti
þau boð út ganga að þeir mæti ekki
til fundarins. Þá hljóta þeir að hafa
meirihluta á fundinum því þeir
eiga að ráöa sem ekki mæta og
ekki taka þátt. Hvaö gerir klerkur
þá? Þetta endar auðvitað með því
að enginn safnaðarmeðhmurmæt-
ir á fundi, greiöir atkvæði, né held-
ur mætir til messu til að vera viss
um að mark sé á honum tekiö og
safnaöarstarfiö sé virkt. Þá fyrst
verður Fríkirkjan öflug.
Dagfari