Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1988, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1988.
9
Útlönd
Augusto Pinochet, forseti Chile, er einn í framboói í forsetakosningunum
sem fram fara í dag. Simamynd Reuter
Skemmdar-
verk í Chile
Skemmdarverkamenn sprengdu í
gærkvöldi fjóra háspennutuma í loft
upp með dýnamíti og gerðu þar með
sextán hundruð kílómetra langa
landræmu af Chile rafmagnslausa,
aðeins nokkrum klukkustundum
áður en forsetakosningar áttu að
heflast í morgun.
Sjö milljónir Chilebúa eru á kjör-
skrá og hafa því réttindi til að segja
skoðun sína á því hvort Pinochet
hershöfðingi á að gegna forsetaemb-
ætti í átta ár í viðbót.
Lögreglan sagði að tumamir hefðu
verið í sveitahémðum skammt frá
Santiago og að miðhluti Chile hefði
orðið rafmagnslaus.
Patricio Aylwin stjómarandstöðu-
leiðtogi sagði að rafmagnsleysinu
helði verið ætlaö að hræða fólk og
fá það til að sitja heima á kjördag til
að koma í veg fyrir ósigur Pinochets.
Sprengingar heyrðust í austur-
hluta Santiago og örskömmu síðar
varð allt myrkt í borginni, en þrjátíu
mínútum síðar kom rafmagniö aftur
ár. Lögreglan sagði að einungis hefði
verið um að ræða hávaðasprengjur
sem engum skáöa hefðu valdið.
Andstæðingar herforingjastjómar-
innar hafa sakað hana um að ætla
að reyna að svindla í kosningunum
eða frnna leið til að aflýsa þeim.
Stjórnin hefur sakað skæruliða
kommúnista um að hafa staðið fyrir
sprengingunum og öðrum skemmd-
arverkum til að reyna að eyðileggja
forsetakosningamar. Reuter
Flóð í Malaga
Pétur L. Pétursson, DV, Barœlona;
Alls hafa sex manns drukknað í
flóðum-í Malaga að undanfórnu.
Flóðin hafa valdið gífurlegu tjóni.
Stöðugar rigningar hafa leikið
suðurhluta Spánar grátt aö und-
anförnu og hefur verið lýst yfir
neyðarástandi á mörgum svæðum.
Flóðin hófust á laugardag með gif-
urlegu hagléli sem lagði vínupp-
skeru svæðisins í rúst. Haglélið
skildi eftir sig meira en eins metra
þykka spjóbreiðu. Síðan þá hefur
ekkert lát verið á úrkomu.
Tjónið hefur verið einna mest í
þorpunum Mijas og Fuengirola, en
það síðamefnda er vinsæll sumar-
dvalarstaður íslendinga. Talið er að
tjóniö í þessum tveimur þorpum
nemi milljörðum íslenskra króna.
Önnur svaeði, sem hafa orðið illa úti
við úrkomuna, era La Mancha,
heimahéraö Don Kíkóta, og Melilla,
spænsk borg á norðurströnd Afríku.
Neyöarástandi hefur verið iýst yfir
á mörgum stööum á suöurströnd
Spánar.
Samkvæmt veöurfréttum er útlit
fýrir aö veðrið batni í þessari viku
og hefur því neyðarástandi verið
aflétt á nokkrum svæðum.
Fáwiðri veldur grfuriegu tjóni
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti heimsótti í gær borgina Nimes
í Suður-Frakklandi þar sem ellefu
manns létust í fárviðri sem gekk yfir
borgina á mánudagjnn. Margra er
enn saknað og óttast menn að fleiri
lík eigi eftir að finnast í bílflökum
sem enn era í kafi eftir gifurleg flóð.
Einn þriðji hluti borgarbúa, eða
fjöratíu og fimm þúsund manns, er
nú heimilislaus. Tjónið af völdum
flóðanna er tahð nema nær þrjátíu
milljörðum króna.
Lofaði forsetinn að allt yrði gert til
þess að aðstoða borgarbúa.
Tugir manna meiddust er vatn
flæddi um götur borgarinnar, kast-
aði bílum upp að húsveggjum og olli
rúðubrotum. Vatn flæddi inn í versl-
anir, verksmiðjur og vöruhús og ekki
er fyrirsjáanlegt hvenær hægt verð-
ur að opna aftur.
Skólar vora lokaðir í gær og lestar-
ferðir til borgarinnar lágu niðri.
Reuter
Ibúi í Nimes í suðurhluta Frakklands leitar aö bíl sinum sem hvarf i fióöun-
um sem gengu yfir borgina á mánudaginn. Simamynd Reuter
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202
fð Jeep Cherokee LAREDO
Eigum örfáa bila af 1988 arg. a
verði frá því fyrir gengisfellingu til
afgreiðslu STRAX!
Sendum i póstkröfu
w
»hummel
M SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, Reykjavík, sími 83555
Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi, 2. hæð, sími 611055