Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Side 28
28
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988.
Iþróttír
Frétta-
stúfar
Pólverji horfinn
Pólski knatt-
spymumaðurmn
Andrzej Rudy
hvarf á Ítalíu á
laugardaginn þegar pólska lands-
liðiö lék æfingaleik gegn úrvali
úr ítölsku 1. deildinni i Mílanó.
Hann fékk leyfi til að fara út af
hóteli liðsins á föstudag og kom
ekki aftur. í ítalska sjónvarpinu
var leitt að því getura að hann
hygðist sækja um hæh sem póli-
tískur flóttamaður í Austurríki
eða Vestur-Þýskalandi. Rudy er
talinn efnilegasti knattspymu-
maður Póllands og GKS Katowice
hafði nýlega keypt hann frá Slask
fyrir upphæð sem samsvarar 110
þúsund dollurum en það er hæsta
kaupverö á pólskum leikmanni
milli innlendra félaga. Þess má
geta að leiknum sjálfum lauk með
jafntefli, 2-2.
Þjálfarinn i langt bann
j John Neumann,
þjálfari gríska
” i- körfuknattleiks-
félagins PAOK Sal-
oniki, hefur verið dæmdur í
tveggja ára bann af Alþjóða
körfuknattleikssambandinu.
Néumann réðst á dómara í Evr-
ópuleik milli PAOK og Rauðu
stjörnunnar í Belgrad og skellti
honum í gólfiö. PAOK hefur jafn-
framt verið vísað úr keppninni
og Rauðu stjörnunni dæmdur
sigur en atvikið átti sér stað í
upphafi framlengingar í síðari
leik félaganna.
Markahrókar í Englandi
j 1 Þessir kappar hafa
átt mestri vel-
i '° t gengni að fagna
framan við mark
andstæðinga sinna í ensku fyrstu
deildinni til þessa:
14 Alan Smith, Arsenal
11 Dean Saunders, Derby
11 Alan Mclnally, Aston Vilia
9 Tony Cascarino, Millwall
9 Paul Williams, Charlton
Faria iformi
Hollensku Evrópumeistaramir
PSV hafa greinilega gert góð kaup
í brasilíska miðherjanum Rom-
ario Faria. Hann skoraði í sínum
fyrsta leik á dögunum og á laug-.
ardag bætti hann um betur með
þrennu í 5-2 sigri á RKC í úrvals-
deildinni. PSV er komið með sex
stiga forskot, hefur 23 stig en
Volendam, Fortuna Sittard og
Haarlem 17, Ajax, Twente og Fey-
enoord 16. Ajax vann Feyenoord
2-1 á útivelli í gær og bætti þar
með enn stöðu sína eftir að hafa
byrjað hræðiiega í haust.
O’Leary í sátt
Jackie Charlton, landsliðsein-
valdur íra, hefur hundsaö David
O’Leary, vamarmanninn sterka
frá Arsenal, frá því hann tók við
völdum fyrir hálfu þriðja ári og
ekki einu sinni yrt á hann orði.
En um helgina brá svo við að
Charlton valdi O’Leary 1 fyrsta
sinn í landsliöshóp hjá sér, fyrir
HM-leikinn viö Spánverja á mið-
vikudag. „Ég hef enn ekki hug-
mynd um hvers vegna Charlton
hefur sniðgengiö mig en viö eig-
um örugglega eftir aö ræöa sam-
an í vikunni og þá fæ ég einhvem
botn í þaö,“ sagði O’Leary í gær.
Ballesteros þénar
Spánverjinn Severiano Balleste-
ros krækti sér í 144 þúsund doll-
ara í Japan í gær þegar hann sigr-
aði í Taiheiyo Masters mótinu
sem fram fór í bænum Gotembá.
Hann lék á 281 höggi, Japaninn
Yasuhiro Funatogawa, sem vann
þetta mót í fyrra, varð annar á
283 og þriöja sætinu deildu Spán-
verjinn Jose-Maria Loazabal og
Japaninn Yoshiyuki með sér á
285 höggum.
Klinsmann brotinn og
Katanec rekinn af velli
- er Stuttgart steinlá gegn Kaiserslautem, 6-1
Stuttgart tapaöi gegn Kaiserslaut-
ern, 6-1, á útivelli og var sá ósigur
hrikalegur liðinu sem náði þó
skammvinnri forystu, 0-1, með
marki Gaudino.
Kohr jafnaði og fylgdi á eftir
markahríð en á undan var Katanec
vikið af velli en hann á að hafa sett
olnbogann í andlit eins leikmanna
Kaiserslautern. Dómarinn sá ekki
atvikið en fór að bendingu línuvarð-
ar sem var fjarri vettvangi. Er þarna
var komið varð fjandinn laus á hlið-
arlínu milli varamannabekks Stutt-
garts og vallarvarða og áhorfenda en
Ari Haan gekk fremstur í flokki.
Flugeldar flugu í átt að bekk Stór-
garðsmanna og mátti litlu muna að
leikurinn yrði flautaður af. Kohr
Þaö fór heldur illa fyrir þeim
rallköppum. Indriða Þorkelssyni og
Birgi Viðari Halldórssyni, en þeir
höfðu ætlað sér að taka þátt í rall-
keppni í Frakklandi um helgina. Eft-
ir vikuundirbúning viö að gera leið-
arlýsingar og undirbúa keppnisbif-
reiðina fyrir átökin á sérleiöum, sem
lágu vítt og breitt um vinekrur
Frakklands, lentu þeir í sorglegu
skoraði aftur, Hartmann bætti við
marki en skömmu síðar var Klins-
mann felldur innan vítateigs en ekk-
ert fékkst fyrir það annað en gríðar-
legt áfall hjá Stuttgart því Klinsmann
var borinn fótbrotinn af velli.
Eftirleikurinn var auðveldur í kjöl-
far þessa og Kohr bætti enn við
marki og þeir Hoos og Enig settu
hvor sitt markið.
Þetta er mikið áfall í toppbarátt-
unm hjá Stuttgart en liðið á leik í
Múnchen gegn Bæjurum í þessari
viku. Að sögn Bild átti Ásgeir góðan
leik, fékk 3 í einkunn.
Bæjarar unnu sinn leik í svarta-
þoku um helgina, 2-0, og skoruðu
Wegmann og Pflugler sem gerðu
mörkin. Mark Pflugler geta fáir lýst
óhappi. Þegar allt var tilbúið og þeir
félagar voru á leið á rásstað ók
franskur ökuníðingur á keppnisbíl
þeirra og gjöreyðilagði hann. Til að
bæta gráu ofan á svart stakk þessi
franski ökufantur af frá vettvangi en
náðist síðar um daginn.
Þetta er í fjórða sinn sem Birgir
reynir þátttöku í keppni á erlendri
grund á stuttum tíma . Aðeins einu
en það varð til er þokan var sem
svörtust.
Bremen-Bochum...............2-0
Dortmund-Númber.............4-0
Gladbach-Frankfurt..........2-1
Hanover-Uerdingen...........0-5
Leverkusen-Karlsruhe........1-0
Hamborg-Mannheim............5-1
Stuttgarter-StPauli.........2-2
Staðan
Bayern.........13 7 6 0 26- 7 20
VfB Stuttgart..13 8 1 4 24-15 17
HamburgSV......14 7 3 4 26-17 17
Gladbach.......14 6 5 3 20-17 17
Núrnberg.......14 3 2 9 12-27 8
Hanover........13 1 5 7 12-26 7
Frankfurt......13 2 2 9 6-21 6
sinni hefur hann náð að leggja af stað
og þá bilaði keppnisbíllinn stuttu síð-
ar. Einu sinni kviknaði í bílnum og
einu sinni mætti aðstoðarökumaður-
inn ekki þegar leggja átti af stað. Það
þyrftu að vera til sérstök bjartsýnis-
þrautseigjuverðlaun fyrir svona
menn.
-BG/ÁS
Sviss:
Luzern
komst
áffram í
bikarnum
Luzem, lið Sigurðar Grét-
arssonar í Sviss, komst áfram
í bikarnum um helgina en fé-
lagið lagði þá 2. deildar liðið
Zug að velli, 2-0.
„Við náðum að skora í tví-
gang þótt þeir heföu pakkað í
vöm. Það var bara spilað á
eitt mark og þeir hjá Zug
geröu ekkert til aö sækja fyrr
en við vorum komnir í 2-0.
Völlurinn var mjög þungur
og aöstæður hinar verstu. Við
vorum engu aö síöur með
þetta á hreinu og sigurinn var
aldrei í hættu,“ sagöi Sigurð-
ur Grétarsson í samtali við
DV í gær.
Sigurður átti ágætan leik
gegn Zug, gerði margsinnis
usla í vöm 2. deildar liösins
en skoraði þó ekki.
Luzem, sem er á toppnum í
svissnesku deildinni, spilar
um næstu helgi í deildar-
keppninni og mætir þá
Lausanne.
-JÖG
Ófarir í landi Fransmanna
- rauövlnsbelgur klessukeyrði bíl íslenskra rallmanna
Verður erffitt verk
- segir nýi landsliösþjálfarinn í sundi
„Eftir þau kynni, sem ég hef fengið
af íslensku sundfólki, blasir við gapið
sem er á milli þeirra bestu og hinna
sem á eftir koma. Ég mun því leggja
mikinn þunga á að auka breiddina
meðal íslenskra sundmanna,” sagði
Conrad Cawley í samtali við DV í
gær. Cawley þessi var nýverið ráðinn
í stöðu landsliösþjálfara íslands í
sundi og kom hann til landsins um
helgina.
„Eg geri mér grein fyrir að þetta
verður erfitt verk. Það hefur verið
vöxtur í sundinu á íslandi síðustu
árin og þvi til sönnunar eru keppend-
urnir sex sem fóru á ólympíuleika.
Það má ekki horfa frám hjá því að
íslendingar era smáþjóð og því er
fjöldi íslenskra keppenda þar ein-
stakur. Það má ætla að það veröi
ekki auösótt að halda uppsveiflunni
sem verið hefur í sundinu hér síð-
ustu árin. Það er nauðsyn að jákvæð
þróun viðhaldist í sundheiminum
íslenska og bæta þarf við þann hóp
einstaklinga sem sem hefur verið
mest áberandi í sundlífinu síðustu
árin. Ég mun ekki ana að neinu þótt
ég viti að nauðsynlegt sé að vinna í
þessu af krafti og taka strax til starfa.
Maður verður að leggja línurnar með
réttum hætti í þjálfun þegar hliðsjón
er höfð af framtíðinni," sagði Cawley
viö DV.
Hann sagðist ennfremur eiga eftir
að skoða aðstæður frekar og að ræða
meir og betur viö íslenska sundfólkiö
en hann fylgdist með bikarmeistara-
mótinu í 2. deild um helgina.
Þá vildi Cawley þakka Guðfinni
Ólafssyni, formanni sundsambands-
ins, og sundsambandinu í heild fyrir
að gefa sér tækifæri til að vinna að
þessu áhugaverða og spennandi
verkefni:
„Ef viö náum vel saman ættum viö
að geta náð langt með íslenska sund-
fólkið,” sagði Cawley. -JÖG
Conrad Cawley, nýi landsliðsþjálfarinn i sundi, fylgdist með sundköppum
á fullu skriði í Sundhöil Hafnarfjarðar um helgina en þar var þá bikarmót.
DV-mynd Eiríkur
Rætt að ríkissjónvarpið
fái að sýna meira efni
- segir formaður HSÍ varðandi fund aðila í sjónvarpsmálinu
Ekki hefur enn fengist lausn í
sjónvarpsmálinu svonefnda en það
heldur áfram aö geijast. Fundur
var haldinn um helgina þar sem
málin voru rædd af forvígismönn-
um HSÍ, ráðamönnum íþróttaefnis
og fjármálstjórum beggja ljósvaka-
stöðva, RÚV og Stöðvar 2, og full-
trúum frá samtökumfyrstu deildar
félaga:
„Samþykkt var að gefa ekki nein-
ar yfirlýsingar í kjölfar fúndarins
en mjög jákvæð viðbrögð komu
fram hjá öllum aðilum um að leysa
þessi mál,” sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ, í sam-
tali við DV í gær. „Viö í stjóm HSÍ
leggjum þunga á að fram fáist far-
sæl lausn og vilji aöilanna er fyrir
hendi um að skoöa alla þá mögu-
leika sem kunna að koma upp á
yfirborðið. Þá lýstu fulltrúar
beggja stööva yfir vilja til að greiða
sanngjamt verð fyrir sýningar á
þessum leikjum sem um ræðir.
Annað er ekki hægt að segja á
þessu stigi en ég vona vitanlega aö
þetta leysist sem allra fyrst,” sagði
Jón ennfremur.
„Þaö er verið að ræða það aö rík-
issjónvarpiö fái heimild til að sýna
meira eftú en verið hefur,“ svaraöi
formaðurinn, aðspurður hvort sá
möguleiki væri enn fyrir hendi að
hlutur Sjónvarpsins ykist varðandi
sýningar á þessu efni.
„Hugmyndin er sem sé að endur-
skoða samninginn milli Stöðvar 2
og samtaka fyrstu deildar félag-
anna. Samkomulagið hefur raunar
ekki verið staðfest enn af HSÍ vegna
þess ákvæðis um bikarkeppni
karla sem þar er og þær greiöslur
sem í boði eru vegna hennar. Ég
vil hins vegar taka það fram að það
er ekki verk HSÍ að semja um út-
sendingar á leikjum í sjálfri 1.
deildinni heldur í verkahring sam-
taka liöanna sem þar spila. Um-
ræöu um samninginn verður vit-
anlega fram haldiö næstu dagapna
milli þessara aðila sem funduðu
um málin nú um helgina.“
„Þess má geta í sambandi viö
sýningar á þessu efni í sjónvarpi,”
sagði Jón, „aö margir hafa hrhigt
í okkur síðustu dagana og farið
þess á leit að leikimir yrðu einnig
sýndir í ríkissjónvarpinu. Þetta
fólk taldi í samtah við okkur hjá
handknattleikssambandinu aö rétt
væri aö veita báðum stöðvum aö-
gang aö efninu en einnig að rétt
væri að greiöa sanngjamt verö fyr-
ir sýningar á leikjunum og raunar
ööru innlendu íþróttaefni í sjón-
varpi.”
-JÖG