Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1988, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1988. Menning Bækur handa byrjendum Þú mátt ekki berja Stubb! (Úr bókinni Stjáni og Stubbur). Bókaútgáfan Iðunn sendir frá sér Qórar bækur í sérstökum flokki sem kallast Lestrarbækur Iðunnar. Þær eru ætlaðar byrjendum í lestri eða börnum í 1. og 2. bekk grunn- skóla. Bækurnar eru eftir kunna, sænska höfunda og myndskreyttar af frábærum teiknurum. Þýðand- inn er heldur ekki vahnn af verri endanum sem sé skáldið Þorsteinn frá Hamri. Höfundur bókanna um Önnu, Hans Peterson, er elstur þeirra, fæddur 1922, sonur rafvirkja í Vár- ing. Hann lærði rafvirkjun en sneri sér að ritstörfum og frá 1959 hafa komið eftir hann fjölmargar barnabækur sem hafa verið þýddar á ýmis tungumál. Á íslensku hafa meðal annars komiö út eftir hann Maggi litli og íkorninn og Maggi, Marí og Matthias, en fyrir þá bók fékk hann NOs Holmgersson-verð- launin 1957. Síðastliðinn áratug hefur Hans Peterson unnið ötullega að því að vekja athygli á naúðsyn þess að gefa út léttlestrarbækur og lesefni handa börnum með sérþarfir og hefur verið óspar að leggja sitt af mörkum. Margir góðir höfundar eru tregir til að einfalda svo texta sinn og finnst það koma niður á stílnum. Vissulega er vandasamt að skrifa þannig og slá ekkert af listrænum kröfum. Það þarf að hnitmiða setningarnar, nota sömu orðin aftur og aftur og velja gjarn- an þau stystu. Anna er sjö ára í fyrri bókinni. Það er sagt frá heimili hennar, fjöl- skyldu og skólanum. Hún er ósköp venjulegur krakki, lítil í sér þegar hún á að fara að sofa og þá sýgur hún á sér þumalputtann. Stundum fær hún frekjuköst, orgar og stapp- ar en oftast er hún góð, dálítill spekingur sem veltir fyrir sér hlut- unum. í seinni bókinni er hún orð- in átta ára og komin í 2. bekk. Ása vinkona hennar flytur í aðra borg og allt verður ómögulegt en Anna litla sigrast á erfiðleikunum. Þetta eru skemmtilegar sögur og teikn- ingar Ilon Wikland einstaklega góðar. Goggur, kisa og gamli maðurinn Gunnel Linde, höfundur bókar- innar Goggur, kisa og gamli mað- urinn, er fædd í Stokkhólmi 1924. Hún var einkabarn sem saknaði þess mjög að eiga ekki systkini til að leika sér við. Hún lá í bókum og lifði í ímynduðum heimi þar sem hún bjó sér til þykjustuleikfélaga. Hún átti til að mynda árum saman Bamabækur Vilborg Dagbjartsdóttir upphugsaöan hund. Árið 1964 fékk hún Nils Holmgersson-verðlaunin. Goggur, sem reyndar heitir Magnús, er líka einmana. Hann á engin systkini og ekkert gæludýr. Hann langar svo mikiö til að eiga kött. Svo kynnist hann karli sem býr í litlu, rauðu húsi sem stendur inn á milli stórhýsanna. Karlinn á kisuna Bröndu. Goggur fer að venja komur sínar til þeirra. Hann veikist af hettusótt og á meðan hann hggur í rúminu brennur litla, rauða húsið. Gamli maðurinn er fluttur á spítala. Goggi tekst aö hæna að sér Bröndu og að lokum fær hann að taka hana heim til sín og hugsa um hana meðan gamh maöurinn er á spítalanum. Teikn- ingar Tord Nygren eru í mildum litum og undirstrika angurværa stemningu sögunnar. Sagan um Stjána og Stubb er eft- ir Barbro Lindgren. Hún er fædd í Stokkhólmi 1937. Menntaðist í handíðaskóla og starfaði sem teiknari á dagblöðum og auglýs- ingastofum en byrjaði að skrifa 1965. Hún semur jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna lesendur og er ágætt ljóðskáld. Stíll hennar er persónulegur og henni tekst að nota barnamál á skemmtilegan hátt. Textinn verður í senn fyndinn og ljóðrænn. Myndir Evu Eriksson draga einmitt fram þetta tvennt og eru aldeihs frábærar. Hún hefur myndskreytt fleiri bækur Barbro Lindgren, til að mynda bækurnar um Dúa en tvær af þeim hafa kom- iö út á islensku. Stjáni er lítill strákur en Stubbur er lítill hundur. Helgi og Matthild- ur eiga þá báða en skilja hvorki litla stráka né hvolpa. Þau eru alltof ströng og smásmuguleg og vilja hafa svo fínt í kringum sig. Stjáni og Stubbur þola þetta ekki og leggj- ast út. Þeir koma ekki heim fyrr en Helgi og Matthildur hafa lofað bót og betrun. Erfið orð Þorsteinn frá Hamri þýddi allar bækurnar. Einhverra hluta vegna hefur hann ekki vandað verkið sem skyldi. Sums staöar eru beinar smekkleysur. Ása kjökrar hástöf- um (Anna og leyndarmálið bls. 11). Nöfnin Goggur og Stubbur eru oft- ast Gogg og Stubb í þágufalh. Nú bjó Branda heima hjá Gogg (Gogg- ur, kisa og gamli maðurinn bls. 31). Á síðu 8 er þágufallsmyndin ýmist Gogg eða Goggi. Verra er að textinn verður of þungur fyrir byrj- endur í lestri vegna þess að í hann er stráð löngum samsettum orðum sem hæglega hefði mátt forðast. Ég tek af handahófi nokkur dæmi úr Goggur, kisa og gamh maðurinn: rauðmálað, útidyrahurðinni, gul- bröndóttur, vatnskranann, grjót- hörð, hríðskalf. Þessi orð eru bein- línis lengd að óþörfu. Þrátt fyrir þennan ágalla eru bækurnar fengur sem viðbótarles- efni í skólum. Á heimilum er hægt að hjálpa treglæsum bömum með erfiðu orðin. Eins henta bækurnar vel til þess að lesa þær upphátt fyr- ir litlu börnin og skoða með þeim myndirnar sem eru svo fallegar. Frágangur er góður, pappírinn vandaður og letrið stórt og skýrt. Vilborg Dagbjartsdóttir ANNA 7 ÁRA. Höfundur: Hans Peterson. Myndir. Ilon Wikland. ANNA OG LEYNDARMÁLIÐ. Höfundur: Hans Peterson. Myndir: llon Wikland. GOGGUR, KISA OG GAMLI MAÐURINN. Höfundur: Gunnel Linde. Myndir: Tord Nygren. STJÁNIOG STUBBUR. Höfundur: Barbro Lindgren. Myndir: Eva Eriksson. Þýðandi allra bókanna: Þorsteinn frá Hamri. Bókaútgáfan lóunn. Heimildir um höfundana: Börnen- es hvem skrev hvad, Politikens Forlag, Köbenhavn, 1974. Að yrkja heiminn Ljóð Sigurðar Pálssonar eru komin ansi langt frá því sem fólk á fyrri hluta aldarinnar lét hljóma í eyrum sér sem ljóð: háttbundin orð um ást, fegurð, þjáningu og vegferð mannsandans í tilverunni. Enn er þó ort um lík efni þó að smíöaaðferðir hafi breyst. Nú er ekki lengur borið fram tilbúið skraut sem við getum hengt upp heldur verðum við sjálf að búast í ljóðnámurnar og sækja þá óunnu fjársjóði sem þar bíða: Verða ljóð- námumenn. Það segir sig sjálft að þessi til- högun gefur lesendum miklu fijáls- ari hendur um túlkun ljóöa en áður var. Ljóðin eru torráðnari en það er enginn einn skilningur réttur og því er ekki hægt að sjá dæmið fyrir sér þannig að skáldiö og les- endur séu í leiknum að fela hlut - þar sem lesandinn á að finna hlut- inn sem skáldið felur í ljóðinu. Les- andinn kemst ekki alltaf að pæling- um skáldsins, heldur smíðar hann sér eigin hugmyndir út frá ljóðun- um. Við þá iðju verður hann alltaf að hafa í huga að orö ljóðsins visa út fyrir sig og eru hlaðin merkingu. Ferð í leigubíl (sbr. „Leigubíll" 43) hefur alít aðra merkingu í ljóði heldur en í blaðafrétt. Regla úr óreiðu Þessi lesandi hér pældi í tveimur meginhugmyndum á meðan hann las Ljóð námu menn: Hugmyndinni um hstina sem mótar brot úr veru- leikanum í varanleg listaverk sem við notum síðan áfram til að skynja veruleikann, og hugmyndinni um eilífa tilveruna andspænis hverf- ulu lífi einstaklingsins. Ljóöin í fyrsta hluta bókar eru um upphaf sagnaritunar og land- nám Islands, hvort tveggja dæmi um óspjallaða náttúru í óreiðu sem maðurinn á eftir að nefna og lýsa með hst sinni. Höfundar fornsagna okkar ganga um ljóðin og hugsa þær setningar sem síðan hafa lifað: „Þeim var ek verst ...“ („Höfundur Laxdælu, 10). Þannig nemur listin landið og mannshugann, kemur skipulagi á óreiðuna og kennir okk- ur að hugsa og skilja heiminn. í „Landnámsljóði" er sagt frá frjóvg- un nýrrar menningar, sægarpinum sem kemur af hafi og: „Úr óskapn- aðardjúpinu rís/hinn lifandi skap- andi klettur ...“ (12) og með í fór er „mærin dökkeyga með hörpuna gróttu/frá vestmönnum komin ...“ Saman nema þau nýtt land, búa til eitthvað nýtt og lifa áfram þó að þau leggist til hvílu í landinu - því að hörpuleikurinn, tákn listarinn- ar, þagnar aldrei. Lífið endurnýjar sig í sífellu en gimsteinar listarinn- ar eru varanlegir. í öörum hluta heldur samspil lífs og hstar áfram í ljóöunum um garð- inn þar sem myndastyttan í fyrsta ljóðinu stendur óhögguð á meöan lífið sveiflast í kring. Garðinn er hægt að túlka sem ímynd siðmenn- Bókmermtír Gísli Sigurðsson Sigurður Pálsson. ingarinnar, reglunnar sem mann- legt félag hefur komið á náttúruna. Þar lifum viö fjölbreytilegu lífinu sem snýst sinn árstíðabundna Hring, kviknar um vor eftir vetur þegar nýtt líf myndast; líf sem hef- ur aldrei verið áður - en er samt eins og það hefur alltaf verið. Áleiðumlífið Áfram er ort um ferð mannsins og drauma. Hann er jafnan í farar- tækjum sem hann hefur enga stjórn á sjálfur: leigubílum og lest- um. Draumamir koma og fara í lestinni þegar glæsikvendið stigur um borð og lætur horfa á sig um stund þangað til hún hverfur skyndilega þegar lestin brunar á milli stöðva - og enginn veit hvern- ig. Og þaö er fjarska htiö sem leigu- bílstjórinn í fyrrnefndu ljóði getur gert fyrir farþega sína annað en að fitla eitthvað viö rúðurnar, mið- stöðina og útvarpiö. Á meðan leita tárin fram þangað til við hefjum okkur til flugs og fljúgum burt. Af lestri ljóðanna vakna spurn- ingar um hvort við getum skynjað tilveruna milliliðalaust eða hvort við sjáum hana alltaf sem listaverk og upplifum hana þannig í gegnum úrvinnslu hstarinnar. í framhaldi af því má svo benda á sítrónutréð sem ort er um. Tréð sem þjappar öllu sínu saman í nokkrar gular sítrónur sem viö fáum okkur sneið af með kólnandi teinu um leið og við horfum á sólarlagið. Hversu margt er líkt meö ljóði skáldsins og sítrónu trésins? Ljóð Sigurðar Pálssonar krefjast þess að lesandinn fari með þeim Út á ljóðvegina og niður í námurnar og vinni úr þeim. Þar er tekist á við stórar spurningar um leið og við njótum fegurðarinnar, ekki bara í skáldskap heldur líka í náttúrunni og mannlífinu í kring- um okkur. Og við þurfum að fylgj- ast vel með orðunum sem leita sér nýrra merkinga og eru sett í óvænt samhengi. Nokkuð sér á parti er ljóðið um köttinn á sjöundu hæð sem hélt að hann væri dúfa (í „Dúfur“, 44-45). Kötturinn sá er í vandræðum með sjálfsímyndina eftir að honum hef- ur mistekist að vera maður og sitja til borðs eins og allir gera sem hann hefur séð í lífi sínu - nema dúfurn- ar sem hann horfir á út um gluggann og finnur til samkenndar með þó að þær sniðgangi hann: Gleymdi sér svo alveg dag einn skömmu fyrir kvöldmat og stökk Þegar hann var lagður til hinstu hvílu í bakgarðinum sátu dúfur í öllum gluggakistun- um Gísli Sigurðsson Siguröur Pálsson Ljóö námu menn Forlagið 1988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.